Þjóðviljinn - 18.09.1938, Blaðsíða 2
Stumudjagurinn 18. sept. 1938.
ÞJÖÐVILJINN
S.U.K. sendlr S.U.J. 111-
samelnlagn.
Síjéfii. S, U, K„ fieíír scnf sfjórn S.
UL b effírfarandf bréf og mun þad
vænfainlega verda raeff á þíngí S,
U. b, er kemiir saman ! nsesfa mám
Kjðr æskunnar
og f asísmahaef f an
Kæru félagar!
Eins og ykkur er kunnugt, á
íslenzk alþýðuæska við erfið
kjör að búa. Afkoma hennar,
öll aðbúð og menningarskilyrði
eru mjög langt frá því að vera
fullnægjandi. Atvinnuleysið
með öllum sínum afleiðingum,
liggur eins og mara á þjóðinni
og heftir framsókn æskunnartil
aukinnar hagsældar og menn-
ingar. Auk þess er það á allra
vitorði að af turhaldsöflin í land-
inu tygjast til nýrrar herferðar
gegn frelsi og réttindum fólks-
ins. Fasisminn nær enn meiri'
ítökum í stærsta stjórnmála-
flokki landsins, sem tekið hefir
upp fasistíska málafylgju og
starfsaðferðir og lofsyngur
sýnkt og heilagt ofbeldi og
glæpaverk erlendra fasista. Það
þarf ekki að efa, hvað verða
muni, ef þessari afturhaldsklíku
tekst að ná völdum. Réttindi
fólksins verða afnumin þegar
í stað að meira eða minna
leyti, félagsskapur þess væng-
stýfður eða eyðilagður, unz
svo er komið að lokum, að öll
þau dýrmætustu mannréttindi
sem áunnist hafa í fórnfúsri,
strangri baráttu farinnar kyn-
slóðar, eru afmáð. Pólitísk und
irokun og aukið arðrán verður
hlutskifti allrar alþýðu, — og
ekki aðeins það. í kjölfar fas-
ismans myndi sigla missirþjóð-
frelsisíns og alt það dýrmæt-
asta, sem íslenskt fólk á liðnum
öldum hefir skapað, yrði troð-
ið niður undir járnhæl erlendra
fasistaríkja.
-Við ætlum, að ykkur muni
þessi hætta jafnljós og okkur
og viljið gera alt, sem ykkur
er unt til að afstýra henni. Það
er líka augljóst mál, að það er
ekki lítið undir æskunni komið,
hversu fer í þessum efnum.
Hitler á, sem kunnugt er, valda
töku sína, að nokkru því að
þakka, að honum tókst að. af-
vegaleiða mikinn hluta æsk-
unnar og blekkja til fylgis við
sig.
boð nm
bönd hafa sósíalismann á stefnu-
skrá sinni og berjast fyrir at-
vinnulegum og menningarleg-
um hagsmunum æskunnar. Fé-
lagar þeirra hafa áður staðið
saman, þegar á hefir hert, þeir
hafa kynst nánar og starfað
saman í bróðerni að sameigin-
legum áhugamálum, eins og t.
jd. í síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingum o. s. frv. Það mælir því
allt með því, að samböndin
sameinist í baráttunni, og það
því skjótar, sem meira er nú í
húfi. Með slíkri sameiningu
væri stigið fyrsta sporið til að
hefta sókn afturhaldsins ákjör
og réttindi æskunnar. Samein-
ingin myndi margfalda kraft
hinnar sósíalistísku æskulýðs-
hreyfingar — safna að henni
nýjum fjölda — og tala máli
sósíalismans með nýjum þrótti
og eldmóði æskunnar og ár-
angrar þeirrar baráttu og djarf-
huga sókn æskunnar myndi
hnekkja vexti fasismans. Að
öllu þessu athuguðu viljum við
fara fram á, að deildir ykkar,
sambandsstjórn og þing, taki
þessi mál til umræðu. Tillögur
okkar ieru í stuttu máli þessar:
Samband ungra jafnaðar-
manna og Samband ungra kom
múnista verði sameinuð í haust
í eitt sósíalistískt æskulýðssam-
band, sem hafi eftirfarandi að-
alstefnuskrára triði:
sem best við framfarabaráttu
liðinna tíma. En sambandið
stendur jafnframt á grundvelli
alþjóðahyggjunnar og vill hafa
samvinnu við lýðræðis- og
friðaröflin í heiminum.
4) Sambandið beitir sér fyrir
hagsmunamálum æskunnar og
þá sérstaklega fyrir aukinni at-
vinnu og bættri aðbúð æsku-
lýðsins, hækkuðu kaupi, aukn-
um mannréttindum, styttri
vinnutíma í éinstökum atvinnu-
greinum o. s. frv.
5) Sambandið berst fyrirauk-
inni og ódýrari mentun alþýðu-
æskunni til handa. Engarhöml-
ur séu settar á aðgang að op-
inberum skólum, skólagjöld al-
gjörlega afnumin — auknir
námsstyrkir og reynt að gera
skólavistina ódýrari meðheima-
vistum fyrir alþýðufólk, ódýr-
um skólabókum o. s. frv. Lögð
sé sérstök áhersla á að auka
hagnýtt og verklegt nám, sem
samsvari kröfum atvinnuveg-
anna — og aukin rækt viðupp-
eldi barna og unglinga, komið
upp leikvöllum og æskul.heimil
um í bænum. Sérstök áhersla
skal lögð á að efla íþróttir og
heilbrigt útilíf æskunnar o. s.
frv.
6) Sambandið sé óháð póli-
tískum flokkum og geti með-
limir þess verið í hvorum verk-
lýðsflokknum, sem vera skal,
ef um tvo verklýðsflokka verð-
ur að ræða.
7) Sambandið standi fyrstum
sinn utan beggja hinna pólÞ
tísku alþjóðasambanda æsku-
lýðsins, en hafi við þau vi»iá^-..
leg tengsl og leggi áherslu á
að hafa skamvinnu við æsku-
lýðssamböndin á Norðurlönd-
um.
Þetta eru aðeins nokkur að-
alatriði, sem við teljum að
leggja ætti til grundvallar við
umræðurnar um sameiningu
sambandanna og sameiginlega
stefnuskrá. Um nánari útfyll-
ingu á t. d. 4. og 5. lið vísum
við m. a. til dægurmálastefnu-
skrár ykkar. Þetta er senr sé
aðeins grind að sameiginlegri
stefnuskrá, sem við vænium að
okkur takist í bróðerni að út-
fylla.
Sameíníng sfrax
í hausf.
Við teljum að veigamesta at-
riðið nú, sé sameining alþýðu-
æskunnar og alls frjálshuga
æskulýðs í landinu gegn kúg-
un og afturhaldi og verði það
meginverkefni hins nýja sam-
bands, og treystum því, að þið
viljið vinna með okkur að því
marki. Sameiningarhugur ís-
lenskrar aljaýðu hefir farið sí-
vaxandi síðustu árin. Samband
okkar fagnar hverjum sigri á
þeirri braut, og væntir þess,
að haustþing verklýðsflokkanna
verði stórt spor að því marki
að sameina alla íslenzka alþýðu.
En ef svo illa skyldi tiltakast,
að það tækist ekki að fullu að
þessu sinni, álítum við, að sam-
eining æskulýðssambandanna
sé engu óbrýnna verkefni fyrir
það — og ótækt með öllu að
láta klofninginn innan eldri
hreyfingarinn;ar hafa áhrif á
þetta sameiginlega velferðarmál
íslenskrar æsku. Við væntum
þess, að þið takið þetta bréf
okkar og tilboð til umræðuhið
allra fyrsta — og leggið þessi
mál fyrir þing SUJ í haust.
Þing okkar mun koma saman
um líkt leyti og verða þessi mál
einnig rædd þar. Við erum al-
búnir að gefa þær upplýsingar,
sem í ökkar valdi stendur, um
þessi efni, og eiga við ykkur
viðræður um sameiningarmálin
hvenær sem er.
Með sósíalistískri kveðju.
F.h.
Sambands ungra kommúnista.
(Undirskriftir).
Ármenningar
efna til fjölbreyttrar útiskemf
unar í idag við skíðaskála sinn
í Jósefsdal. Skemmtunin hefst
kl. 3 e. h. Ferðir verða frá
B. S. í. eftir kl. 2.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Sigríður
Guðmundsdóttir og Halldór
Halldórsson mag. art.
Sam&íníngín er
leiðín fíl að kveða
niðuir fasísmann,
Hvernig er nú íslensk æska
við því búin að mæta blekk-
ingarherferð, kúgun og árás-
um afturhaldsins? Um það þarf
ekki að fjölyrða. Ástandið er
í stuttu máli þetta: Vinstrisinn-
uðu pólitísku æskulýðsfélögin
eru fámenn og fremur áhrifa-
lítil og hafa enga samvinnu sín
á milli. Mikill hluti æskunnar
þjáist af atvinnuleysi og þeirri
upplausn og rótleysi, sem því
fylgir, og getur því hæglega
orðið lýðskrumi og blekking-
um fasismans auðunnin bráð.
Við teljum því, að fyrsta sjálf-
sagðasta skrefið í varnarbar-
áttu alþýðuæskunnar gegn aft-
urhaldinu sé að sameina Sam-
band ungra jafnaðarmanna og
Samband ungra kommúnista og
skapa úr þeim víðtækt og
sterkt sósíalistískt æskulýðssam
band. Við teljum slíkt því eðli-
legra, þar sem bæði þessi sam-
Drög fíl sfefmi"
skrár hins sam«
eínaða æskulýðs
sambands.
1) Sambandið starfar á grund
velli sósíalismans og kappkostar
að ala félaga sína upp í anda
hans og útbreiða kenningar
hans í ,ræðu og riti.
2) Það leggur sérstaka á-
herzlu á að vernda lýðræðið
og öll réttindi fólksins gegn fas-
isma og afturhaldi, og vill í
þessu skyni hafa samvinnu við
öll frjál) Iynd öfil í landinu og
yfirleitt alla þá, er unna friði
og frelsi.
3) Sambandið berst fyrir
verndun þjóðfrelsisins og telur
að þar beri sérstaklega að vera
á verði gegn þeirri hættu, sem
landinu í þessum efnum stafar
af innlendum og erlendum fas-
isma. Álítur það, að efla beri
með æskunni skilning og ást
á þjóðlegum verðmætum og
tengja uppvaxandi kynslóðir
S. U. K.
S. U. K.
6. þing
Sambands nngra kommnnlsta
vcrdur sctf í Reykfavlk fímmfudagínn
20. okftóber nœsftkomandí.
Nánar attglýsf síðar.
STJÓRNIN