Þjóðviljinn - 29.11.1936, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 29.11.1936, Blaðsíða 2
Sunnudaginn 29. nóvember. PJÖÐVILJINN Barnaheimili og leikYellir Rcykj a v í k nrbarnan na. Mynd þessi er tekin úr amer- ísku kvikmyndinni »Grunuð um morð«. Myndin er af hinum fræga leikstjóra. Walter Wanger, fyrir Paramount. Aðalhlutverk- ið, hina ákærðu leikur enska leikkonan Madeleine Carrol, er þetta fyirsta stórmyndin, sem hún kemur fram í vestan hafs. Irski leikarinn George Brent leikur. annað aðalhlutverkið. Jó nsmessunætnr- draniituc. Það’ er sjaldgæft að sjá slíka mynd á kvikmyndaleikhúsum hér sem þessa. Hún er alveg sérstök í sinni röð, alt öðruvísi en kvikmyndir þær, sem hér eru venjulega. sýndar. Það er furðulegt, að takast skuli að láta. þá rómantík, sem þetta leikrit Shakespeares er þrungið af, njóta. sín á kvik- mynd. Og það væri ekki hægt nema sakir þess, að hér er einn fuilkomnasti listamaður að verki, sem til er í þe&sari grein, snillingu-rinn Max Reinhardx. Hér skal ekki reynt að skýra né skilgreina innihald og list þessa leikrits ogkvikmyndarinn- ar. Það er ómögulegt að lýsa í stuttu máli þeirri fegurð og Frb. á 4. síðu. Göturnar í Reykjavík eru leik- vellir barnanna. Barnaheimili er aðeins til fyrir lítinn hóp þeirra ótal mörgu, bama., sem: nauðsyn- lega þurfa. að komast á barna- heimili. Við vitum að fjoldi barna. í Reykjavík býr í heilsu- spillandi íbúðum og vanta þá néeringu, sem. börn nauðsynlega þurfa, til þess að geta staðist gegn þeim mörgu, bamasjúk- dómum, sem! auðvitað eru tíð- astir á heimilujm alþýðunnar. I 2 undanfarin, sumur hefur Reykjavikurdeild Alþjóðasam- hjálpar Verkailýðsins starfrækt barnaheimili í barnaskólanum í Bra.utarholti á Skeiðum. Margir hafa sýnt; góðan skilning á þessu mikla nauðsynjamáli, með því að styrkja heimilið á einn, eða, annan hátt og á verka- lýðurinn sinn drjúga þátt í því að mögulegt var að starfrækja heimilið, með því að leggja fram vinnu sína. í þarfir þess, sækja skemtanir, sem haldnar voru til ágóða fyrir barnaheimilið, o. fl. En betur má ef duga skal. Eins og öllum er Ijóst, getur Barnaheimilá ASV . eitt, engan veginn bætt úr þeirri miklu I>örf, sem er fyrir barnaheimili fyrir börn héðan úr bænum. I þessi sumur, sem heimilið hefir starfað, hefir það tekið öll börn in endurgjaldsiaust, enda leit- ast við að taka þau, börn, sem verst eru, stödd, svo sem börn atvinniuleysingja og einstæðings- mæðra, En til þess að möguleiki sé ' fyrir því, að Barnaheimili ASV verði starfrækt í framtíð- inni, þarf að gera þá sjálfsögðu. kröfu til bæjarfélagsins, að það styrki barnaheimilið. Þetta verð- ur að vera, skýlaus krafa ekki aðeins ASV, heldur allrar al- þýðu. Allur f jöldinn af Reykjavíkur- börnum verða að hírast í bæj- arrykinu alt sumarið, oft við einhverja vinnu (sendiferðir, barnfóstrun o.. fl„) og er þessi barnaþrælkun áreiðanlega einn af mestu smánarblettum hins borgaralega, þjóðskipulags. Hvernig börnin eru fær um að byrja. aftur að haustinu til, að púla, í skólanum, við lestur og inniveru, ættum við öll að geta hugsað okkur. Hvað þessi barnaþrælkun leið- ir af sér, væri verkefni fyrir ckka.r ágætu lækna, að útskýra. Þeir hafa oft, í ræðu og riti, haldið því fram, að gott og heil- næmt fæði væri það eina sem dygði gegn berklaveikinni, en væri ekki tími tit kominn fyrir þá sömu l.ækna, sem bæta vilja »mein þjóðfélagsins«, að benda á þörfina. fyrir fleiri barnaheim- ili, þar sem, börnin gætu, notið þessarar heilnæmu fæðU), og jafnframt, athugað hvort ekki væri mögulegt að banna með lögum þá barnaþrceikun, sem virðist fara í vöxt með hverju ári. Af þeirri reynslu, sem ASV, með starfrækslu barnaheimilis- ins, hefir fengið, virðast einstæðingsmæður vera einna, verst staddar af öllum. Þær þurfa, sjálfar að fara, í atvinnu,- leit að surorinu til. 1 síld, kaupa- vinnu o. fh og sjá sér oftast ekki annan kost, en að taka. bamið með’ sér, semi verður þess valdandi, að móðir þess fær þeim roun minna, greitt fyrir vinnu sína — eð'a, hún verðuir að koma barninu fyrir og gefa með því. Fer þá að verða lítill ágóði af sumarvinnunni — eða einu tekj- unuro, sem móðirin hefir til þess að framfleyta með lífi sínu og barnsins yfir langan og kaldan vetur. Þetta, er aðeins ofurlítil spegil- mynd af þvi, hvernig Reykjavík- urbær sér fyrir yngstu kynslóð- inni í höfuðstaðnum — og er þó margt óupptalið enn þá. Alþýðukonur! er ekki tími til kominn að hefjast handa? Við höfum margar okkar reynt hvað það ér að geta, ekki lofað börn- unuro okkar að njóta heilnæmi sveitaloffcsins og hvíldar, eftir veikindi og erfiði vetrarins. Tök- u,m því allar höndum, saman í baráttunni fyrir því, að börn okkar fái að lifa við betri kjör. svo þau geti orðið okkur styrk- ur í lífsbaráttunni. Tökum öll undir þá kröfu ASV, að engin bið verði á því,. að Reykjavíkurbær sjái börnum sínum fyrir nægum barnaheim- ilum og leikvöllum. V erkakona. Svona ei*u leikvellir barnuimu í Reykjavík. J ÓLABAZAH til ágóða fyrir Barnaheimili. 4 S. V. Barnaheimilisnefnd ASV hef- i,r ákveðið að koma upp jóla,- bazar til ágóða fyrir Barnaheim- ili ASV, um miðjian desember- mánuð.' Undirbúningur er þegar haf- inn og starfa, saumahópar á nokkrum stöðum í bænuro. Enn- frerour hafa margar féljags- og utanfélagskonur lofað munum á basarinn. AlLir, sem skilning hafa á þeirri nauðsyn, að Bamaheiro- ili ASV starfi áfram, ættu ekki að liggja á liði sínul Tiikynnió sem fyrst ef þið ætlið að gefa eitthvað á basarinn eða aðstooa okkur á einn eða annan hátt. Verum samtaka í því, að koma upp stórum og faLlegum jólabas- ar, sem gæti orðið verulegur styrkur fyrir barnaheimilið! Munið! að tíminn ei” naumur. Koroið sem fyrst á skrifstofu ASV, Hverfisgötu 3í, þar sem tekið er á móti mnnum á bas- rinn og allar nánari upplýsing- a,r gefnar, Skrifstofan er opin daglega; kl„ 5—7. Barnalieimilisnefndin. KAFFIKV OLD heldur A.S.V. í Oddfellow-húsinu, uppi á sunnu.daginn kl, 8i e. h„ Fjölbreyttt skemtiskrá. Einsöngur o. fl. Þar á meðal, skemta hinir vinscelu ungherjar. Salurinn skreyttur. Mæðrum þeiro, sem börn áttu á barnaheimili A.S.V. í sumar, er boóið á kaffikvöldið. Barnahei milisn efn din~ HELSKIPIÐ eftir B. Traven 17 — Við vituim hvar við eigum að leita. Þér getið treyst því, Mér kom þetta raunar ekkert við, og mennirnir fundu, ekkert, Þegar þessu embættisverki var lokið, sagði annar maðurinn við mig: ~ Lítið þér nú á. Þarna er leiðin til Rotterdam, og nú farið þér þangað og látið engan verða, varan við yður. En ef þér rekist aftur á landamæraverði, þá skulið þér ekki hafda, að þeir séu, eins heimskir og þér hélduð, að við værum. Er virkil.ega, orðið svo illa ástatt fyrir ykkur í Ame- ríku, að þið þurfið að koma til okkar og éta upp þessa ögn, sem við höfuro að borða, — Mér var nauðugur einin kostur, ég var ekki sjálfráður ferða minna og ég veit bezt sjálfur, hvern- ig á ferðum mínum stendur. — Það var d;álítið skrítið að við skyldum endilega þurfa að rekast á yður hérna, Þetta var stórmerkilegt, líklega hefi ég verið sá eini, sem flæktist þannig um í f jarlægum heimshlut- um. — Flýtið yður nú af stað og látið ekkert hindra, för yðar. Eftir lítinn tíma íer að birta og þá verðið þér að vera búin að koma öllu í kring. Það er ágætt fyrir yður að fara til Rotterdam. Þar verður yður ekki skotaskuld ú,r því að útvega yður skiprúm. Hve oft var ekki búið að segja mér þetta. Ef þessi sífelda endurtekning hefði komið að nokkru haldi, þá hlaut þetta að vera orðin vísindaleg sannindi. Með þrjátíu, frönkum gat ég ekkert aðhafst í Rott- erdiam, Það yrði Ijóta, klípan. 1 sama bili bar þar að mjólkurvagn. Vagnsíjórinn bauð mér sæti. Þegar við áttum ekki lengur sa,m- leið, kom vörubíll og með honum hélt ég áfram um hríð. Það1 rakst ég á mann sem var að fara til borg- arinnar með svín. Þamnig þokaðist ég smám saman í.áttina*til Rotterdam. Strax þegar mennirnir eru. komnir spottakorn frá lögreglunni eru þeir aftur orðn-, ir eins og menn og geta hugsað snjallt og gert ým- islegt hyggilegt. Ég sagði þessum: náungum alt af létta um ferðir minar og að ég væri vegabréfslaus. Mennirnir reyndust mér hið besta, og gáfu mér mat eftir þörfum. Þeir lofuðu mér ennfremur að sofa og gáfu, mér góð ráð um, hvernig ætti að ganga á snið við lögregluna,. Þetta var merkilegt fyrirbæri. öllum virtist vera þungt í hug til lögreglunnar. Við innbrot leita menn aðeins á náðir lögreglunnar af því, að þeir mega ekki sjálfir jafna um höfuðbein þjófanna, og taka af þeirn ránsfenginn. IX. Þrjátíu frankar eru ekki mikið fé, þegar búið er breyta þeim í hollensk gyllinj. Ég flæktist um niðri við höfnina, og skyndilega mætti ég tveimur mönnum, Þegar þeir voru. komnir nærri mér komst ég að raun um hvað þeir voru að tala, um. Það er gaman að hlusta á Englendinga ræða sín á milli. Englendingar halda, því altaf fram, að við Bandaríkjamenin getum ekki talað ensku svo að „sæmilega sé. En það er hinn mesti misskilningur. Sjálfir tala þeir mikið ver en við. Enskan hjá þeim er yfir höfuð ekkert mál. En, það gerir ekkert.tih Mér geðjast ekki lyktin af þeim, en, það gegnir víst sama rnáli með álit þeirra áokkur. Það gietur jafnast. Þetta eru sennilega aðeins gamlar væringar á milli þessara tveggja frændþjóða. En nú hefir auðviíað soðið upp úr pottinum meo samúð þeirra sí.ðustui árin, Hvar, sem við flækjumst um heiminn verða, Eng- lendiingar altaf fyrir okkur. Það! er alveg sama, hvort við förum til, Ástralíu, Kína eða, Japan. Ef við vilj- um fá okkur í staupinu og, komum inn á knæpu, þá er hún full f Englendingum, Við erum varla komn- ir inni þegar þeir byrja, Jæja,. Yank. ■ Okkur langar ekkert til þess að kynnast þeim nán- ar, svo að við förum út. Skyndiþga er kallað úr einhverju horninu,. — Who won the war. YankA') Mér kemur það ekki vituind við. Það er langt frá mínum áhugamálum að ræða þaninig lagaða hluti. Ég hefi ekki unnið stríðið, það eitt veit ég. Allt ann- að er mér sama u,m„ Þeir, sem unnu. það, hafa heldur ekki af neinu að stæra sig. Þeir ættu að gleðjast yfir því, ef sem fæstir vildu minnast á slíkt brjálæði.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.