Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1995, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 28. JÚLÍ1995
Neytendur
Tampico svaladrykkurinn býðst
nú íslenskum neytendum I fyrsta
sinn
Tampicoá
íslenskart
markað
Sól hf. hefur hafið framleiöslu
og sölu á nýjum svaladrykk frá
Bandaríkjunum sem heiiir
Tampico. Drykkurinn þykir
ööruvísi á bragöið en flestir þeír
drykkir sem íslendingar þekkja á
markaðnum.
Að sögn talsmanna Sólar hf.
nýtur Tampico vaxandi vinsælda
í Bandaríkjunutn og nýlega er
hafm framleiðsla og dreifing á
honum í Evrópu.
Tampico veröur boöinn i 1 lítra
plastflöskum og verða í upphafi
2 bragðtegundir, Tampico Sítrus
og Tarapieo Karíba og kostar
flaskan á bilinu 110-120 kr. út úr
búö.
Uncle Ben’s sösur eru ekki i
hœttu vegna reglugerðar EES
um bandarisk matvæli, enda all-
ar næringargildisupplýsingar
réttar þar á bæ.
Uncle Ben’s sósur:
Standast
EES-ákvæðin
Eins og fram kom í DV síðast-
liðinn þriðjudag er nokkur hætta
á því að vissar bandarískar raat-
vörur muni detta út af íslenskum
matvælamarkaöi eða að öðrum
kosti hækka veruloga í verði ef
samræmd reglugerö EES um
umbúðamerkingar á matvælum
gengur í gildi.
Meö greininni var mynd af
Uncle Ben's sósum og undir
henni stóö að þær væru meðal
þeirra vara sera væra í „áhættu-
hópi". Þetta er þó sem betur fer
ekki rétt. Uncle Ben's sósurnar
koma hingað til lands frá Evrópu
og uppfylla þar af leiöandi öll
skilyrði EES. Allar nauösynlegar
upplýsingar um næringargildi
koma sem sagt nú þegar fram á
krukkunum þannig aö þessi vara
mun hvorki hækka né detta út
af markaði.
Hins vegar eru Uncle Ben’s
hrísgrjón meðal þeirra vara sem
ekki uppíylla þessi EES-skilyröi
og er það ástæðan fyrir þessum
misskilningi.
Þess má svo getaað í grein, sem
kemur frá Unde Ben’s verk-
siniðjunum, kemur fram að ís-
lendingar neyti mest allra Evr-
ópubúa af Uncle Ben’s sósunmn
miöað við höfðatölu.
Kirkjubæjarklaustur
Uxi '95
-- \ Fjolskylduhatið ; Aita
? Vopnaflöröuró / /
V./ VoDnafiaröardaear y
h VopnafjaröardagarVw^ v
Hrafnagil Neskaupstaöur ( ■ ,.
Neistaflug
namót Helgi magri
Hellnar
Snæfellsás
Galtalækur M■
^BindindismóK ^ —.....—~
’ ' ■ 1 ~~~
Vík f Mýrdal
Rölskylduhátíð
Þjóðhátíð
Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi um verslunarmannahelgina og þá er bara að vona að veðurguðirnir bregð-
ist ekki.
Útihátíðir í öllum
landshlutum
Eins og sést á kortinu verða útihá-
tíöir í öllum landshlutum um versl-
unarmannahelgina. Auðvitað eru
þær misstórar og af misjöfnum toga.
Búist er viö miklum fjölda á tónlist-
arhátíðinni Uxa ’95 sem haldin verð-
ur á Kirkjubæjarklaustri og eins og
vanalega á þjóðhátíðina í Vest-
mannaeyjum og Síldarævintýrið á
Siglufirði sem hefur skapað sér
fastan sess. Þá er einnig búist viö
mörgum á fjölskylduhátíð á Akur-
eyri og í Vík í Mýrdal, Neistaflugið
í Neskaupstað aö ógleymdu bindind-
ismótinu í Galtalæk sem er fastur
liður hjá mörgum um þessa útivist-
arhelgi. í Vatnaskógi verður mót, á
Vopnafirði og Borgarflrði eystra.
Þá verður mannræktarmót á
Hellnum á Snæfellsnesi, kajakmót í
Flókalundi, ættarmót að Hrafnagili í
Eyjafirði, kántríhátíð á Skagaströnd,
hestamannamót á Vindheimamel-
um, flugmót í Múlakoti og landsmót
hvítasunnumanna í Kirkjulækjar-
koti í Fljótshhð.
DV
Númerítí-
kallasíma
Margir kannast við það erlendis
frá að tíkallasímar eru þar ekki
siður noinðir til þess að hringja
í en tll þess að hringja úr. Þar era
símanúmerin gefin upp á tíkalla-
símunum og mönnum þanníg
geflnn t.d. kostur á að hringja í
símboða og láta hringja í síg í tí-
kallasímann. Hér á landi hefur
ekki verið boðið upp á þessa þjón-
ustu og ómögulegt er með öliu að
fá uppgefm númer i tíkallasim-
Að sögn Guðbjargar Gunnars-
dóttur, upplýsingafulltrúa Pósts
og síma, eru ýmsar tæknilegar
hindranir sem standa í veginum
fyrir þessari tækni. Eitt vanda-
máhð, sem nefnt hefur verið, er
að menn misnoti sór þjónustuna
og lrnngi „collecf ‘ úr símanum á
kostnað skattgreiðenda.
Guðbjörg sagði þó að hugmynd-
in um aö gefa fólki kost á þessari
þjónustu hefði ekki verið rædd
mikið innan stofnunarmnar.
Nýjar pakkn-
ingar hjá M.S.
Mjólkursamsalan mun á næst-
unni hefja sölu á Flóridanasöfum
og Garpi i 1/4 i pakkningum sem
mnnu leysa af hólmi fyrri um-
búðir þessara drykkja, hinar svo-
kölluðu mjónur.
Hægt verður að kaupa fcrnum-
ar í stykkjatali og einnig í sex
eininga fjölskyldupakkningum,
en þá er hver ferna ódýrari.
Breytingar þessar munu ganga í
gildi á næstu vikum.
Ókeypis á þrjár hátíðir um
verslunarmannahelgina
- dýrast á Uxa, 7.900 kr.
- verslunarmannahelgin 1995
Aögangseyrir
Mjög misdýrt er á útihátíðir um
verslunarmannahelgina. Samtals
eru hátíðimar sautján, eins og sjá
má annars staðar hér á síðunni, en
neytendasíðan geröi óformlega verð-
könnun á milli þeirra átta hátíða sem
reikna má með aö verði hvað fjölsótt-
astar. Þó er að sjálfsögðu erfitt að spá
um hvert fólk mun streyma, þar sem
veöur og fleira spilar inn í, en sam-
kvæmt reynslunni og heimildum
neytendasíðunnar verða eftirfarandi
hátíðir stærstar: Bindindismótið í
Galtalæk, Snæfeflsás, Síldarævintýr-
ið á Sigluflrði, Neistaflug í Neskaup-
stað, Uxi, Þjóðhátíð í Eyjum, Halló,
Akureyri og fjölskylduhátíðin í Vík
í Mýrdal.
Dansleikir kosta
Á þremur þessara hátíða kostar
ekki neitt inn á svæðið, eins og sjá
má á meðfylgjandi töflu, en á tveimur
þeirra kosta einstakir liöir þó eitt-
hvað. Á Akureyri kostar til dæmis
að tjalda á tjaldstæðum og dansleikir
á kvöldin eru innandyra og eru ekki
ókeypis. Á Neistaflugi í Neskaupstað
verða böll bæði utanhúss og innan-
dyra og á bölfln sem haldin era úti
kostar ekki neitt en á dansleiki og
tónleika sem haldnir eru inni við
kostar 1000-1500 kr. Sfldarævintýrið
á Siglufirði hefur sérstöðu að þessu
leyti þar sem merki hátíðarinnar
kostar 1500 kr. en mönnum er frjálst
að afþakka það, þó svo að flestir
styrki þessa viðamiklu hátíð með því
að kaupa merki.
Ókeypis fyrir börn
Á þremur af þeim fimm hátíðum
sem rukka aðgangseyri kostar ekkert
fyrir böm sem ekki hafa náö tólf ára
aldri. Þetta era hátíðimar í Galta-
lækjarskógi, fjölskylduhátíðin í Vík í
Mýrdal og Uxi. Að auki er eitt þúsund
króna afsláttur af uppsettu verði fyrir
unglinga á aldrinum 12-16 ára í Galta-
lækjarskóg, kostar 3.500 kr.
Á Uxa er ókeypis fyrir krakka
yngri en 12 ára en yngri en sextán
ára fá ekki að fara inn á svæðið nema
í fylgd með fullorðnum.
Galtalækjarskógur 4500 kr.
Halló Akureyri ókeypis
Neistaflug, Neskaupstaö ókeypis
Síldarævintýri, Siglufiröi ókeypis
Snæfellsás undir Jökli 2500 kr.
Uxi, Kirkjubæjarklaustri 7900 kr.
Vík, fjölskylduhátíö 3000 kr.
A Þjóðhátíð í Eyjum kostar 6.500
kr. en þar fengust ekki skýrar upp-
lýsingar um það hvort borga þyrftí
inn á svæðið fyrir böm. Samkvæmt
heimfldum neytendasíðunnar í Eyj-
uin era böm þó ekki rukkuð um þá
upphæð.
Dýrast á Uxa
Það er áberandi að Uxi ’95, sem
haldinn verður á Kirkjubæjar-
klaustri, er dýrasta útíhátíðin um
þessa helgi, kostar 7.900 kr. Það má
þó líka auðveldlega sjá það að geysi-
lega mikið úrval er þar af skemmti-
kröftum og er hér í raun um að ræða
alþjóðlega tónhstarhátíð í líkingu við
það sem þekkist til dæmis á Hróars-
keldu. Aö því leytí er ekki um heíö-
Ókeypls fyrir Þarf aö borga fyrir
12 ára og yngri
Tjaldstæöi og böll
Böll innandyra
Frjáls kaup á merki
bundna verslunarmannahelgar-úti-
hátíð að ræða. En engu að síður er
dýrast inn á svæðið þar.
Næstdýrast er á Þjóðhátíð í Eyjum,
6.500 kr., en það verð hefur verið
óbreytt frá því 1991.
Fyrir hvað er verið að borga?
Að sjálfsögðu er það mjög mismun-
andi hvað boðið er upp á á þeim há-
tíðum sem hér era upp taldar og
engin leið að leggja á það mat hvar
menn fá mest fyrir peningana sína.
Sumstaðar eru fleiri skemmtikraft-
ar en annarstaðar, betri aðstaða,
fleiri afþreyingarmöguleikar og svo
mætti lengi telja. Aðalatriðið er að
sjálfsögðu það aö menn íinni sér þá
hátíð sem hæfir best þeirra áhuga-
sviði og skemmti sér vel.
Margir eiga eflaust effir að skemmta sér vel um verslunarmannahelgina.
12 ára og yngri
Þjóöhátíö í Eyjum
6500 kr.