Þjóðviljinn - 03.05.1938, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 03.05.1938, Qupperneq 1
Kröfuganga alþýðnsamtakanna var sú qoimeiinasta, er sést heftr hðr. Utlinmdarism: Anstnrröllnr o§ gðtnrnnr i kring þétfskipaðar fólki „Hópganga^SiSkjaMborg- arinnar18: krygðarmynd. KRÖFUGANGA og hátíðahöld alþýðusamtakanna í fyrra- dag voru meiri og stórkostlegri en nokkur dæmi eru til ■hér í Reykjavík. Sýndu þau gjörla, hve alráðin reykvísk al- þýða er í því, að skapa einingu sína, þrátt fyrir öll ólæti og hróp klofningsmannanna, og hversu hún gersamlega fyrirlít- ur allar þeirra starfsaðferðir og alla þeirra baráttu til þess að viðhalda klofningi í röðum alþýðunnar. [ Skjaldborgin efndi til „hópgöngu“ suður í kirkjugarð og voru þeir svo fámennir, að af bar. Köstuðu ýmsir tölu á lið- ið og fengu flestir eitthvað á þriðja hundrað, sumir að vísu dálítið minna og nokkrir losuðu þrjú hundruð. Sýnir þetta betur en allt annað, hve klofningsmennirnir eru gjörsamlega heillum horfnir í augum reykvískrar alþýðu. Hátíðahöld alþýðusamtakanna hófust með barnaskemmt- un í Nýja Bíó kl; 10 n>m mor(guninn. Var það húsfyllir.ogfór Skemmtunin hið bezta fram. Utifundur og kröfuganga. Kjbukkan að ganga tvö fór fólkið að safnast saman á -Lækj- artorgi og Lækjargötu. Kl. 2 setti Sigurður Guðnason hátíða- tíðahöldin, og Sigfús Sigurhjartarson og Halldór Kiljan Laxness fluttu djarfar ræður um sókn og einingu alþýðunnar. Að því búnu hófst kröfugangan og gekk lúðrasveitin í broddi fylkingar. Farið var inn Hverfisgötu, upp Frakkastíg og niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti. Pá var farið suðui Aðalstræti, upp Túngötu og niður Ægisgötu og Vesturgötu, eftir Aðalstræti, Kirkjustræti og gengið að lokum umhverfis Austurvöll og staðnæmst þai Hófst nú útifundurinn og hafði hátölurum verið komið fyrir hjá vellinum. Ræður fluttu: Héðinn Valdimarsson, Brynj- ■ólfur Bjarnason, Friðleifur Friðriksson, Jón Guðlaugsson, Björn Bjarnarson, Petra Pétursdóttir, Jón Magnússon og Einar Ol- geirsson. Lúðrasveitin Svanur lék á milli þess, sem ræðumenn töluðu, þar sem kórarnir gátu ekki sungið vegna þess hve hvasst var á vellinum. Allir lögðu ræðumennirnir áherzlu á einingarmálin og hve þrýn nauðsyn það væri, að fullkomirs fcameining verklýðsflokkanna tækist hið bráðasta. Var ræðum fjeirra allra vel tekið, og mannhafið þakti allan völlinn og'göt- lurnar, sem liggja að honum. Ber öllum saman um, að aldrei hafi fleiri menn komið á Austurvöll 1. maí. < v Samkoma Bió í Kl. 5 hófst samkoma í Nýja Bíó. Hófst hún með því, að Runólfur Pétursson setti sam- komuna, Skúli Þorsteinsson flutti erindi, Halldór Kiljan Laxness las upp úr „Höll sum- arlandsins“, bók, sem nú er í prentun. Ennfremur töluðu þeir Áki Jakobsson og Pétur G. Guðmundsson. Guðný Sigurð- ardóttir las upp kvæði, og Karlakór alþýðu og Karlakór verkamanna sungu. Var samkoma þessi fjölsótt og hin prýðilegasta. SkemtuD i Kð R. Um kvöldið var svo skemnit un í K .R.-húsinu. Par fluttu ræður þeir Eggert Þorbjarnar son, Ölafur H. Einarsson og. Haukur Björnsson. Jóhannes úr Frarah. á 2. síðu. Voldagar kröfugönpr I Noskva. Beitstresglsg hins sigraodí sðsialisraa EINKASK. TIL þJÓÐVILJANS MOSKVA I GÆRKV. MAÍ hátíðahöldin í Moskva hófust með hersýningu á Rauða torginu undir stjórn Budjonny og Vor- osjiloffs. Meðal annars átti hersýning þessi að sýna, hve mikl- um stakkaskiptum herinn hefði tekið síðan á byltingarárun- um. Eftir torginu fóru meðal annars brynvarðar bifreiðar, sem Rauði herinn notaði í borgarastyrjöldinni á Suðurvíg- stöðvunum. Var þetta gert ti* þess að sýna muninn á hern- aðartækninni nú og þá. Meðan hersýningin fór fram var Rauða torgið þakið hermönnum, fallbyssum og bryndrekum af öllum stærðum og gerðum. Þá komu og inn á torgið hersveitir með loftvarn- arbyssur, og sérstakar vígvél- ar til þess að verjast og ráða niðurlögum bryndreka, og yf- ir torginu flugu endalausar rað- ir flugvéla. j.; Um leið og hermennirnir fóru framhjá leghöll Lenins, sóru þeir hernaðareiða, þar sem þeir heita að verja Sovétríkin fyr- ir hvaða fjandmanni sem væri, og hverskonar árásum, og að reynast málstað alþýðunnarum allan heim trúir. Uppi á leghöll Lenins var sendinefnd frá spanska lýðveldinu og hyllti Framh. a 3. síðu. .ChitKbetlaia verlar aðvíkja* Kjðioið enskra verka- naaaa 1. mai. LONDON í GÆRKV. FO. J LONDON voru kröfugöng * urnar stærri en nokkru fyrr. Sextán ræðupallar höfðii verið settir upp, og mannfjöld inn, sem safnaðist saman til að hlusta á ræðumennina er tal- inn hafa numið 200 þúsundum. í Hyde Park söfnuðust 50,000 manns utan um merki komjm- únista og róttækari vinstri " manna, og báru kröfugöngu- menn spjöld þar sem áletrað var: „Chamberlain verður að víkja“ og „Leyfum spönsku stjórninni vopnakaup“. í Glasgovv safnaðist meirí fjöldi saman til hátíðahaldanna (Frh. á 4. síðu.) Efst til vinstri: Kröfugangan kemur niður Skólav.st. Til hægri: Upp Frakkastíg. Að neðan til vinstri: Fyrstu mennirnir koma niður Skólavörðústíg. Til hægri: I Bankastr. og Austurstr.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.