Þjóðviljinn - 10.01.1939, Blaðsíða 3
ftJðÐVILJINN
Þriðjudaginn 10. jan. 1939.
]§i llskiB Heliasoi
Effiir fiendirík S. Offésson
Sízt mun ókunnuga gruná, er I
mæta jóni biskiupi Helgasyni á
götu, að þar fari maður ,sem
látið hefur af embætti fyrir ald-
urs sakir, enda kom lausnar-
beiðni hans mörgum á óvart.
Sporléttur, brosandi, nær allt-
af með hattinn í hendinni, er
hinn vinsæli kirkjuhöfðingi nú
eins og áður, enda þótt kirkju-
bækúr sýni að hann hafi tvö
ár um sjötugt.
Jón biskúp á til merkra
manna að telja, manna, sem
lagt hafa sinn skerf til sögu
Þjóðarinnar. Faðir hans, Helgi
lektor Hállfdanarson, mótaði um
^angt skeið kennimannastétt
þessa lands, en móðurfaðir hans
var einn hinna gáfuðustu for-
ingja íslenzkrar endurreisnar á
19. öldinni, síra Tómas Sæ-
mundsson í Odda. Jón biskup
virðist hafa tekið ríkulegan
skerf beztu eiginleika þessara
feðra sinna í arf, kennimennsku
síra Helga og frjálslyndi síra
Tómasar, en vísindastörfin eru
Þó að mínum dómi sá þáttur í
lífi hans, er mun lengst halda
minningu hans á lofti.
Ég ætla mér ekki að rekja
hér embættisferil Jóns biskups.
Til þess skortir mig öll skil-
yrði, en þó skal getið nokkurra.
ÞegarHáskóli íslands var stofn-
aður 17. júní 1911 hvarf hann
til kennslti þar, en hafði áður
gegnt lektorsembætti við
Prestaskólann að föður sínum
iátnum. Tæplega eru nú skiptar
skoðanir um að gifta hafi ráðið
vali kennara í guðfræði, erslík-
ir menn vorlu í upphafi skipað-
ir þar, sem þeir Jón Helgason,
Haraldur Níelsson og Sigurður
Sívertsen. Víðsýni þeirra og
umburðarlyndi í andlegum efn-
um mun lengi viðbrugðið, enda
þótt skoðanir þeirra færu ekki
alltaf saman. Flestum þeirn ,sem
nú eru á bernskuskeiði, mun
minnisstæð viðureign Jóns
Helgasonar við hina kirkjulegu
forneskju, sem dagaði uppi fyr-
ir skýrum rökum hans. Frjáls-
lýnd alþýða stendtur í óbættri
þakkarskuld við hann fyrir það
að hann ruddi þröngsýni og
hindurvitnum liðinna alda úr
vegi rannsókna og kirkjulegs
vísindastarfs.
Árið 1916 lézt Þórhallur bisk-
UP Bjarnason. Hann hafði ver-
>ð hinn friðsamasti maður í
hiskúpsstóli, vinsæll af alþýðu,
en fáskiftinn um deilumál þau,
sem helzt voru uppji í kirkjunni,
enda þótt vitað væri, að hugur
hans og samúð hneigðist meir
hl hins „nýja siðar“. Pótti:
mörgum því ekki vænlegt til
li'iðar, er merkisberi „nýguð-
fræðinnar", Jón prófessor
Helga&on var kallaður til að
gegna starfi hans. Að minni
hyggju hafa fáir biskupar í
'útherskum sið betur setið stól
etl hann, en um það geta mér
fróðari menn betur iog rökfastar
ð®mt, þeir er við kirkjuleg mál
sýsla.
Tvennt er það, sem auðkennt
hefur Jón biskup utan embætt-
'sstarfs hans, vísindaiðkanir og
Ijúfmennska. Það má segja, að
V'sindaiðkanir hans séu ærið
icvistarf hverjum meðalmanni,
en Þó eru þau hjáverk, en munu
I’ó hfa einna lengst verka hans.
Áuk mýmargra ritgerða í blöð-
urn og tímaritum innanlands og
°g utan, má hér nefna þessi
rit’ sem öll enu hin merkileg-
Us^: )>Uppruni Nýja testament-
,Afmenn kirkjusaga,,
isins'"
„Kristnisaga íslands“, „Meist-
ari Hálfdan“ og „Hannes Finns
son“, svo og rit trúarlegs efnis,
prédikanasöfn hans, auk margs
annars á erlendum tungum.
Einn liður í ævistarfi þessa
merka vísindamanns lýtur sér-
staklega að Reykjavík. Hávaði
bæjarbúa mun hafa talið það
liggja í hlutarins eðli, að Jón
biskup væii borinn hér, en
svo er þó ekki. Vagga hans stóð
á Álftanesi, en frá öndverðu
tók hann slíku ástfóstri við
þennan bæ, sögu hans og þró-
un, býli og borgara, að segja
má með sanni að hann sé í
rauninni , innfæddasti“ Reyk-
víkingurinn, sem hér hefurdval-
ið (og er þá mikið sagt af inn-
fæddurn „Vestanbæing"!).' —
Skrautrit hans „Reykjavík 1786
-1936“ er ljósast dæmi rækt-
arsemi hans við þennan bæ, en
um leið um eljumanninn, sem
ekki lætur undir höfuð leggjast,
að leita hinna vandfundnustu
gagna til að verkið verði sem
heilsteyptast. Það þótti líka
mörgum misráðið hérna um ár-
ið, þegar saga Reykjavíkur var
skráð, að Jóni biskupi var ekki
falið það verk (að öðrum ó-
löstuðum). í sambandi við bók1
hans um Rvík, má geta eins.
þáttar í lífi hans, sem ekki er
öllum kunmur, það er hin ríka
listhneigð. í bókinni er fjöldi
mynda, er biskup hefur mál-
að. Sjálfur segir hann um þúer
í formálánum, að þær geri
„enga kröfu til að álítast annað:
eða meira en þær eru: viðvan-
ingsverk manns, sem að vísu
hefur frá æsku haft yndi af
myndalist og gaman af sjálfur
(í hjáverkum) að handfjalla
teikniblý og fara með liti — —“
En þótt ég beri lítt skynbragð á
myndlist, uggir mig að mörg
felumyndin, sem nú þykir list,
verði gleymd og grafin þegar
sumar af þessum myndum Jóns
biskúps verða komnar á gott
safn.
Jón biskup er hið mesta ljúf-
menni í allri framgöngu, spaug-
samur og ræðinn við hvern
mann. Hann lætur sér mjög
annt um hag manna og er vin-
fastur með afbrigðum. Þeir
voru því sennilega óvenjumarg-
ir, sem hlustuðu á skilnaðarpré-
dikun hans í dómkirkjunni á
gamlárskveld. Hann taíaði þar af
fullu fjöri sem ungur væri, eftir
tæprar hálfrar aldar embættis-
feril.
Mér er það fullljóst, að Jón
biskup hefur aldrei skipað sér
í sveit með sósíalismanum.
Hann hefur verið kirkjunnar
maður og fræðimaður og hald-
ið sér utan við opinber afskipti
af stjórnmálum, en samt á fram-
sækin alþýða honum mikið að
þakka fyrir hina sókndjörfu bar-
áttu hans fyrir frjálsri hugsun
innan kirkjunnar, en sú stofnun
á enn víðlend ítök í hugum
manna. Honum er það einum
manni mest að þakka, að hin
evangeliska kirkja hefur ekki
orðið ofstækisfullt verkfæri í
höndum afturhalds- og kúgun-
arafla, eins og viljað hefur
brenna við með önnur trúfélög.
Af þessum sökum er það ósk
almennings, að Jóni biskúpi
megi enn endast langur aldur
til vísindastarfa og víst er um,
það, að virðing hans mun sízt
þverra þótt hann hafi nú látið
af embætti.
Hendrik J. S. Ottósson.
Togaraflotlnn er ffilnn og
togararekstnrlnii kvlksyndi
ÞjéÖífii. vcirðtiif aö liotrSasí í augu víð wifuielkaun og
gcra alvaiflegt átak til að koma stérútgeifðiugii á
heílbrigöan grundvöÍL
dugatr
beygja hjá
lengur að
kasfa mí!*»
jonum i
Á hverju einasta nýári stend-
ur nú barátta um rekgtur tog-
aranna. Þa ,si barátta er tákn
urn það ö -gþveii i, sem togaraut-
g'erðin, er í eg um le‘ð:rnar út
ur því öngþveiti.
Togaraútgerðarmenn halda
því fram, að tcgaraútgerðin sá
rekin með tapi cg ríkið verði að
styrkja hana — annaöhvorf með
beinum fjárframlögum, útllutn-
ingsverðlaunum eða gengisl c kk-.
un.
Alþýðan svarar þessum. kr' f-
um með því að sýna fram á, að
ð undanförnum áratugum hef-
ur bönkum, ríkissjóði og þjóð-
inni orð.ð að blæða svo tugum
m'ljrna s.kiftir fyrir togaraút-
gerð;na, að reksúurinn h:fur
verið fram úr hófi dre fður og
dýr, að fé hefur vægðarlaust
verið tekið úr rekstrinum í
einkaeyðslu og skrauthúsabygg-
ingar, þegar vel gekk, en togar-
arnir íátnir dragnast niður. —
en skúldirnar látnar safnast fyrir
ir í bönkunum eg reynt að velta
þeim yfir á þjóðina með okur-
rentum, sem liggja svo eins og
mara á cllu atvinnulífi.
Kveldúlfsskuldirnar við h’iö-
ina á »villu«-bygg'ngum, 3hers-
aranna eru talandi tákn um
átumyinið í íslenskri tcgaraút-
gerð.
Islenska þjóðin stendur
frammi fyrir þe'rri spurningu.
hvort hun ætlar að láta þetta
á'umein grafa um sig í þjóðfé-
lagið, láta þessa skuldahít
heimta sívaxandi fórnir frá al-
þýðunni, — eða hvort hún. sétl-
ar að skera þetta kýli burt og
koma togaraútgerðinni á iieil-
brigðan og traustan grundvöll,
þó það kost'i sárt cg erfitt átak.
Það hefur verið pólitík þeirra
ráðamanna. vinstr'i flokkanna,
Kveldúlfs eða leið alþýðunnar:
Lsið Kveldúifs er: Gengis-
! >, kkun, s,em þýðir alt að 20%
kauplækkun fyrir sjómenn og
alt v e.-kafólk, 20 miljón. ísl. kr.
auknar ríkisskuldir, — en 4-
framhaldandi sukk togaraút-
gerðarinnar með hálaunata for-
stjóra, fínar villur o. s. frv.
Leið alþýðunnar, leið Sósíal- i
j,s.taflokks,ins er: Uppgjör á
skuldafarganinu, til að koma
togaraútgerðinni á tryggan
grundvöll, s’ era; burtu eyðsiuna
og bitlingana við hana, — end-
urnýja togarafTtann, en ekki
»villurn,a,r«, cg re’.a stórvirk-
as’a fiarnleðslutæki Islancls, í
það stórum; stíl og svo skynsam-
lcga, að þau geti borið sig, eins
ög reynslan sýnir að þau geta,
þegar rétt er að farið.
Það er á milli þcssara leiða,
sem þjcðin á að velja.
BB » '
Img a
inai
na og
IsSendinga.
Danskur verMræðíngur heítír verðlaun-
um fyrír beEtu tíllögurnar.
Danskur maður, Frants All-
ing vertfræðingur, hefir heitið
kr. 10.000 verðlaunum, sem
hann hefir falið Polyteknisk
Læreanstalt. að úthluta, í'yrir
uppfyndingu á nytjaáhaldi eða
nytjaefni, ;em einkum getur
orðið til til þess að auka iðnað-
arútflutning Dana, og Tslend-
in. a. Bæði íslendingar og Dan-
ir geta tekið þátt í þescari sam-
keppni cg úrlausnirnar skulu |
vera kormiar til Polj teknisk
Læreanstvlt fyrir 31. de ember
:<939.
Verðlaun þe.-si er.u gefin í fil-
efni af 65 ára afrnæli gefa,nd-
ans,, sem er þann 7. sept. n. k.
Þ„'cðviljanum hafa borist,
upplýsingar um. gcfandann frá
um heim. Hefir hann dvalið
langdvölum í Frakklandi en er
nú búsett.ur í frönsku Marokko.
Sveini Björnssyni siendiherra í
sem undir áhrif Landsbankans I Khöfn cg s’ al nú efiir þeim
h ‘1T O IrATvnnl- A L 1 ' ' L a I WlTm n'ftrA vxAlr Irii w /->■ nr í n
hafa komist, að beygja hjá, —
að hopa á hal, þegar að þcssu
vandamáli kom. Baráttan. um
hvort vinstri flokkarnir skuii
be ta sókn eða u.ndanba.1 ú í við-
ureign sinni við afturhrld og
fa isma, útkljáist e nmitt á af-
r-stcðunni til Kveldúlfsskuldauna.
Kve’dúlfsmálið verður brenni-
punkturinn í íslenzkri pólitík,
uns það er leyst,.— því undir
lau,sn þess. er framtíð tcgaraút-
gerðarinnar komin. Það hvort
vinstri flokkar þ:ri að leysa það
er prófsteinninn á hvort þeir
þora. að reka, vinstri pólitík eða
— gefast upp.
Það er einmitt svona fjár-
inálaá.turmein,, sem um leið und-
irgrafa atvinnul fið, sem víðast
hvar í löndunum knýja fram
íasismann, ef lýðræðið ekki þor-
ir að afmá þau. 1 Þýskalandi
va,r rekstur stórjarðeigna júnk-
aranna, sem hundruðum og aft-
ur hundruðum miljóna hafði
verið kastað í úr ríkissjóði, orð-
inn samsvarandi átumein í þjóð-
félaginu, e,n lýðræðið þorði ekki,
f meðan tími var til að gera þetta
upp.
Nú stendur enn einu sinnibar-
áttan um hvart fara skuli leið
he mildum gerð nokkur grein
íyrir honum.
Frants A'lling er Jóti, og
fæddur í Nibe 7. sept. 1874.
Faðir hans, Peter Alling, var
kaupmaður og sparisjcðsstjóri.
Að loknu námi sneri Frants,
Alling s:r að verslunarstörium,
en hugur hans m'iðaði til stærri
afreksverka. Gekk þá Alling í
Polyteknisk Læreanstalt og lauk
þar náml. 1903. Að því loknu fór
hann til Bandaríkjanna og
stundaði þar ýms verifr.vði-
störf um hríð. Árið 1905 kom
hann aftur heim til Danmerk-
ur, cg s.tofnaði þar sitt eigió
verkfræðingsfirma, sem einkurn
iagði fyr r sig miðstöðvarhitun,
síðar sr.e i hann sér einkum aö
framleðslu cg sölu þrýstilcfts-
tækja. Hefir hann komið upp
slíkum tækjum, víðsvegar í Dan-
mörku og í fleiri löndum, í flest-
um dönskum skipasmiðjum og
mörgum, erlendum. Hin flytjan-
legu þrýstiloftstæki eru mjög al-
geng cg bera ágæt vitni um
b rautr y ð j e n dasta rf Allings á
sviði þrýstiloftstækjanna.
Árið 1922 dró Frants Alling
sig til baka frá, störfum og hef-
ir hann síðan ferðast víðsvegar
fjritspm
■•■d bladiBu
Þjóðviljanum hafa borist eft-
irfarandi fyrirspurnir frá manni
nefnir sig ,,j“. Hefur blaðið átt
tal við skattstjóra og fengið hjá
honum svör við fyrirspurnun-
um.
1. Er ráðskonukaup með fæði
og húsnæði, frádráttarhæft á
tekjuframtali, þegar kona fram-
teljanda getur ekki sinnt heimil-
isstörfum sökum vanheilsu?
Sé svo, hve hátt skal þá
reikna fæði og húsnæði ráðs-
konunnar?
Svar: Nei. En sækja má
til yfirskattanefndar um ívilnun
í skatti vegna veikinda konu,
svo sem annarrar vanheilsu. Ef
maður er hinsvegar ókvæntur
og hefur fyrir börnum að sjá
eða konan vinnur utan heimi’is,
svo að ráðskona kemur í hús-i
freyju stað, er ráðskonukaup,
fæði og húsnæði, frádráttar-
hæft, þó í lengtum kringumstæð_
um ýfir 700 kr. í neglugerð um,
tekju- iug eignaskatt, sem fæst
sérprentuð, eru nákvæmar regl-
ur um allt slíkt, auk þess sem
skattstDfan er skyld að veita
þeim, sem óska nokkra aðstoð
við framtöl.
2. Er námskostnaður og fram-
færsla barns, sem orðið er 16
ára, frádráttarhæft á telcjulið
föður þess, að svo miklu leyti
sem tekjur þess hrökkva ekki
fyrir nefndum gjöldum?
Svar: Nei.
Békuafi
sjéiiBM Saidierði
Vetrarvertíðin í Sandgerði
fer að byrja. Sjómennirnir em
farnir að koma hingað. Veðrið
er löngum hvasst og kalt og
ekki róðrarleyfi, það sem af er
árinu. I landlegum hafa sjó-
menn hér pft nægan tíma til
þess að lesa, ef þeir þá hafa
eitthvað til að líta í, en á því
hefur verið misbrestur. Bóka-
safn sjómanna í Sandgeroi var
stofnað í íyrria í byrjun vertíð-
ar til þess að bæta úr þessari
vöntun, en það hefur ekki gert
það nema að litlu leyti, vegna
þess að það náði ekki til allra
sjómanna hér í fyrra og bækur
vioru af skornum skámmti. Safn-
ið eignaðist þó um 100 bindi
bóka, auk bfjaða, en þar af voru
um 40 bindi og blöðin gjaíir
frá einstökum mönnum í Rvík.
Ég vil hér með þakka þeim
fyrir gjafirnar og geta tveggja
gefenda — herra Guðmundar
Bjarnasonar, sem gaf yfir 30
bindi góðra bóka innl'endra og
útfendra og Hótel Vík, sem gaf
mikið af útlendum blöðum.
í lok síðustu vertíðar var
haldin hér skemmtun til ágóða
fyrir safnið. Nýjar bækur hafa
verið keyptar núna um áramót-
in og allar óbundnar bækur frá
fyrra ári bundnar, svo að safnið
skuldar nú upp undir 100 krön-
ur. Það þarf því að hefja nýja
fjársöfnun á þessari vertíð með
tillögum notenda og öðrum ráð-
um. Safnið þarf að eignast önn-
ur 100 bindi bóka á komandi
vertíð með hjálp hugulsamra
manna, sem þelckja baráttu og
þarfir sjómanna.
Sem betur fer er skilningur
manna og áhugi að aukast á
þessum málum, þar sem lítið
hefur verið unnið að þeirn áð-
ur. Á Siglufirði hefur stúkan
þar tekið þetta mál í sínar hend-
ur á síðastliðnu ári. í Keflavík
hafa menn áhuga á að koma
upp lesstofu fyrir sjómenn. Rit-
stjóri Ægis, Lúðvík Kiistjáns-
son, skrifaði grcin um bókasöfn
fyrir sjómenn í októberbláð
Ægis s. 1. ár, og bendir þar
réttilega á nauðsyn þessa máis.
Það er því tímabært fyrir hvern
sem er að leggja bókasöfnum
og lesstofum sjómanna iið,
bæði í orði og á borði. Þessum
mállum þarf að sinna og þeim
verður vonandi sinnt betur en
verið hefur, í framtíðinni.
Sandgerði 3. jan. 1939.
Valdimar össura so %
■l—lllll'll IIIIPI'IIIM III I illll'll I i lllill
Karlakór verkamaana. Mun-
ið æfinguna hjá 1. og 2. bassa í
kvöld kl. 8,30. Mætið vel.
SÓSÍALISTAFÉL. RVIKUR.
SKMIFSTOFA félasfsÉsss
esr é Mafnat'sMí 21
Sími 4824.
Opin alla virka daga frá
kl. 2—7 e. h.
Félagsmenn eru ámtnntir unt að
!a»im á skrífetolura og gr<siéa
$\m síu.
; Þeir fékfsmetin, sem ekki hafa
iMgp* skírteini geia vitjfið
þaérra á sítrifstafauxa.
STJÖWN.