Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995 Fréttir Siglt niður Austari-Jökulsá í Skagafirði: Hér sést bara i aðra árina á einum kajaknum, annað er á kafi. Einn leiðangursmannanna á æfingu. Nauðsynlegt er að vita hvernig bregð- ast skal við öllum aðstæðum. Farþegar verða að vera lík- amlega vel á sig komnir „Við erum aö byrja að bjóða upp á þessar ferðir núna um verslunar- mannahelgina. Við erum búnir að vera tíu ár á Hvítá í Ámessýslu og þijú ár hérna tíl að læra á ána. Maö- ur verður að gjörþekkja hana til að fyllsta öryggis sé gætt þar sem áin er mjög straumhörð. Fólk verður að vera vel á sig kom- ið líkamlega til að ráðlegt sé fyrir það að fara svona ferð,“ sagði Björn Gíslason, einn leiðsögumannanna í bátasighngu niður Austari-Jökulsá í Skagafirði, en nú er verið að byrja að fara með farþega í slíkar ferðir. Leiðsögumennirnir eru 6. Ein kona var með en nú er hún ófrísk og verð- ur að taka sér hlé á meðan. Þrír tímar á ánni Farið er frá Bakkaflöt í Skagafiröi, ekki langt sunnan við Varmahlíð. Að Bakkaflöt er gisting og sundlaug. Ferðin tekur alls fimm tíma. Fyrst er farið á bíl að eyðibýlinu Skatastöð- um. „Við Skatastaði er farið út á ána, hún er fremur lygn til að byija með, um það bil fimm kílómetra, þannig aö það er nokkurs konar æfing. Næstu 15 kílómetrar eru straum- harður kafli og á köflum þarf virki- lega að leggja sig fram. Þar eru bæði fossar og flúðir í ánni. Farið er í land eftír þriggja tíma siglingu við bæinn Villinganes og þaðan farið að Bakkaflöt aftur. Við erum með 2 kajaka og 3 gúmmí- báta,“ sagði Björn. Sérpantaðir gallar og vesti - Kemur aldrei gat á gúmmíbátana? „Það gerist bara einstaka sinnum en við höfum bætur meðferðis. Hver gúmmíbátur hefur sjö hólf þannig að það er engin hætta á ferðum þó að eitt gat komi en við reynum að halda bátunum frá klettum," sagði Björn. Það komast 6 manns í hvern gúmmíbát og einn leiðsögumaður er í hverjum þeirra. Kajakarnir eru með í förum tíl eftirlits og öryggis ef eitthvað kemur upp á. Gestír fá ekki aö reyna sig á þeim. „Við sérpöntuðum björgunarvesti frá Bandaríkjunum og þau halda manni að einum þriðja betur upp úr vatni en venjuleg vestí. Einnig sér- pöntuðum við galla frá Bretlandi, efnið í þeim er 5 mm þykkt í stað 3 mm í venjulegum göllum. Þetta eru blautbúningar og mjög hlýir þannig aö engum er kalt,“ sagði Björn. Það kostar sjö þúsund að fara í svona ferð en sex þúsund ef menn eru 6 eða fleiri saman. Nýttfyrir- tæki hrellir tölvuþjófa - sérstakri hitatækni beitt til aö merkja hluti Nýtt fyrirtæki hefur hafið starf- semi á íslandi sem hefur það að leið- arljósi að gera tölvu- og öðrum tækja- þjófum hfið leitt. Fyrirtækið, Sec- uricode ísland, býður tækjaeigend- um að merkja tæki þeirra með núm- eraðri „hitamerkingu" og sérstökum númeraspjöldum og skráningu núm- eranna í gagnabanka. „Hingað til hafa einungis boðist öryggismerkingar með bleki eða límmiðum. Bleki er hægt aö ná af með leysiefnum og límmiða er hægt aö rífa af. Securicode hitamerkingin helst hins vegar fyrir lífstíð. Þessi þjónusta er sérstaklega hugsuð fyrir fyrirtæki og stofnanir en auðvitað þjónustum við einstaklinga líka. Við- skiptavinir okkar hljóta sérstakt skráningamúmer sem síðan er skráð í Securicode öryggisskrána. Með þessum gagnagrunni er fljótlegt að ganga úr skugga um rétta eigendur stohnna muna. Einnig er hægt að gera munaskrá yfir öll tæki og áhöld fyrirtækis og heimilis," segir Guð- mundur Lýðsson, framkvæmdastjóri Securicode Island. Frá áramótum hefur á annað hundrað tölvum verið stohð frá ein- staklingum og fyrirtækjum, þá era ótalin önnur tæki, s.s. símtæki, hljómflutningstæki, Ijósritunarvélar og annað. Tæplega helmingur tölv- anna endurheimtist við rannsókn mála og oft er það vandkvæðum bundið að koma þeim munum, sem tekst að finna, aftur í hendur rétt- mætra eigenda. Með Securicode hita- merkingunni geta lögregluyfirvöld hins vegar fengið upplýsingar úr gagnabanka fyrirtækisins og komið munum til réttra eigenda. Auk þess að auðvelda lögreglu að koma endur- heimtu þýfi til skila hefur merking sem þessi fælingarmátt þar sem munirnir eru einkenndir. Hægt er aö merkja tækin sjálf - tölvurnar ef svo ber undir - og líka einstaka hluta þeirra. Tæknin sem beitt er einskorðast ekki aðeins við tæki úr plasti heldur er líka hægt að merkja skjalatöskur, hnakka, beish, garðáhöldogfleira. -pp : : Guðmundur merkir tölvu með hinni nýju hitatækni. Auk þess aö einkenna þá hluti sem eru merktir eru hlutirnir skráðir í gagnabanka Securicode á nafn þess sem á þá. DV-mynd JAK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.