Þjóðviljinn - 04.01.1938, Síða 4
sjB I\fý/a T5io
Töfravalfl tonanna
Mikilfengleg, og fögur þýsk
tal- og- tónlistarmynd frá
UFA. Aðalhlut.verkin leika:
LIL DAGOVER,
WILLY BIRGEL o. f.l
Tónlist myndarinnar annast
Rílásópenihljómsveit og
Söngvarasamband Berlínar-
borgar.
Næturlæknir
í nótt er Jón G. Nikulásson,
Frey.jugötu 42, sími 3003.
Útvarpið í dag
8.30 Enskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.45 Islenskukensla.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfréttir.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Erindi: Næsta vertíð
(Árni Friðriksson fiskifr.).
20.40 Einsöngur (Hermann
Guðmundsson).
21.00 Um daginn og veginn.
21.15 Útvarpshljómsveitin leik-
ur alþýðulög.
21.45 Hljómplötur: Kvartett í
g-moll, eftir Debussy.
22.15 Dagskrárlok.
Trúlofanir
Á jóladag opinberuðu trúlof-
un sína ungfrú Ölafía Þorvalds-
dóttir, Grettisgötu 1 og Sumar-
liði Ölafsson brenslumaður hjá
h. f. Svanur.
Skipafréttir
Gullfoss, fór til útlanda í gær-
kvöldi. Goðafoss; er í Hamborg,
Brúarfoss í Kaupmannahöfn,
Dettifoss í Hamborg, Lagarfoss
Hérmeð tilkynnist, að maðurinn minn,
Loftur Þorstemsson,
járnsmiður, andaðist á sjúkrakúsinu Sól-
keimar 2. þ. m.
Indíana Gairibaldadóttir.
Tillögur um stjórn og trún-
aðarmannaráð
verkamannafélagsins Dagsbrún fyrir ár-
ið 1938 liggur frammi í skrifstofu fé-
lagsins félagsmönnum til sýuis frá deg-
inum í dag.
Stjórnin.
Auglýsingar í blað-
iöfparía helst að vera komn
ar fyrir kl. 5 daginn áður en
það kemur út.
í Kaupmannahöfn, Selfoss í
Reykjavík.
Starfsmannaíélag
Reykjavíjkurbæjar heldur
jólatrégskemtun annað kvöld að
Hótel Borg kl. 5. Dans fyrir full-
orðna kl. 11. Félagar eru beðnir
að viíja um aðgöngumiða, í skrif-
stofum, bæjarstofnananna eða
til frk. Maríu Maac,k, Þingholts-
stræti 25.
Hjónaband
Á nýjársdag voru gefin saman
í hjóinaband Hahdóra S. Ingi-
mundardóttir og Jón Indriða-
son, verkamaður.
Jónas Jónsson
hafði það í gegn að verða efst-
ur á lista Framsóknarflokksins í
Reykjavík við bæjarstjórnar-
kosningarnar. Næstik- honum
eru: Sigúrður Jónasson, Jón Ey-
þórssom og Guðmi. Kr. Guð-
mundsson. Eru alls 30 nöfn á
listanum.
Fulltrúaráð verklýðsfél.
heldur f.und í kvöld kl. 8.30 í
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Á fundinum verður rætt um
bæjaristjórnarkosningarnar.
»Þorsteinn«
vélbátur héðan úr Reykjavík
strandaði morguninn 2. janúar
framundan Búðum á Snæfells-
nesi. Mannbjörg varð. Skipverj-
ar dvelja að Búðum. og líður
þeim öllum vel.
Iþróttaæfingar
hjá Glímufélaginu Ármann
hefjast aftur í öllum flokkum í
kvöld.
Aðalfundur F. U. K.
verður á morgun .(miðviku-
dag) í K. R.-húsinu uppi. Verð-
ur hann auglýstur nánar í blað-
inu ,á morgun.
Afmcelisfagnaður
glímufélagsins Ármann verð-
ur haldinn föstudaginn 7. jan.
kl. 9 síðd. í Iðnó. Hefst hann meö
sameiginlegri kaffidrykkju. Enn
fremur verður margt til skemt-
unar. — Skemtunin er aðeins
fyrir félagsmenn og gesti þeirra.
Aðgöngumiða geta félagsmenn
pantað nú þegar hjá Þórarni
Maignússyni og á afgr. Álafoss.
Nánara auglýst síðar.
Andstæðingar nas-
ista ljúka ríkisþingi
sínu.
LONDON 1 FYRRAKV. (FO)
Fréttaritara Reuters í Berlín
barst í gær bréf, þar sem hon-
um var tilkynt að andstæðing-
| ar þýsku nasistastjórnarinnar
& GamlörSio
l
Drottning
frumskóganna
Bráðskemtileg og afar
spennandi æfintýramynd.
Aðalhlutverkið leikur hin
fagra; söngkona
DOROTHY LAMOUR.
Myndin jafnast á við bestu
Tarzan- og dýramyndir er
| sýndar hafa verið.
Gleðilegs nýjárs óskar öll-
um lesendum sínum og v,el-
unnurum
T'lMARiriÐ LIFIÐ
Bær brennur til
kaldra kola.
Ibúðarhúsið á Ásvelli í Fljóts-
hlíð brann til kaldra, kola í gær-
kvöldi. Eldurinn kviknaði út frá
olíugasvél sem. verið var að
kveikja á. Bóndiinn á Ásvelli,
Þorvaldur Kjartansson, brend-
ist mikið á andlit og höndum við
tilraunir, sem. hann gerði til þess
að slökkva eldinn. Var hann
fluttur í sjúkrahúsið á Stórólfs-
hvoli og líður honum ekki mjög
illa,
Nokkru af innanstokksmun-
um var bjargað. Húsdð var vá-
trygg thjá Brunabótafélagi Is-
lands, en innanstokksmiunir óvá-
trygðik. (FÚ í gær).
hefðu nýlega, lokið hinu fyrsta
ríkisþingi sí.nu, er farið hefði
fram. leynilega í Berlín og stað-
ið í tvo daga. 1 bréfinu er s’agt,
að 37 fulltrúar hafi sótt þingið,
frá öllum héruðum Þýskalands
nema Austur-Prússlandi.
Vicky Bauin.
Helena Willfiier 22.
»Þarf líka a.ð kælast«, hvíslaði hann.
Hún starði á varir hans, og augu hennar voru
þrungin alvöru og þrá. Svo tók hún höfuð hans mdlli
handa sinna, beggja. og dró hann, til sín. Við kossa
hennar færðist friður yfir hann allan og hann lagði
.höfuðið í skaut henni og andaði idjúpt og reglulega.
»En hvað alt er blátt -—« hvíslaði Helena skömmu
síðar. Hún starði óaflátanlega upp í. hreinbláan him-
ininn yfir krónum trjánna,
»Hvenær verður það rautt,«, spurði Firilei svo lágt
að varla heyrðist, og þrýsti vörunum, að ba,rm;i henn-
ar. —
En hún svaraði engu.
Hann sofnaði, og I>egar hann vaknaði a.ftur sá hann
sólina skína skáhalt inn gegnum unglaufið. Helena
sat uppi og horfði stöðugt niður í grasið, brosandi.
»Á hvað ertu að horfa, ástin mí,n«.
-----------, ég er búin að horfa á hann lengi«, •
sagði hún. Rainer reis upp og horfði líka. Já, þarna
va.r hann, sterkasti karl, glampandi eins og hrafn-
svartur málmur. Milli afturíotanna hafði hann svo-
litla kúlu af þurru hrossataði, og velti henni ákaft.
fram og aftur.
»Hann er mesti dugnaðarforkur«, sagði Helena glöö
í bragði, »og á að baki sér hin ótrúlegustu æfintýri.
Hann er oft búinn að missa kúluna sína, en hefir
altaf náð henni aftur, oft búinn að hrapa, han.n hefir
orðið að klífa fjöll og synda, yfir fljót — en kúlunni
sleppir hann aldrei meðan hann iifir. Hann er ótrú-
ega þrautseigur þetta; litla kvfikindi«.
»Eruð þér líka, í læknisfræði? Já, þau fádæmi sem
maður verður að púla«, sagði Rainer hlæjandi við
kvikindið. »Og alt sem upp úr því hefst, er agnarlít-
ill hrossataðsköggull, sem maður dragnast heim til sán
með. Þér er.uð ekki ósvipaður mér, herra kollega!«
»Þér! Nei, hann er ekki líkur þér. Þá væri n;er að
lí.kja honum við mig. Mér verður ekki skotaskuid úr
því að velta. kúlunni mdnni heim«.
»Hvað er ég þá, ef ég hef elkki eins mikinn dugnað
í mér og þetta, smákvikindi«.
»C), þú ert bara Firilei litli, svolít'U drenghnokki,
sem felur sig í skotinu sínu, spilar og spilar og ætl-
ar að kvelja úr sér líftóruna — og æfti nú loksins
að fara að hugsa fyrir alvöru um prófið sitt«.
»Það er ekki fallegt af þér að fara a.ð vekja þetta
upp í dag, einmitt .hér úti í skógi, þegar váð ioksins
erum orðin ein, og mér leið svo ósegjanlega vel. Það
er langt síðan ég hef verið eins hamingjusiamur og
öruggur og n,ú, og það er þér aði þakka. Prófið ætla
ég að taka á þessu misseri, því. hef ég lofað, og það
efni ég. fig er búinn að skrifa honum pabba, Helena,
og s,egja honum í fullri ejnlægni, að það verði aldrei
almennilegur læknir úr mér. Prófið ætja ég að taka
til þess að hann efist e|kk.i um að ég geri það sem í
minu valdi stendur, — en svo held ég ekki áfram
lengra. Eg steypi mér út í tónlistina, það er ei.n,a leiðin
til þess að óg fari ekki ajveg í hundana«.
»Það er eklá hætta á því að ungir og íullhraustir
menn fari í hundana, Rainer«.
»Æjú. — Ég er engin hetja. Hefurðu séð það hvern-
ig menn slást. um að komast í, strætisvagnana á sunnu-
dögum á sumrin? Sumiir ryðjast áfram; og ná sér
í gott, sæti, — sitja þar sem faista,st, og hlæja að þeim
sem eftir verða. En aðrir standa eftir á, gangstétt-
inni, og láta vagnana fa,ra,. Þannig er því varið með
mig. Það þarf ekki vera af dugleysi, það getur líka
verið af ein.sikonar stolti — eða hlédrægni«.
»Ég veit það, Firilei«, asgði hún og horfði ástúðar-
augum á æst andlit ha,ns..
»Eg er ekki, búinn, ég verð að segja þér það. Eg er
semi stendur í kvensjúkdómafræði. Um daginn skoð-
uöum við vanfæra konu, það var vinnustúlka, sem
var að því komiin að fæða barn — í lausaleik. Við
vorum tuttugu og fjórir strákarnir, og rannsökuðum
hana hver af öðrum. Hún lá á bekknium, og klemdi
aftur augun, en tillitið sem hún sendi okkur, allri
röðinni, þegar við höfóum lokið okkur af — augun
voru eins og í brjálaðri manneskju. Eg þoli e|kki slíkt.
Mér er ómögulegt a,ð gleyma því. Eg- get ekki orðið
læknir. V;ið vorum þó ekki nema. tólf viðstaddir fæð-
in-guna, hinir voru farnir í sumarfrí. Reyndu að setja
þig í spor þessarar aumingja, stúlku, hún, er einmana
og óhamingjusöm, svolítið manndýr, tæplega tvítug,
og verður að fæða barn sitt; að okkur ásjáandi, tólf-