Þjóðviljinn - 13.06.1937, Qupperneq 4
ajs Ný/eJó'io ap
Litli lávarðurinn
Heillandi amerísk kvilc-
mynd eftir sögu Fr. Hodg-
son Burnetts, sem komið
hefir út á íslensku og er
vinsælasta saga enskumæl-
andi landa.
Aðalhlutverkin leika:
Freddie Bartholomen,
DoJores CosteUo
Barrymore.
Guy Kibee o. fl.
Sýnd í kvöld
kl. 5, 7 og 9.
Barnasýning M. 5.
Lækkað nerð M. 7.
Garolarb'io ^
„Jutta frænkaÉÍ
(Slákten ár verst)
Sýnd kl. 5, 7 og 9
(Barnasýning kl. 5)
(Aiþýðusýning kl. 7.)
Næturlæknir.
í nótt Halldór Stefánsson,
Skólavörðustíg 12. sími 2234,
aðra nótt Hannes Guðmundsson
Hverfisgötu 12. Sími 3105.
Næturvörður
er þessa viku í Reykjavíkur-
apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Utvarpið
17,40 tJtvarp til útlanda
(24,52m). 19,20 Hljómplötur:
Divertimento o. fl. lög, eftir
Mozart. 20,00 Fréttir. 20,30
Leikrit: »Rósir alt árið«, eftir
Julio Dantas (Emilía Borg, Þóra
Borg). 21,00 Hljómplötur: Söng-
lög (Comedian Harmonists).
21,30 Danslög (til kl. 24).
plÓÐVIUINN
Kosningaumræður
í útvarpinu byrja annað kvöld
(mánudag) og verða þær um-
ræður sérstaklega fyrir Reykja-
vík, en á þriðjudags- og mið-
vikudagskvöld verða almennar
landsmálaumræður.
Umræðurnar hefjast kl. 8 öll
kvöldin. Annað. kvöld tala flokk-
arnir í þessari röð: Framsókn,
Alþýðuflokkurinn, Kommúnista-
flokkurinn, S j álf stæðisf lokkur-
inn. Hefir hver flokkur alls
einn klukkutíma til umráða, og
skiptist, tími hvers flokks í
þrent,: 30 mín, 20 mín. og 10
mín.
Fulltrúar Kommúnistafl. og
Alþýðufl. knúðu það fram. að
kosningaumræður yrðu hafðar
3 kvöld, en ekki tvö eins og hinir
flokkarnir vildu.
Kjósendur
sem fara út á land fyrir kosn-
ingar eru ámintir um að kjósa
á skrifstofu lögmanns í Miðbæj-
arbarnaskólanum. Skrifstofan
er opin til kl. 10 á kvöldin.
Verkfall bifvélavirkja
Bifvélavirkjar hófu verkfall í
gærmorgun, þar sem samningar
höfðu, ekki tekist, við verkstæð-
iseigendur. Náði verkfallið til
um 60 manns á öllum bílavið-
gerðarverkstæðum bæjarins.
Fóru bifvélavirkjar fram á
dálitla launahækkun, sumarfrí,
kaup í slysatilfellum og viður-
kenningu á félaginu sem samn-
ingsaðila.
Samtökin eru ágæt, og strax
í gœr sómdu Strætisvagnar
Reykjavíkur og B. S. R. og
gengu að öUum kröfum bifvéla-
virkjanna.
Mu,nu félagsmenn ákveðnir í
að fá kröfum sínumi framgengt
að fullu.
Einar Olgeirsson og
Halldór K, Laxness
tala fyrir hönd Kommúnista-
flokks Islands í útvarpsumræð-
unum annað kveld.
Kosninga-
sjóðurinn
Á föstud. og laugardag
söfnuðust kr. 128,30
Áður var komið inn — 5307,00
Samtals kr. 5435,30
D-Iistinn
er listi Kommúnistaflokksins.
Kosningaskrifstofa lögmanns
er opin kl. 8—10 eftir hádegi.
fer á þriðjudagskvöld 15. júní
u,m Vestmannaeyjar til Leith og
Kaupmannahafnar.
Farseðlar óskast sóttir fyrir
hádegi sama dag.
fer á fimtudagskvöld 17. júní
umi Vestmannaeyjar og Aust-
firði til Kaupmannahafnar.
Farseðlar óskast sóttir fyrir
hádegi sama dag.
f$ys3££8!&£áMB&Bi • Ú8SS&
Bifreiða§iöðin Geysir
við Arnarhólstún.
ieggnr aðaláherslu á að gera viðskifía-
vini sína ánægða.
Opið allan sólarhringinn.
Sími 1633. Sími 1633.
Viltu fá að vita lrvernig kosningarnar fara?
1 fyrramálið verður selt á götunum rit sem meðal annars flytur OD Á TIOIVI \
kunnugra manna i öllum stjórnmálaherbúðunum, um ríL/UIUrl
HVERJIR NÁ KOSNINGU 20. JÚIVÍ?
PALLADÓMAR um þingmannaefni Reykjavíkur o.fl. er mun vekja almenna athygli.
30—40 BÖIubörn fá sjaldgæft tækifæri til að vinna sér inn töluverða
peninga. Verðlaun. Komi á Vesturgötu 27 kl. 9—10 í fyrramálið.
Ávarp frá H. K. L.
FRAMHALD AF 1. SIÐU
Eg held að þetta, svar fjöld-
ans, sem verður með hverjura
deginum skýrara, sé alveg rétt.
Ég held að það feli í, sér þá
stefnu, sem við samfylkingar-
menn hljótujm að fylgja í svíp-
inn. Krafan um sterkan Komm-
únistaflokk er í þessum kosn-
ingum orðin almenn krafa í
landinu, og þá alveg sérstaklega
hér í Reykjavík. Það er krafa
fólksins sjálfs. Eftir því sem
Morgunblaðið og áhangendur
þess arga oftar sitt gamla Grýluc
kvæði um kommúnistana, jDeim
mun sannfærðara verður fólkið
hér í Reykjavík um að Kommún-
istaflokkurinn sé eina aflið,
sem íhaldið þurfi að hræðast. Al-
menninguir er farinn að trúa á
hina ungm. sterku, og einlægu
krafta Kommúnistaflokksins og
heimta að þessir kraftar komi að
fullum notum í frelsis- og menn-
ingarbaráttu, þjóðarinnar, bar-
áttúnni gegn íhaldinu. Fólkið er
alment búið að fá þá sannfær-
ingu, að Kommúnistaflokkúirinn
sé sá flokkur, sem samkvæmt
eðli sínu geti aldrei samið við í-
haldsöflin né ánetjast, auðhring-
unum. Þessa öldu, er ekki fram-
ar hægt að stöðva.
Um leið og kosning Einars 01-
geirssonar (ásamt tveimur upp-
bótarþingmönnum að minsta
kosti) er eina tryggingin fyrir
vinstrimeirihluta á Alþingi, er
hún um leið trygging samfylktr-
ar vinstribaráttu, trygging þess
að hinir sterku, mentuðu og vel
skipulögðu kraftar Kommún.-
istaflokksins komi að fujlu gagni
á hinum afdrifaríkustu vett-
vöngum í menningarbaráttu
þjóðarinnar gegn íhaldi og fas-
isma.
Reykjavík, 12. júní,, 1937.
Haltdór Kiljan Laxness.
Moran eftir Frank Norris. 49
aði engut Og hún tók svo fast um stýrishjólið,. ao
hnúar hennar hvítnuðu.
XII. Lífsvenjubreyting.
Það. hafði verið óvenju fjörugt veislur og skemt-
analíf á Hótel Coronado þenna vetur. Ung stúlka frá
San Francisco hafði í einu stórblaði borgarinnar gefið
nákvæmar lýsingar á »hinni óslitnu röð hátíðahalda«
er þar höfðu verið. Hún hafði einnig tilkynt, að meðal
þeirra nýkomnu væri hr. Nat Ridgeway,, frá San
Francisco, en hann hafði komið með fjörugan hóp
ungra manna og kvenna á lystisnekkju sinni »Petrel«.
Af þeim hóp mætti aftur nefna frk. Josie Herrick,
sem menn myndu eftir frá fyrstu teveislunni, sem hún
hélt þenna vetur, — sem svo mjög var umtöluð, o. s.
frv.
»Petrel« hafði legið þarna á höfninni í nokkra
daga, og kvöldið, sem Moran og Wilbur vörpuðu þar
akkerum,. átti einmitt að verða móttökudansleikur fyr-
ir farþegana á lystisnekkjunni.
Ákyeðið hafði verið, að Nat Ridgeway og frk. Josie
Herrick ættu að »opna« ballið. En þennan sama dag
höfðu þau, farið ökuferð til Tia Juana, og frk. Herrick
kom ekki aftur fyr en á síðasta au,gnabliki. Þá var
alt búningsstandið eftir, og þurfti hún sér þar til að-
stoðar móður sína, yngri systir, fylgdarmey sína og
auk þess eina af þernum hótelsins. En frökenin varð
líka fín og snotur, í ljósum, létfum silkikjól með upp-
sett hár, og þegar þau Ridgeway rétt á eftir svifu út
á gólfið,. alein í hinum rúmgóða danssal Coronado-
hótelsins, þá mintust menn. þess ekki að hafa séð ynd-
islegra par.
Þetta varð ágætur dansleikur. Allir yngri liðsfor-
ingjarnir af herskipinu voru þarna komnir í einkenn-
isbúningum sínum, og auk þess nógu margir af »dans-
klíku« heldra fólksins í San Francisco til þess að fjör-
ið yrði nóg.
Meira að segja Jerry Haight, sem annars var talinn
með »íþróttaklíkunni«, og hafði allan fyrri part vetr-
arins verið á elgsdýraveiðum í Oregon, var þarna
kominn, — hann stóð í hópi ungra liðsforingja frammi
við dyr,. og reyndi að líta út eins og alt það sem fram
færi í danssalnum væri sér óviðkomandi.
Fyrsta dansinum var lokið,, og Ridgeway • leiddi
fröken Herrick yfir til dyranna, þar semi liðsforingja-
hópurinn stóð, og hún horfði alt í kringum sig, eins
og hún væri að svipast um eftir einhverju
»Hafið þér ekki séð Jerry Haight«,, sagði hún við
Ridgeway. »Ég var búin að lofa honutn næsta dans.
Síðast þegar við vorum saman á dansleik, sveik ég
hann tvisvar um dans, og ef ég geri það enn, þá fyrir-
gefur hann mér það aldrei«,
En Jerry Haight hafði gengið niður í forsal hótels-
ins til að. reykja sér sígarettu í næði,, og fanst; hvergi.
Fröken Herrick var nærri búin að gefa upp alla
von, þegar Jerry Haight kom þjótandi inn, sýnilega
æstur, og ruddi sér leið þangað semi hljómsveitin sat.
»Herra Haight«,, kallaði hún á eftir honum. »Þér
vitið víst ekki hvers þér farið á mis. Ég hef leitað
að. yður eins og saumnál«.
En Jerry gerði hvorki að heyra né sjá. Hann æddi
þvert yfir dansgóifið, og stöðvaði hljómsveitina mitt
í draumblíðum vals.
»Hvað á þetta að þýða, Haight.«, kallaði Ridgeway.
»Ætlarðu, að eyðileggja ballið fyrir mérí.
En Haight hlustaði ekki á hann.
»Blásið þið eitthvað«, kallaði hann til hornaleikar-
anna »eitt,hvað sem fær það til að þegja snöggvast«.
Hornaleikarinn blés nokkra takta. Dansfólkið hætti
að dansa, og allir þögnuðu,. Sennilega hafði einhver
skartgripur týnst eða fundist,, eða þá að áttd að til-
kynna hvernig borðhaldinu ætti að koma fyrir.
En Jerry baðaði út höndunum, mdlli fingranna hélt
hann á óíkveiktri sígarettu, og hann kallaði án þess
að hafa almennilega vald á röddinni:
»Ross Wilbur er kominn. Hann stendur niður í for-
salnum«.
Það var fyrst dauðaþögn, en svo kölluðu margir
í einu: Ross Wilbur fundinn! Ross Wilbur risinn upp
frá dauðum? Ross Wilbur, sá er leitað hafði verið
að frá Aleutereyjum til Buenos Ayres! Ross Wilbur,
hin óleysta gá,ta allra leynilögreglumanna í Vestur-
fylkjunum! Ross Wilbur, sem búið var að koma með
mörg hundruð tilgátur um, í hverju einasta blaði fyr-
ir vestan Missisippi. Ross Wilbur, er síðast hafði sést
í teveislu ungfrú Josie Herrick, svo í klúbbnum sama
dag, en frá þeirri stundu var sem hann væri horf-
Listi Kommúnistaflokksins er D-lístiJ