Þjóðviljinn - 15.11.1938, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 15.11.1938, Blaðsíða 4
sfs l\íý/a b'io a§ Stella Datlas Fögur og tilkomumikil amerísk stórmynd frá Un- ited Artists, samkvæmt samnefndri sögu eftir Ol- ive Higgins. Aðalhlutverkin leika: Barbara Stanwick, Anne Shirley , Alan Hale o. fl. Aukamjmd: TÖFRASPEGILLINN Litskreytt Mickey Mouse teiknimynd. Næturlæknir: Gísli Pálsson, Laugaveg 15, sími 2474. Næturvörður er í Reykjavík- ur-apóteki og Lyfjabúðinni Ið- unn. Útvarpið í dag. 10.00 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 Pýzkukennsla, 3. fl. 15.00 Veðurfregnir. 18.15 Dönskukensla. 18.45 Enskukensla. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Erindi Búnaðarfélagsins: Ferðamolar frá frændþjóðim- um. — Runólfur Sveinsson skólastjóri. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Erindi: Hagsmunir Breta í Austur-Asíu. — Sigfús Halldórs frá Höfnum. 20.40 Symfóníu-tónleikar: a. Fiðlukonsert í G-dúr, eftir Mozart. — plötur. b. Tónleikar Tónlistarskól- ans. f 21.45 Fréttaágrip. 21.50 Symfóníutónleikar: c. Symfónía í Es-dúr, eftir Mozart — plötur. 22.15 Dagskrárlok. Minnismerki afhjúpað. Á morgun kl .10 verður í kirkju- garðinum í Fossviogi afhjúpað- laður viti sá, sem reistur er á leiði óþekkta sjómannsins frá 1933. Trúlofun: Á laugardaginn op- inberuðu trúlofun sína ungfrú Þórlaug M. Einarsdóttir Hofs- vallagötu 23 og Magnús Krist- insson málari, Hafnarfirði. Skipafréttir: Gullfoss er í K- höfn, Goðafoss var á Djúpavogi í gær. Brúarfoss fór til útlanda i gærkvöldi, Dettifoss er á leið til Vestmannaeyja frá Hull, Lag- arfoss er á Eskifirði, Selfoss er í Reykjavík, Dronning Alexand- rine fór til útlanda í gærkvöldi, Súðin dr í Reykjavík. Starfsskrá Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins birtist í „Nýju landiu í gær. Allir meðlimir flokksins og fylgjendur þurfa að kynna sér hana. Gerist áskrifendur að „Nýju landi“. Pað kemur út hvcrn mánudag í sama broti og Þjóðviljinn. Framhaldsstofnfundiur verður 'haldinn á miðvikudaginn í Sósí- alistafélagi Reykjavíkur. Verður fundurinn haldinn í Iðnó og hefst kl. 872 e. h. Nýja Bíó sýnir þessa dag- lana ameríska stórmynd, „Stella Dallas“. Aðalhlutverkið Ieikur hin vinsæla leikkona Barbara Stanwyck. IIIÓPVIUIMM Mínníngarathöfn um skípshöínína cr fórst með „Óíafi" fer fram í Dómkirklisnni miðvíbudagííin 16, nóv, kL 2 e, h, Afhöfninni verðnr úívarpað, ALLIANCE, h.í. S>ökkum innílega auðsýnda hluffekníngu og vínarhag víð andfáf og jarðarför sonar okkar 0$ bróður Sveins Ingólfs Guðjónssonar. — Sérsfaklega þökkum víð félögum hans í Má!« arasveínafélagí Reykjavíkur, Foreldrar ©§' sysfkíní. Sendisveinafélag Reykjavíkur heldur aðalfund á miðvikudag- inn 16. þ. m. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn hefst kl. 8V2 e. h. Fundarefni: 1. Félagsmál, 2. Aðalfundar- störf, 3. önnur mál. Miinnin ga rathöfn um sjó- mennina sem drukknuðu á tog- ar.anum Ólafi, fer fram á morg- un kl. 2 í Dómkirkjunni. Er þess vænzt, að hlé verði á öll- um vinnustöðvum, meðan at- höfnin fer fram. Trúlofiun. S. 1. laugardag op- inberuðu trúlofun sína ungfrú Sigrún Þórðardóttir. frá Viðey og- Ásgeir Einarsson rennismið- ur í Landssmiðjunni. Sósíalistafélag Reykjavíkur. Þeir félagar, sem ekki eru að vinna í dag, eru beðnir að mæta á skrifstofu félagsins kl. '2 í dagí og hjálpa til við bréfa- útburð. mofív fíl að fesía á barnaföf# fassf f VESTU Laugaveg 4o. Skákmófið í Amsíeirdam, p. u. Á skákmótinu í Amsterdam standa sakir með vinninga á þessa leið eftir fjórðu umferð: Fine hefur 3Vs vinning, Aljechin 21/2 Casablanca og Botvinnik 2 hvor og Euwe 1 Va. Leiðrétting. Prentvilla varð í grein Lút- hers Grímssonar s. 1. sunnud., en er rétt þannig: „Ef til vill finnst mörgum þau (samtökin) vera með öllu van- máttug í þessum sökum, hér sé við dómara að deila, og engu verði um þokað. Slík hugsun hæfir ekki sjómönnum“. StofoDD öháðs fassambinds FRAMHALD AF 1. SÍÐU. inefnd, að ýms félög, svo sem Þvottakvennafélagið Freyja, Iðja, verklýðsfélagið á Djúpu- vík o. fl. o. fl. haf.a á síðast- liðnu ári beinlínis verið ofsótt af stjórn Alþýðusambandsins, ekki af því, að eitt eða annað væri að athuga við kröfur þeirra um kaup og kjör, heldur af því, og því einu, að forráða- menn þeirra litu öðrum augum á stjórnmál en leiðtogar Skjald borgarinnar. Því skal ekki held- ur gleymt, ,að sjálfsagðar kjara- bótakröfur Dagsbrúnar voru á sínum fíma þaggaðar niður af St. Jóh. af því ,að hugsanlegt þótti, að þær kæm'u í bága við pólitíska hagsmuni Skjaldborg- arinnar. Verklýðsfélögin geta hrundið af sér því þrældóms- oki, sem Skjaldborgin hefur á þau lagt, og skapað fullkomið jafnrétti og ljtðræði innanlands- samtaka sinna, þegar á þessum vetri. Fyrsta sporið er að mynda samband, undir forystu Dagsbrúnar, til varnar félags- legum réttindum og til sóknar fyrir bættum kjörum og óháðu fagsambandi. Hjónahand: Á laugardaginn voru gefin saman í hjónaband á Akureyri, ungfrú Björg Axels- dóttir, kaupmanns Kristjánsson- ;ar, og Agnar Kofoed-Hansen flugmaður. Geimb í3io % Nótt bak víð vsgsíöðvamar Áhrifamikil og listavel leikin þýzk kvikmynd, tekin af UFA-félaginu. Aðalhlutverkin leika, hin fagra leikkona Lida Baarova og Mathias Wleman. Sanma Kvenkjóla, blússur og kápwr. Sníð og máta. Guðrún Rafnsdóttir, Bergþórugötu 1. Tíl aihugunar Athygli þeirra, er eiga banka- vaxtabréf Landsbankans (veð- deildarbréf) eða hafa þau undir höndum ,skal vakin á því, að vextir af bréfum þessum eru aðeins greiddir til gjalddbga þeirra. Lista um útdrátt bréf- anna geta menn fengið hjá bank anum og útibúum hans. Þeir munu einnig vera til hjá flestum sparisjóðum og hreppsstjór- um landsins. M.ikki Mús lendir í æfiniýrum. Saga í myndum fyrir bömin. 12. — Jæja, þú mátt fara til Afríku, ef þú lofar mér einu. — Uss, þey! Mikki vissi að stefpan mundi láta undan. En hann veit ekki að við ætlum að verða með. — Ætlarðu að lofa mér því? — Ég skal gera hvað sem þú biður um. — Jæja, ég ætla að biðja þig um að lofa mér með tií Afríku. Jahá, þú lofaðir að gera hvað sem ég bæði þig um. Agatha Christie. 68 Hver er sá seki? Æ, nei, nú sé ég að það var hringur). Mér finnst e'kki vera hægt að segja annað en að Flóra h'afil verið heppin. — Hvernig þá, fröken Ganett? spurði ofurst- inn. Ég segi Poug við græna drekanum. Hvernig hefur Flóra Ackroyd veríð heppin ? Það er annars skemmtilegasta stúlka. — Ég hef að vísu ekki mikið^vit á glæpum, sagði fröken Ganetl í þeim tón, að maður átti að halda að hún vissi allt sem vitað varð um þau efni. — En það get ég sagt ykkur, að fyrsta spurning- in ætti alltaf að vera þessi: Hver sá hinn myrta síðast á lífi? Og á þann mann á að líta með tor- tryggni, Flóra Ackroyd -'ar sú, sem síðast talaði við Roger, svo vitað sé. Það getur orðið henni hættulegt. Það er mitt álit, að Ralph Paton feli sig til þess eins að hún skuli ekki vera grunuð. — Nei, þetta megið þér ekki segja, sagði ég á- sakandi. Þér álítið þó ekki að hún Flóra, ung og saklaus stúlka, hafi myrt frænda sinn ? — O, ég veit ekki hvað maður á að halda, sagði fröken Ganett. En ég er nýbuin að lesa hók úr Alþýðubókasafninu um líf glæpamanna í París. í henni er sagt að sumir hættulegustu glæpamenirn- ir séu ungar stúlkur með engilsandlit- — En það er bara í Frakklandi, sagði Karólína hvasst. — Ójá, sagði ofurstinn. Það minnir mig á und- arlega sögu, er sögð var á sölutorgunum á Ind- landi- Saga ofurstans var lengri en allt sem langt er, og leiðinleg að sama skapi. Eins og atburðir frá Indlandi séu eins girnilegir til fróðleiks og það sem var að gerast í Kings Abhot þessa dagana. Það var Ivarólína sem stöðvaði^talanda ofurst- ans, með því að tilkynna Mah-Jong öllum að ó- vörum. Ég þurfti að leiðrétta ýmsar smávillur í reikningsfærslu hennar eins og vant var, en að j>ví loknu byrjuðum við á nýju spili. — Austanvindur segir pass, sagði Karólína. Ég hef mínar eigin hugmyndir um Ralph^Paton. En ég er ekki að flíka peim fyrst um sinn. — Jæja, góða, sagði fröken Ganett. — Chov, nei ég meinti Pong- — Já, sagði Karólína, óbifanleg. — Var petta með stígvélin rétt, — að þau hali verið svört? — Já, það var rétt, sagði Karólína. — En til hvers var það gert ? spurði fröken Ganelt, Karólína setti stút á varirnar og hristi höfuðið, eins og hún vissi allt af létta. — Pong, sogði fröken Ganett- — Nei, fyrirgefið! Ég tel víst að læknirinn viti öll leyndarmálin. Hann er alltaf með Poirot. — Nei, það er öðru nær, sagði ég. — James er svo yfirlætislaus, sagði Karólína. Nú lízt mér á — falin Kong! Ofurstinn blístraði lágt, og um stund gleymdist allt vegna spilsins. Carter ofursti varð fyrstur til að rjúfa þögnina. — Haldið þér að þessi Poirot sé eins mikill leynilögreglumaður eins og orð er á gert. — Hann er mesti leynilögreglumaður sem uppi hefir verið í heiminum, sagði Karólína hátíðlega. Hann kom hingað til þess að hafa Irið fyrir for- vitni almenrúngs. — Chov, sagði fröken Ganett. Það er ekki ama- legt að fá slíkan mann tíl bæjarins. En hvað ætl- aði ég að segja, — Clara, vinnukonan mín er vin- stúlka Elsíe Dale, stofustúlku á Fernley, og hvað haldið þið að Elsíe hafi sagt henni : Aðstoliðhafi verið stórri peningaupphæð, og Ursúla Bourne muni vera eitthvað flækt í því. Hún fer frá Fern- ley um mánaðarmótin, og hún liggur andvaka á næturnar og grætur- Mér þykir trúlegast að stúlk- an sé eitthvað viðriðin glæpamannafélag. Hún hef- ir alltaf verið undarleg, á enga vinkonu hér í grend. Á frídögum sínum fer hún einförum og talar ekki við nokkurn mann. Ég bauð henni einusinni ásamt ungum stúlkum heim til min kvöldstund, en hún afþakkaði. Ég spurði hana um hitt og þetta við- víkjandi ætt hennar og uppruna, en hún gaf mér ekkert út á það. Hún var kurteisin sjálf, en hafði eitthvað það við sig, að ég gat ekkert haft upp úr henni. Fröken Ganet þagnaði til að varpa mæðinni, og Carter ofursti, sem hafðí enga ánægju af tali um vinnukonur, lét þau orð falla, að í Sjanghaj-klúhbn- um vœri það föst regla að menn yrðu að láta út strax og að þeim væri komið. Við spiluðum nokkra hringi hraðspil. — En þessi Russel, sagði Karólína upp úr eins manns hljóði, Hún kom heim til okkar árdegis á föstudaginn og þóttist vera í læknisvitjun. En ég

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.