Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995 Útlönd________________________________________________________ Aðskilnaðarsinnar múslíma í Kasmír tóku norskan gísl sinn af M: Hálshöggnu líkinu hent úti á víðavangi Islamskir skæruliöar aöskilnaöar- sinna i Kasmír hafa hálshöggvið Norömanninn Hans Christian Oströ, einn fimm vestrænna gísla sem þeir höföu í haldi, skoriö út nafn hreyf- ingar sinnar, Al-Faran, á líkið og skiliö það eftir úti á víöavangi, ásamt hótun um að drepa hina fanga sína á næstu dögum. Höfuð og búkur Norðmannsins fundust með tuttugu metra millibili nærri bæ nokkrum suöaustur af Sri- nagar, sumarhöfuöborg Jammu og Kasmír-fylkis, í gærmorgun. „Indversku hundar, ef þið gangið ekki að kröfum okkar hljóta hinir sömu örlög,“ sagði í orðsendingu sem fannst nærri líkinu. Mikil sorg ríkir nú meðal ættingja og nágranna Oströs í Ósló. „Hans Christian var ákaflega líf- legur og skemmtilegur strákur. Hann reyndi alltaf að sjá hið jákvæða í sérhverju máli,“ sagði stjúpsystir hans, Ann Christine Jörgensen. Skæruliðarnir í Kasmír krefjast þess að indversk stjórnvöld leysi fimmtán félaga þeirra úr haldi og hafa geflð þeim tveggja daga frest til þess. Ella muni þeir drepa hina gisl- ana fjóra sem eftir lifa. Hans Christian Oströ var handtek- inn ásamt tveimur Bretum, einum Þjóðverja og einum Bandaríkja- manni í júlíbyrjun. Skæruliðarnir höfðu hvað eftir annað hótað að taka þá af lífi ef Indverjar gengju ekki að kröfum þeirra. Norsk stjórnvöld fordæmdu morð- ið á Oströ í gær og hvöttu Indverja til að gera allt sem þeir gætu til aö hafa hendur í hári ódæðismannanna. „Norðmenn fordæma harðlega þetta hryllilega og tilgangslausa voðaverk gegn saklausum norskum borgara. Við krefjumst þess að þeir sem standa að þessu verði látnir svara til saka,“ sagði Björn Tore Godal, utanríkisráðherra Noregs. „Mér er mjög brugðið vegna þessara hörmulegu málaloka." Indverska stjórnin hélt neyðarfund í gær til að ræða hvort grípa ætti til aðgerða til að reyna að frelsa hina gíslana, nokkuð sem hún hefur forð- ast til þessa, í þeirri von að hægt væri að semja um lausn þeirra. „Viö höfum forðast að grípa til beinna aðgerða, í nánu samráði við viökomandi sendiráð," sagði Rajesh Pilot, ráðherra öryggismála á Ind- landi. Háttsettur embættismaður í Kasm- ír sagði að yfirvöld vissu nokkurn veginn hvar skæruliðarnir sem halda útlendingunum væru niður komnir. Maður sem hringdi í indverska fréttastofu sagði að Oströ hefði verið drepinn af því að kröfur skærulið- anna hefðu verið hunsaðar. „Al- Faran eru ekki samtök morðingja. Við höfum ekki gaman af því aö drepa fólk,“ sagði maðurinn. Reuter, NTB Krajina-Serbinn Milivoje Rakic heldur á fimm mánaða gömlum syni sínum, Slobodan, á meðan hann bíður í járn- brautarvagni eftir að komast til Serbíu. Símamynd Reuter Krajina-Serbar á herskyldualdri fá ekki að koma inn í Serbíu Serbneskir karlar á herskyldu- aldri á flótta frá Króatíu fengu ekki að koma inn í Serbíu í gær þar sem stjórnvöld segja að þeir verði að ganga í lið með bræörum sínum í Bosníu og berjast með þeim. Mikil reiði og örvænting greip um sig með- al eiginkvenna og fjölskyldna sem neituðu að halda áfram án þeirra. „Það er ekkert eftir fyrir menn okkar til að verja. Af hverju geta menn okkar þá ekki komið? Eg kann ekki að aka dráttarvél," sagði Jasm- ina, 34 ára gömul kona sem flúði frá bænum Petrinja í Krajina-héraði. Mikill fjöldi manna, kvenna og barna er nú við landamærin, hinir síðustu úr hópi 150 þúsund flótta- manna frá Krajina sem fóru á ver- gang eftir að króatíski herinn lagði héraöið undir sig fyrir skömmu. Hersveitir stjórnvalda í Bosníu réðust gegn bænum Donji Vakuf í miðhluta Bosníu í gær til að reyna að ná honum úr höndum Serba. Á sama tíma funduðu þeir Andrej Koz- yrev, utanríkisráðherra Rússlands, og Anthony Lake, þjóðaröryggisráð- gjafi Clintons Bandaríkjaforseta, í bænum Sotsjí við Svartahaf til að leysa ágreining sinn um hvemig beri að reyna að koma á friöi í fyrrum Júgóslavíu. „Við búumst ekki við ágreiningi,“ sagði Kozyrev fyrir fundinn og Lake tók undir með honum. En rúmum tveimur klukkustundum síöar sagöi Kozyrev að þeir hefðu orðið sammála um að vera ósammála um mörg mik- ilvæg atriði. Kozyrev sagði að stjórnvöld í Washington væru ófús að aflétta við-' skiptabanni á Serbíu jafn fljótt og stjórnvöld í Moskvu æsktu. Mjög er þrýst á Jeltsín Rússlandsforseta að aflétta einhliða viðskiptabanninu en Serbar eru bandamenn Rússa frá fornufari. Reuter Saddam reynir aðtreystastöðu sínaáný Þótt ákall landílótta tengdasonar Saddams Huss- eins íraksfor- seta um að steypa tengda- fóður sínum af' stóli haft valdið titringi í herbúðum stjómarinnar er Saddam þegar farinn aö treysta stöðu sína á ný, að sögn stjórnarerindreka. Tareq Aziz, aðstoðarforsætis- ráðherra íraks, tilkynnti í gær að stjórn landsihs mundi skýra frá hernaðarleyndarmálum sem hún heföi haldið leyndum fyrir nefnd SÞ sem hafði eftírlit með útrým- ingu gjöreyðingarvopna íraka. Vestrænir erindrekar telja að írösk stjórnvöld óttist að tengda- sonurinn umræddi, sem haföi umsjón með hergagnaffam- leiðslu landsins, ætli að leysa frá sKjóðunni og þau vilji með þessu veröa fyrri til. Stærstarokk- munasala Bret- landsundirbúin Stærsta rokkmunasala sem nokkm sinni hefur verið haldin í Bretlandi fer fram í næsta mán- uði. Þá verða seldir niunir á borð viö rissblokk sem John Lennon átti og gítar ffá Jimi Hendrix. Uppboð munanna fer fram hjá hinu virta fyrirtæki Sotheby’s og er búist við að rúmlega eitt hundrað milljónir íslenskra króna fáist fyrir þá. „Viö búumst við miklum áhuga útlendinga. Þetta er mjög mikil- vægt samansafh, með mörgum verðmætum hlutum, svo og per- sónulegum munum sem ein- kenndu þetta fólk,“ sagði starfs- maðurSotheby’s. Reuter Stuttar fréttir dv Leikför aflýst Konunglega leikhúsið í Kaup- mannahöfn hefur aflýst leikfór til Frakklands í september til að mótmæla fyrirhuguðum kjarn- orkutilraunum Frakka í Suður- Kyrrahafi. Ámótireykingum Bill Clinton Bandaríkjafor- seti varði þá ákvörðun sína að beita sér af alefli gegn reykingura unglinga og sagði það skyldu sina að verja heilsu bandariskra ungmenna og binda enda á hræsni auglýsinga sem beinast að börnum. Kveiktílest Brennuvargar vörpuðu eld- sprengjum á mannlausa franska TGV-hraðlest í Bern í Sviss til að mótmæla kjarnorkutilraunum Frakka. Lána konumfé Alþjóðbankinn ætlar bráðum aö veita fátækasta fólki heimsins, einkum þó konum, smálán til að aðstoða það við að koma undir sig fótunum. Nýnasistarkoma saman Evrópskir nýnasistar ætla að koma saman i Hróarskeldu í næstu viku til að minnast átta ára dánarafraæhs Hitlerskónans Rúdolfs Hess, síðast til heimilis í Spandau-fangelsinu í Berlín. Bannað aó hrista Dómsmálaráðherra ísraels hef- ur bannað leyniþjónustu lands- ins að hrista fanga óþyrmilega við yfirheyrslur en í apríl dó fangi að völdum hristings. Kratar á niðurleið Finnskir jafhaðarmenn ryóta nú stuðnings 27 prösenta kjós- enda en þeir fengu 28,3 prósent atkvæða í kosningunum í vor. FlotaæfingaráDóná Rúmenar halda nú flotaæfingar á Dóná til að sýna að þeir geti verndað flutninga lrjálpargagna á óvinasvæðum. Löggur i skoðun Þrír franskir lögregluþjónar hafa veriö hnepptir í varðhald vegna gruns um að hafa barið franskan mann af norður-afrisk- um uppruna i klessu í Marseille. AfmælihjáCastro Fidel Castro Kúbuleiðtogi hélt upp á 69 ára afmæli sitt i gær og var heldur rólegra yfirbragð yfir öllu en á sama tíma í fyrra þegar landar leiðtogans reyndu unnvörpura að flýja land. Felixíham Fellibylurinn Felix stefnir á Bermúda og gæti truflað fyrir- hugað þjóðaratkvæði um sjálf- stæði landsins. Ritzau, Rcuter, FNB DANCALL S 'Qf rtidioinidun Grandagarði 9 • 101 Reykjavík Sími 5111010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.