Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1995, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995
19
Reyndum hvað við gátum
en áttum ekkert svar
- sagði Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari eftir leikinn
„Þeir voru mun betri en viö í þess-
um leik. Viö reyndum hvað viö gát-
um en áttum ekkert svar. Sigur
þeirra var þó allt of stór að mínu
áliti. Mér fannst við leika vel í 35
mínútur, sérstaklega í vöminni. En
sókn okkar réð ekki við sterka vörn
þeirra í síðari hálfleik og þeir refsuðu
okkur með hraðaupphlaupum. Rúss-
ar léku mjög vel, mun betur en áður
í keppninni og við réðum einfaldlega
ekki við þá,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, þjálfari íslenska landshðs-
ins, á þlaðamannafundi eftir tapleik-
inn í gærkvöldi.
„Undirbúningur var
góður og markviss"
„Ég vil meina að allur imdirbúning-
ur hafi verið góður og markviss. Við
erum með bestu handboltamenn ís-
lands að undanskildum Héðni Gils-
syni, sem er meiddur. Það var slæmt
að hafa ekki Héðin, sérstaklega í leik
sem þessum, því hann er okkar
stærsta skytta og getur skotið yfir
hávaxna vöm. Þaö var vitað að 16
Uða úrshtin mundu skipta öUu máU
og það var óheppni að lenda gegn
Rússum. Við getum ekki ætlast til
að vinna Rússa í heimsmeistara-
keppni eða ólympíuleikum. En við
mætum ótrauðir í næsta leik,“ sagði
Þorbergur.
„Bæði liðin
voru undir
pressu"
sagði Vladimir Maximov
„Þetta var erfiðari leikur en töl-
urnar segja til um. íslenska Uöið
baröist aUan tímann þó að leikur-
inn væri tapaður. Bæði Uð voru
undir pressu þvi leikurinn var gíf-
urlega mUdlvægur. Pressan var
meiri á íslenska liðinu og það kom
berlega Tljós því nokkrir leikmenn
þess léku undir getu sem betur fer
fyrir okkur. Víð mætum nú Þjóö-
verjum og það verður mjög erfiður
leíkur," sagði Vladimir Maximov,
þjálfari Rússa, eftir leikinn.
Undirbúningurinn
betri en áöur
„Ég veit ekki hvað er hægt að segja
eftir svona leik. Undirbúningurinn
hefur verið góður fyrir alla leikina
og betri en áður. Láðið er í góðri
æfingu en það er eitthvað sem
brestur, en ég get ekki útskýrt það
nánar. Við ætlum ekki aö gefast
upp og berjumst áfram,“ sagöi Geir
Sveinsson, fyrirliði islenska lands-
Uðins.
Ægilegur
skellur
„Þetta var ótrúlegur endir og ægi-
legur skeUur eftir góðan fyrri hálf-
leik. Okkur fannst við ekki vera
með síðra lið en þeir og ætluöum
okkur sigur. Eg er mjög ánæðgur
með fyrri hálfleikinn og viö vorum
óheppnir að vera ekki með betri
stöðu þá. Þeir skiptu um vöm í síð-
ari hálfleik og þá gekk ekkert upp.
Þeir áttu toppleik og við áttum ekk-
ert svar við þvi. Þá höfðum við
enga heppni með okkur og mér
fannst dómgæslan frekar með þeim
í tæpum atriðum. Nú verður við
aö klára næsta leik og tryggja okk-
ur sæöð dýrmæta í Japan,“ sagði
Valdimar Grímsson eftir leikinn.
Sóknarleikurlnn
brást í leiknum
„Það var fyrst og fremst sóknin
sem brást í þessum leik og liðið
skorar ekki nema 4 mörk í síðari
hálfleik sem er afleitt Það er rot-
högg að tapa með svona míklum
mun. Fyrrí hálfleikur var prýöileg-
ur en jafnframt mjög erfiöur og þaö
var eins og strákamir hefðu ekki
kraft í síðari hálfleik. Það em
margar spurningar sem vakna eftir
síðustu 3 leUú. Liðiö er greinilega
ekki á toppnum á réttum tíma og
það er ekki nógu gott. Framhaldið
veröur erfitt en ég vona að Uðið
komi til,“ sagöi Kristján Arason,
fyrrum landsUösmaöur, eftir leik-
inn.
Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari svarar spurningum á blaða-
mannafundi eftir ieikinn gegn Rússum í gærkvöldi.
DV-mynd Brynjar Gauti
Þorgils Óttar Mathiesen:
Menn hafa
enga afsökun
„Ég er að sjálfsögðu mjög
óánægður. Leikirnir gegn S-Kóreu
og Sviss vora vonbrigði og afleiðing-
in var sú að við lentum á móti Rúss-
um. Við þurftum því að snúa Uðinu
í nýjan gír vegna þess að tveir lélegir
leikir í röð kalla á ákveðin átök og
ætla að fara snúa Uðinu gjörsamlega
við á móti Rússum var kannski of
mikið,“ sagði Þorgils Óttar Mathies-
en, formaður landshðsnefndar, eftir
leikinn.
„Menn hafa enga afsökun. AUur
undirbúningur var eins og best verð-
ur á kosið. Það er margt sem hefur
brugðist hjá Uðinu, sóknin, vörnin,
markvarslan og okkur hefur vantað
hraðaupphlaupin. Nú verða menn
bara að mta á jaxlinn og skilyrðis-
laust eiga menn að stefna á 9. sætið.
Það er krafa úr því sem komið er.
Heiðurinn er í veði og það skiptir
auðvitað máli í handboltaheiminum
hvar við erum á heimshstanum upp
á þátttöku í mótum og fleira," sagði
Þorgils.
Andrey Lavrov:
„Ég átti ekki von á því að við mynd-
um vinna leikinn með svona miklum
mun en við náðum upp frábærri vöm
í síöari hálfleik og náðum að bijóta
niður íslenska Uðið. Það var óþægi-
legt fyrir íslenska Uðið að þurfa að
mæta okkur í 16-Uöa úrsUtunum.
Þetta var besti leikur okkar í keppn-
inni og við eigum vonandi eftir að
gera enn betur í mótinu," sagði An-
drey Lavrov, markvörður Rússa, eft-
ir leikinn.
„Sóknarleikurinn hef ur verið
vandamál undir stjórn Þorbergs“
- segir Viggó Sigurösson, þjálfari Stjömunnar
Viggó Sigurðsson.
„Fyrri hálfleikurinn var góður
en svo virðist sem sú barátta hafi
kostað mikla orku. Frammistaða
Uðsins hlýtur að teljast mikfi von-
brigði. Ég get ekki svarað því hvers
vegna Uðið er að leika svona Ula,
það er þjálfarans að segja frá því.
Sóknarleikurinn hefur hins vegar
verið vandamál frá því að Þorberg-
ur tók við Uðinu," sagði Viggó Sig-
urðsson, þjálfari Stjörnunnar, í
samtaU við DV eftir leikinn í gær-
kvöldi.
„Nú er það ljóst að við verðum
ekki með á stórkeppnum næstu
þijú árin og því komnir á byijunar-
reit. Það er alveg ljóst að einhver
endumýjun verður á Uðinu fyrir
næstu keppni. Rússamir era að
koma upp núna, vaxa með hveijum
leik, og það kæmi mér ekki á óvart
að þeir kæmust aUa leið í úrsUta-
leikinn," sagði Viggó.
íþróttir
Túnis villHM '99
Túnis hefur sótt um að fá að
halda heimsmeistarakeppnina í
handknattleik árið 1999. Tún-
isbúar hafa staðið sig frábærlega
í keppninni hér og komið einna
mest á óvart. Forráðamenn tún-
iska sambandsins eru því bjart-
sýnir aö þeir fái gestgjafahlut-
verkið eftir 4 ár, en langt er þó í
að málið sé komið í höfn.
Kúba fékk stuðning
Kúbumenn fengu heldur betur
stuðning frá áhorfendum í Laug-
ardalshöU í gær þegar þeir léku
gegn Svisslendingum. Rúmlega 2
þúsund áhorfendur voru mættir
í Höllina og létu vel í sér heyra.
Hvöttu þeir Kúbumenn með
miklum látum og bauluðu óspart
á svissnesku leikmennina. Þessi
hvatning hleypti Kúbumönnum
langt í leiknum en þeir urðu þó
að játa sig sigraða eftir æsispenn-
andi lokamínútur og óhagstæða
dómgæslu.
Alsírbúar grófastir
íslenska landsliðið er í 11. sæti
í keppninni um prúðasta Uöiö á
HM. íslendingar hafa fengið 24
brottvísanir í kepnninni og verið
utan vallar í 48 mínútur. Alsírbú-
ar era í neðsta sæti en þeim hefur
verið vísað af leikvelli í samtals
76 minútur, 6 mínútum oftar en
Rúmenum, sem eru næstir. Suð-
ur-Kóreubúar eru sem fyrr prúð-
astir en þeir hafa verið aðeins 28
mínútur utan vallar.
Lækka núðarnir?
Verð aðgöngumiða hefur verið
mikið til umræðu frá því heims-
meistarakeppnin hófst og mörg-
um hefur fundist verðið hátt. í
kjölfar ófara íslenska Uðsins er
reiknað með að miðaverðið lækki
nokkuð á næstu leiki.
Fatalisti, kr. 350
Nýr tækjalisti, kr. 850
Blaðalisti, kr. 850
Videolisti, kr. 850
Sendingarkostnaður
innifalinn
vör
Erótík Unaðsdraumar
Pöntunarsími: 96-25588
Póstsendum vörulista
hvert á land sem er!