Þjóðviljinn - 14.07.1938, Side 2
Fimmtudaginn 14. júlí 1938.
P JOÐVILJINN
KommúnlstafL Banda-
i
rfkjanna heldar ttnnda
flokksþing sltf.
I Bandarikjunam eru nú 95 púsnnd flokksbnndnlr
|gr kommdnlstar.
ÞjóðlylkÍKgarsteSunniii ves ðrt tylgi.
var heillaskeyti til mexíkönsku
stjórnarinnar.
26. maí s.l. hélt kommúnista-
flokkur Bandaríkjanna 10.
flokksþing sitt. Flokksþingið
var haldiðj í New York og var
þingið se’tt; í jhinum stóra sal
í Madison Square-Qarden, að
viðstöddum 22 þúsundum verka
manna.
Ping verklýðsflokks í Banda-
ríkjunum hefir aldrei hlotið
slíka athygli. Auðvaldið hefir
fram að þessu reynt að þegja
í hel tilvist Kommúnistaflokks-
ins og þing. Nú varð sú að-
ferð ekki lengur notuð. Stærstu
borgarablöðin í*New York og
annarsstaðar í Bandaríkjunum
fluttu daglega frásagnir og
greinar um þingið og gerðir
þess. Þagnarmúrinn var rofinn.
Ekki vegna þess að bandaríska
auðvaldið sé nú farið að líta
Kommúnistaflokkinn hýru auga
— heldur einfaldlega þess
vegna, að hann verður ekki
lengur þagðuír í Ihel. Innri styrk
!ur hans og áhrif hafa aukist
óðfluga á síðustu árum, ein-
angrunarvíggarðamúrinn, sem
yfirstéttin og þjónar hennar
hafa reynt að hlaða milli hans
og fólksins er að rofna og
molna niður. Alþýðan sýnir æ
meiri áhuga fyrir flokknum og
málefnum hans og baráttu —
og æ fleiri úr röðum hennar
gerast liðsmenn, í fylkingum
hans.
1929 voru aðeins 10 þús. fé-
lagsbundnir meðlimi,T; í flokkn-
um. 1936 50 þús. — og 1938
95 þús. Slíkt er hraður vöxtur,
er samsvarar þó ekki aukningu
þeirra áhrifa, sem flokkurinn
hefir úf á ,við.
Brennipunkturinn í starfsemi
flokksins og eins á þingi hans
var baráttan fyrir sköpun víð-
tækrar lýðræðisfylkingai* til
varnar og sóknar gegn öflum
afturhalds og fasisma. Nauðsyn
þessarar þjóðfylkingar verður
allri alþýðu æ Jjósari — enda á
barátta kommúnista vaxandi
fylgi og vinsældum að fagna.
Eitt mikilvægasta atriðið um
sköpun slíkrar lýðræðisfylking-
ar er, að klofningurinn í verk-
lýðshreyfingunni verði þurkað-
ur út — og skapað eitt sam-
stætt verkalýðssamband, enda
er það eitt af stefnumálum
bandarískra kommúnista.
Á þinginu var samþykt starfs-
fekrá í mörgum liðum, og drep-
um vér hér aðeins á fá atriði.
1) Bætt laun verkamanna,
betri aðbúnað og styttan vinnu-
tíma. i
2j Stjórnin var hvött til að
gera sérstakar ráðstafanir og
auka opinbera vinnu með tilliti
til komandi kreppu og þeirraj
vandræða, er hún hefði í för
með sér.
3) Varin skulu og aukin lýð-
réttindi fólksins — og dregið
eftir megni úr áhrifum stórauð-
valdsins bæðii í iiðnaði og í
stjórnarfari, og verður í því
sambandi að leggja áherslu á
að auka lýðræðislegt eftirlit
með atvinnuvegum landsins.
4) Bandaríkjastjórn verður
að takast á ,hendur að skipu-
legja friðaröflin, í (heiminum og
stöðva á þann hátt uppivöðsh(
og stríðsæsingar fasistaríkjanna
Flokksþingið ræddi ýtarlega
um utanríkispólitík BA — og
fordæmdi sérstaklega „hlutleys
ispólitíkinal< illræmdu — og
hvatti til virks stuðnings við
hina stríðandi alþýðu Kína og
Spánar. — Örlög friðarins
liggja nú að miklu leyti í íiönd-
um Bandaríkjanna; ef vérbregð
umst nú, verður það einna
dekksti kaflinn í isögu Amer-
íku“.
Með tilliti til í 'hönd farandi
þingkosninga lagði þing flokks-
ins sérstaka áherslu á, að meg-
inatriðið væri að hindra að aft-
urhaldið fengi þar meirihluta og
skoraði á fylgjendur sína að
styðja frjálslynda frambjóðend-
ur, þar sem flokkurinn sjálfur
ekki byði fram.
Mikil áhersla var og lögð á
samvinnu hinna ýmsu lýðræðis-
fylgjenda., í BA eru t. d. trúar-
bragðafélög sem telja um 20
milj. meðlima, mest verkamenn
Afturhaldið hefir reynt að nota
Jjauj í baráttu sinni fyrir kúgun
Og fasisma og er því brýnni
nauðsyn að vinna þau til bar-
áttu fyrir lýðræðisfylkinguna
og sína sönnu hagsmuni. Pá
var og lagt mikið upp úr að
bæta samstarfið milli hinna
ýmsu þjóðarbrota og auka starf
semina meðal bændakvenna, bg
æskulýðs og síðast en ekki sízt
jnegranna, en þeir eru sdm
kunnugt er þeir kúguðustu.
hinna kúguðu vestra þar.
Það hefir ekki vantað, að
bandaríska auðvaldið hafi ekki
brugðið kommúnistaflokknum
þar um að hann væri erlendur
flokkur (sbr. Morgunblaðið hér
og skrif þess) til þess að reyna
að skapa sér grundvöll til að
banna hann, og kyrkja umleið
baráttu ameríska verkalýðsins.
Kommúnistaflokkurinn svarar
þessum herrum. í stefnuyfirlýs-
ingu flokksins segir m. a. svo:
Kommúnistaflokkur Banda-
ríkjanua er hinn pólitíski flokk-
ur verkalýðsstéttanna, semheld-
ur merki þeirra Jefferssons,]
Jacksons og Linoolns, merki
sjálfstæðis-yfirlýsingarinnar.
Hann vill vernda alla árangra
lýðræðisins, rétt fólksins til
brauðs, frelsis og hamingju.
Hann ver stjórnarskrá Banda-
ríkjanna gegn hinum afturhalds-
sömu fjendum þeirra, sem viljá
afmá lýðræðið og öll réttindi
fólksins......“
Kommúnistaflokkur BA !eí
sterkur flokkur og vaxandi.'
Honum hefir tekist að tileinka
sér orð verklýðshetjunnar Dimit
roffs, „að læra að synda sjálf-
:stætt. í ölduróti stéttabaráttunn-
ar, í stað þess að standa sem
áhorfendur á ströndinni, athug-
andi hinar brotnandi bylgjur og
bíðandi þess að veðrinu sloti“.
Og barátta hans hefir þegar
borið mikinn árangur — og á
eftir að hafa enn meiri áhrif
í amerísku þjóðfélagi.
Svlfflngkennsla
e -imtf
á Sandskeiði.
pessa dagana fer fram stöð-
uð svifflugkennsla uppi á Sand
skeiði. í fyrradag voru sérstak-
lega góð skilyrðji til svifflugs,
og var það óspart notað.
Ein svifflugan flaug til
Rvíkur ofan af Sandskeiði, var
hún dregin af mótorflugvél ca.
200 m, í ILoft upp, en komst
sjálf í allt að 1500 m. hæð.
Lenti hún; í iVatnsmýrinni, en
þar voru erfiðleikar á að ná
henni upp aftur vegna óhag-
stæðrar vindstöðu.
Þá er það einnig í frásögur
færandi, að einn íslenzki svif-
flugneminn, Leifur Grímsson,
var dreginn upp í ca. 200 m.
hæð á nemendaflugu, en tókst
að hækka sig um ca. 400 m. og
halda sér á loft'i í 14,26 mín.
Nægir þetta flug til þess að
taka C-prófið. Er Leifur fyrsti
maður er leysir þá þraut af
hendi hér á landi.
Næsta sunnudag verður al-
menn flugsýning uppi á Sand-
skeiði.
Olíuhringurinn Royal-Dutch-Shell,
sem var eins og kunnugt er, riðinn
við uppreisnartilrauninna gegn Car-
denas-stjórninni í Mexíco, Iiangir
ekki alveg á horreiniinni. Síðastl.
viðskiptaár græddi hann allt að 1
milljón sterlingspunda og greiddi
17 í ágóðahluta. Brezk-oersneska
olíufélagið hækkaði gróða sinn iír
9,4 upi^ í 42,4 milljónir sterlings-
punda og borgar 37,5°/o(í ágóðahlut
**
Eftirstöðvarnar af lífverðí mexl-
kanska uppreisnarforingjans Cedillo,
hafa gefist upp fyrir hersveituin
mexíkönsku stjórnarlnnar. Sjálfur er
Cedillo flúinn til fjalla og felur stg
Þar.
**
13. jan s.l. var haldlnn mjðg fjöl-
sóttur útifunduri í 'Havana, höfuö-
borg Kúba. Fundinn sóttu um 15
þús. verkamanna. Marinello talaði
þar fyrir hönd Kommúnistoflokks
Kúba. Fulltrúar annara verklýðs-
flokka og frjálslynda flokksins tóku
einnig til máls. — Hlustuðu fundar-
menn síðan á útvarpsræðu Car-
denas forseta Mexico — og lauk
fundinum með því, að samþykkt
Laufey mín er ljúf og blíð,
leikur vor um enni.
Pessi vísúorð voru einu sinni
gerð um litla elskulega stúlku,
sem öllum þótti vænt um, er
kynnst höfðu, hún átti það líka
fyllilega skilið, því hún var öll-
um ljúf og góð. Nú er hún dáin,
það er nokkuð síðan, en ég vissi
það ekki fyr en nú. Móðir henn-
ar, Guðbjörg Sigurðardóttir,
lézt nokkrum dögum áður.
Pegar ég frétti lát þessara
mæðgna, sem ég var eitt sinn
vel kunnug, rifjaðist upp íhuga
mínum ýmislegjt í 'sa'mbandi við
þá viðkynningu, og allar eru
þær minningar fagrar, bjartar
og hlýjar. Þessar mæðgur höfðu
það við sig sem því miðurskort
ir hj(á allflestum, en það var
hlýtt og aðlaðandi viðmót, sam-
fara skilningi á kjörum annara.
Gestir þeirra fóru frá þeim
hlýrri í huga en þeir komu.
Það var hin þunga og sára lífs-
**
Italir hafa fyrir ekki alls löngm
flutt hið fræga líkneski „Ljónið frá
Júda“ til Rómaborgar. — sem tákn
þess „sigurs", sem þeir hafa unnið.
Nýlega gerðist áberandi atvik i
sambandi við þetta „sigurmerki",
Abessinskur aðalsmaður, sem var
þátttakandi. í sendinefnd, sem komin
komin til Rómar, til að „hylla"
Mussolini, klifraði upp á líkneskið,
og hélt þaðan harðorða ræðu gegn
ræningjum hins abessinska sjálf-
stæðis. — Hann særði fjóra fas-
ista, sem ætluðu að taka hann fast-
an. Vafr honum síðan misþyrmt svo
að hann var lagður dauðvona á
sjúkrahús.
**
Útflutningur Svíþjóðar til Þýzka-
lands vex hröðum skrefum. Á fyrstu
þrem mánuðum þ. á. nam verðmæti
hans 106 milj. kr., en á sama tíma í
fyrra aðeins 7 jmilj. Útflutningsvaran
er aðallega járnmálmur, sem sé þau
hráefni, sem nú eru mikilvæ^úst
fyrir hernaðaráætlanir fasistanna.
reynsla, sem gerði þær skygn-
ar á kjör annara.
É|g ætla ekki að rekja æfifer-
il þeirra, en hann var þrotlaus
barátta við örbyrgð, sjúkdóma
og ástvinamissi, en það var
eins og Guðbjörgu ykist kraft-
ur við hverja raun. Hjartahlýj-
an og löngunin til að vera öðr
• um til gleði áttu mikinn þátt
í því að græða sorgarsárin. Þag:
vátr þrek hennar og' bjartsýni
sem veitti því sólskini inn í sál
dótturinnar, sem gerði hana
færa um að standast erfiðleika
hinna löngu og mörgu sjúk-
dómsára. (
Laufey sál. var framúrskai*-
andi góð dóttir, umhyggja henn
ar fyrir foreldrunum vardæma
fá, ef ekki dæmalaus, hún líktist
frekar umhyggju fullorðins.
manns en barns. Föður sinn
misti hún ung, en þá var eins
og umhyggja hennar fyrir móg-
urinni tvöfaldaðist, enda naut
hún mikils ástríkis hjá henni.
Þessi .gagnkvæmjí kærleikur
mæðgnanna veitti þeim marga
gleðistund, sein annars hefði
ekki orðið til, og gerði þær
færari um að mæta erfiðleikun-
um. Þæi voru óaðskiljanlegar
í lífinu, og það virðist vel til
fallið, að þær fengu að fara
héðan með svo stuttu millibilu
Verið þið sælar. Þökk fyrir
viðkynninguna.
Vinkona.
Þeir sem eiga muni þá, sem eru á lóðinni fyrir norðan
bifreiðastöðina Geysir við Kalkofnsveg gefi sig strax fram á
lögregluvarðstofunni og færi fram sönnun á eignarétt sinn á
þeim og flytji þá burt af lóðinni, því annars mun lögreglan
ráðstafa þeim á kostnað eiganda.
LÖGREGLAN
Minoingarorð um mæðgurnar
Guðbjðrgu Sigurðardóttur og
Laufeyju Jonsdóttur.