Þjóðviljinn - 18.10.1939, Blaðsíða 4
Næturlæknir: Daníel Fjeldsted,
Hverfisgötu 46, sími 3272.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Næturakstur: Bifreiðarstöð Is-
lands, Hafnarstræti 23, sími 1540.
Athygli skal vakin á auglýsingu
frá Iþróttafélagi kvenna á öðrum
stað hér í blaðinu. Er þar auglýst
ur æfingatími félagsins í vetur.
Ljósið, sem hvarf. Sögukafli úr
nýju útvarpssögunni verður les-
in upp í kvöld kl. 20,30 í útvarpið.
Þórólfur fór á veiðar í fyrrinótt
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
sjónleikinn „Brimhljóð” eftir Loft
Guðmundsson í kvöld kl. 8. At-
hygli skal vakin á því að leiksýn-
ing fer fram að þessu sinni á mið-
vikudag, en ekki fimmtudag, eins
og tíðkast hefur að undanförnu,
og að nokkrir miðar eru seldir
með lækkuðu verði.
Hjónaband. 1 gær voru gefin
saman í hjónaband, ungfrú Fríða
Helgadóttir og Gunnar Ármanns-
son. Heimili þeirra er á Þórsgötu
8.
Fram-hlutavelta: Knattspyrnu-
félagið Fram efnir til hlutaveltu
næstkomandi sunnudag og verður
vandað til hennar eftir beztu föng
um. Félagar og aðrir velunnarar
eru beðnir að bregðast vel við og
koma mununum til Sigurðar Hall-
dórssonar, öðinsgötu 29 og á rak-
arastofu Jóns Sigurðssonar, Týs-
götu 1.
Útvarpið í dag:
11.00 Veðurfregnir.
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
16.00 Veðurfregnir.
19.30 Hljómplötur: Létt lög.
19.40 Auglýsingar.
19.45 Fréttir.
20.10 Veðurfregnir.
20.20 Hljómplötur: Ensk lög.
20.30 Útvarpssagan: „Ljósið, sem
hvarf”. eftir Kipling.
21.00 Útvarpskórinn syngur.
Lög úr Requim eftir Brahms:
a) Því gjörvalt hold það er sem
gras.
b) Hve fagrir eru þínir bústaðir
c) Því vér eigum hér engan
varandi stað.
21.20 Hljómplötur: Forleikur eft-
ir Chopin.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok. .
Stokksnesvitanum hefur verið
breytt þannig, að rauða horninu,
sem áður lýsti yfir Borgeyjar-
boða, Hvanneyjarsker og Hvanney
hefur verið skipt í tvennt þannig,
að vitinn lýsir nú: rautt 53°—80°
yfir Borgeyjarboða, Hvanneyjar-
sker og Sveinsboða og grænt frá
80° og inn yfir Hvanney. Að öðru
leyti er vitinn óbreyttur.
Þórarinn Sveinsson iæknir hef-
ur nýlega opnað lækningastofu í
Austurstræti 4. Viðtalstími Þór-
arins er frá kl. 6—7 síðdegis.
Iðja, félag verksmiðjufólks
skorar eindregið á atvinnulaust
félagsfólk að koma á skrifstofuna
til skráningar. Skrifstofan er opin
daglega kl. 6—7 e .h.
sb l\íý/aE5io as a. Gamlal3ib %
V £ r t*
|01ympíuleikarnir
Æskudagar.f
Amerísk tal- og söngvamynd '$*
um æskugleði og æskuþrá.
Aðalhlutverkið leikur og
syngur hin óviðafnanlega
Deanna Durbin.
Aðrir leikarar eru:
Jackie Cooper o. fl.
Melvyn Douglas,
Sýnd í kvöld kl. 9.
L/EKKAÐ VERÐ
Síðasta sinn. *
❖
Pöntunum í sima ekki veitty
y
móttaka. y
V
■9 3 6
Síðari hlutinn:
„Hátíð lijóðanna”
Sýnd í dag kl. 9.
Þar sézt m.a, úrslitakeppni í
1
V
I
?
?
i
y
•*
tugþraut,
knattspyrnu,
kappsiglingu- og róðri,
hnefaleik,
sundi og dýfiiigum.
Leikfélag Reykjavíkur:
„Brimhljóð"
sjónleikur í 3 þáftum eftir Loit Guðmundsson
SÚNING I KVÖLD KL. 8.
Aðgöngumiðar ^seldir eftir kl. 1 í dag.
I
y
I
%
Gamla Bíó sýnir í kvöld síðari
hluta kvikmyndarinnar, Olympiu-
leikarnir 1936. Sézt þar meðal
annars úrslitakeppni í ýmsum
íþróttum.
Iljónaband. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband, ungfrú Sveina
Sveinsdóttir og Björn Pálsson bif-
reiðarstjóri hjá Ríkisspítölunum.
Heimili þeirra er á Lauganesveg
81.
Ríkisskip: Súðin var á Salt-
hólmavík kl. 6 síðdegis í gær Esja
fer kl. 9 í kvöld í strandferð aust-
ur um land.
Skíðafólk Ármanns. Fundur
verður í Oddfellowhúsinu, uppi í
kvöld (miðvikudag) kl. 8,30.
Baráffa hín~
vcrsbra kvenna.
FRAMH. AF 2.-SIÐU.
300 konur úr þessum hópi 700 manna
herdeild Japana að óvörum. Japanir
flýðu. Féllu þar 70 Japanir en 12
tóku konurnar fasta, auk þess sem
þær náðú; í 130 byssur og mikið af
skotfærum.
Lauslega þýtt.
Fyrír hönd Fram~.
sóknarflokksíns.
FRAMH. AF 2. SÍÐU.
það eftir sem þyngst er. Það er að
fá háttvirta kjósendur til þess að
gleyma öllum þeim sannleiksorð-
um, sem þér hafið sagt um spill-
ingu Kveldúlfsklíkunnar og banka
valdsins, þau sannleiksorð voru
sögð fyrir hönd, og í fullu umboði
Framsóknarflokksins. Það gæti
svo farið, að „hálfdanska ævin-
týrið” endaði með því að frjáls-
huga og framsæknir menn lok-
uðu hurðum á hæla yðar og
hinna „hálfdönsku” í sömu mund.
Fyrir hönd Framsóknarmanna í
dreifbýlinu verður ekkert gert,
með þeirra góða samþykki, í
bankamálunum nema að uppræta
spillinguna.
Sjömannakjorin.
FRH. AF 1. SÍÐU
sjómennina njóta þess réttar, sem
þeir eiga. Sjómennirnir gera hvorki
að fæða né klæða fjölskyl(iuer sin-
ar með fallegum ræðum eða gullnu
lofi, það sem þeir krefjast, er að
tekið sé tillit til þeirra og að þeir
njóti þess réttar og öryggis, sem
þeir eiga heimtingu á.
Það er athyglisvert í þessu sam-
bandi að niinnast ú það, að allan
þann tíma, sem við sjómenn höfum
gengið í landi nú undanfarnar vik-
ur hefur stjórn Sjómannafélags
Reykjavíkur aldrei kallað sarnan
fund í félaginu, hún hefur þótzt ein
fær um að gera þá samnipga, sem
gerðir hafa verið án þess að spyrja
okkur sjómennina um álit okkar.
Samningamir bera þess líka ljósan
vott, að formaður félagsins Sigur-
j jón Ölafsson hefur samið við hús-
bónda sinn, Ólaf Thors, án þess
að nokkur félagsfundur kæmi þar
nálægt, og má það hart kallast,
er stjórn Sjómannafélagsins leyfir
sér að taka sér einræðisvald í slík-
um málum sem þessum, þótt það
,sé skiljanlegt að Sigurjón Ólafsson
óski ekki eftir því, að sjómenn fari
að skipta sér af því livað honum
og Ólafi Thors fer á milli, en sjó-
rnenn ættu að hugleiða vel, hvo*>*
forustu þeirra er bezt borgið undir
handleiðslu Sigurjóns og Ólafs
Thors.
Krafa okkar sjómanna er fyrst og
- fremst það: að fundur verði kallað-
'ur sama’.n í stjórn félagsins og samn
ingunum sagt upp þegarf í stað, og
þeir gallar, sem á þeim eru bættir,
að séð verði fyrir því, að áhættu-
þóknun láglaunaðra sjómanna verði
hækkuð að verulegu leyti frá því,
sem nú er, svo að sjómenn njóti
einhvers af þeim verðmætum, sem
þeir skapa, í réttu hlutfalli við aðr-
ar starfsgreinar, sem' í landi eru, og
litla eða enga áhættu leggja á herð1-
þeirTa, sem þær stunda.
Og að síðustu. Sjómenn, hafið for
ustu ykkar mála í eigin höndum,
þar er henni bezt borgið.
Togarasjómaður
Grein Jóhannesar Stefánssonar.
Framhald af 3. síðu.
stjórnað bænum (sem var eflaust
dýrasti skóli landsins s. 1. ár, þar
sem það kostaði um 3000 kr. að
útskrifa hvern nemanda). *
Aðgerðarleysi Karls Karlssonar
lýsir sér í eftirfarandi staðreyndum:
Álagning útsvara vt’jr i ár tæplega
60 000 kr. En Karl hefur innheimt
frá áramótum rúml. 51 000 kr., eða
85°/o á 8 mánuðum. Fasteignaskattur1
1939 er rúmar 10 000 kr.. Karl hef-
ur innheimt næstum alla þessa upp
hæð, eða 95°/o. Ef desembermánuö-
jur í fyrra er talinn með eða öll
stjórnartið Karls, hefur hann á 9
mánuðum innheimt öll þessa árs
útsvör og meira en þessa árs fast-
eignaskatt.
Til samanburðar má .geta þess,
að Eyþór Þórðarson innheimti á
II má% 1938 78o/o af álögðum út-
svörum og 65°/o af húsaskatti sama
árs, og var þá sízt verra að inn-
heimta. Þessi dugnaður Karls hefur
orsakað það, að enginn starfsmaður
bæjarins á hjá bænum af þessa árs
kaupi, og að öll ellilaun, sem eru
mjög mikil, miðað við tekjur bæjar-
ins, hafa verið greidd nokkurnveg-
inn reglulega. Auk þessa hafa ver-
ið greiddar lausaskuldir, sem nema
þúsundum króna. Hefur þetta
gengið svo langt, að Karl greiddi
fyrrverandi bæjarstjóra, það sem Ey
þór ekki gat greitt sér sjálfur, eða
meira en bæjarstjóralaunin í fyrra
og auk þess öll kennaralaunijii i ár.
Styrkþegar liafa allir fengið sitt,
og enginn þurft að svelta, þótt
Oddur vilji láta líta svo út.
Karl lét girða nýrækt bæjarins
á Bökkum og leggja þar um veg,
sem allt kostaði þúsundir króna.
Einnig hefur bæjarstjórinn séð um
hafnarhúsin og bryggjuna, sem áður
voru greiddar 1000 kr. fyrir án
nokkurs aukakostnaðar.
Útsvörin eru aðaltekjustofn bæjar
félagsins og réttlátustu gjöldin séu
þau s anngjarnlega á lögð. Þau verða
að vera sanngjörn og þá verður að
innheimta þau, til þess að styrkþeg-
arnir, gamalmennin, skólamir o. fl.
sem er á vegum bæjarfélagsins fái
sitt.
Þetta hefur Karl gert af meiri
dugnaði og lipurð, en nokkur ann-
ar bæjarstjóri hér. Hefur liann eink-
um lagt áherzlu á innheimtu hjá
þeim, sein geta borgað.
Greinarhöfundur segir fátækra-
þyngsli minni í ár en undanfarið,
er það rétt, en þó nemur það ekki
miklu. En liann verður að gá að
því, að ellilaun og örorkubætur
hafa aldrei fyrr verið jafn mikil,
og eru nú nokkrum þúsundum kr.
meiri en undanfarin ár. Ég hygg
Odd lítt dómbæran um hag undan-
farinna ára.
T'mislegt fleira er í grein skóla-
stjórans, sem ekki er hér rúm til
að svara. En liann ætti sem minnst
að tala um P.A.N., því þar veit
hann ekki annað en það, að hann
ásamt öðrum Skjaldborgarbrodd-
um gerði allt sem hann gat til að
eyðileggja félagið, þegar þeir voru
úrkula vonar um að halda stjórn
þess og gera það að póhtísku fyr-
irtæki, en þau banaráð urðu að
engu, og vita má Oddur það, að
P.A.N. dafnar þrátt fyrir bölbæn-
ir Skjaldborgarinnar, og þótt hann
rembist með öll sín grjón innan úr
Kaupfélagi.
Það er lika hrein fölsun gerð
móti betri vitund, að sósíalistar hafi
náð meirihluta í P.A.N. stjóm-
inni, ásamt íbaldinu 1938, þvi þá
náði kosningu listi Sigurjóns Kristj-
ánssonar ineð 3 krötum, 1 ihalds-
manni og einum konnnúnista. Krat-
arnir réðu því félaginu algerlega
til ársbyrjunar 1939, en þá féll
þeirra einliti listi við lítinn orðs-
týr, og að komst stjórn, sem leit
þannig á, að neytendahreyfingin
ætti ekki að vera flokspólitísk. En
þetta var broddunum um megn, þeir
þóttust eiga félagið og engir aðrir,
og gengu úr því, en Oddur einn
kvað hafa gengið í Fram, en ekki
öll Skjaldborgin, þvi Framsóknar-
bændurnir gáfu henni ótvírætt í
skyn, að þeir kærðu sig ekkert um
þá menn i félag, sein myndu strax
svíkja það ef þeir fengju ekki öllu
ráðið. En þeir ömuðust ekki við
Oddi einum, því engu máli skipti
hvar hann var.
Einnig murr verklýðsfélagið lifa
hans formælingar og vinna sitt starf
undir forustu sósíalistanna, af þeim
krafti, sem verklýðssamtökin fela í
skauti sér.
Að lokum, minnist greinarhöfund-
ur á nýkosinn bæjarstjóra og telur
hann lítinn mann og liðléttan í
þetta starf. Kemur fram mikil af-
brýðisemi við okkur sósíalistana, að
Sjálfstæðið skuli kjósa með okkur
bæjarstjóra. Finnst honum rétt að
þeir einir hafi rétt á atkv. Sjálf-
stæðisflokksins, þar sem nú er í-
haldsstjóra ráðandi í landinu, sem
samanstendur af Framsókn og Sjálf-
stæðinu með Skjaldborgina í eft-
irdragi.
Læt ég Odd um að skamma hinn
nýja bæjarstjóra, hann stendur það
af sér. En það var vitanlega óliugs-
andi að láta Skjaldborgina koma af
stað hér stríði í bænum aftur, það
varð að forða bænum frá því ó-
friðarástandi og skrílslátum. Skjald
borgin með framsóknarmanninn sem
kjölfestu, mátti ekki ná stjórn bæj-
arins. Þeir höfðu þegar siglt í
strand.
Skólastjórinn klykkir út með
samskonar orðbragði og liann við-
hafði, algerlega ókunnugur hér í
plássinu, um Ingvar Pálmason al-
þingismann. Ritaði hann þá svo ill-
yrta grein, að ritstjórn hins sam-
eiginlega málgagns kommúnista og
alþýðufl.manna, tók hana ekki í
blaðið, nema mjög breytta og orð-
fegurri.
Ég tel það hyggilegast fyrir Odd
Sigurjónsson að hætta að troða ill-
sakir við okkur sósíalistana með
eilífu nöldri og ónotum í blöðum.
Einkum ætti hann að láta' vera að
ófrægja viðurkennda dugnaðar-
menn, þvi fyrir slíkt athæfi verða
laun almennings hér í bæ aðeins
fyrirlitning. Við munum standa jafn
réttir fyrir skrifum hans, og gera
að engu það pólitíska ldutverk, sem
honum var ætlað að vinna hér, en
auka álirif sósíalistanna á hið félags
lega líf bæjarins.
i Jóhannes Stefánsson.