Þjóðviljinn - 06.12.1938, Side 1
*
3. ÁRQANQUR
RRIÐJUD. 6. DES. 1938.
282. TÖLUBLAÐ
iilepnifiii í Kl í fdPFattai
# --w. V- V-T
Krofutr verkamanna: Fjötgun í afvínnu-
bófavínnunní um 225 manns og 500 þús-
und krónur fíl atvínnubófa á næsfu fjár-
. hagsáæflun bæjaríns
nietrthlutl verhamannaf
Hlíf vlll ðhðð fagsamband
En iorstjórar Áfengisrerzlnnarinnar
kennarar og ileiri embættismenn
iella tillðgnr iyrir ▼erkauninnnm.
Hinn almenna fund verklýðs-
félaganna á sunnudaginn sóttu
hátt á fimmta hundrað manns.
Urðu mjög fjörugar umræður
á fundinum.
Fundarstjórar voru Friðleifur
Friðriksson> formaðiur Vörubíla
stöðvarinnar og Ólafur H. Ein-
arsson, varaform. Iðju, ritari
var Eggert Guðmundsson, rit-
ari Dagsbrúnar.
Þessi tóku til máls:
Sigurður Guðnason, varaform
Dagsbrúnar, Guðjón Benedikts-
sion form. Sveinafél. múrara,
Ólafur H. Einarsson varaform.
Iðju, Þiorvaldur Brynjólfss. for-
maður Félags járniðnaðarmanna
Eðvarð Sigurðsson form. at-
vinnuleysingjanefndar Dags-
brúnar, Einar Olgeirsson ritstj.,
Pétur Hraunfjörð verkamaður,
Zóphonías Jónsson skrifstofum.,
Þórður Gíslason verkam. og
Þorsteinn Pétursson fjárm.ritari
Dagsbrúnar. 1
Að lokum var stjórnum félag-
anna, sem að fundinum stóðiu
falið að kioma samþyldum fúnd-
íirinsi á framfæri við rétta aðila.
Alþýðiublaðið gerir fund þenn-
an að umtalsefni í gær, og eru..
skrif þess í þeim tón að ekki
er um að villast, að blaðið er
audstætt baráttu verkámanna
gegn atvinnuleysinu. Eru skrif
þessi í beinu áframhaldi af
fyrri stefnu blaðsins í atvinnu-
leysismálunum, sem skýrast
kom fram þegar það skipaði
fylgismönnum sínum að greiða
atkvæði gegn aukningu í at-
' vinnubótavinnunni.
Af sömu ástæðu skrökvar Al-
þýðublaðið um nálega helming
á tölu fundarmanna. Mun það
tilætlun blaðsins með þessum
skrifum að telja almenningi trú
um að sem flestir beri svipaðan
hug til atvinnuleysismálanna og
blaðið sjálft.
Hér fara á eftir tillögur þær,
sem fundurinn samþykkti:
Almennur fundur atvinnu-
lausrar alþýðju í Reykjavík hald-
inn 4. des. 1938 að tilhlutun
Verkamannafélagsins Dagsbrún,
Sveinasambands bygginga-
manna, Félags járniðnaðar-
manna og Iðju, félagi verk-
smiðjufólks til þess að ræða
hið gífurlega atvinnuleysi, sem
nú ríkir hér í bænum, skorar
á bæjarstjórn að fjölga í a'*
vinnubótavinnu þeirri, sembær-
inn hefur með hönduin, um 100
manns 8.j þ .m. og um 50 þann
15. Þ- m. og verði þeirri tölu
haldið til áramóta.
Þar sem atvínnuleysi er nú
áneira hér í bæ en undanfarin ár
en atvinnubætur bæjarins íiins-
vegar miklu minni en áður á
sama tíma, telur fundurinn, að
bæjarstjórn beri skylda til þess
að sjá svo um að atvinnubóta-
vinna bæjarins verði ekki minr.i
það sem eftir er ársins en verið
hefur undanfarin ár.
Ennfremur skorar fundurinn
á bæjarstjórn að hækka framlag
bæjarins til atvinnubóta upp í
500 þús. kr. á fjárhagsáætlun
næsta árs, og að auka verkleg-
ar framkvæmdir, m. a. með því
að í byrjun næsta árs verði
hafizt handa um framkvæmd
þeirra verka, sem fjárhagsáætl-
anir undanfarinna ára hafaheim
ilað bæjarstjórn. »
Almennur fundur atvinnu-
lausrar alþýðu í Reykjavík hald-
inn 4. des .1938 að tilhlutun
Verkamannafélagsins Dagsbrún,
Sveinasambands bygginga-
manina, Félags járniðnaðar-
manna og Iðju, félagi verk-
smiðjufólks til þess að ræða
hið gífurlega atvinnuleysi, sem
nú ríkir hér í bænum, skorar
á ríkisstjórnina að fjölga í at-
vinnubótavinnu þeirri, sem ríkið
hefur með höndum, um 50
mianns þ. 8 .þ. m. og 25 manns
þann 15. þ. m. og verði þeirri
tölu haldið til áramóta.
Þar sem atvinnuleysi er nú
meira hér í bæ en undanfarin
ár, en atvinnubætur ríkisins hins
vegar miklu minni en áður á
sarna tíma, telur fundurinn að
ríkisstjórninni beri skylda iil að
sjá svo um að atvinnubótavinna
ríkisins verði ekki minni það
sem eftir er ársins en verið hef-
ur undanfarin ár.
Þá flutti Guðjón Benedikts-
son, form. Sveinafélags múrara
eftirfarandi tillögu, er var sam-
þykkt með samhlj. atkvæðum:
Almennur fundur verkamanna
Fraœfeald á 4. sí#u.
Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfírðí hélt mjög
fjölmennan fund á sunnudagínn. Fyrír fundínum lágu
2 tíllögur varðandí fagsambandsmálíð og lögmætí híns
svohallaða Alþýðusambandsþíngs. Yfírgnæfandí meírí-
hluíí fundarmanna víldí lýsa YÍir íy1§í sínu víð fagsam-
band, en Shjaldborgín hom því til vegar, að atkv.gr.
var frestað þangað til í gærkvöld, tíl þess að fá tækí-
færí tíl að ganga míllí verkamanna, ýmíst með hótun-
um eða gYhíloforðum, ef verða mættí tíl þess að hafa
áhríf á atkvæðí þeírra.
Með atkvæðum manna, sem ekkí eru verkamenn,
og hafa sumír hverjír alls ckkí atkvæðisrétt í félagínu,
telur Skjaldborgín síg hafa vísað tíllögum yerkamann-
anna á bug.
Undirskriftlr SkjsMliorgarinn r á
Norðfirði eris svik 09 blekklngar
Mönnum, sem aldreí hafa veríð í Verha-
lýðsfélagínu safnað tíl undírshriftar.
Alþýðiublaðið skýrir í gærfrá
því, að 140 „verkamenn, lög-
legir meðlimir í Verklýðsfélagi
Norðfjarðar" hafi með undir-
skript sinni mótmælt allsherjar-
atkvæðagreiðslu þeirri, er fór
fram í félaginu um daginn.
Þjóðviljinn átti í gær tal við
Jóhannes Stefánsson á Norð-
firði. Skýrði Jóhannes svo frá,
að Skjaldbyrgingar hefðu laum-
ast um bæinn til undirskriftar-
söfnunar og teldu sig hafa feng-
ið 140 menn til þess að skrifa
undir mótmælin. Hinsvegar hef-
ur enginn fengið að sjá plagg
þetta nema Skjaldbyrgingar.
Þó að fátt væri vitað um und-
irskriftir jjessar á Norðfirði,
kvaðst Jóhannes þó vita, að af
þeim er undirrituðu plaggið
voru mokkrir, sem ekki em í
félaginu og aldrei hafa verið
þar. Auk þess er plagg þetta
undirskrifað af ýmsum, sem að
vísu eru taldir í félaginu en*
skulda þar meira en tvö ár.
Á kjörskrá í Verklýðsfélaginu
voru 280 manns og af þeim
gátu í hæsta lagi 215 kosið.
Hinir voru forfallaðir á ýmsan
liátt eða fjarverandi. Við alls-
herjaratkvæðagreiðsluna kusu
127. Eftir eru því 88 löglegir
félagar, sem gátu kosið og
. af þeim á Skjaldborgin í hæstá
lagi 70. Er því augljóst að hér
er logið að minnsta kosti um
helming.
Stjórn verklýðsfélagsins hef-
ur, farið þéss á leit við formann
Alþýðuflokksfélagsins að hún
feingi að sjá undirskriftirnar. —
Formaður félagsins neitaði
stjórninni um þetta. Af þessu
leiðir að engin sönnun er fyrir
því að mótmæli þessi séu und-
irrituð af 140 mönnum. Á Norð-.
firði hafa undirskriftir þessar
orðið að almennu aðhlægi.
Med hjáðp
ESNKASK. TIL þJÓÐVILJANS
Ólafsfirði í gærkvöldi.
Eftir að Jóni Sigurðssyni
hafði tekizt að safna 15 and-
stæðingum verkalýðsins hér inn
í Verkalýðsfélagið, var sam-
þykkt í gær traustsyfirlýsing til
Alþýðusambandsstjórnarinnar.
Sagði þá stjórn félagsins af
j sér og ný stjórn var kosin.
Áður höfðu tveir fundir sam-
þykkt traust til fulltrúa síns á
Alþýðusambandsþingini og van-
traust á sambandsþing og sam-
bandsstjórn.
FRETTARITARI.
Verkamannafélagið Hlíf í
Hafnaríirði boðaði til fundar kl.
2 á sunnudaginn. Fundaréfni
var atvinnuleysismálið, Alþýðu-
sambandsþingið og bréf frá
Dagsbrún. Fundurinn hófst því
nær stundvíslega og var þegar
í byrjun mjög fjölmennur. Helgi
Sigurðsson hafði framsögu um
atvinnuleysismálin fyrir hönd
nefr.dar þeirrar, er síðasti fund-
ur hafði kosið til að fjalla um
þau mál. Skýrði haftn frá því,
sem unnizt hafði á atvinnuleys-
isbaráttunni, en kvað það nú
einkum á vanta, að hafin yrði
atvinnubótavinna fyrir unglinga.
Samþykkti fundurinn einróma
áskorun til bæjarstjórnar ium að
láta hefja atvinnubótavinnu fyrir
unglinga. Emil Jónsson talaði
fyrir hönd bæjarstjórnar, kvað
nægan vilja fyrir hendi hjábæj-
arstjórn í þessu máli, en fátt
um fé.
Þá lagði nefndin einnig til
að kosin yrði nefnd til þess að
athuga möguleika á því að auka
bátaflota Hafnarfjarðar ognjóta
til þess styrktar af því fé, sem
I Fiskimálanefnd hefur heitið til
styrktar þeim, sem kaupa nýja
báta, smíðaða hér heima. Til-
lagan var samþykkt í einu
hljóði.
45 bessu búnu hófust um-
ræður um Alþýðusambandsþing
ið og bréf Dagsbrúnar um
bandalag þeirra verklýðsfélaga
sem breyta vilja Alþýðusamb.
í fagsamband. Fyrstur tók til
máls Guðmundur Gissurarson
og skýrði hann frá tildrögaim
þingsins um atvinnu- og verk-
lýðsmál. Kvað hann þessi mál
raunar vera þau einu þingmál
sem Hlíf varðaði um; pólitísk
ágreiningsmál ætti aðeins að
tæða, í fbkksfélögum. Þá tók til
máls Ólafur Jónsson og gerði
skilmerkilega grein fyrir fram-
komu Sameiningarmanna í sam-
bandi við Alþvðusambandsþing-
ið.
Að þessu búnu hófust fjör-
ugar umræður. Tóku þsssir til
máls og töluðu í 10 mínútur
hver: Helgi Sigurðsson, Jónas
Guðmundssion framkvæmdastj.
og bankaráðsmaður, Guðmund-
ur 0. Guðmundsson, Ólafur
Jónsson, Guðmundur Gissurar-
son, Sigfús Sigurhjartarson,
Kjartan Ólafsson og Emil Jóns-
son.
Eftirfarandi tillögur komu
fram' undir umræðum:
„Verkamannafélagið Hlífsam
þykkir , að það sé fylgjandi
samningi þeim, sem fyrir fund-
inum liggur frá Verkamannafél.
Dagsbrún og að félagið vill ger-
ast aðili að þeim samningi. Og
jafnframt samþykkir fundurinn
að kjósa þriggja manna nefnd
til þess að fara með umboð fé-
lagsins í þessu máli“.
* „Fundur í Verkam.fél. Hlíf
ályktar að lýsa sig fylgjandi
því, að Alþýðusambandi íslands
verði breytt í faglegt samband
óháð öllum pólitískum flokk-
um þar senr innan verklýðs-
félaganna eru menn af öllum
pólitískum flokkum, en erusam-
kvæmt núverandi lögum Alþýðu
sambandsins enn algerlega rétt-
lausir, en það er réttlætiskrafa
allra heiðarlegra manna, að all-
ir verkamenn séu jafnréttháir
innan samtaka sinna, en það
fæst því aðeins ,að verklýðsfé-
lögin séu ekki skipulagslega háð
yfirráðum neins pólitísks flokks.
Fundurinn telur ólöglega sfpfn-
að til síðasta Alþýðusambands-
þingsi ,þar sem löglega kosnum
fulltrúum voru meinuð réttindi
á þinginu, og viðurkennir ekki
gerðir þess“.
Þegar klukkuna vantaði 15
mínútur í 7 var mælendaskrá
tæmd, en fundarsalur svo þétt-
skipaður, að standa varð út úr
dyrum, og bjuggust nú allir
við, að atkvæði yrðu greidd
um tillögurnar. Fundarstj. reis
þá úr sæti og kvaðst ,,úr-
skurða", að engin atkvæða-
greiðsla færi fram á þessum
fundi, heldur yrði fundur annað
kvöld og færi þá atkv.greiðsla
fram. Varð af þessu hark nokk-
Urt á fundinum, því að fundar-
menn þóttust brögðum beittir,
en fundarstjóri kunni engar af-
sakanir aðrar en þær, að losa
yrði húsið kl. sjö, því Alþýðu-
flokksfélagið ætlaði þar til
mannfagnaðar um kvöldið. Öll-
um; var ljóst, að þetta gat ekki
ve'rið ástæðan, því að auðvelt
var að ljúka atkvæðagreiðslunni
fyrir kl. 7, hitt vissu menn að
þeir Skjaldborgarar, Emil og
Kjaidan voru í vonlausum
minnihluta á fundinum og vildu
fá frest til þess að tala við verka
menn. Verkámenn þiggja þessa
dagana atvinnubótavinnu úr
náðarhendi þeirra. t
Allan daginn í gær voru allir
framkvæmdastjórar, kennarar
og aðrir háttsettir embættis-
menn Skjaldborgarinnar önnum
kafnir við að smala á fundinn.
óspart var beitt hótunum um
atvinnukúgun og öðrum Skjald-
borgarráðum.
Kl. 8,30 var fundur settur á
ný og var mjög fjölmennur.
Emil Jónsson vitamálastjóri,
Kjartan Ólafsson forstjóri Á-
fengisverzlunarinnar, Björn Jó-
hannesson forstjóri og Guðm.
Gissursson skrifstofumaður
lögðu fram rökstudda dagskrá
þess efnis að vísa báðum þeim
tillögum, sem fyrir lágu frá.
'Ekki þarf að taka fram, að
þessi frávísunartillaga er hrein
lögleysa og markleysa, þar sem
fundarstjóri hafði lýst yfir því
á sunnudagsfundinum, að um-
ræðum væri lokið og fyrir þess-
um1 fundi lægi aðeins atkvæða-
greiðsla um framkbmnar tillög-
ur.
139 verkamenn greiddu atkv.
móti hinni ólöglegu frávísunar-
tillögu, og var þa$ meirihluti
verkamanna á fundinum. Enl43
greiddu atkvæði með henni, þar
af 30—40, sem ekki etu verká-
menn og sumir þeirra eru al-
gerlega ólöglega taldir meðlim-
ir Hlífar. Auk hinna áðurtöldu
flutningsmanna frávísunartillog-
unnar skulu hér nefnd nokkur
dæmi ium þá ,,verkamenn“, sem
réðu úrslitum í þessu hreinrækt
aða verklýðsmáli:
Bjarni M. Jónsson kennari,
Stefán Júlíusson kennari, Páll
Sveinsson kennari, Ólafur Þ.
Kristjánss. kennari Gunnlaugur
Kristmundsson kennari, Allir
eru þessir menn í Kennarafélagi
Hafnarfjarðar, sem er í Alþýðu
sambandinu og eiga því ekkf at-
kvæðisrétt í neinu öðru verk-
lýðsfélagi innan sambandsins.
Auk þessara manna má nefna
nöfn eins og Ásgeir Stefánsson
forstjóri, Guðjón Gunnarssion,
fátækrafulltrúi, Viggó S'tefáns-
son skrifstofumaður, Jens Da-
víðsson trésmiður, Þóroddur
Hreinsson trésmiður, Valdimar
Long kaupmaður, Magnús
Bjarnason bryggjuvörður 0. s.
frv.