Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1995, Síða 3
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 1995
23
4.deild:
Línurfarnar
að skýrast
Línur eru farnar að skýrast
nýög hvaða lið fara í úrslit í 4.
deild karla í knattspyrnu. í A-
riðli eru Léttir og Ármann komin
í úrslit. í B-riðli fer Reynir, S., í
úrslit og að öllum líkindum
Grótta. KS er fyrir löngu öruggt
í úrslit í C-riðli en baráttan um
2. sætið er á milli Tindastóls og
Magna. í D-riöli fer Sindri í úrslit
ásamt annaðhvort KBS eða KVA.
A-riðill:
TBR - Frnmherjar.............2-3
Gunnar Björgvinsson 2 - Einar
Gíslason 2, Hjaltí Jóhannesson.
Armann - Víkverji............1-3
Amar Sigtryggsson - Sævar G.
Gunnieifsson 2, Albert Sveinjóns-
son.
Afturelding - Víkingur ó ..0-5
Birgir Öm Birgisson 2, Guölaugur
Rafnsson,_ Trausti Ægisson. Guð-
mundur Öttarsson.
Léttir.....15 11 3 1 58-28 36
Ármann.....16 10 3 3 42-22 33
Víkverji...15 7 4 4 24-17 25
Víkingur, Ó1..15 7 2 6 37-31 23
Aftureld...15 6 2 7 27-30 20
Golf. Grind... 13 6 1 6 34-29 19
Framherjar.. 14 5 3 6 32-23 18
TBR........15 3 1 lT 14-43 10
Hamar......14 1 1 12 12-58 4
B-riðiU:
ökkli - Reynir S..........3-8
Helgi B. Krístinsson, Árni Harðar-
son, Sigurpáll Ámi AÖalsteinsson
- Trausti Ömarsson 4, Bergur Eg-
gertsson 2, Sígurður Björgvinsson,
Marteinn Guðjónsson.
Smástund - ÍH............írestað
Bruni - Njarðvik..........2 7
Gunnar Hervarsson Einar Viðars-
son - Björgvin Friðriksson 3,
Magnús Kristófersson, Högni
Þórðarson, Svanur Þorsteinsson,
Þór Sigurösson.
ReynirS.....11 9 1 1 46-20 28
Grótta......10 7 1 2 32-12 22
Njarðvík....11 6 0 5 32-20 18
ÍH..........10 6 0 4 28-23 18
Ökkli.......10 3 0 7 18-40 9
Smástund......9 2 2 5 20-28 8
Bruni.......111 0 10 12-45 3
C-riðill:
Hvöt - Tindastóil............1-5
Hörður Guðbjömsson - Stefán
Pétursson 2, Helgi Þórðarson,
Sveinn Sverrisson, Guðbrandur
Guðbrandsson.
Magni - Neisti H.............6-0
Ingólfur Ásgeirsson 2, Bjami
Áskelsson 2, Stefán Gunnarsson,
Þorvaldur Sigurðsson.
KS...........11 10 1 0 46-7 31
Magni........10 6 3 1 31-10 21
Tindastóll...10 6 2 2 30-9 20
Hvöt.........11 5 1 5 39-25 16
NeÍStiH......10 2 1 7 12-37 7
SM...........9 2 0 7 15-31 6
Þrymur......9 0 0 9 2-64 0
D-riðill:
KBS-KVA...................2-0
Jóhann I. Helgason, Jón I. Ingi-
marsson.
Huginn - Neisti...........2-0
Júlíus Brynjarsson 2
Sindri.....11 10 1 0 52-11 31
KBS.........10 6 1 3 29-13 19
KVA.........10 5 1 4 33-14 16
NeiStiD.....12 3 4 5 23-26 13
Einherji....10 3 2 5 13-18 11
Huginn......10 3 1 6 13-28 10
Langnesingur.il 2 0 9 8-61 6
VíðirmætirVal
Viðismenn leika minningarleik
gegn Vaismönnum á Garðsvelli
klukkan 19 í kvöld. Leikurinn er
til minningar um Ingimund Guð-
mundsson, fyrrum leikmann
Víðis, sem lést í umferöarslysi
árið 1984.
KRvannÍBV
Einn leikur var i 1. deild kvenna
í knattspyrnu um helgina. KR
vann 2-0 sigur á ÍBV í Frosta-
skjólinu eftir að staðan hafði ver-
iö markalaus í hálfleik. Inga Dóra
Magnúsdóttir skoraði íyrra mark
KR á'46. mínútu og Olga Færseth
bætti viö ööru á síðustu mínút-
unni. Eyjastúlkurnar börðust
eins og ljón og stóðu sig vel.
íþróttir
2. deild karla í knattspymu:
Botnliðin skildu jöf n
HaUdór Halidórsson skrifar:
1-0 Þorsteinn Sveinsson (7.)
1- 1 Sigurjón Kristjánsson (22.)
2- 1 Jón Þórðarson (56.)
2-2 Amar Arnarson (65.)
2- 3 Amar Arnarson (75.)
3- 3 Jón Þórðarson (89.)
Jafntefli, 3-3, varð í leik HK og Vík-
ings í 2. deildinni og var spilað á
Kópavogsvelli. Leikurinn varð mjög
haröur eftir því sem á leið og fengu
tveir HK-menn að sjá rauða spjaldið
í síðari hálfleik, þeir ívar Jónsson,
sem var skipt inn á í síöari hálfleik
og hafði aðeins verið innan vallar í
4 mínútur, og Valdimar Hilmarsson,
en þá var stutt eftir tfl leiksloka og
HK-menn aðeins 9 innan vallar - en
með harðfylgi Jóns Þórðarsonar,
sem skoraði jöfnunarmark HK, 3-3,
tókst bjarga einu stigi.
„Við vorum óttalegir klaufar að
missa af þessum sigri. Við sofnuðum
á verðinum. HK-strákarnir böröust
mjög vel en þetta var alveg óþarfi.
Þetta var mikill baráttuleikur en það
var óþarfi að missa þetta niður. Ég
hef samt séð það verra,“ sagði Mar-
teinn Guðgeirsson, fyrirhði Víkinga.
Bestir hjá HK: Jón Þórðarson, Kuj-
undzic, Þorsteinn Svavarsson og
Sivic. Bestir Víkinga: Arnar Amar-
son, Pisanjuk, Jón Grétar Ólafsson
og Marteinn Guögeirsson.
Dómarinn, Svanlaugur Þorsteins-
son, byrjaði vel en missti svolítið tök-
in í síðari hluta leiksins og var ekki
sjálfum sér samkvæmur.
Maður leiksins: Arnar Arnarson,
Víkingi.
Valdimar Hilmarsson, HK-ingur, reynir hér markskot í leiknum gegn Víkingi á föstudagskvöldið.
DV-mynd Brynjar Gauti
KA með tak á Fylki
- hefur unnið báða leiki liðanna 1 sumar
Ægir Már Kárason skrifer
0-1 Bjami Jónsson (29.)
1-1 Aöalsteinn Víglundsson (67.)
1-2 Hermann Karlsson (80.)
Óvæntustu úrslit í 13. umferð 2.
defldar voru þau að Fylkir tapaði
á heimavefli sínum fyrir KA, 1-2.
Elstu stuðningsmenn KA áttu von
á miklu markaregni frá toppliði
Fylkis í ljósi þeirra ástæðna að þrjá
sterka leikmenn vantaði í KA-hðið.
Fylkismenn höfðu tapað leik á
heimavelli sínum í sumar en hðið
hefur tapað tveimur leikjum í sum-
ar, báðum fyrir KA.
Hetja KA-manna var Hermann
Karlsson sem skoraði sigurmarkið
og var það fyrsta mark hans fyrir-
félagið í meistaraflokki. „Það var
frábær tilfmning að sjá boltann í
netinu og skemmtilegt að þetta var
sigurmarkið,“ sagði Hermann eftir
leikinn. Fögnuður KA-manna var
gríðarlega mikill eftir leikinn og
eftir að þeir fréttu að Þór hefði tap-
að ætlaði fagnaðarlátum KÁ-
manna aldrei að ljúka.
KA spflaði leikinn mjög skyn-
samlega og barátta þeirra var stór-
kostleg. Fylkismenn voru meira
meö boltann í leiknum og fengu
færi tfl aö skora fleiri mörk. KA-
menn áttu áttu hættulegar skyndi-
sóknir sem þeir nýttu vel í hefldina
séð. Fylkismenn sem þekktir eru
fyrir að skapa sér opin færi með
því aö splundra vörn andstæðing-
ana með hröðu og skemmtilegu
spfli lét á sér standa fyrir utan
markið sem þeir gerðu.
„Við vorum miklu betra liðið á
vellinum og áttum sigur skilinn.
Það er mjög erfitt að sþfla á móti
liði sem pakkar saman í vörn en
þeir voru nánast 9 þar allan leik-
inn,“ sagði Kjartan Sturluson,
markvörður Fylkis.
Maður leiksins: Eggert Sigmunds-
son, markvörður KA.
Stjarnan á beinni braut
-1. deildar sætið í sjónmáli eftir sigur á Víði
Guömundur Hilmarsson ákrifar:
0-1 Ingólfur Ingólfsson (26.)
0-2 Birgir Sigfússon (30.)
Stjömumenn eru svo gott sem bún-
ir að tryggja sér sæti i l. defld aö
ári eftir að þeir lögðu Víðismenn
að velli, 0-2, á Garðsvelli á föstu-
dagskvöldið. Þegar fimm umferð-
um er ólokið hafa þeir þriggja stiga
forskot á Fylki í efsta sæti og 13
stiga forskot á Akureyrarliðin KA
og Þór sem era í 3.-4 sæti. Með sigri
á Fylki á mánudag eftir viku
tryggja Garðbæingar sér endan-
lega 1. deiidar sæti.
Stjörnumenn gerðu út um leikinn
gegn Viðismönnum með tveimur
glæsflegum mörkum um miðjan
fyrri hálfleik. Það fyrra gerði Ing-
ólfur Ingólfsson. Efúr horaspyrnu
barst boltinn út fyrir vítateig Víðis-
manna á Ingólf sem skaut viðstööu-
lausu skoti i þverslá Víðismarksins
og inn. Síðara markið var ekki
síðra. Birgir Sigfússon óö þá upp
vallarhelming Víðis og skoraöi með
fÖ3tu skoti sem fór í slá og inn af
um 25 metra færi. Eftir markið
komu Víðismenn meira inn í leik-
inn og fengu tvö góð færi undir lok
hálfleiksins en Bjarni Sigurðsson
varði í bæði skiptin meistaralega
vel.
Síðari hálfleikur var ákaílega tíð-
indalítill. Stjörnumenn virtust
sætta sig þessi úrslit og spiluðu í
samræmi viö það og þrátt fyrir
góða baráttu Víðismanna tókst
þeim ekki að komast í gegnum vörn
gestanna. Skömmu fyrir leikslok
var Garöar Newmann, varnarmað-
ur Viöis, rekinn af velli, og einum
manni fleiri fengu Stjömumenn
tvö góð færi til að auka muninn en
brást bogahstin.
Birgir Sigfússon, Bjarni Sigurðs-
son og Baldur Bjarnason voru best-
ir i jöfnu liöi Stjörnumanna en hjá
Víði var Daníel Einarsson sterkur
fyrir að vanda.
Maður leiksins: Birgir Sigfússon,
Stjörnunni.
Þórsarar endanlega úr leik
- í baráttunni um 1. deildar sætið eftir tap gegn Skallagrími, 1-2
1-0 Sveinbjörn Hákonarson (19.)
1-1 Þórhallur Jónsson (30.)
1-2 Valdimar Sigurðsson (88.).
Hafi Þórsarar gert sér einhverjar
vonir um að endurheimta sæti sitt í
1. defld, sem liðið tapaði sl. sumar,
urðu þær vonir að engu er hðið tap-
aði á heimavelli, 1-2, fyrir Skalla-
grími um helgina. Borgnesingar
hirtu sigurinn með marki á lokamín-
útum leiksins eftir köflóttan leik þar
sem jafntefli heföi sennilega verið
sanngjörn niðurstaða.
Mikið bakslag hefur komið í leik
Þórsliðsins að undanfomu eftir
ágætt gengi um miðbik mótsins en
„Skallarnir" virðast hins vegar vera
á uppleið eftir dapurt gengi um tíma.
Leikur liöanna á Akureyri var „köfl-
óttur“, bæði lið sýndu ágætan leik
af og til, en þeir kaflar voru bæði of
fáir og of stuttir til að vera ásættan-
legir fyrir áhangendur liðanna.
HV/gk-Akureyri
3. deild karla í knattspymu:
Völsungur styrkti stöðu sína
Völsungur styrkti stööu sína á
toppi 3. defldar karla og flest bend-
ir tfl þess aö Húsvíkingar endur-
heimti sæti sitt í 2. deild sem þeir
misstu fyrir fjórum árum. Völs-
ungur vann 2-0 sigur á Fjölni á
föstudagskvöldið. Guðni Rúnar
Helgason og Jónas Grarn Garðars-
son geröu mörkin fyrir Völsunga.
Dalvíkingar töpuðu sínum fyrsta
leik í mótinu þegar þeir sóttu Þrótt-
ara heim í Neskaupstað. Þróttarar,
sem hafa verið á góðu skriði að
undanfórnu, sigruðu, 2-0. Mörkin
skoruðu Geir Brynjólfsson og ívar
Kristinsson.
Staða Hauka er orðin mjög slæm
á botninum eftir að Uðið tapaöi á
heimavelli fyrir Selfyssingum, 1-4.
Jón Gunnar Gunnarsson skoraði
fyrir Hauka en Ólafur Þórarinsson
2, Stefán Hólmgeirsson og Hrafn-
kell Björnsson gerðu mörkin fyrir
Selfoss. í síðari hálfleik voru tveir
leikmenn Hauka reknir af leikvelli.
Höttur vann mikilvægan sigur á
Ægi, 2-0, á heimavelli sínum á Eg-
ilsstöðum. Hilmar Gunnlaugsson
og Haraldur Clausen skoruðu
mark Hattar.
Leiknir er í öðru sætinu eftir ör-
uggan sigur á BÍ, 5-1. Steindór Eh-
son var á skotskónum í liði Leiknis
og skoraði þrjú mörk, Axel Ingason
og Róbert Amarson skoruðu eitt
mark hvor. Baldur Ingi Jónasson
gerði eina mark fsfirðinga.
Völsungur.....13 9 3 1 24-8 30
LeiknirR......13 8 2 3 36-17 26
Dalvík..........13 5 7 1 23-14 22
Ægir............13 7 1 5 19-16 22
Þróttur N.......13 7 0 6 22-17 21
Selfoss.........13 6 1 6 24-29 19
Fjölnir.........13 4 2 7 21-20 14
Höttur..........13 4 2 7 15-18 14
BÍ............13 2 3 8 13-29 9
Haukar........13 2 110 11^0 7