Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1995, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ1995
Fréttir
Úttekt á tekjum menningarvita:
Orn Arnason með
hæstar tekjur
- Sigurjón Sighvatsson 1 ööru sæti
DV kannaði hveijar tekjur nokk-
urra menningarvita voru á síðasta
ári og kom þá í ljós að Öm Árnason
leikari var þeirra tekjuhæstur. Jók
hann tekjur sínar um meira en
hundrað þúsund krónur frá árinu
áður og var með meðalmánaðartekj-
ur upp á 742 þúsund. Næstefstur á
listanum er Siguijón Sighvatsson
kvikmyndagerðarmaður og er hann
nokkuð tekjuhærri en koOegar hans
sem starfa á íslandi. Var hann með
mánaðartekjur upp á 563 þúsund.
Næsti kvikmyndagerðarmaður á eft-
ir honum var Friðrik Þór Friðriks-
son með 153 þúsund krónur í mánað-
artekjur.
Margir hefðu haldið að ekki væri
vænlegt að gerast listamaöur og
menningarviti ef menn vildu fá góö
laun. Tekjurnar virðast þó stundum
ágætar þótt ekki sé það reglan. Ath
He’imir Sveinsson var með góðar
tekjur af tónskáldi að vera, 330 þús-
und krónur á mánuði. Einar Kárason
rithöfundur var með 250 þúsund á
mánuði. Bessi Bjamason leikari var
með 327 þúsund, Egill Ólafsson
söngvari var með 315 þúsund og
Bergþór Pálsson söngvari var með
336 þúsund.
Ekki vora allir með svona há laun.
Ásdís Thoroddsen var með 41 þúsund
krónur og Kristján Davíðsson hst-
■ málari var með 61 þúsund krónur á
mánuði. -GJ
Afkoma ríkissjóðs fyrri hluta ársins:
Hallinn einum milljarði
minni en reiknað var með
- 7,5 milljaröa halh á seinni hluta ársins
Fjármálaráðuneytið kynnti í gær
afkomutölur fyrir ríkissjóð á fyrri
hluta þessa árs. Heildartekjur þess
tíma námu 56,3 mihjörðum en hehd-
argjöld námu 61,6 milljörðum.
Rekstrarhalli nam því 5,3 mhljörðum
sem er 1,1 milljarði króna betri af-
koma en reiknað hafði verið með.
Betri niðurstaða skýrist fyrst og
fremst af auknum tekjum. Þannig
komu 800 milljónir í viðbótartekjur
af tekju- og eignarsköttum.
Miðað við afkomu rhcissjóðs á fyrri
helmingi þessa árs má gera ráð fyrir
að rekstrarhalh ársins verði svipað-
ur og áætlaö var í fjárlögum eða um
7,5 milljarðar króna.
Mest umframkeyrsla í heil-
brigðisráðuneytinu
HeUdargjöldin, tæpir 62 milljarðar,
eru í samræmi við áætlun. Rekstrar-
gjöld stofnana urðu um 450 miUjónir
króna umfram áætlun. Mest fór heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið
fram úr áætlun eða um 380 miUjónir.
Mestu munar þar að ríkisspítalarnir
og Borgarspítahnn fóra 280 milljónir
fram úr áætlun.
Rekstrartilfærslur, þ.e. trygginga-
greiðslur, niðurgreiðslur og framlög,
reyndust um 550 mhljónir umfram
áætlun. Þar vega umframgreiðslur
lífeyris- og sjúkratrygginga lang-
þyngst eða um 870 milljónir. Vaxta-
gjöld era í samræmi við áætlun. Við-
hald og stofnkostnaður era samtals
1.020 mUljónum innan áætlunar.
Erlend lántaka meiri
Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs nam
12,4 milljörðum króna á tímabUinu
og verg lánsfjárþörf var 21,2 núlljarð-
ar. Það er 1,8 milljörðum króna
minni lánsfjárþörf en áætlað var og
skýrist af minni rekstrarhaUa og
minna útstreymi af viöskiptareikn-
ingum. Lántökur reyndust um 2,2
mhljörðum minni en gert var ráð
fyrir. Lánsfjárþörfm lækkar um 2,6
mUljarða miðað við sama tíma í fyrra
þar sem aíborganir lána era minni í
ár.
í máh Friðriks Sophussonar fjár-
málaráðherra á blaðamannafundi
kom fram að áform ríkissjóðs um
lántökur innanlands hefðu ekki
gengið eftir og því verið leitað á er-
lendan lánamarkaö. Reiknaö hafði
verið meö 11,7 miUjarða erlendri lán-
töku en útkoman varð 16,5 miUjarð-
ar, 3,3 mUljörðum meira en á sama
tíma í fyrra.
-bjb
Vífilfell innkallar kókflöskur:
Botn á plastf löskum sprakk
„Við urðum að innkaUa aUa fram-
leiðslu dagsins 18. júlí af kóki í plast-
flöskum þvl í ljós kom galh í svoköll-
uðu „preformi". Þegar plastflösk-
umar undir gosdrykkina era mótab-
ar eru notuð „preform" frá Banda-
ríkjunum en þessi umrædda sending
af „preformum" var göUuð og botn-
inn á plastflöskunum átti það tU að
springa.
AUs vora það um 5000 plastflöskur
sem reyndust gallaðar en öU fram-
leiðsla dagsins var innkölluð og yið
eram algerlega búnir að uppræta
vandann," sagði Erla Pétursdóttir,
upplýsingafuUtrúi hjá Vífilfelh, við
DV.
Tekjjur menningarvita
742,488
5G2.509
335.924
329.588
314.793
249.782
213.370
162.626
152.941
149.808
148.312
126.335
123.423
118.813
114.519
111.460
92.495
89.958
85.812
80.231
80.358
60.520
41.104
- mánaðartekjur á árinu 1994
Örn Árnason
Sigurjón Sighvatsson
Bergþór Pálsson
Atli Heimir Sveinsson
Egill Ólafsson
Einar Kárason
Róbert Arnfinnsson
Garöar Cortes
Friörik Þór Friðriksson
Þórarinn Eldjárn
Guöbergur Bergsson
Hrafn Gunnlaugsson
Steinunn Siguröardóttii
Thor Vilhjálmsson
Karl Ágúst plfsson
Þórhildur Þorleifsdóttir
Fríöa Siguröardóttir
Siguröur Pálsson
Þráinn Bertelsson
Sigrún Hjálmtýsdóttir
Vigdís Grímkdóttir
Kristján Davíösson
Ásdís Thoroddsen
200.000
400.000
600.000
800.000
Alþýðubandalagið:
Framboðsfrestur
vegna kjörs varafor-
manns framlengdur
Alþingismennimir Margrét Frí-
mannsdóttir og Steingrímur J. Sig-
fússon hafa tilkynnt yfirkjörstjórn
Alþýðubandalagsins að þau yrðu í
framboði til formennsku í Alþýðu-
bandalaginu á landsfundi flokksins
um miðjan október en engin önnur
framboð bárast. Steingrímur skilaði
tilskildum fjölda meðmælenda til yf-
irkjörstjórnar Alþýðubandalagsins
fyrir nokkra og stuðningsmenn
Margrétar gerðu það skömmu áður
en framboösfrestur rann út á hádegi
í gær.
Formannskjöriö í Alþýðubanda-
laginu verður bréflegt, þar sem allir
flokksmenn eiga kosningarétt, og fer
það fram dagana 29. september til 13.
október. Landsfundurinn stendur frá
12.-15. október og verða atkvæði tahn
eftir hádegi 13. október.
Framboðsfrestur í varaformanns-
kjöri flokksins hefur verið fram-
lengdur til hádegis 10. ágúst þar sem
ekkert framboð til varaformanns
hefur komið fram. Varaformaður
telst sjálfkjörinn komi aðeins eitt
framboð áður en framboðsfrestur
rennur út. Berist mörg framboð
verður varaformannskjör samhliða
formannskjöri á landsfundinum.
Berist engin framboð til varafor-
manns verður kosið um varafor-
mann eftir að formannskjörið skýr-
ist.
-GHS
Margir smábátar farast:
Óeðlilega
mikið og veld-
ur áhyggjum
- segir lögregla á Patreksfirði
„Það er óeðlilega mikið um þetta
og veldur okkur áhyggjum þó menn
hafi sloppið fram að þessu. Það flokk-
ast undir heppni að ekki skuli hafa
orðið mannskaði," segir Jónas Sig-
urðsson, aöalvarðstjóri hjá lögregl-
unni á Patreksfirði, um þann fjölda
skipskaða undanfarin ár þar sem
smáhátar hafa komið við sögu.
-rt
\T-\
Snurvoðarbáturinn Árni Jóns BA dró trilluna Hilmi að landi eftir að henni hvolfdi út af Vestfjörðum. Eigandi báts-
ins komst í gúmbjörgunarbát og var bjargað um borð í Elsu BA. DV-mynd Gunnar Óli