Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1995, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1995, Side 4
20 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995 r 6 N L I S X A R [ og Óskar Guðnason - Wishing Well irfri Efnileg frumraun Nafn Óskars Guðnasonar er ekki ýkja þekkt í íslenskum tónlistarheimi enda hefur hann ekki verið mjög áberandi á því sviði hingað til. Hann ku þó hafa átt lag í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrir einhveijum árum. Annars hefur Óskar venð búsettur í Ástralíu undanfarin ár og þess vegna lítið heyrst til hans hér á landi. Wishing Well er fyrsta sólóplata Óskars og er hún gefin út fyrir ástralskan markað. Platan er að hluta til tekin upp hér á landi c nokkrir íslenskir tónlistarmenn koma við sögu. Það eru þeir Ingólfur Steinsson, sem á þátt í að semja bæði lög og texta, Geir Gunnarsson sér um upptökustjórn, útsetningar og hljóðblöndun, Pálmi Gunnarsson á þátt í upptökustjórn á einu lagi og Kristján Edelstein leikur á gítar í einu lagi. En það er Óskar Guðnason sem Der hita og þunga dagsins á plötunni og hann getur borið höfuðið hátt pví þessi frumraun hans er mjög frambærilegt og þroskað verk á margan hátt. Tónlistin er soulkennd með mjúkum alþjóðlegum blæ og enn fremur má greina áhrif frá þriðja heims tónlist a la Deep Forest, ef það segir fólki eitthvað. Söngur á plötunni er afbragðsgóður en söngvarans er ekki getið nema undir nafninu The Phantom, en einhvers staðar var því hvíslað að þetta væri einhver þekktur ástralskur stórsöngvari. Hann er stórgóður hvað sem öðru líður og setur mjög sterkan svip á glötuna. Fyrir vikið verður platan ekki mjög persónuleg frá hendi 'skars nema sem lagasmiðs. Textarnir eru flestir af trúarlegum toga og virðist platan sem heild vera tileinkuð almættinu eins og það kemur Baháfí fólki fyrir sjónir. Platan er þó alveg laus við trúarlega væmni sem oft fylgir trúarplötum og stendur fyllilega fyrir sínu sem mjög frambærileg poppplata. Eitt og annað er þó greinilega gert af vanefnum en vonandi getur Óskar bætt úr því í framtíðmni. - Sigurður Þór Salvarsson Blind Melon - Soup ★ ★★★ Órafmagnaðir snillingar Á sínum tíma hafði ég talsverðar áhyggjur af ofangreindri útgáfu Blind Melon/ Síðasta plata hljómsveitarinnar kom út árið 1992 og var ein besta plata ársins. Ástæður fyrir áhyggjunum voru fréttir af fíkniefnanotkun og lausheldni söngvarans Shannons Hoons á sviði. Sumar hveijar sögðu hann einfaldlega laglausan og hljómsveitinni til skammar. Við hlustun á nýju plötuna kemur hins vegar í ljós að ég var að hafa áhyggjur af engu. Blábyijun plötunnar minnir helst á Tom Waits eða Bob Dylan (nema hvað Hoon er skrækari). Lúðrasveitarómurinn breytist fljótlega í rokk í laginu Galaxie og platan er hafin á loft. Kántríáhrif, djass, pönk og popp koma hlustandanum sífellt á óvart og úr verður meistarastykki. Þessi stefnulausa hippapopprokkhljómsveit hefur gert hið ómögulega, því þegar grannt er hlustað virðist hver og einn vera að spila í sinu homi, en viti menn, útkoman er ein heild. Shannon Hoon býr líka til einstaklega skemmtilegar melódíur (oft hálfgerða tónskratta), hvort það er fíkniefnaneyslunni eða lausheldninni að þakka látum við liggja milli hluta. Hljómsveitin er mitt á milli þess að vera rafmögnuð og órafmögnuð. Þetta virðist skapa skemmtilegt jafnvægi á plötunni þar sem hlustandanum er þeytt upp og niður eftir hentisemi sveitarinnar. Hveijum dytti t.d. í hug að pönkfrasi breyttist í djass (í laginu Dumptruck)? Án þess að á hin lögin sé hallað eru bestu lög plötunnar: Galaxie, 2x4, Skinned, Walk, Dumptruck og Car Seat (God's Presents) en eins og flest meistarastykki vaxa hin lögin með manni þangað til að ekki er hægt að hlusta nema á alla plötuna. Blind Melon á því hrós skilið fyrir fjölbreytta plötu sem á erindi inn á heimili allra sannra tónlistarunnenda, þú ert meðtalinn. - Guðjón Bergmann Brían Wilson -1 just Wasn't Made for These Times ★ ★ Reynt að fanga Beach Boys andann Án Brians Wilsons hefðu Beach Boys aldrei slegið í gegn á sjöunda áratugnum. Og þegar betur er að gáð náðu þeir sér sennilega aldrei virkilega á strik eftir að hann gekk úr flokknum af heilsufersástæðum. Alla tíð síðan hafa menn velt fyrir sér heilsu gamla snillingsins og hafa fjölmiðlar miklu frekar fjallað um hana en það sem hann hefur fengist við á tónlistarsviðinu. I just Wasn't Made for These Times er það fyrsta sem Brian Wilson sendir frá sér síðan árið 1988 þegar hann gerði plötuna Brian Wilson með dyggri aðstoð geðlæknisins síns, Eugenes Landys. Það leynir sér ekki að karlinn er í lítilli söngæfingu og því miður eru sum lög plötunnar óttalegar undirmálstónsmíðar miðað við það besta sem hann hefur látið frá sér fera. Gamla lagið Do It Again, sem Beach Boys gerðu vinsælt undir lok sjöunda áratugarins, er á plötunni og það ber af öðrum lögum hennar. í því radda dætur Wilsons, Carnie og Wendy, af stakri prýði. En þótt lögin séu ekki lengur sömu gæðasmellimir og í gamla daga er reynt að bjarga þeim með vönduðum útsetningum og smart raddsetningum í gamla Beach Boys andanum. Það tekst víða ágætlega og fyrir vikið er til dæmis Love and Mercy hið áheyrilegasta. Melt Away er annað lag sem vel má hlusta á. Eitt lag plötunnar er hins vegar algjörlega út úr kú, það er Still I Dream of It, nítján ára prufuupptaka, illa hljóðrituð auk þess sem Wilson er þar falskur á köflum. Gamlir Beach Boys aðdáendur kunna að finna eitt og annað við sitt hæfi á I Just Wasn't Made for These Times en tæpast aðrir. Því miður virðist titill plötunnar vera við hæfi. Tími Brians Wilsons er liðinn. -Ásgeir Tómasson Hljómsveitin Tweety á tvö lög á nýju safnplötunni, Bí Bí og Morgun, sem bæði hafa fengið þónokkra spilun í útvarpi þetta sumarið. DV-mynd BG Ellefta Reifplatan í röðinni: Reif í budduna Þann 25. ágúst síðastliðinn var gef- in út ellefta platan í Reifútgáfúröðinni. Spori hf. fannst því tilefni til að brydda upp á nýjungum, nú þegar útgáfuröð- in hefur göngu sína upp annan tuginn. Tíu fyrstu Reifþlötumar hafa fengið frábærar móttökur og verður sú ell- efta því tvöfold en seld á verði einfaldr- ar plötu. Kaupendur útgáfúraðarinn- ar fá því sannkallaðan aukabónus sem þakklætisvott fyrir gott gengi Reifút- gáfunnar. Samtals eru á plötimum 37 lög eða tveir og hálfur klukkutími af tónlist. Nafn útgáfunnar er Reif í budduna en engu að síður bera plötumar tvær, sem útgáfan samanstendur af, hvor sitt nafnið, Velkomin í partíið og Vel- komin í reiflð. Velkomin í partíið Fyrri platan ber nafnið Velkomin í partíið. Á henni era 19 lög og byrjar hún tilhlýðilega á lagi D.J. Bobo, There Is a Party. Islenska hljómsveit- in Tweety á tvö lög á plötunni, Bí Bí og Morgun, sem bæði hafa fengið þónokkra spilun í útvarpi þetta sum- arið. Að venju eru það Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og Andrea Gylfa- dóttir sem semja lög og texta. Aðrir meðlimir sveitarinnar em Máni Svav- arsson, Eiður Arnarson og Ólafur Hólm en í báðum lögunum njóta þau aðstoðar Eyþórs Gunnarssonar á rhodes-píanó og Óskars Guðjónssonar á sópran- og tenórsaxófón. Lögin vom hljóðrituð í Grjótnámunni í maí á þessu ári. Fantasía á einnig lag á plötunni og ber það nafnið Secret Lier. Sem fyrr em það þau Selma Bjömsdóttir, Jón Andri Sigurðsson, Trausti Heiðar Haraldsson og Tómas Gunnarsson sem skipa sveitina. Sálina hans Jóns iníns þarf nú vart að kynna fyrir lesendum DV. Hún gaf út plötuna Sól um nótt fyrr í sumar og á þama lagið VUlidýr í endurhljóð- blandaðri útgáfu Dig-it drengjanna. Erlendir flytjendur á fyrri plötunni eru: 2Unlimited (Nothing Like the Rain), E-Rotic (Max Don’t Have Sex With Your Ex - góður titill), Chuck (Baby Come Back), Jam & Spoon Feat. Plavka (Angel), Rob ‘N’ Raz Feat. D- Flex (Mona Lisa), Dat-R (What Has Happened to My Life), Dr. DJ. Cerla Feat. (Brownestone), Jaki Graham (Absolute E-Sensual), Clock (Whoomp!), Fever Feat. Tippa Irie (Staying Alive), Caught in the Act (My Arms Keep Missing You), Winx (Don’t Luagh), Fun Factory (I Wanna Be with You), S.A.Y. Feat. Pete D. Moore (Music Takes You Higher). Spor-menn segja fyrri plötuna ekki innihalda eins hreinræktaðan dans- tónlistarstíl og fyrri Reifplötumar en engu að síður sé þar að fmna pottþétta stuðstemningu. Velkomin í reifið Seinni platan ber nafnið Velkomin i reifið og á henni er aðeins hröð, takt- fost, erlend danstónlist, átján lög með flytjendum eins og Slider, Wonder- land, Hi-Score, L.A. Style, Full Option, Corruption, Party Ravers, Aqualuna, Brothers in Anomolies, Unicorn, Swat, I-Dee, 911, Paco, Trance Opera, Rage at Dawn og X-Ander. Á seinni plötunni er víst um botnlausa keyrslu að ræða. Umsjón útgáfunnar og lagaval var í höndum Jónatans Garðarssonar, Steinars Berg og Marinós Viborg. Um hönnun umslags sá auglýsingastofan Sjöundi himinn en teikningar gerði Halldór Baldursson. Það er nokkuð ljóst að allir Reifað- dáendur ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á þessari tvöfóldu plötu á verði einnar, Reif í búdduna. -GBG Paul Weller - Stanley Road: Warren Zevon - Mutineer: Edwyn Collins - Gorgeus George: ★★★ ★★★ ★★★ Tónlistin hefur nokkuð þungan Zevon sér um allan söng sjálfur og Gorgeus George er sannfærandi undirtón en er samtímis melódísk og þótt hann sé kannski ekki besti og persónuleg plata, full af skemmti- margslungin og þarfnast töluverðr- söngvari í heimi setur söngurinn legum lögum og liprum melódíum. ar hlustunar áður en hennar verður sterkan persónulegan blæ á plötuna -SÞS notið að fuEu. og gerir hana jafn góða og raun ber -SÞS vitni. -SÞS Chris Isaak - Forever Blue: Ry Cooder - Music by Ry Cooder Gary Moore - Blues for Greeny: ★★★ ★★★ ★★★ Forever Blue er enn ein skraut- Þessi tvöfalda plata . . . er sýnis- Blues for Greeny er bæði Moore fjöðrin í hatt Chris Isaaks og er kom- hom af því besta sem Cooder hefur og Green til mikils sóma og á Moore inn tími til að almenningur gefi þess- látið frá sér fara á sviði kvikmynda- heiður skilinn fyrir að kynna tónlist um ágæta tónlistarmanni verðskuld- tónlistar. Peters Greens fyrir yngri blúsaðdá- aðan gaum. -SÞS endum. -SÞS -SÞS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.