Þjóðviljinn - 13.05.1938, Qupperneq 1
3. ARGANGUR FÖSTUD. 13. MAI 1938. 109. TÖLUBLAÐ
Þinglansnir í gær.
Hneykslanleg ræða
Haralds Gnðmnndssonar
ÞINGINU var slitið kl. 6 ígær. Flutti Haraldur Guðmunds
stutta ræðu, þar sem hanngaf yfirlit yfir störf þingsins,
en brá að því leyti út af venju fyrri forseta, sem haft hafa ræð
una óhlutdræga frásögn, að hann notaði ræðima til áróðurs,
fyrir vinnulöggjöfina og gerði með þessari framkomu sinni
og blekkingum þeim, er hann flutti, lokaræðu þingsins að
hneyksli. Hafa forseta þessum síst farnast forsetastörf vel og
var þó verstur endirinn.
ðrlCg Abesslnía ákveðin.
Þjóðabandalaginn ber engin skylda Ul
þess að neita Italin nm viðnrkenningn á
yfirráðnm í Abessinín - segir Haliiax
Haile Selassie í íhópi samstarfsmanna sinna.
LONDON I GÆRKVELDI. (F. Ú.)
mVEIR FIJNDIR hafa verið haldnir í Þjóða-
bandalagsráðinu í dag og rætt um Abessiníu-
málið á þeim báðum. Abessiníukeisari var viðstaddur,
en flutti ekki ræðuna sjálfur, heldur var ræða hans
lesin af einum abessinska fulltrúanum.
Halifax lávarður, utanríkismálaráðherra Breta,
var fyrsti ræðumaður. Sagði hann, að það hefði valdið
nokkrum óþægindum, að sumar ríkisstjórnir hefðu
viðurkent yfirráðarétt Itala í Abessiníu, en aðrar
ekki. Kvaðst hann álíta, að meðlimum Þjóðabanda-
lagsins bæri engin skylda til þess, að synja ítalíu um
viðurkenningu á yfirráðarétti í Abessiníu, þar til
Þjóðabandalagið hefði komist að einróma niðurstöðu
um málið.
Síðan í júlí 1936, að Þjóðabandalagið samþykti
ályktun sína um Abessiníumálið, sagði Halifax lávarð-
ur að afstaðan hefði mikið breyst. ítalska stjórnin
hefði nú raunverulega alt landið á valdi sér. Margar
stjórnir hefðu látið í ljósi óánægju sína með það, að
yfirráðaréttur ítalíu hefði verið viðurkendur. Vegna
þess að þar með hefði verið brotin siðferðileg grund-
vallarregla.
Yiirlit yfir stðrf
Alþingis
Alþingi stóð að þessu sinni
í 87 daga eða frá 15. febrúar
til 12. maí.
Alls voru haldnir 186 þing-
fundir: þar af 31 í sameinuðu
þingi, 76 í neðri deild og 79 I
efri deld.
Fyrir þinginu lágu alls 103
íagafrumvörp, þar af 8 frá
stjórninni og 95 frá einstökum
þingmönnum. Af stjórnarfrum-
vörpunum voru þrjú borinfram
f sameinuðu þingi, 2 í efri deild
og 3 í neðri deild. Af þing-
mannafrumvörpunum voru 72 í
aieðfi deild, en 23 í efri deild.
Þingið samþykti 60 lög, þar
•af stjórnarfrumvörpin öll 8 að
tölu og auk þess 52 þingmannaí
frumvörp. 1 frumvarp var felt
og einu vísað frá með rök-
•studdri dagskrá. 41 þingmanna
‘frumvarp var ekki útrætt.
Fyrir þingínu lágu 33 þings-
ályktunartillögur, 4 í,neðri deild
8 í efri deild og 21 í samein-
nðu þingi. Af þeim voru 13 af-
greiddar til stjórnarinnar, 1
feld, 4 vísað til stjórnarinnar,
15 óútræddar.
Fjórar fyrirspurnir komu
fram, 1 í þeðri deild og 3 íefri
deild og var aðeins einni þeirra
svarað.
A'lls tók þingið þannig til með
ferðar 140 mál.
I fyrrakvöld voru teknar 150
krónur af aðkomumanni á
gistihúsinu Hverfisgötu 32, hér
í bænum.
Hafði maðurinn herbergi í
gistihúsinu, og var að koma
heim. Var þá hópur fólks þar
í forstofuherbergi, alls ömanns,
og komu tvær stúlkur á móti
honum og báðu um „snaps“
Kvaðst hann ekkert áfengihafa
og mættu stúlkumar leita á sér.
Fór þá önnur stúlknanna niður
SkiftiDD bitliDBaana
kosniegar i nefndir
2 menn voru kosnir í dansk-
íslensku ráðgjafanefndina. Ste-.
fán Jóh. Stefánsson í stað Jóns
Baldvinssonar, en Gísli Sveins-
son í stað Ólafs Thors, sem
lét af störfum.
Yfirskoðunarmenn landsreikn
inga voru kosnir Sigurjón Ól-
afsson, Jón Pálmason og Jör-1
undur Brynjólfsson.
f orðunefnd voru settir Magn
ús Sigurðsson og Ólafur Thors.
í Pingvallanefnd var Harald-
ur Guðmundsson kosinn í stað
Jóns Baldvinssonar.
í stjórn byggingarsjóðs voru
kosnir: Stefán Jóh. Stefánsson,-
Guðlaugur Rósenkrans, Jakob,
Möller, og Jóh. Ólafsson, og
endurskoðendur: Ágúst Jóseps-
son og Bjarni Benediktsson.
í 5 manna milliþinganefnd til
að rannsaka hag og rekstur tog-
araútgerðarinnar voru kosnir
Skúli Guðm., Bergur Jónsson,
Har. Guðm., Kjartan Thors og
Sigurður Kristjánsson.
Sem varamenn í stjórn síld-
arverksmiðja ríkisins vorukosn
ir: Einar Árnason, Bernhard,
Stefánsson, Erlendur Porsteins-
son, Óli Hartevig og Elías Por-
steinsson.
í verðlaunanefnd Gjafar Jóns
Framh. a'V 2. síðu.
í vasa hans, tók veski hans, og
úr því seðla. Lenti í stymping-
um út af þessu og fuku seðlarn
ir um forstofuna. Kom þá mað-
ur að, og hjálpaði hann til að
tína saman seðlana.
Var maðurinn, er peningana
átti, góða stund inni hjá fólk-
inu eftir þetta, en er hann var
út kominn, taldi hann peningæ
sína og saknaði þá þriggja 50
kr. seðla.
Er málið í rannsókn.
Friðnrinn oo
hngsiónir Djóða
bandalagsins
andstæðar
Halifax lávarður sagðist enn-
1 fremur hafa fylstu samúð með
þessum hugsunarhætti, en hann
gæti ekki algerlega fallist á rétt-
mæti hans. Það, sem hér væri
um að ræða, væri árekstur milli
tveggja hugsjóna, annarsvegar
þeirrar hugsjónar, sem Þjóða-
bandalagið berðist fyrir og fólg-
in væri í sáttmála þess. Hins-
vegar væri liugsjón friðarins og
nú væri það aðeins stjórnmála-
legt vandamál, sem leysa yrði
úr hvort friðinum væri betur
borgið með því að viðurkenna
yfirráðarétt ítala heldur en með
því að standa óbeygjanlega fast
á grundvelli Þjóðabandalagsins.
Með þessu kvaðst hann engan
veginn vilja afsaka þær aðferð-
ir, sem ítalía hefði beitt, né
heldur í neinu falla frá grund-
vallarhugsjón Þjóðabandalags-
ins og loks vildi hann ekki með
þessum orðum gefa það á neinn
hátt í skyn, að ekki væri rétt-
ara að leysa deilumál milli
þjóða til lykta með friðsamleg-
um aðferðum fremur en með
valdi.
A að leyfa að
alþjóðalög
séu brotin eða
áaðkomaíveg
fyrir það?
Ræða Haiie Selassie
LONDON I GÆRKV. F.Ú.
Ð RÆÐU Halifax
lokinni var lesin
ræða Haile Selassie Abes-
siníukeisara og var meg-
in inntak hennar á þessa
leið: Það er ekki rétt, að
hér sé um árekstur milli
tveggja hugsjóna að ræða,
heldur er um það að ræða,
hvað gera skuli þegar um
aðeins tvo kosti illa er að
velja. — Með öðrum orð-
um, hvort öruggara sé
vegna framtíðarinnar að
leyfa það að alþjóða lög
séu brotin eða að koma í
veg fyrir það.
Haile Selassie kvaðst
harma það, að standa í
mótstöðu við brezku
stjórnina í þessu máli, því
að fyrir henni bæri hann
mestu virðingu og nyti
gistivináttu hennar.
Framh. á 4i síðu.
Voa nm samninga i
mðlaraverkfailian í
dag
Verkfall málarasvema heldur
en áfram. (
Fundur var haldinn í gær-
kveldi milli samninganefndá
sjveina og meistara. Bar ekkl
margt á milli, þó að samkomu-
lag næðist ekki. Gerðu sveinar
meisturum tilboð um lausn máls
ins og gáfu meisturum frest tíl
(hádegis/ I dag og mimu þeir þál
Jtaka upp vinnu ef samkomu-
lag næst.
Maður tapar150 krónum
Hann heldur að tvær
stúlkur hafi rænt sig.