Þjóðviljinn - 28.04.1939, Blaðsíða 4
sp Níý/ðJóio sg
Amerisk
skyndíftrægð
(Nothing Sacred)
^merísk sketnmtimynd
frá United Artists þarsem
óspart er dregið dár að
því hvernig máttur aiug-
lýsinganna getur á svip- i
stundu. gert menn að nokk
ursKönar þjóðarhetjum í
^meriku. ,
Aðalhlutverkin leika af
miklu fjöri
CAROLE LOMBARD
og
FREDRIC MARCH
Myndin er öll tekin í
eð'lilegum litum.
AUKAMYND
Mickey í sumarfríi.
Mickey Mouse teiknimynd ,
Orbopglnn!
Næturlæknir: Björgvin Finns-
son, Garðastræti 4. Sími 2415.
Næturvörður er í Ingólfs- og
Laugavegs apóteki.
. . Jóhann Sæmundsson læknir
flytur heilbrigðisþátt í útvarpið
kl. 21,00 í kvöld.
Skipafréttir:. Gullfoss var á Isa-
firði í gær, Goðafoss er í Ham-
borg, Brúarfoss er í Khöfn. Detti-
foss er á leið til Grimsby, Lagar-
foss er væntanlegur hingað í dag,
Selfoss kom til Rotterdam í gær,
Dronning Alexandrine er á leið til
landsins frá Kaupmannahöfn, Súð
in er í Reykjavik, en fer austur
um land til Siglufjarðar annað
kvöld kl. 9.
A. S. B. heldur aðalfund sinn í
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu kl.
8,30 í kvöld. Til umræðu verða
venjuleg aðalfundarstörf og ýms
fleiri mál svo sem umræður um
sumarfagnað félagsins og breyt-
ingar á lokunartíma sölubúða.
Lífið er leikur, bráðskemmtileg
kvikmynd verður sýnd í kvöld kl.
6,30 í Gamla Bíó til ágóða fyrir
starfsemi Hvíta-bandsins.
Æskan, 4. tölublað yfirstand-
andi árgangs er nýlega komið út.
1 blaðinu er fjöldi af greinum,
sögum og kvæðum við barnahæfi,
auk fallegrar myndar af tjörninni
og Stúdentagarðinum.
Ferðasögur Vilhjálms Stefans-
sonar, 19. hefti, er nýlega komið
út. Er það framhald af III. bindi
þess hluta ferðasögunnar, er höf-
undur nefnir „Heimskautalöndin
unaðslegu”. Áður hafa komið út í
þessu ritsafni: „Veiðimenn á
hjara heims” og „Meðal Eskimóa”
Munu tvö hefti vera ókomin af
ritsafni þessu, og er þá lokið út-
gáfu á ferðasögum Vilhjálms Ste-
fánssonar, er Ársæll Ámason bók-
bindari hóf fyrir tæpum tveim ár-
um síðan
Frá höfninni: Þessir togarar
komu af veiðum í gær: Baldur og
Snorri goði með 80 föt hvor, Gull-
toppur með 78 og Karlsefni með
63. I gærmorgun kom hingað
þýzkur togari til þess að fá sér
kol.
Bankablaðið, 1. tölublað þessa
árgangs er nýkomið út. Hefst
blaðið á grein um bankamanna-
skóla eftir Svein Þórðarson og
fleiri. Heinrich Schmidt bankafull-
trúi sextugúr. Samvinna Norður-
landa eftir Jóhann Ámason. Pund-
ið og dollarinn eftir prófessor
Cassel og nokkrar smágreinar um
ýms efni, er snerta bankamál.
tJtvarpið í dag.
9,25 tjtvarpsvika barnaskólanna.
Kennsla .— 10.10: Erindi.
(10,00 Veðurfregnir).
12,00 Hádegisútvarp.
15,00 Veðurfregnir.
18.15 Islenzkukennsla.
18.45 Þýzkukennsla.
19,10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfréttir.
19.40 Auglýsingar.
19,50 Fréttir.
20.15 Útvarpssagan.
20.45 Hljómplötur: Passacaglia,
eftir Bach.
21.00 Heilbrigðisþáttur (Jóhann
Sæmundsson læknir).
21.20 Strokkvartett útvarpsins
leikur.
21.40 Hljómplötur: Harmóníku-
lög.
(22.00 Fréttaágrip).
22.15 Dagskrárlok.
Ferðafélag íslands ráðgerir að
fara tvær skemmtiferðir næst ■
komandi sunnudag. Aðra ferðina
út á Garðskaga: Ekið í bílum um
Hafnarfjörð suður hinn nýja
Krísuvíkurveg yfir Vatnsskarð að
Kleifarvatni og staðnæmzt þar.
Síðan ekið til baka yfir Kapellu-
hraun, suður Vatnsleysuströnd og
út á Garðskaga. Komið í Garð-
skagavita. Ekið í Sandgerði, ver-
stöðin skoðuð, þá haldið alla lelð
að Stafnesi. 1 bakaleið staðnæmzt
í Keflavík. — Hin ferðin er að
mestu gönguför: Ekið að utvarps-
stöðinni á Vatnsenda og stöðin
skoðuð. Gengið þaðan suður á
Helgafell og í Hafnarfjörð. Lagt
af stað kl. 8 árdegis frá Steindórs
stöð. Farmiðar seldir í bókaverzl-
un Isafoldarprentsmiðju á laugar-
dag.
Karlakór Verkamarma:
Æfing; í K. R.-húsinu kl. 10
í kvöld. Mætíð stumdvíslega.
3 herbergja íbúð til lelgtu.
Sætúni, Seltjamamesi.
Sími 4606.
Björn Björnsson, feíkníkennarí
lézt í gær á Landsspítalanum eftír stutta legu.
Vandamenn
? * TOI
BrnnabótaoJöId af
húseignum i Reykjavik.
\ Gjaldfrestur brunabótagjalda er útrunninn
um n. k. mánaðamót.
Eftir þann tíma hafa gjöldin lögtaksrétt og
ber enn fremur að greiða af þeim dráttarvexti.
Þó verða þeir, sem greiða gjöld sín 1. eða 2. maí
íigi krafðir um dráttarvexti.
Skrifstofan, Laugavegi 3, opin kl. 10—12 f.h.
1. maí, en á venjulegum tíma 2. maí.
SjóvátrijqqiÉw|laq íslands?
Bruna- deild.
Kvöldskemmtun
heldur 1. maí-nefnd verklýðsfélaganna í Iðpö, laugardaginn
29. maí klukkan 9 síðdegis.
TIL SKEMMTUNAR VERÐUR:
Ræðuhöld.
Lúðrasveit.
Upplestur
Dans o. fl.
Nánar auglýst á morgun.
Aðgöngumiðar fást á skrif,stofunni í Hafnarstræti 21 frá
klukkan' 2 í jdag.
Fyrsta maí-nefnd verkalýðsfélaganna.
Halastjðrnnr,
gamanvísur urn nýju stjórnina
o. fl. koma út í dag. Söluböm
afgreidd í bóka- og blaðasöl-
unni, Hafnarstræti 16.
Ufbreídíð
Þjódvíljann
Sféff — ekkí sijóra«
málaflokkar
Framliald aí 3. síðu
eiga verkamenn að verja til
þess að sýna að þeir em vold
ug stétt, þann dag eiga þeir að
kalla á stjórnmálaflokkana í
sína þjónustu, þann dag stend
ur hver sannur verklýðsflokk
ur einhuga að því að styrkja
hin stéttarlegu samtök verka-
lýðsins. Alþýðublaðið segir:
„Standið einhuga og öftug með
Alþýðuflokknum^. Sannur verk)
lýðsflokkur segir: Ég stendein-
huga og öflugur með verka-
lýðnum.
Verklýðsfélögin efna til kröfu
göngu fyrsta maí. Þau skora á
menn úr öllum stjómmálaflokk
um að stuðla að því að hún
verði sem öflugust og glæsileg-
ust. Sameiningarflokkur alþýðu
— sósíalistaflokkurinn, styðup
þessa einingarviðleitni verka-
lýðsfélaganna sem einn maður.
Hann mun ekki efna til neinn-
ar flokkslegrar kröfugöngu 1.
maí. Hans krafa er verkalýður
sameinaður sem stétt.
Verkamenn gætið ykkar fyr-
ir þeim sem vilja sundra ykk-
ur í stjórnmálaflokka 1. maí,
það er gert til þess að máttur
ykkar sýnist minni, það er
/l l\X
æ r r
Aðalfnndnr
Æskulýðsfylkingarinnar í
Reykjavík verður haldinn í
Kaupþingssalnum, í kvöld kl.
8,30.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf,
Fyrsti maí og fleira.
Að dagskránni lokinni verður
sýnd kvikmynd frá Álaborgar-
mótinUi í fyrra.
Félagan, sýnið skírteini við
innganginn. Fjölmeunið! Kom
ið nieð nýja félaga.
Stjómin
Geimlöt l?),o %
Lofftundur-
skeyfí 48 |p
Afar spennandi og stór-
fengleg njósnarakvikmynd
tekin með aðstoð sérfræð-
inga frá tékkneska her-
málaráðuneitinu og hins
tékkneska lofthers.
»
Aðalhlutverkin leika:
OTOMAV KORBELÁR
ANDREJ BARAG og ;
ZITA KABÁTOVA
gert til þess að afturhaldið eigi
hægra með að setja ykkur
þrælalög.
Komið fram sem einhuga
stétt og krefjizt þess að stjóm
málaflokkamir þoki með alla
flokkslega starfsemi af degi
verkalýðsifns.
Borðið meira
grænmeti
Hviffeál 0,60 kgr,
Rauðkál 0.70 kgr,
Gulræfur,
Raudrófur,
Gúrkur,
Salafhöfuó,
Scllerí,
PersíUL
Sfofuskápar,
borð með tvöfaldri plötu, borð-
stofustólar, eldhússtólar, skrif-
borð,tauskápar, útvarpsborð o.
m. fl. fyrirliggjandi.
Notuð húsgögn tekin í
viðskiptum.
ÓDÝRA HÚSGAGNABÚÐIN
Klapparstíg 11. Sími 3309
hansKirk: Sjómenn 74
Hreppstjórinh las texlann, og brúður og brúðgumi
sKr.iuðu nöfn sín í bók.
Er þá alll í lagi? spurði Esben, sem hafði hlýtt á
með eftirtekt.
Jú, það skal ég svei mér halda, sagði hreppstjórinn
Prófasturinn hefði ekki getað gert það betur.
Esben dró sparisjóðsbók upp úr frakkavasanum
og rélti Kock.
Pað eru 500 krónur, sem ég hef sparað saman tii
þeirrar stundar, að Katrín giftist. Og þegar ég dey,
þá fáið þið kotið, þó það sé ekki merkilegt. Og svo
óska ég ykkur ennþá éinu sinni innilegrar hamingji:
og blessunar, sérhvern dag í mörg ár.
XX.
Jens og Anton voru að tjarga nel í sandgróíinni
þegar Tea kom hlaupandi. Hún var rjóð í kinnum
af hita og æsingu, og hún ætlaði varla að ná and-
anum.
Þið eigið að lcoma strax til Páls, sagði hún. Mér
skildist það vera eitthvað með netlögin í firðinum.
Með netlögin, sagði Anton skelfdur.
Já, sagði Tea. Eg skildi það ekki vel. Pað lá svo
mikið á — þið megið til að flýta ykkur. Hinir sitja
og bíða.
Jens tók síðasta háfinn upp úr pottinum og þeir
flýttu sér að breiða hann til þerris á grasinu.
Við slculum flýta okkur, sagði Jens. Og seg þú
ekki neitt, Tea. Pað er ekki vert að aðrir fái of mik
ið að tala um.
Peir flýttu sér í gegn um þorpið, þar sem aðeins
hörnin léku sér í sólskminu. Pað hafði lengi legið
grunur á um það, að það væri urgur í sjómönnun-
um að sunnan út a.f herragarðsnetlögunum þeirra
og að þeir ekki vildu viðurkenna einkaréttindi
þeirra til álaveiða þar. Nú var liklega allt í voða, og
það gæti komið lil illinda og málaferla; hver vissi.
Hjá Páli sátu þeir þegar, Tómás og I^árus.
Pað var gott að þið komuð, sagði Páll. Pá er víst
hezt aö ég skýr,i málið fyrir ykkur frá byrjun. Gerið
svo vel og setjið ykkur niður. Maríanna kemur strax
með kaffið. — Svo-, ég var á firðinum í morgun og
rak niður nokkra staura. En allt í einu kom litill
bátur. róandi, það var maður, sem þið sjálfsagt þeldc-
ið dálítið líka, Jörgen Spliide heilir hann, og býr
hinum megin.
Já, ég ef hitt hann, greip Tómás fram í, það er
trúaður maður, að því er mér virtist.
Hann hafði verið úti að vitja um þorskanet, liélt
Páll áfram. Hann lagði Jxátnum sínum upp að mér
og bað um í pípu, tóbakið hans var búið. Pá segir
hann: Pað er gott netlag, sem þið hafið, og það eru
vist margir, sem gefa því hornauga.
Ojá, það er sjálfsagt, svarað ég, en þeir halda sér
nú líklega í skefjum, því við höfum bæði keypt það
og borgað.
J’að hafið þið nú víst, segir hann, en það getur nú
vexáð erfitt að sjá, hvað réttindi ykkar ná langt.
Pað heíur nú ekki verið áður íxein deila um það,
sagði ég, en ég fór að vei-ða ói'ólegur.
Ónei, að vísu ekki, sagði hann, en það eru nú samt
sem áður sumir, sem halda, að þið hafið einungis
íétl lil lagneta, en ekki til álastaura.
Páll þagði nokkra slund, og lxinir hiðu fullir eftir-
væntingar. Ilér var mikið í húfi.
Mér fannst það vera rétt að fá nánari upplýsingar.
sagði Páll. Og ég spurði hann blátt áfram: Ert þú
líka á þeirri skoðun? Pyi'st þú spyrð mig, sagði hann
—- það var svei mér ekki gott að átta sig á honum
— þá skal ég segja þér hreinlega, að ég lield, að þaö
sé erfitt að mynda séii nokkra skoðun á því. Og eig-
inlega kemur það xæér ekki neitt við, ég hef nóg rúm
í lirðinum fyi'ir mín net.. En þaö eru ýmsir, sem eru
vissir í sinni skoðun.
Hverjir eru það þá? spuiði ég, en hann vildi ekki
nefna nein nöfn, og ég gat ekki haf meira upp úr
lionum. —- Svo þegar ég réri heim, þá tók ég eftir
því, að það voru selt merki á Blágrunninn.
Hvað ertu að segja! sagði Anton.
Peir höfðu sett merki fyrir staura — en ég tók
merkin hurtu.
Heldurðu, að það hafi nú verið löglegt? spurði
Jens dálítið ói'ólegur.
Eg get ekki skilið annað, svaraði Páll rólega. Yið
höfum þó réttindi samkvæmt afsalihu. Og ef það
veiða málaferli út úr því, þá er það ég sem ábyrgð-
ina á því verkinu. En ef þið verðið ekki beint spurð-
ii', þá skulu þið nú ekki hafa hátt um það. En nú