Þjóðviljinn - 30.05.1937, Blaðsíða 2
Sunnuidagurinn 30. maí. 1937.
ÞJÖÐVILJINN
Verklýdsiéiag Nor5i|ai»5-
ar fímtán ára í dag.
Félagið er á öruggri framfarabraut undir róttækri samfylkingarstjórn
1 dag, 30 maí 1937, á Verk-
lýðsfélag Norðfjarðar 15 ára af-
mæli.
Félagið 'er stofnað þenna dag,
árið 1922, af Ölafi Friðrikss'yni,
en tii stofnfundarins boðuðu, á-
samt Ölafi, þeir Vigfús Sigurðs-
son og Gwðjón Sírrumarson. Vig-
fús og Guðjón erui báðir Norð-
firðingar, og hafa þeir verið öt-
ulir brautryðjendur beggja
þeirra félagsstrauma, sem mest
hafa sett svip sinn á Norðf jörð,
sem og fleiri héruð landsins, en
það er verkalýðshreyfingin og
Góðtemlp ar areglan.
Stofnendur Verkalýðsfélags
Norðfjarðar voru 27. Fyrsta
reglulega stjórnin var kosin á,
næsta fundi eftir stofnfundinn,
10. júní 1922. 1 henni hlujtu sæti:
Formaður: Jón Rafnsson, vara
formaður: Ingimar Ölafsson, nú
verkamaður á Norðfirði, ritari:
Steinn Jémsson, nú kennari s.st.,,
gjaldkeri: Vigfús Sigurðsson,
smiður. Hann dó í lok aprílmán-
aðar s. 1. — Fjármálaritari: Guð-
jón Símonarson, nú útgerðar-
maður á Norðfirði.
Áhugi var mikill meðal, verka-
manna um kjarabætur, en þar
var við ramman reip að draga.
Harðsvíraðir atvinnurekendur
höfðu öll ráð fólksins í hendi sér,
það var háð þeim fjárhagslega,
og varð að hlýða boði þeirra og
banni.
Þá, mátti heita að tveir stór-
atvinnurekendur róðu öllu í
plássinu, þeir Sigfús Sveinsson
og Konráð Hjálmarsson. Þeir
keyptu fisk af Norðmönnum og
Færeyingum, og höfðu fleiri tugi
manna í vinnu fyrir lágt kaup,
en seldu svo fólkinu rándýrar
vörur. Auk þessara tveggja voru
þá Sameinuðu verslanirnar stór
atvinnurekandi.
En þessi voldugu og fínu fyrir-
tæki hafa nú lækkað segljn, og
eru sum farin á, hausinn.
Á þessum uppgangsárum »ein-
stakling,sframtaksins« streymdi
fjöldi manns til Norðfjarðar,
heilar fjölskyldur af hinum
Austfjörðunum fluttu sig þang-
að, og unnui hjá fiskkaupmönn-
unum á, sumrin. Margt af þessu
fólki ílendist svo í hinum unga
og uppvaxandi Neskaupstað, og
fjölgaði fólkinu með hverju ári.
Verkalýðsfélagið átti á þess-
um árum við ofurefli að etja,
harðvítuga og samviskula,usa at-
vinnurekendur og eins var stétt-
Bifreiðastöðin Geysir
1633.
býður yður þægilegar bifreiðar.
Fljóta afgreiðslu og rétt verð.
Reynið viðskiftin.
8ími 1633.
T i lkynning.
Er fluttur á bifreiðastöðina GEYSIR við Arnarhólstún.
Ferðir til Keflavíkur á sama tíma og áður.
Auk þess ferðir á sunnudögum.
1633 - Sími — 1633
Skúli Hallsson.
IVý yerzlnn
Seljum allskonar nýlenduvörur fyrir lægst verð
Verzlunin Mðrk,
Vesturgötu 21. Sími 1678.
Auglýsing.
Vitamálaskrifstofan er fflutt í Dórsham-
ar, Templarasundi 5.
Vitamálastjóri.
Jóhannes Stefánsson,
formaður félagsins.
arþroska verkalýðsins á.bóta-
vant. Gekk félaginu illa að fá
launakjör félaga sinna bætt. At-
vinnurekendur heimtuðu stöð-
ugt lauinalækkun, og tókst, stund-
um að koma henni fram. En auk
kaupgjaldsmálanna lét félagið
önnur mál til sín taka, svo sem
vöruinnkaup, heilbrigðismál,
húsabyggingarmál o. fl.
Lengst, af hefir Jónas Guð-
mundsson verið formaður félags-
ins. Um, stjórn hans má segja,
að fyrstu, árin hafi hún verið
góð. Félagið var vel lifandi, og
vann ákveðið að hærra kaupí
og styttum vinnutíma og varð
allmikið ágengt. En síðustu árin
má .hiklaust segja að stjórn Jón-
asar og félaga hans hafi verið
hemill á alla starfsemi félagsins,
áhugi hefir dofnað, fundir
haldnir sjaldan, og fél.agið hefir
ekki verið sá sterki þáttur í
kaupgjalds- og bæjarmálum,
sem það hefði getað verið og átf
að vera. Hefir raunasagan um
hnignun félagsins verið rakin
hér í blaðinui ekki alls fyrir
löngui, og skal ekki farið út, í það
hér.
Verkalýðsfél.ag Norðfjarðar
hóf sig upp úr niðurlægingunni
í vetur, er það kaus róttæka
samfylkingarstjórn, og gerði
uipp við þá menn, sem ekki höfðu
fylgst meó þróun verklýðssam-
takanna og vorui orðnir hemill á
starfsemi þess. Alþýðan á Norð-
firði fann það, að stefna, komm-
únista í málefnum verkalýðsfé-
laganna, róttæk hagsmunabar-
átta allra, vinnandi manna, án
tillits til mismunandi stjórn-
málaskoðana, var stefna, fram-
tíðarinnar.
Ungir og áhugasamir kraftar
fengu tækifæri til að beita sér.
Og þau föstu tök, sem nýja.
stjórnin hefir tekið hagsmuna-
málin, hátíðahöldin 1. maí og
margt fleira bendir til þess, að
verkalýðshreyfingin á Norðfirði
sé nú á öruggri framfara- og
þroskabraut.
Formaður félagsins er Jó-
hannes Stefánsson.
Þjóðviljinn sendir Verklýðsfé-
lagi Ncrðfjarð’ar bestu kveðjur
og heillaóskir á 15 ára afmælis-
daginn, og treystir því til styrkr-
ar og öruggrar baráttu fyrir
hagsmunum norðfírskrar alþýðu,
í nútíð og framtáð.
Kjósið
D-listann.
Vér ákærum.
FRAMHALD AF 1. SÍÐU
málum, og með aðstoð bankanna
hefir lagt pann gífuriega skatt
dýrtíðarinnar á þjóðina og at-
vinnvMf hennar, sem hún er að
kikna undir. Þessi klíka hefir
tekið á ári 5 miljónir króna í
hreinan gróða af þjóðinni, ein-
mitt þegar mest þrengdi að hjá
a lþýðu manna.
Og nú ganga þessir fjármála-
drotnar til kosninga, undir
grímu Breiðfylkingaríhaldsins,
— skríðandi fyrir fólkinu, sem
þeir ræna, — skjallandi þjóðina,
sem þeir svíkja, — og lofa nú
öllu öfugui við það, sem þeir
hafa verið. að efna síðustu 20 ár-
in. Tilgangurinn er, eftir að hafa
nú arðrænt þjóðina í 20 ár, að
fjötra hana í hlekki fasismans,
af því þeir eru farnir að ótfast,
að fái hún að tala og skrifa
frjáls og skipuleggja mát't sinn
í samtökum hins vinnandi fólks,
þá sé valdi þeirra lokið.
Islendingar! Það ríður á að
hrinda sókn þeirra, standast
blekkingar þeirra, — dæma þá
20. júní fyrir óstjórn þeirra á
landinu. — Islenska, vinnandi
þjóðin tekur 20. júní sjálf örlög
sín í sínar hendur og neitar að
beygja sig lengur fyrir boði
Kveldúlfs- og Landsbankaklík-
unnar!
99
Gerfimenn“
I dag sýnir Leikfélag Reykjavíkur hið vinsæla leikrit, aGerfi-
menn«, sem allir tala u,m í bænumi Leikfélagið sýnir nú leikinn
við lækkuðu verði og þar sem sýningin í dag er í næst síðasta
sinn ættu allir að nota sér þau vildarkjör, sem hér eru í boði.
Um ágæti leiksins eru, allir sammála. — Hér á myndinni sést
Ragnar Kvaran sem Almquist og nokkrir gervimannanna.
Hlutavelta.
verður baldin til ágóða fyrir barnaheimilið »Vorboði«.
í K. R.-húsinu í dag kl. 4 e. h.
Margir ágætir drættir^ svo sem: Bókaskápur, Bílferðir til Akureyrar. Búðardals,
Fljótsblíðar og Laugarvatns, Permanent-hárliðun, Polyfoto-myndatökur, Mveiti í
sekkjum, Sykur í toppum og allsk. matvara, fatnaður og ótal margt fl. eigulegt
Gó5 músik. Dansad eftir klutaveltnna.
Reynið hamingjuna, styðjið gott málefni. Allir í K. R.-húsið á moi*gnn
]\efnd[|n.