Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1995
Afmæli
Sigríður Magnúsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir, húsfreyja að
Borgareyrum í Vestur-Eyjafjalla-
hreppi, verður níræð á sunnudag-
inn.
Starfsferill
Sigríður fæddist í Álfhólahjáleigu
í Vestur-Landeyjum og ólst þar upp.
Hún hefur verið húsfreyja að Borg-
areyrumfrál929.
Fjölskylda
Maður Sigríðar var Markús Jóns-
son, f. 6.3.1905, d. 28.7.1988, b. og
söðlasmiður að Borgareyrum.
Böm Sigríðar og Markúsar:
Hulda, f. 24.4.1930, d. 12.10.1987,
húsmóðir í Reykjavík; Hrefna, f.
23.5.1931, fyrrv. gjaldkeri við Lands-
bankann; Magnús Sigurður, f. 26.4.
1932, d. 25.7.1991, rafvirkjameistari
í Reykjavík; Eygló, f. 10.7.1933, hús-
freyja og bóndi að Ystabæli undir
Austur-Eyjafjöllum; Erla, f. 21.11.
1936, húsmóðir í Þorlákshöfn; Ester,
f. 2.2.1940, d. 10.3.1945; Grímur
Bjarni, f. 21.5.1942, vélvirki í Þor-
lákshöfn; Ester, f. 10.7.1944, hús-
móðir í Reykjavik; Þorsteinn Ólaf-
ur, f. 31.1.1946, bóndi á Borgareyr-
um; Ema, f. 9.8.1947, húsmóðir í
Reykjavik.
Systkini Sigríðar: Grímur, f. 1.3.
1907, d. 31.12.1991, læknir; Þor-
steinn, f. 23.1.1910, fyrrv. bóndi; Sig-
urður, f. 12.5.1912, d. 1923; Magnús,
f.11.4.1917, d. 14.10.1989, sér-
kennslufulltrúi; Bjarni, f. 9.9.1919,
húsasmíðameistari; Magnþóra, f.
17.7.1921, húsfreyja.
Foreldrar Sigríðar vocu Magnús
Bjamason, f. 17.8.1877, d. 17.7.1921,
b. og kennari á Álfhólshjáleigu í
Vestur-Landeyjum, og k.h., Þóra
Þorsteinsdóttir, f. 26.9.1884, d. 1966,
húsfreyja á Álíhólshjáleigu og síðar
á Amarhóh í Vestur-Landeyjum.
Ætt
Magnús var sonur Bjarna, b. á
Kálfsstöðum, Magnússonar, b. á
Fagurhóli, bróður Guðrúnar, móð-
ur Andrésar, hreppstjóra og for-
manns í Hemlu, fóður Magnúsar í
Hvítanesi og Andrésar klæðskera.
Magnús á Fagurhóli var sonur Guð-
laugs, b. í Hemlu, Bergþórssonar og
Margrétar Ámadóttir, b. á Kálfhóli,
Magnússonar. Móðir Bjarna á
Kálfsstöðum var Þuríður Ólafsdótt-
ir.
Móðir Magnúsar í Álfhólshjáleigu
var Gróa Bjarnadóttir, b. í Ey í Vest-
ur-Landeyjum, Sveinssonar, b. á
Svarfhóli, Eiríkssonar. Móðir Gróu
var Ólöf, systir Áma, foður Ólafs,
fóður Siguijóns myndhöggvara og
Gísla bakarameistara, foður Erlings
leikara. Ólöf var dóttir Eiríks, b. á
Mosastöðum, Guðmundssonar og
Sigríðar, systur Haildórs, langafa
Svanhildar, móður Sigurgeirs bisk-
ups, fóður Péturs biskups. Sigríður
var dóttir Ólafs Jónssonar, b. í
Hreiðurborg í Flóa, bróður Hannes-
ar, ættfóður Kaldaðarnesættarinn-
ar, langafa Bjarna Sæmundssonar
fiskifræðings.
Þóra var dóttir Þorsteins, b. í Álf-
hólahjáleigu, bróður Bergsteins, afa
Sigurðar sýslumanns og Bergsteins
brunamálastjóra. Systir Þorsteins
var Ólöf, móðuramma Ólafs G. Ein-
arssonar þingforseta. Þorsteinn var
sonur Ólafs, b. á Árgilsstöðum, Am-
bjömssonar, b. á Flókastöðum,
bróður Páls, afa Þorsteins Erlings-
sonar skálds. Ambjörn var sonur
Ólafs, b. í Kvoslæk, Ambjörnsson-
ar, ættfoður Kvoslækjarættárinnar
Eyjólfssonar.
Móðir Þóm var Sigríður, hálfsyst-
ir Ólafs ljósmyndara, afa Davíðs for-
sætisráðherra. Sigríður var dóttir
Odds, hreppstjóra á Sámsstöðum
Eyjólfssonar, b. á Torfastöðum í
Fljótshlíð, Oddssonar. Móðir Eyjólfs
var Margrét Ólafsdóttir, b. á Fossi
á Rangárvöllum, Bjarnasonar, ætt-
fóður Víkingslækjarættarinnar,
Sigríður Magnúsdótlir.
Halldórssonar. Móðir Sigríðar var
Ragnhildur Benediktsdóttir, b. í
Fljótsdal í Fljótshlíð, bróður Helgu,
ömmu Þorsteins Erlingssonar
skálds. Benedikt var sonur Erlings,
b. í Fljótsdal, Guðmundssonar, af
ætt Guðbrands Þorlákssonar bisk-
ups.
Sigi'íður tekur á móti gestum að
Bláhömrum 4 í Grafarvogi í Reykja-
vík á afmælisdaginn, sunnudaginn
30.4.nk.,kl. 15.00-18.00.
85 ára
50 ára
Þóra Finnbogadóttir,
Skaftahlíð 5, Reykjavik.
Sigurður Ásgeirsson,
Reykjum, Lundareykjadalshreppi.
80 ára
Concordia K. Níelsson,
Hátúni 10, Reykjavik.
Margrét Kristófersdóttir,
Maríubakka, Skaftárhreppi.
75 ára
Gunnar Sigurðsson,
Hringbraut 38, Hafnarfirði.
Haraldur Guðmundsson,
Grandargötu 1, Dalvík.
Jóhann Pétursson,
Smáratúni 21, Keflavík.
Ása Páisdóttir,
Blönduhlíð 28, ReVkjavík.
70 ára
Jóhann Kristinn Gunnarsson,
Garðarsbraut 57, Húsavík.
60ára
Jóhanna Kristín Guðmundsdótt-
ir,
Krókatúni 13, Akranesi.
Kristín Sigurlásdóttir,
Hásteinsvegi 60, Vestmannaeyjum.
Gyöa Þórarinsdóttir,
Hvassaleiti 34, Reykjavík,
Óli KarloOlsen,
Hlaðbæ 7, Reykjavík.
Snorri Hjálmarsson,
Syðstu-Fossum, Andakílshreppi.
Már Sigurðsson,
Hótel Geysi, Biskupstungnahreppi.
Indíana Friðriksdóttir,
Furuhjalia 6, Kópavogi.
Sigurrós Gunnarsdóttir,
Kögurseli 24, Reykjavik.
Halidór Guðmundsson,
Hvammi, Ölfushreppi.
40ára
Viðar Guðmundsson,
Engihjalla 17, Kópavogi.
Hólmfriður Guðrún Pálsdóttir,
Fögrabrekku 15, Kópavogi.
ÞórirÞórisson,
Hverflsgötu 49, Reykjavík.
Bry njar Bragason,
Reykási23, Reykiavík.
Jón Ragnar Hjaltason,
Ytra-Garðshorni, Svarfaðardals-
hreppi.
Ófeigur Jónsson,
Hásteinsvegi 44, Stokkseyri.
Haraidur Gunnþórsson,
Hrísalundi 6 G, AkureyrL
Dóra Sólrún Kristinsdóttir,
Miöbraut 7', Seltjarnamesi.
Maria Lovísa
Ragnarsdóttir,
fatahönnuður
ogkaupmaður,
Iðnbúð 5,
Garðabæ.
Vegna 40 ára
afmælis fyrirtækisins
lokum við versluninni kl. 17 í dag og
verðum þar með móttöku fyrir við-
skiptavini og velunnara milli kl. 18 og 20.
Bílavörubúóin
UÖDRIN
Skeifan 2 sími 588 2550
Gylfi Jónsson
Gylfi Jónsson prestur, Flókagötu 62,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Gylfi fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MA1965, kennaraprófi frá KÍ
1966, embættisprófi í guðfræði frá
HÍ1973 og stundaði nám í trúar-
bragðafélagsfræði við háskólann í
Uppsölum 1973-74.
Gylfi var stundakennari við Álfta-
mýrarskólaogHvassaleitisskólaí .
Reykjavík 1966-70, kennari í ís-
lensku við námsflokka Uppsalahá-
skóla 1973-74, stundakennari við
Gagnfræðaskólann á Höfn í Horna-
firði 1974-77 og við Nesjaskóla í
Hornafirði 1974-78. Hann var settur
sóknarprestur í Staðarfellspresta-
kalli í Köldukinn 1973, þjónaði í
Gottsundafórsamling í Svíþjóð
1973-74, var sóknarprestur í Bjama-
nesprestakalli í Austur-Skaftafells-
sýslu 1974-82, rektor Lýðháskólans
í Skálholti 1982-85, aðstoðarprestur
í Seljasókn í Reykjavík 1985-87,
heimilisprestur Elh- og hjúkrunar-
heimihsins Grundar í Reykjavík
1986-88 og safnaöarprestur í Grens-
ássókn í Reykjavík frá 1988-94.
Gylfi var formaður Stúdentaráðs
HÍ, var formaður skólanefndar
Nesjaskóla, sat í fræðsluráði Aust-
urlands og hefur verið umdæmis-
stjóri Lionshreyfmgarinnar.
Fjölskylda
Fyrri kona Gylfa var Þorgerður
Sigurðardóttir, f. 28.11.1945, kennari
og myndlistarmaður.
Seinni kona Gylfa er Solveig Lára
Guðmundsdóttir, f. 13.11.1956, sókn-
arprestur á Seltjarnarnesi. Hún er
dóttir Guðmundar Benediktssonar,
fyrrv. ráðuneytisstjóra, og k.h.,
Kristínar Claessen hjúkrunarritara.
Sonur Gylfa og Þorgerðar er Jón
Gunnar, f. 30.3.1973, nemi.
Börn Solveigar Láru af fyrra
hjónabandi eru Benedikt Hermann
Hermannsson, f. 31.1.1980; Kristín
Anna Hermannsdóttir, f. 7.7.1988;
Vigdís María Hermannsdóttir, f.
Gylfi Jónsson.
13.7.1990.
Foreldrar Gylfa: Jón Helgason, f.
11.9.1910, fyrrv. verkstjóri Skógerð-
ar Iðunnar á Akureyri, og Petron-
ella Pétursdóttir, f. 4.8.1911, d. 22.6.
1987, húsmóðir.
Guörún S. Sigurðardóttir - Dúra
Guörún S. Sigurðardóttir, húsmóðir
og verkakona, Hhðarvegi 48, Njarð-
vik,ersjötugídag.
Starfsferill
Guðrún fæddist í Ártúni í Vest-
mannaeyjum en ólst upp í Keflavík
og í Gaulveijabæjarhreppi. Auk
húsmóðurstarfanna hefur hún
stundað ýmis almenn verkamanna-
störf.
Guðrún hefur vérið félagi í St.
Georgsgildi Suðurnesja, í Vest-
mannafélagi á Suðumesjum og i
Kvenfélagi Njarðvíkur.
Fjölskylda
Guðrún giftist 1.6.1946 Jóni A.
Valdimarssyni, f. 5.2.1922, vél-
virkjameistara. Hann er sonur
Valdimars Gíslasonar, múrara-
meistara í Vestmannaeyjum og
Keflavík, og Helgu Jónsdóttur hús-
móður sem bæði era látin.
Börn Guðrúnar era Bjarni Valtýs-
son, f. 25.6.1943, forstjóri í Keflavík,
var kvæntur Esther Olafsdóttur
sem lést 1994 og eignuðust þau tvær
dætur auk þess sem Esther átti eina
dóttur fyrir; Helgi Valdimar Jóns-
son, f. 1.3.1946, d. 13.6.1968, vél-
virkjanemi á Siglufirði, var kvænt-
ur Dröfn Pétursdóttur og eignuðust
þau tvö börn auk þess sem Dröfn á
tvö böm með sínum seinni manni;
Sigurbjörg Jónsdóttir, f. 9.8.1950,
starfsmaður Flugleiða, búsett í Vog-
um, gift Viðari Pétur ssyni og eiga
þau þijú böm; Ásdís Jónsdóttir
Schultz, f. 26.3.1955, atvinnurekandi
í Michigan í Bandaríkjunum, gift
Donald Schultz og á hún tvö böm
með sínum fyrri manni; Guðbjörg
Jónsdóttir, f. 9.3.1958, húsmóðir í
Njarðvík, gift Þórði Ragnarssyni og
eigaþauþijúböm.
Systkini Guðrúnar eru Ólöf Lilja
Sigurðardóttir, verkakona í Kefla-
vík, var gift Davíð Gíslasyni sem er
látinn; Marteinn Brynjólfur Sig-
urðsson, vélvirki og vélstjóri í
Njarðvík, kvæntur Guðfinnu Jóns-
dóttur; Friðrik Hafsteinn Sigurðs-
son, nú látinn, vélstjóri í Reykjavík,
var kvæntur Stellu Friðriksdóttur
en fyrri kona hans var Jóna Þor-
finnsdóttir; Gunnlaugur Kjartan
Sigurðsson, vélstjóri og skipstjóri í
Keflavík, kvæntur Erlu Siguijóns-
dóttur.
Guðrún S. Sigurðardóttir.
Hálfsystir Guðrúnar, samfeðra,
var Ósk Sigurrós Sigurðardóttir
húsmóðir, nú látin, var gift Sigurði
Ágústssyni.
Foreldrar Guðrúnar voru Sigurð-
ur Sigurösson, f. 13.6.1895, d. 21.2.
1984, vélstjóri í Keflavík, og Guð-
björg Brynjólfsdóttir, f. 22.10.1897,
d. 8.1.1980, húsmóðir.
Guðrún tekur á móti gestum í Vík-
inni, Hafnargötu 80, Keflavík, laug-
ardaginn 29.4. milli kl. 15.00 og 19.00.