Þjóðviljinn - 03.11.1938, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.11.1938, Blaðsíða 3
PJÓÐVILJINN '8C61 'A9U '£ uurSEpn;uimij „Eg vll sfeapa i myndlnnl dhrlfamlkinn helm, setn lífítr sínu eigin lífí og lýtur sínum eígín lögmálum" Víðíal við Þorvald Skúlason, lísfmálara* porvaldur Skúlason. Fréttaritari Þjóðviljans hafði tal af Þorvaldi Skúlasyni list- málara, sem haft hefir mál- verkasýning'u hér í bænumund- anfarið. Þorvaldur er ungur málari, sem dvalizt hefur er- lendis síðustu sex árin. Sýning hants hér hefur verið vel sótt, og er Þorvaldur vafalaust mjög efnilegur listmálari. Hefurhann rnargt nýtt ;að flytjia í list sinni, er djarfur og nýtízkulegur. Þjóðviljinn flytur hér mynd af einu málverki hans frá höfn- inni í Reykjavík. Hvar hafið þér stundað nám, spyrjum vér Þorvald. Ég byrjaði að læra hjá Ás- grími Jónssyni, fór síðan til Oslóar og var 4 ár á Akadem- íinu þar. Kennarar mínir voru þeir Axel Revold og Jean Hei- berg. 1931 fór ég til Parísar, er ég hafði séð hina stóru, frönsku sýningu, sem var í Os- ló sania ár. — Sýning þessi var fyrir mig hrein opinberun. Þarna voru málarar, sem þorðu að mála eins og þeim' var eðli- legt og gátu, — þrátt fyrir hina miklu þekkingu sína á málara- list allra tíma, — og ef tiPvill einmitt vegjna hennar — skapað algjörlega nýja list, sem var barn okkar tíma, en þóf í sam- hengi við það bezta í gömlu íistinni. I París kynntist ég bet- ur verkum þessara málara, sem voru þeir Picasso, Matisse, Bra- que, en síðan bættust fleiri við: Kandinski, Paul Klee o. fl. Þótt þessir málarar séu innbyrðis ó- líkir, eru þeir allir skyldir í því, að þeir vilja læra af líf- inu sjálfu, og láta ekki nægja þann „realisma", sem ekkivill annað en stæla yfirborð hlut- anna. Þeir vilja gefa myndinni eitthvað af þeim (úginleikum, sem við finnum; í sjálfu lífi nú- tímans. T. d. hefur hraðinn skapað hjá þeim nýja tilfinn- ingu fyrir hreyfingum og magni lína og lita. Málverkið nær þannig sterkari áhrifum. — Hvað viljið þér sérstaklega með list yðar? Ég ætla mér ekki í myndum mínum að gefa nákvæma lýs- ingu á „mótívinu“ heldur túlka þau áhrif, sem það hefur á mig. I mynd frá höfninni er t. d. hlutverk mitt allt annað en skipasmiðsins. En ég vil í lín- ur og liti inyndflatarins leggja eitthvað af þeim krafti og því breytilega lífi, sem einkeinnir Brúarfoss fer í dag, fimmtiudag, kl. 12 á hádegj, austur og norður umj laind, aftur til Reykjavíkur og svo héðan til London. Skipið lestar freðkjöt til London. Bnllfoss fer í kvöld aukaferð til Stykk- ishólms. þesskonar myndir eru oft sann- astar, sýna bezt kraft, þimga og áhrif þeirra atburða, sem lifaðir Lru) í daglegu lífi, og festa sig gterkast í meðvitund málarans. Hvernig finnst yður að fólk- inu lítist á sýninguna? Þeir sýningargestir, sem ekki sjá ,ann|að í hinni myndandi, list en endurminningar frá sumarfrí- inu, hafa auðvitað litla ánægju haft af sýningu minni. En ég held, að þeir, sem bezt hafa skilið eldri málara okkar, taki þessari nýju viðleitni vel —. Það hefur verið gert of lítið til að fræða fólkið um málara- list, og vegna þess að flestir málaranna hafa notað hið stór- brotna landslag til fyrirmyndar, eru þeir margir, er aðeinsi hafa! lesið „mótívið" út úr myndun- Höfnin. höfnina. I öðrum óhlutrænni myndum reyni ég að framkalhl veruleika lita og forma á svip- aðan hátt og á sér stað í hljóm- listinni, skapa í myndinni á- hrifamikinn heim, sem lifir sínu eigin lífi og lýtur sínum eigin lögmálum. Samt má ekki mis- skilja mig á þann hátt, að ég vilji, að myndlistin fjarlægist við það veruleikann. Einmitt um, en ekki séð þar hið skap- andi starf listamannsins. — Hvað segið þér urn framr tíðaráætlanir yðar? — Ég geri ráð fyrir að fara til Parísar í næsta mánuði, ekkitij lað ganga í skólaþar, heldurtil að læra af listinni sjálfri og lífinu í þessari borg, sein enn- þá gefur öllu nýju, er kemur fram, rétt á sér. Anglýslng dráttarvextl Samkvæmt ákvæðum 46. gr. laga nr. 6, 9. jan. 1935 og úrskurðí samkvæmt téðrí lciga- greín falla dráttarvextír á allan tekju- og eígna- skatt, sem féll í gjalddaga á manntalsþíngí Reykjavíkur 31. ágúst 1938 og ekkí hefírver- íð greíddur í síðasta lagí hínn 9, nóvember nsesikomands, Á það sem greítí verður eft- ír þann dag, falla dráttarvextír frá 31. ágúst 1938 að telja. Petta er bírt tíl leíðbeíníngar öllum þeím sem hlut eíga að málí. Toílsíjóirínn i Reykjavlk, 31, okfóber 1938, |ón Hermannsson, Atnnnnmál berklasjðUinga. Niðurl.' Nýbýli og samvinniubyggðir berklasjúklinga. Lögin um Byggingar- og Iandnámssjóð hljóta að teljast merkileg tilraun í þá átt að nýta landið okkar og gróður- skilyrði þess í þágu landsins barna. Einkum vil eg í þessu sambandi leiða athygli að 4. kafla þessara laga, sem fjall- ar um nýbýli og samvinnu- byggðir. — Kafli þessi hefst á 14. grein, sem lýsir skýlaust yfir því, að ríkið muni veita þann stuðning við stofnun ný- býlanna, að „stofnverð þeirra verði ekki meira en þalð, að meðalfjölskylda geti haft þar sæmileg afkomuskilyrði“, — eftir því sem lögin nánar á- kveðia. Samkvæmt lögum þessum leggur ríkið fram sem styrk sjö sautjándu hluta af stofn- kostnaði býlisins, þó ekki fram yfir 3500 krónur. Auk þessa veitist sem lán úr Nýbýlasjóði aðrir sjö sautjándu hlutar stofnkostnaðar, en fer þó ekki yfir 3500 krónur, eins og gildir um styrkinn. Sé reiknað með því, að stofn- kostnaður nýbýlisins nemi 10 þús. kr., yrði persónuframlag 3000 krónur. Það má að vísu segja með sanni, að 3000 kr. verði ekki gripnar upp úr grjótinu, en þá I er því fljótt til að svara, að hinn árlegi framfærslustyrkur hins hælisvistaða berklasjúkl- ings og fjölskyldu hans sé það ekki heldur. En sá er þó mun- urinn ,að ef þessar 3000 krónur, sem hið opinbera legði fram — eða þó meira væri — til stofn- iunar lífvænlegs nýbýlis, gæti komið fótunum undir hinn út- skrifaða berklasjúkling, þannig að hann yrði eftir það sjálf- bjarga, eru peningar þessir bet- ur vaxtaðir en í nokkrum banka, — og hverfandi lítil upphæð borið saman við það, að greiða þessar 3000 krónur ár eftir ár um lengri eða skemmri tíma í sjúkrakostnað og fjöl- skylduframfæri handa þeimhin- um sama manni. — Þetta verð ur ekki um déilt. Það skal að vísu viðurkennt, að fjöldamargir útskrifaðir berklasjúklingar myndu ekki heilsunnar vegna geta hagnýtt sér þennan atvinnuveg, en það erjafnvístað mikill fjöldi þeirra gætu það, og mundu taka því fegins hendi, ef í boði væri, í stað þess að hrekjast í öryggis- leysinu manna á meðal og síðan á berklahælin aftur. Þess ber einnig að gæta, að í sambandi við nýbýli fyrir berklasjúklinga mætti e. t. v. auk grasræktar, garðræktar, kál- ræktar, alifuglaræktar o. s. frv. — koma upp loðdýrarækt og fleiru, sem víðkomandi býlis- stofnandi gæti stundað til að afla sér markaðsvöru. Ég vil engan veginn gefa það hér með! í skyn, að ef hið opin- bera gengi inn á þá braut, sem ég bendi hér á, væri vandamáj þetta að fullu leyst. En ég held því fram, að hér mundi stigið þýðingarmikið skref í rétta átt og með tilraun af þessu tagi mundi fást þýðingarmikil reynsla, sem leitt gæti inn á önnur ný atvinnusvið, er gætu náð til enn fleiri berklasjúklinga Að öllum líkindum tekur hið nýstofnaða samband íslenskra berklasjúklinga þetta til athug- Vilja verklýðs- félögin una þessu? Fjöldi verkalýðsfélaga krafðist þess, að Alþýðusamband- inu yrði breytt í faglegt samband, óháð öllum stjórnmála- flokkum. Tvímælalaust stendur stór meirihluti verklýðsfélaganna ;að þessari kröfu. Alþýðusambandsþingið svaraði þessari kröfu með því: • 1. Að gera ákvæðin um sérréttindi eins stjórnmála- flokks innan félaganna ennþá harðvítugri en áður. 2. Að taka ráðin af félögiunumi í fjölmörgum innri máU um þeirra, svo sem hvenær þau kjósi fulltrúa á Alþýðusam- bandsþing, hvernig hagað skuli atkvæðagreiðslum o. fl. o. fl. 3. Að taka af félögunum öll ráð í vinnudeiium. Hvernig voru þessi svör fengin? Þau voru fengin með því> að beita hinum herfilegustu rangindum við kosningar og allan undirbúning þingsins. Hér eru nokkur dæmi: 1. Verkalýðsfélögum var neitað um upptöku í Alþýðu- sainbandið, ef þau voru talin hlynnt málstað sameiningar- manna. Dæmi um slík félög eru Vélstjórafélagið á Siglufirði, • Símámannafélagið og Rafvirkjafélagið í Reykjavík. 2. Stofnuð voru svokölluð Alþýðuflokksfélög og látin senda um 20 fulltrúa inn á þingið. Flest eru þessi félög nafnið eitt, og sum þeirra, eins og félagið í Grindavík’, alger- lega ólögleg. Alþýðuflokksfélögum og jafnaðarmannafélög- um, sem talin voru vinstramegin var ýmist meinað að senda fulltrúa á þingið þó þau væru í sambandinu eða þeim varsynj- að um upptöku. Þannig var þessu háttað með Jafnaðar- mannafélag Reykjavíkur, Alþýðuflokksfélag Ölafsfjarðar, . Jafnaðarmannafélagið á Seyðjsfirði o. fl. 3. Þegar til þingsins kom var settur sterkur lögreglu- vörður við dyr fundarhússins til þess að banna fjölda rétt- kjörinna fulltrúa inngöngu í stað þess að láta kjörbréf þeirra gilda sem aðgöngumiða að þinginu voru búin til sér- stök aðgöngukort, og hinum bannfærðu fulltrúum meira að segja bannað að mæta sem gestir við þingsetningu. 4. Haldnir voru fámennir laumufundir í ýmsum félögum, ólöglega boðaðir, til þess að kjósa fulltrúana. Voru þeir kosnir með handauppréttingu, þó lög Alþýðusambandsins á- kveði leynilega atkvæðagreiðslu 5. Kosnir voru fulltrúar frá félögum, sem samkvæmt lög- um Alþýðusambandsins höfðu engan rétt til fulltrúa. 6. Á þingi var stærsta stjórnmálafélagi Alþýðuflokksins, Jafnaðarmannafélaginu bannað að verja mál sitt Með slíkum og þvílíkutn aðferðum voru verklýðsfélög- um sett þrælalög. Hvaða verklýðsfélag vill viðurkenna lögmæti þessara laga? Hvaða verklýðsfélög vilja una því ófrelsi, sem gerfiþing- ið í Iðnó bjó þeim? eylaMt veiUðan y&acf Sá, sem notar Osram-D-ljóskúlur, hefír ódýrt ljós og aetur þess vegna veítt sér næga bírtu. 40 Dlm. ljós- kúla ættí að vera mínnsta ljóskúla í húsínu. Biðjið ávallt um gæðakúluna heims- frægu: innan-matta. Ðefói£u#nen-/fú£uM&’ tmð ú&yeg&CiesliiUftiúUiftt, sem lcyfyfyic íiiía steaumeydstu unar ásamt ýmsu fleiru, sem varðar hag þessa fölks. Jón Rafnsson. Dtb eiftffl bjflflvifjðnn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.