Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Page 18
18
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995
Rennismiður
óskast á renniverkstæði okkar. Við leggjum áherslu
á vönduð vinnubrögð og leitum að mönnum sem
tileinka sér þau. Góð laun. Uppl. á staðnum milli kl.
16 og 18 mánudag og þriðjudag.
Vélvík hf„ Höfðabakka 1
/
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ
SÍMA 563 2700
SKÓDTSALA
0CCO
Skóverslun Þórdar
Sími. 551 4181
ATH: erum flutt á Laugaveg 40
(áður Iðunnar apótek)
Nýlega er komin á markað
hér á landi ARMORCOAT
ÖRYGGISFILMAN sem þró-
uð var íJ<aliforníu og hefur
gert geysilegt gagn þar.
Það sem filman gerir fyrir
gler er m.a.: Breytir venjulegu
gleri í öryggisgler og það
verður 300% sterkara. Jafnvel
þótt það brotni hangir það
saman eins og framrúða í bíl.
Þetta er kostur við innbrot,
fárviðri, jarðskjálfta o.fl.
Ef tekin er lituð öryggisfilma
útilokar hún einnig 3/4 af
sólarhita (sú glæra útilokar
1/4) og báðar stórminnka
upplitun (95% af UV-geislum
komast ekki í gegn).
Armorcoat-öryggisfilman
hefur eldvarnarstuðulinn F-
15 og stórminnkar hættu á
slysum þegar glerbrot þeytast
eins og hnífar um allt.
Öryggisfilmuna er auðvelt
að setja innan á glerið eða
utan á eða jafnvel báðum
megin. Laghentur maður get-
ur það með leiðbeiningum frá
okkur en að sjálfsögðu sjáum
V____
Slær margar
flugur í ;
einu höggi
við um það fyrir þá sem þess
óska.
Armorcoat-öryggisfilman er
ekki dýr, kostar 1440 hver
m2 glær en 1660 lituð, án vsk.
Armorcoat öryggisfilmunni
hefur verið vel tekið og er
þegar komin á bankastofnan-
ir, stjórnarbyggingar, örygg-
isþjónustufyriræki, skóla,
sjúkrastofnanir, barnaheimili,
verslanir og að sjálfsögðu
heimili.
í Ijósi frétta af jarðskjálftum,
innbrotum og með tilliti til
vetrarveðra og sumarhita er
þetta ótrúlega hagkvæmur
kostur og 10 ára ábyrgð fylg-
ir.
Söluaðili er Armorcoat-
umboðið í Bíldshöfða 8, sama
húsnæði og tjaldaleigan
Skemmtilegt hf. Símar
5674709 og 5876777,
fax 5674722.
Okkur vantar samstarfsaðila
um allt land nema á Vest-
fjörðum þar sem Þorvaldur
Pálsson á Flateyri starfar.
J
Menning
Sumir fá kannski hland fyrir hjartað þegar tæpt er á vissum velsæmismörkum
DV-mynd Td
Hressilegog
hröð sýning
Söngleikurinn Rocky Horror var frumsýndur í
Loftkastalanum í Héöinshúsinu á föstudagskvöldið.
Þaö er Flugfélagiö Loftur sem setur upp sýninguna.
Leikstjóri er Baltasar Kormákur. Ekki er langt síöan
Hárið og Stórstirnið Jesús Kristur voru sýnd hér á
landi og nú bætist við þriöji söngleikurinn frá svipuö-
um tíma. Hvað veldur því að þessi verk, ættuð frá tíma-
bili hippa og blóma, ganga í endurnýjun lifdaganna í
Reykjavík nútímans? Spyr sá sem ekki veit. Kannski
eru þetta tryggð kassastykki. Öll þrjú verkin eru langt
frá því að vera gaUalaus. Innihald þeirra vekur að
vísu spurningar, en bókmenntalegt gildi er nánast
ekkert og músíkin í þeim í slappara lagi miðað við það
sem best var gert á þessum tíma. Það er þó kostur
Rocky Horror fram yfir fyrrnefnd verk að ekki er
ætlast til að texti leikverksins sé tekinn nema mátu-
lega alvarlega. Fyrst og fremst er verið að skemmta
áhorfendum með því að pota í ýmis siðferðileg gildi,
sérstaklega þau sem varða kynferðismál. Skotiö er í
ýmsár áttir; J. Edgar Hoover, yfirmaður FBI, hélt stað-
fastlega fram gildum íjölskyldunnar en reyndist svo
vera hinsegin sjálfur þegar til kom. Ekkert er sem
sýnist, en Frank ’N’ Furter kemur til dyranna eins og
þann er klæddur og enginn velkist i vafa um að hann
og hyski hans eru ekki venjuleg kjarnafjölskylda. Þau
eru reyndar geimverur. Kannski hefur ekki verið auð-
velt árið 1973 að kynna til sögu tvíkynhneigða drag-
drottningu sem aðalpersónu, án þess að láta sem hún
komi utan úr geimnum. Samkynhneigðir og þeir sem
þeirra kúltúr voru handgengnir náðu eflaust mörgum
bröndurum verksins betur en aörir og kannski líka
þeim boðskap að öll erum við perrar inn við beinið.
Öld sakleysisins er hðin.
Helgi á heimavelli
Höfundur Rocky Horror sækir umgjörð verksins í
amerísk hasarblöö, vísindaskáldrit og hæpnar bíó-
myndir. Frank ’N’ Furter er nútíma Vincent Price sem
syngur rokk í stað þess að spila á pípuorgel. Tilvísan-
ir má svo finna í öndvegisverk eins og Frankenstein,
og Dr. Strangelove;
Tónhstin er rokk af heföbundnu tagi, eins konar
blanda af rokktónhst eins og hún hljómaði upp úr
1970 og eins og hún var í árdaga fyrir og um 1960.
Lögin eru einföld, khsjukennd og nálgast stundum að
vera hahærisleg. Það er þó engin hætta á því í Loft-
kastalanum, því undir öruggri stjórn Þorvaldar B.
Þorvaldssonar hljómar músíkin mjög vel. Það er
hörkusánd í þéttum undirleiknum og söngvarar
standa sig með ágætum.
Það er erfitt að ímynda sér nokkurn íslenskan leik-
ara annan en Helga Björnsson í hlutverki Franks,
enda gerir hann hlutverkinu góð skil. í söngnum er
hann á heimavehi, þessi tónlist á vel við hann. Besta
lag verksins er inngöngurokkmarsinn er Helgi birtist
fyrst á sviðinu og er það kynngimögnuð sena.
í gervi Riffs RafTs er Björn Jörundur Friðbjörnsson.
Leiklist
Ingvi Þór Kormáksson
Finnst mér að enn ein skírskotun í eldri verk birtist
í þvi hvernig hann er farðaður. Að þessu sinni er það
Nosferatu. Það þarf þó ekki að vera viljaverk. Rödd
Björns hæfir vel hlutverkinu, hann syngur þetta á sína
vísu og ýkir jafnvel sérkenni raddarinnar. Kannski
um of, því að erfltt var að greina orðaskil í textum og
átti það reyndar við um fleiri söngvara. Kannski var
það hljóðblöndunaratriði sem hægt er að laga.
Mannlegar geimverur
Hilmir Snær Guðnason og Valgerður Guönadóttir
fara með hlutverk Brads og Janet, fulltrúa skírlífis 6.
áratugarins, ef marka má klæðaburð og klippingu.
Trúlega er þaö sakleysi unglingsáranna sem verið er
að hrekkja tíu árum síðar. Valgerður er aíbragös söng-
kona, rödd hennar eins og sköpuð fyrir söngleiki rokk-
kynslóðarinnar. Ég er ekki eins viss um eldri Broad-
waysöngleiki. En hún var sannfærandi í hlutverki sínu
og sama má segja um Hilmi. Merkilegt hvað leikarar
geta sungið og söngvarar leikið.
Því miður gefst ekki pláss til að tína til gullkorn um
frammistöðu fleiri einstaklinga, en segja má í lokin
leikstjóranum og liði hans til hróss, að sýningin er
vönduð, hressileg og hröð. Heilmikið stuð er í tónhst-
inni. Sumir fá kannski hland fyrir hjartað þegar tæpt
er á vissum velsæmismörkum, en „hvor er meiri per-
vert sá sem er pervert eða sá sem borgar fyrir að horfa
á pervertinn". Geimverur leiksins eru í raun alveg
jafn mannlegar og hitt fólkið. Það skiptir ekki máli
að texti söngleiksins er að mestu tómt bull. Það er
ahtaf verið að bulla hvort eð er.
Leikmynd, brellur og ljós þjóna vel hlutverki sínu.
Búningar eru bæði „dekadent" og „speisaðir"; skóla-
stúlknapils, netsokkar, S/M og fleira, en nærbuxur
Dr. Scotts þó flottastar.
éÉ Éi|ÉÍfPli LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
Eftir einn -ei akl noinn VALDA ÞÉR SKAÐA! $=