Þjóðviljinn - 29.07.1938, Qupperneq 1
Sðkn spínska stfðrnar-
hsrslns heldnr ífram
Landburður af
á Siglufirði
þráSi ifrir
»ðte|W|ia
métspynm
7570tn. saltaðará einum degi
Tveir hershöfðingjar sfjórnariirþar: Modesto og Lister.
LQNDON í GÆRKVELDI (F. Ú.)
AMKVÆMT tilkynmingu Barcelonastjómarinmar halda her
sveitir hennar áfram sókn sinni miðja vega milli Valencia
og Barcelona. Virðist svo eftir ýmsum fregnum að dæmla,
að sóknin haldi áfram, þrátt fyrir hinar harðvítugustu tilraunir
uppreisnarmanna til að stöðva hana. Hafa flugvélar þeirra varp
að sprengikúlum á bráðabirgðabrýr þær, sem stjórnarlherinn
hefir lagt yfir Ebroiljót.
Barcelonastjórnin segir það rétt, að uppreisnarmenn hafi
eyðilagt brýrnar, en nýjar br«/r hafi verið byggðar jafnharðan
Stjómin segir her sinn hafa tekið nokkra bæí í {nánd við Gand-
lesa, sem er talin í hættu.
hag, þar sem eftirlit yrði haft
með siglingum til stóru hafnar-
borganna, sem stjórnin ræður
yfir, en ekki haft eins strangt
eftirlit með siglingum til hafn-
arborga uppreisnarmanna. Ef
ekki yrði komið á eftiríifi í lofti
gætu uppreisnarmenn haldið á-
fram að fá flugvélar frá öðrum
löndum. Leiðir spanska stjórn-
in athygli að því, að það mundi
baka erfiðleika við framkvæmd
ir tillagnanna, ef það kæmi í
ljós, að sjálfboðaliðar væru
miklu fjölmennari í liði annars
styrjaldaraðilans. Vill stjórnin
láta gilda sömu reglur,um brott-
flutning Mára-hers Frankos og
sjálfboðaliða frá öðrum lönd.
um.
A svifflugu í
5000 melra hæð
4. júlí s.l. komst rússneski
flugmaðurinn V. Iltsjenko upp í
háloft á svifflugu, er fest var
neðan í loftbelg. Þegar 5000
metra hæð var náð, losaði Ilts-
jenko sviffluguna frá loftbelgn-
um og flaug niður á leið. Með
þessu flugi segist Iltsjenko hafa
sannað, að hægt sé að nota
svifflugur til all-langs flugs í
háloftinu.
Frá Siglufirði var símað síð-
ídegis í jdag:
Síldarsvæðið var í gærkvöld
aðallega umhverfis Flatey og
Gjögra. Þar var þá mikil síld.
Síld sást frá Grímsey í dag, en
torfurnar voru litlar,. — Frá
Málmey hefir ekki sést síld, og
eru fá skipi í Skagafirði. — Svo
mikið síldarmagn var í 'Skjálf-
andaflóa í gærkvöldi, að tvö
skip sprengdu síldarnæturnar. í
dag hefir veiðin verið minni, og
er erfitt að veiða sakir straums,
enda er síldin stygg. — í gær
voru saltaðar í Siglufirði 7,570
tunnur síldar og 11—12 þúsund
mál lögð upp til bræðslu. —
Eitt slcip kom í gærkvöldi með
600 mál síldar frá Selskerjum
og úr Skagafirði. —J I dag hafa
nokkrir togaranna fært sig vest-
ur á bóginn.
Frá Hólmavík er símað kl. 18
í dag:
Frá Eyjum á Bölum við Húna
flóa sást afarmikil síld vaða í
morgun alla leið inn undir
Bjarnarfjarðarrif. — Undanfar-
andi tvo daga hefir sést nokkur
síld þarna en ekki eins mikil og
nú. Engin veiðiskip sáust þarna,
enda hefir oftast verið dimt af
þoku þessa daga.
Kíaverjar i sókn á Lnnghaj
LONDON I GÆRKVELDI. (F. Ú.)
Kínverjar hafa byrjað sókn
,á ný í nánd við Lunghai-járn-
brautina, en þar stöðvuðust
bardagarnir fyrir, nokkru vegna
flóðanna er vöxtur hljóp í Gula-
fljót. Kínverjum hefir tekist að
komast með hersveitir yfir
svæði, sem flætt hafði yfir og
enn eru afar erfið yfirfer,ðar og
(hafa þeir náð á vald sitt borg,
sem Japanir hertóku skömmju
áður en flóðin byrjuðu.
Samkvæmt símfregnum frá
Shanghai er tilgangurinn með
þessari sókn Kínverja aðknýja
Japani til þess að senda lið frá
Hankow-vígstöðvunum norður
á bóginn. Kínversku hersveit-
irnar eru nú komnar til Kai-
þoku þessa daga. FCl. í gær.
I svari Barcelonastjórnarinnar
■við tillögum Breta um brott-
flutning erlendra sjálfboðaliða
frá Spáni, eru gerðar ýmsar1
athugasemdir. Sum ákvæðin,
•
segir í svarinu, eru óréttlát í
garð spönsku stjórnarinnar. —
Eftirlitinu yrði þannig hagað,
samkvæmt tillögunum, að það
væri spönsku stjórninni í ó-
KSON opaar nýja verzl*
nn í Verkamannabéstfið-
nnnm og kanpir hás V.
Long i Hafnarfirðl.
í gær opnaði KRON nýja
sölubúð í Verkamannabústöð-
unum, þar sem áður var verzl
un Alþýðubrauðgerðarinnar.
en þá verzlun hefir KRON nú
kevpt. Er nú verið að gera
ýmsar breytingar á búðinni og
mun það taka nokkra daga.
Hinsvegar hefir Alþýðubrauð-
gerðin keypt brauðgerð Kaup-
félagsins við Bankastræti og
mun reka hana framvegis.
í síðustu viku keypti KRON
verzlunarhús Valdimars Long í
Hafnarfirði, þar sem bað hefir
áður rekið verzlunarstar/fsemi
sína í Hafnarfirði. Er hús þetta
hið vandaðasta í ftlla staði, veg-
leg bygging ogí á góðum stað.
Mun KRON reka þar framvegis
verzlanir sínar í Hafnarfirjði,
sem vefnaðarvöruverzlun, búsá-
haldaverzlun, nýlenduvöruverzl
un, matvöruverzlun og kjöt-
btfð.
Ivað fengf á verstii sknidaþrjót-
annm að haldast nppl að svíkfast
lam framlelhslnna ?
Þ>að vantar gjaldeyri! Það vantar íisk! En Kveldúlfur
svíkst um að halda togurunum úti eins og hægt væri
og bezt borgar sig.
Landsbúar og atvinnuvegirn-
ir 1 íða stórum vegna gjaldeyris-
skorts. Erlendis er góður marjk
aður fyrir fisk. En íslendingar,
nábúarnir við anðugnstu fiski-
mið heimsins, hafa engan fisk
að selja. Togaraútgerðin ber
sig ekki. Kveldúlfur safnar
miljónaskuldum árlega, en
Kveldúlfstogararnir eru ekki að
veiðum nema lítinn hluta þess
tíma, sem hægt væri að stundai
þær með góðum árangri.
A.llir heilbrigt hugsandi menn
sjá, að þetta fyrirkomulag á at-
vinnuvegi nær ekki nokkurri átt
Kveldúlfstogárarnir eru mar^g-
faldlega eign þjóðarinnar, ár
eftir ár er sóaðj í útgerð Thóifs-
aranna óhemju fúlgum af al-
mannafé, í óbotnandi skuldahít.
En það er látið á valdi þessara
hálfdönsku spákaupmanna hvort
togararnir, þessi dýru atvinnu-
fyrirtæki, kostuð af almannafé
eru notuð. Það veltur á geð-
þótta, duttlungum og spekúla-
sjónum Thorsbræðra, hvort
togararnir eru látnir ganga. Og
ef þeim sýnist svo, geta þeir
svikist um að láta framleiðslu-
tækin vera í notkun, og það
hafa þeir gert, beinlínis í póli-
tískum tilgangi. Allir vita, að
þeir togararnir, sem lengstan
veiðitíma hafa, bera sig best.
Ljósasta dæmið er að bera sam
an útgerðina á „Max Pember-
ton“ og útgerð Kveldúlfstogar-
íanna, þar er hægt að sjá, að
með góðri stjórn er hægt að
reka togaraútgerð á íslandi svo
að arður sé að.
Öll alþýða Islands krefst þess
að bundinn verði endir á Kveld-
úlfshneykslið. Það má ekki líð-
ast, að ár eftir ár sé fé almenn-
ings ausið út í skuldahít Thors-
bræðra, og þeim gert mögulegt
að fremja vinnusvik í stórum
stíl — til að ná pólitískum mark
miðum. Krafa þjóðarinnar er
uppgjör Kveldálfs!