Þjóðviljinn - 20.04.1938, Síða 4
jgs I\fý/aI5io ss
Fanginn á
Zenda-
Tilkomumikil og stórglæsi
leg amerísk kvikmynd frá
UNITED ARTITS
samkv. hinni heimsfrægu
skáldsögu með sama nafni
eftir Anthony Hope (sem
sem komið hefir út í ísl.
Þýðingu).
Aðalhlutverkin leika:
Ronald Colman,
Madeleine Carroll,
C. Aubrey Smith,
Douglas Fairbanks
yngri, o. fl.
Orbopginnl
Næturlæknir
Alfreð Gíslason, Brávallagötu
22, sími 3894.
Næturvörður
er þessa viku í Reykjavíkur
apóteki og lyfjabúðinni Iðunn.
Útvarpið í dag.
(Síðasti vetrardagur)
8.30 Enskukennsla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.45 Islenzkukennsla.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfréttir ..
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Bækur og menn.
20.30 IJtvarpskvöld háskóla-
stúdenta: Ávörp og erindi;
þlÓOVILJINN
Ealldér Kiljan Laxness
nm réttarhSldin í Hoskva
söngur; hljóðfæraleikur;
stúcfentafagnaður.
20.30 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Munið söngæfingu
kvennakórs verkakvennafé-
lagsins „Framsókn“ í kvöld. Á-
ríðandi að allar mæti á venju-
legum stað og tíma.
Skipafréttir.
Gullfoss er í Kaupmannah.,
Goðafoss fór frá Hull í gær,
Dettifoss er í Hamborg, Brú-
arfoss va'r í Flateyf í gær, Lag-
arfoss er á leið til Austfjarða
frá útlöndum, Selfoss er í íívík.
Barnadagsblaðið.
í gær seldu 620 börn Barna-
dagsblaðið á götunum/ í Reykja
vík. Alls seldust um 5000 eintök
og í gærkvöldi höfðu komið
inn 970 kr. Nokkur börn eiga
enn eftir að skila. Eru þau beð-
in að mæta í Grænuborg frá
kl. 1^4 í dag. Börn, sem seldu
20 blöð eða meira og afgreidd
voru hjá Morgunblaðinu, eru
einnig beðin að mæta í Grænu-
borg á sama tíma.
Leshringur
flokksins og F. U. K. verður í
kvöld kl. 8,30 stundvíslega á
Vatnsstíg 3. Fjölmennið.
Ríkisskip.
Súðin kom til Reykjavíkur kl.
12.30 í jgær frá ísafirði, og fer
í strandferð vestur um land n.
k. laugardag.
Esja er í Reykjavík og fer
þaðan 26. þ. m. í strandferð
austur um land.
Frá höfninni.
Tveir frakkneskir togarar og
einn ítalskur komfu, í gærmorg-
un. Ennfremur komu af veiðum
um, Hafsteinn; Baldur og Max
Pemberton. Rifsnes kom í fyrri
Frh. af 1. síðu.
ir að sitjá í leikhúsinu. Þeir vita
ekki mikið um leiklist, sem vilja
reyna að telja fólki trú um, að
réttarhöldin hafi verið útbúin
fyrir leiksvið eins og sjónleikur.
Við skulum taka til samanburð-
ar leikhúsin í Moskva, beztu
leikhús heimsins. Hvergi á
byggðu bóli eru leikararnir æfð
ir eins nákvæmlega. Á einu leik-
riti, sem á að vanda, eru hafðar
tvöhundruð æfingar, áður en
það p r sýnt, — leikurinn und-
frbúinn í eitt — tvö ár. I rétt-
nótt af hákarlaveiðum, Hekla
og Nova komu í fyrrinótt.
Dansleik
heldur glímufélagið Ármann
í kvöld kl. 10. Blue Boys leika
fyrir dansinum. Ljóskastarar
verða um allan salinn.
Kvikmyndahúsin.
Gamla Bíó sýnir nú hina
heimsfrægu kvikmynd „Vor-
draumar. Aðalhlutverkin leika
Jeanette Mac Donald og Nel-
son Eddy. — Nýja Bíó sýnir
„Fanginn á Zenda“ eftir hinn
alkunnu skáldsögu með sama
nafni eftir Anthony Hope. Aðal-
hlutverkin leika Ronald Colman
Madeleine Carrol og Douglas
Fairbanks.
„Sólskin“,
rit Barnavinafélagsins Sumar-
gjöf er nýkomið út. Birtirblað-
ið að þessu sinni 68 smásögur,
sem Steingrímur Arason kenn-
ari hefir valið. Ágóði af sölu
ritsins rennur allur til barnavina
félagsins.
arhöldunum í Moskva voru
„hlutverkin“ leikin af gömlum
sendiherrum, t,rófessorum og
öðrum slíkurn, og þeir „léku“
átta tíma á dag í ,tólf daga. Það
væri met í leiksögu heimsins,
ef þarna hefði verið um sjón-
leik að ræða. Hlutverkin hefðu
orðið að vera æfð þannig, að
leikurinn endaði með dauða-
dómi leikandans. Slíkar hug-
myndir um leiklist eru geðveiki.
— Hvernig leizt þér annars
á þig þarna austurfrá?
— Það eru fimm ár síðan ég
var síðast í Sovétríkjunum. Mér
fannst ég koma til annars lands,
svo stórstígar hafa framíarirnar
verið á þessum árum. Maður
þarf ekki að fara í hagskýrsl-
ur til að sannfærast um það.
Hin glöðu andlit, hrifningin
markvís barátta, bjartsýnin,
samhyggjan — þetta tjáði mér
meira en nokkur hagskýrsla.
— Hvað segirðu um menn-
ingarlífið?
Halldór fyllist ákaf,a' í frásögn
sinni, þegar komið er að þess-
ari spurningu, og hefir frá
mörgu að segja. Birtist fram-
hald viðtalsins á Þjóðviljanum
á morgun.
Skóviðgerðir
Sækjum — sendum.
Fljót afgreiðsla.
Skóvinraustofa
Jens Sveirassonar
Niál^götu 23, sínii 3814.
ijL Ge^mlö íiio
Vordraumur
„MAYTIME“
Heimsfræg og gullfalleg
Metro-Goldwin-Mayer
söngmynd.
Aðalhlutverkin í þessari
miklu mynd leika og
syngja uppáhaldsleikarar
allra, þau
Jeanette Mac Donald og
Nelson Eddy.
Reykholts-
skóli
Reykholtsskóla var slitið 13.
þ. m. og sama dag var haldin
sýning á handavinnu nemenda.
— Skólann höfðu sótt 99 nem-
endur, en 35 luku fullnaðarprófi
— Stúlkur höfðu gert um 100
muni og piltar smíðað ýmsa
gagnlega hluti, þ. á m. sex skrif
borð. Þeir höfðu og bundið
fjölda bóka. — í ræðu, sem
skólastjórinn flutti við skólá-
slit, benti hann á nauðsyn auk-
ins verklegs náms við héraðs-
skólana og talaði um væntan-
legar framkvæmdir í þeim efn-
um við Reykholtsskóla ánæsta
skólaári, — jafnframt auknum
húsakosti. — Þrír piltar úr
skólanum kepptu í vetur á sund
inóti íslands, og vann Eðvarð
Farset frá Siglufirði þar önnur
verðlaun. — Heilsufar nem-
enda var agætt í vefur FÚ.
Utbreiðið Þjóðviljaan
Alexander Avdejenko:
Eg elska ... 14
En af því að hér höfðu allir útbyggjar mannltfs-
ins sest að, var staðurinn ekki framar kallaður
Óþefskvosin, heldur „Úrkastskvosin“.
priðji kapítuli.
Nikanor gamli heldur áfram að vinna sem námu-
grafari. Drauinar hans um rólega elli vilja ekki
hætast, þó að þeir flögruðu að honum meðan hann
var að byggja húsið sitt.
En ekkert er Nikanor fjarlægara en að missa
trúna á tilveruna. Hann bíður.
Nikanor fær 1 rúblu og 80 kobeka fyrir hvert
kölahlass, og nú á hann ýms þau þægindi, sein
hann hafði ekkert af að segja fyr. Hann býj^ í sínu
eigin leirhreysi og sefur í trérúmi í staðinn fyrir
bálkinum. Hann er hættur að eta inorkið ket, en
etur nú síld og kartöflur.
Fjölskylda okkar hefir líka tekið breytingum.
Elstur systkinanna er Kozjma. Hann er nú tvítugur.
Ég er yngstur, eg tel ekki ennþá að skrankvosin
sé skammaryrði.
Okkur líður betur en öllu öðru fólki í kvosinni.
Afi vinnur ennþá við kolagröft, pabbi er bjræðgj,,-
maður, elsti bróðir minn snýr ásana í verksmiðjunni
Varjka systir mín vinnur einnig við steypuna, nokk-
urn hluta dagsins. Eg, Mitjka og Nimka söfnum
járnarusli umhverfis verksmiðjuna og pabbi fær
nokkra skildinga fyrir það. Okkur vantar nærri því
aldrei brauð.
Eg lileyp stundum með brauðbitaj í hendinni nið-
ur í kvosina. Félagar horfa á mig öfundssjúkum
augum. Þeir hætta að sullas't í forarrásinni, safnast
saman umhverfis mig og fylgjast græðgislega eft-
ir hverri hreyfingu, sem verður á munninum á
mér, meðan ég maula brauðið. Eg gef þeim dálít-
inn bita og svo setjumst við niður á lækjarbakkann
í mesta bróðerni. Það ber aldrei við, að þeir berji
mig.
Það á eg afa mínum að þakka. Alt fólkiðj j kvos-
inni ber virðingu fyrir afa eða öfundar hann af
hreystinni.
Stöðugt gengur hann jafn beind í baki, fram og
aftur um kvosina. Höfuð hans ber hærra en hreys-
in. Nálega allir nágrannar okkar höfðu einhvern-
tírna komið til okkar í heimsókn. Þeir komu til
okkar bæði ef sorgin drap að dyrum og eins til
þess að taka þátt í gleði okkar, ef svo bar við.
Væri barn skírt í kvosinni eða einhver sunginn til
rnoldar, var afa æfinlega boðið. Hvort heldur var
um skírn eða jarðarför að ræða, drukku nágrann-
arnir sig jafnölvaða og þeir hlógu jafnt og grétu
jafn beisklega, hvort sem skírn eða greftrun bar
að garði. Og hvernig sem sakir stóðu, hafði afi
huggunarorð á vörum.
Þá dagana, sem kaupið var greitt, vav altaf eitt-
hvert líf í tuskunum. Þá glöddust menn um hríð
og gleymdu öllum sorgum þessa heiins, og jafnvel
hin daglegu áflog víðsvegar um kvosina, höfðu
engin áhrif til langframa á samlyndi manna. Þegar
leið að dagsetri varð alt hljótt, nema hundarnir
héldu áfram að gjamma, einhversstaðar niður í
kvosinni.
Stundum kom Garbu£ í heimsókn til okkar. Hann
bað okkur aldrei um neitt, og hann kvartaði aldrei
yfir neinu. Hann settist í námunda við lampann og
ljósið féll á tannlausan munn hans, meðan hann lét
dæluna ganga. Tennurnar höfðu áður fyr verið
slegnar úr munni hans með járnkarli. Stundum tók
hann blað úr vasa sínum og sagði okkur sitthvað
um sjúkrasamlög og styrktarsjóði eða hann las ein-
hvern fróðleik fyrir okkur. Einu sinni rétti hann
pabba ’og afa prentað blað með ýmsum töluliðum.
Afi hló ákaft og sagði:
— Hvað ætti ég að vera að skifta mér af verka-
lýðsfélögum. Ég hefi nægilegt til hnífs og skeiðar.
Garbus hélt áfram að tala og ekki þykkjulaust.
— En hvað ætlar þú að gera, þegar atvinnuleysi
og hungur fer að sverfa að? Þér líður vel segir þú?
Bull og þvættingur.. Marina hefir aldrei neitt ann-
að að sjóða en kartöflur. Gættu að þér, Nikanor
frændi, áður en það er um seinan.
Afi varð hvorki hræddur né reiður. Hann hélt
háttum sínutn í öllu og var vingjarnlegur við alla.
Hann taldi jafnvel ekki eftir sér að stilla til friðar
á kránni, ef hávaðinn gekk úr hófi. Gestgjafinn var
líka farinn að rata til Nikanors gamla ef áílog urðu
á kránni hjá honum. Nikanor var vanur að grípa