Þjóðviljinn - 04.10.1938, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 04.10.1938, Blaðsíða 4
SjB Kíý/öi Ti'io sg Tovarich Amerísk stórmynd frá Warner Bros, gerð eftir samnefndu leikriti eftir hinn heimsfræga rithöf- und Jaques Deval. Aðalhlutverkin leika: Charles Boyer (sem Mikail Alexandrovits stórfursti). Claudette Colbert (sem Tatiana Petrovna stórfurstafrú) og Basil Rathbone (sem umboðsmaður rúss- mesku Sovétstjórnarinhar) Orboi^gínnl Næturlæknir Alfred Gíslason, Brávallagötu 22, Sími 3894. Næturvörður er í Reykjavíkur-apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Otvarpið í dag: 10.00 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Hljómplötur: Sungindans lög. * 19,40 Auglýsingar 19.50 Fréttir. þJÓOVIUINM 20.15 Erindi: Nýr þáttur danskr ar alþýðumenningar, Steinþór Guðmundsson kennari. 20.40 Hljómplötur: a. Symfónía nr. 4 og sorgar. forleikurinn, eftir Brahms. b. Lög úr óperum. 22.00 Dagskrárlok. Mateno heitir lítið blað á esperanto sem byrjað er að koma út á ísa- firði. er því ætlað að koma út mánaðarlega. Otgefendur eru Helgi Hannesson og Öskar Jen- sen. Skipafréttir. Gullfoss er í Rvík, Goðafoss, Brúarfoss og Lagarfoss eru á leið til Kaupmannahafnar frá Hamborg, Selfoss fer frá Hull í dag. Tónlistaskólinn biður fiðlunemendur sína að koma til viðtals í Þjóðleikhúsið kl. 5—6 e. h. í dag. Áskrifendur pjóðviljans sem hafa haft bústaðaskifti eru vinsamlega beðnir að til- kynna hið nýja heimilisfangsitt á afgreiðsluna, Laugaveg 38, sími 2184. Skákkepnin sem fór fram á sunnudaginn milli Vesturbæjar og Austur- bæjar, lauk með jafntefli. Báð- ir aðilar höfðu 5 vinninga. Robert Soetens, franskur fiðluleikari kom hing að með Lyru í gærkvöldi. Heldn ur hann hljómleika hér á morg- un, og mun það verða eina tækifærið til þess að hlusta á hann, þar sem hann fer út aft- ur á fimtudaginn. Sundnámsskeið hefjast að nýju í Sundhöllinni' miðvikudaginn 5. þ. m. Páttak- endur gefi sig fram í dag kl. 9—11 f. h. og 2—4 e. h. Skóvíðgerðír Sækjum. Sendum. Fljót afgreiðsla. Gerum við allskonar gúmmískó SKÓVINNUSTOFA JENS SVEINSSONAR Njálsg. 23. , Sími 3814. Onllfoss fer á miðvikudagskvöld kl. 12 á miðnætti til Breiðafjarðar, Vestfjarða, Siglufjarðar ogEyja fjarðar. Happdrætti Karlakórs verkamanna. pnn er tækifæri til að eignast hið ágæta bátslíkan, sem er aðalvinningurinn í happdrætti Karlakórs verkamanna. Bátslík- anið er forkunnarfagurt og svo vandað, að engin dæmi munu vera til. Auk þess eru aðrir munir happdrættisins hinir ágætustu. En j afnframt vill Karlakór verkamanna skora á alla, sem hafa selt happdrættismiða, að gera upp hið allra fyrsta á skrifstofu kórsins í Alþýðuhús- inu (skrifstofa Iðju). Ríkisskip. Esja var væntanleg til Ing- ólfsfjarðar kl. 10.30 í gærkv. Súðin fer frá Reykjavík kl. 9 í kVöld í strandferð austur um land. Umferðlarslys. Um þrjú leytið í gær vildi það slys til, að bíll ók yfir tveggja ára dreng á Sellands- stígnum. Var bílstjórinn að aka timbri og ók afturábak um leið og hann lagði af stað. Varð hann þá þess var, að framhjól bif- reiðarinnar fór yfir eitthvað. Fór bíHsjtjórinn þegar út úr bif- reiðinni og sá hvað var á seiði. Drengurinn marðist nokkuð á hlið og handlegg en þó tæpast hættulega. JfL ©öJTr)Ial?>IO % Pcír fengu honum vopn. Mikilfengleg og spennandi Metro-Goldwin-Mayer-tal mynd, er gerist í lok heimsstyrjaldarinnar. Aðalhlutv. eru snilldarlega leikin af SPENCER TRACY, FRANCHOT TONE og GLADYS GEORGE. Börn fá ekki áðgang. Skæmir mfllf Tékka og Pól- vcrja, LONDON I GÆRKV. F. U. Tékkneska stjómin hefir síð- degis í dag fallist á að ung- verska minnihlutanum verði veittur sjálfsákvörðunarréttur. 1 dag varð árekstur á milli pólskrar sjálfboðaliðssveitar og tékkneskra landamæravarða. Skutu þeir hvorir á aðra og særðust nokkrir menn. Þrjátíu breskir liðsforingjar eru komnir til Prag til þess að ftaka sæ,ti í alþjóðanefndinni sem á að sjá um að alt fari fram með röð og reglu í Tékkósló- vakíu þangað til þjóðaratkvæða greiðslunum er lokið. Dtbfeiðið Þjóðviljann 1 di ig er slö asti endanj fjanardagor I 8. flokki hap pdrættisins ■ Agatha Christie. 41 Hver er sá seki? vinnuherberginu eftir að líkið fanst? Stól? Nei, hversvegna spyrjið þér að því? Poirot ypti öxlum og svaraði ekki. Hann sneri sér til Flóru. — Eitt er það sem ég vildi spyrja yður að ungfrú Var rítingurinn á sínum stað í silfurgripaborðinu þgear þér skoðuðuð það ásamt doktor Sheppard? — Það er Raglan fulltrúi búinn að yfirheyra mig um. Ég get ekki svarað yður öðru en honum. Ég er viss um að rítingurinn var þar ekki. Hann heldur að rítingurinn hafi verið þar og Ralph hafi komi& seinna um kvöldið og stolið honum. Raglan trúir mér ekki. Hann heldur að ég segi þetta til að hjálpa Ralph. — Og er það víst að það sé ekki svo, spurði ég alvarlega. Flóra stappaði niður fótunum. — Haldið þér það líka doktor Sheppard. Nei, það gengur sannarlega of langt. Poirot leiddi talið að öðru. — Það er rélt sem þér sögðuð áðan, rnajor Blunt það glampar í eitthvað þarna niðri í tjörninni. Kanske ég reyni að ná því, Hann kraup á hné á tjarnarbakkanum, fletti erminni á hægri handlegg upp að olnboga og stakk henni gætilega niður í vatníð svo að það gruggaðist ekki. En hvað varlega sem hann fór gruggaðist vatnið fljótt upp, og hann varð að hætta án þess að hafa náð í djásnið. Hann horfðí óánægjulega á óhreinan handlegg sinn- Eg bauð honum vasaklútinn minn og hann tók við honum með innilegu þakklæti. Blunt leit á úrið, — Það er komið að matartíma, sagði hann, við skulum fara að halda heim. — Viljið þér borða meö okkur, herra Poirot, spurði Flóra. Mér þætti vænt um að þiö mamma hittust. Iiún — he.nni þykir svo vænt um Ralph. Poirot hneigði sig, — Með mestu ánægju, ungfrú. — Og þér líka doktor Shepphard? Ég hikaði. — G.erið þér það fyrir mig. Mig langaði sjálfan til að taka boðinu, svo að ég lét ekki lerigur ganga á eftir mér- Við gengum ö heim að húsinu, Flóra og Blunt á undan. — En það hár, sagði Poirot lágt við mig og benti í áttina til Flóru, þessi hreini ljósguli litur Þau verða falleg hjón, hún og hinn dökki Ralph Paton. Finst yður það ekki? Fg leit spyrjandi til hans, en hann var þá önn- um kafinn við að bursta óhreinindi af jakkaermi sinrii, sem enginn sá nema hann, Þessi lágvaxni maður minti mig stundum á kött — hann, var þrif- inn með afbrigðum og í augum hans lék sér græn- leitur glampi, — Og þér óhreinkuðuð yður árangurslaust, sagði ég, eins og ég vorkendi honum. Hvað skyldi annars hafa legið í tjörninni? — Langar yður til að sjá það? spurði Poirot. Iíg horfði forviða á hann. Hann kinkaði kolli. — Vinur minn, sagði 'nann bliðlega og þó með ásökunarhreim. Hercule Poirot óhreinkar ekki föt sín nema í einhverjum ákveðnum tilgangi. Annað væri hlægilegt og fjarstæða- Eg geri mig aldrei hlægilegan. — En þér sýnduð okkur tóman lófann, sagði ég- — Stundum verður maður að segja minna en maður gæti sagt. Segið þér sjúklingum. yðar alt sem þá langar til að vita? það held ég ekki. Þér segið heldur ekki yðar ágætu systir alt sem þér vitið. Áður en ég sýndi yður tóman lófan, hafði ég skotið því sem ég náði í yíir í hina hendina Nú skuluð þér fá að sjá hvað það er. Hann rétti fram vinstri hendina- í löfa hans lá li.ill gulihringur. Trúlofunarhringur kónu. Eg tók hann af honum. — Sjáiö þér áletrunina? sagði Poirot, Ég horfði innan í hringinn, þar stóð letrað með smáum, fíngerðum stöfum: „Frá R,-13. mar/“. Égleit. á Poirot, en hann var þá önnum kafinnn við að skoða sig í vasaspegli og snúa upp á yf-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.