Þjóðviljinn - 02.11.1939, Qupperneq 4
Næturlæknir Halldór Stefáns-
son, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Ingólfs- og
Laugavegs apóteki.
Næturakstur. Hekla, sími 1515.
M. A.-kvartettinn syngur i
kvöld kl. 7 í Gamla Bíó. Bjarni
Þórðarson aðstoðar. Aðgöngumið-
ar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar og Bókaverzlun
Isafoldarprentsmiðju.
Atvinnuleysishkráningin hófst í
gær í Goodtemplarahúsinu og
heldur hún áfram í dag og á morg
un. Það er stéttarleg skylda ailra
atvinnulausra og atvinnulíUHa
verkamanna að lcoma til skráning-
ar. ,
íjpRiia B»ó byrjaði í gær að sý'.a
kv: irnyndina „Hann, hún og leo-
2>ardinn. Aðalhlutverkið leika Kat-
harine Hepburn og Gary Grant.
tJtvarpið í dag:
10.00 Veðurfregnir.
12.00—13.0(3 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
181.5 Dönskukennsla, 2. fl.
18.45 Enskukennslaj 1. fl.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Lesin dagskrá næstu viku.
19.30 Þingfréttir.
19.40 Auglýsingar.
19:50 Fréttir.
20.15 Frá útlöndum.
20.40 Útvarpshljómsveitin:
Lagasyrpa eftir Schubert. —
Einleikur á píanó (Fritz Weiss-
happel): Konsert-etude eftir
Godard.
21.15 Hljómplötur:
a) íslenzkir söngvarar.
b) 21.30 Dægurlög.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Leikfélag Reykjavíkur hefur í
kvöld frumsýningu á leikritinu „Á
heimleið”, eftir samnefndri sögu
frú Guðrúnar Lárusdóttur. Lárus
Sigurbjörnsson hefur snúið sög-
unni í leikrit. Aðgöngumiðar að
sýningunni verða seldir eftir kl. 1
í dag.
Ragnar ólafsson og ólafur Jó-
hannesson lögfræðingar Jiafa opn-
að málafærsluskrifstofu í sam-
bandshúsinu. Viðtalstími kl. 1—3
e. h.
Leiðrétting. I grein um Ólaf
Guðnason sextugan hefur misrit-
azt nafn konu hans, Björg Har-
aldsdóttir, en á að vera Helgadótt-
ir.
Frjáls verzlun, októberheftið er
nýkomið út og flytur ýmsar grein-
ar varðandi verzlunarmál frá sjón
armiði „samkeppnismanna” og
kaupmannastéttarinnar.
Kvöldskemmtun til ágóða fyrir
S. 1. B. S. (Sambands íslenzkra
berklasjúklinga) verður haldin í
Oddfellowhúsinu í kvöld kl. 8,30
Ýmsir af beztu listamönnum
landsins skemmta og að dag-
skrá lokinni verður stiginn dans
fram eftir nóttu. Aðgöngumiðar á
kr. 2,50 seldir í Bókaverzlun Sig-
fúsar Ej?mundssonar og við inn-
gangirn (kaffi in úf iið).
gp l\íy/öt bio
Vandræðabarníð |
Amerísk kvikmynd frá Warn- ♦>
er Bros, er vakið hefur heims- *j*
athygli fyrir hina mildu þýð- £
ingu er hún flytur um uppeld-
ismál.
Aðalhlutverkið leikur hin ý
15 ára gamla
Bonita Granville.
Aukamynd:
MUSIKCABARET
>•>.>*>•>*>*><**>♦>*>♦>♦>♦>*>♦>*>*>*>*>*>*>*>*>*>*>
£L ©ömb!3io %
|„Hann hún, og|
lcopardinn44
mem- *1*
Bráðskemmtileg og
fyndin amerísk gamanmynd •;•
tekin af RKO-Iíadio Pictures
Aðalhlutverkin leika hinir
góðkunnu leikarar
Katlierine Hepburn,
Gary Grant og
gamanleikarinn frægi
Charlie Ruggles.
^•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦^♦♦•♦^♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦•♦♦Ji
t^^~:*.j**>.:**x*«>*;**:**:**:.*:K*<**:**>*:**t*‘>,>*><**>*M,*t<í,,i*4*4*4,<i*,**************4****'*‘,*“****44"*,,****"*"*'“*4
I Leikfélag Reykjavíkur:
Aheimleið**
Y
V
•*’
I
I
*!*
I
*!*
I
99
Sjónleikur í 4 þáttum eftir Lárus Sigurbjörnsson (eftir
samnefndri sögu frú Guðrúnar Lárusdóttur).
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 ? dag.
Sankvæmt bráðablrgðarlogum
um stríðstryggingafélag íslenzkra skipshafna dags. 27. október
1939, er gert ráð fyrir að eigendur skipa ,sem tryggja skipshafnir
sínar frá byrjun hjá félaginu, taki þátt í félagsstofnuninni og leggi
fram að sínum hluta 10% af áhættufénu eða samtals kr. 60.000.00.
Skipaeigendur, sem þátt taka í áðurnefndri félagsstofnun,
hafa rétt til að kjósa af sinni hálfu 1 mann í stjórn félagsins, 1
mann tilnefna tryggingarfélögin, en ríkisstjórnin skipar formann.
Skipaeigendur, sem taka vilja þátt í stofnun félagsins og kosn-
ingu í stjórn þess, eru hérmeð beðnir að mæta eða senda umboðs-
menn á fund, sem haldinn verður í Kaupþingssalnum laugardaginn
4. nóvember kl. 2 e. h., eða tilkynna þátttöku sína símleiðis til und-
irritaðs, sem skipaður hefir verið formaður félagsins af ríkisstjórn-
inni.
Reykjavík, 31. október 1939.
Brynjólfur Sfefánsson*
Kvöldvaka bladamanna
FRH. AF 1. SIÐU
Andrésson syngur nýjar gaman-
vísur. Tómas Guðmundsson les
upp ný kvæði, Þórbergur Þórðar-
son segir draugasögu, en Frið-
finnur Guðjónsson kynnir þá,
sem fara með dagskrárliðina með
nokkrum velvöldum orðum.
Ríkísspííalarnír*
FRAMH. AF 1. SIÐU.
einn ábyrgð á grein þfessari verð-
ur málsókn látin niður falla gegn
hinum endurskoðunarmönnunum,
þeim Jörundi Brynjólfssyni og
:mrjóni Á. Ölafssyni..
I stjórnarnefnd ríkisspítalanna
eiga sæti Vilmundur Jónsson land-
læknir, Isleifur Árnason prófessor
Aðalsteinn Kristinsson forstjóri
Magnús Pétursson læknir og Guð-
geir Jónsson bókbindari.
Tileinkað Guðna Jónssyni (í til-
efni af gréin hans í Morgunblað-
inu 17. okt.).
Ef ég Stephan ekki skil
— óðinn vits og snilli —
Grafa hann í gleymsku vil,
græsku og hi aka milli.
Aljiý í .’ko ía.
Bergmál
styrjaldar-
iunar.
Fregnir hafa borizt frá Patreks-
' firði og Breiðuvíkum, að þangað
hafi heyrzt ákafir skotdynkir ut-
an af hafi sl. föstudag, og geta
menn sér til að þar hafi óvina-
skipum lent saman.
Nýlega fundust í Hvallátursfirði
tveir björgunarbátar af skipi með
nsf.iinu „Poseidon” og voru þeir
rncrktir I. og II. Er talið að bát-
arnir hafi ekki getað verið lengi í
sjó.
Skipverjar á norsku skipi, er
kom hingað í gær, höfðu á lciðinni
orðið áhorfendur að viðureign
þýzks kafbáts og brezkrar flug-
véiar.. /
Skammt undan Færeyjum gaf
þýzkur kafbátur skipinu merki um
að stanza tafarlaust. Var það gert
en í því bar að brezka flugvél, er
varð kafbátsins vör og varpaði á
hann sprengjum. Fór kafbáturinn
þá í kaf, en ekki vissu skipsmenn
hvort hann hafði komizt í kaf á
eðlilegan hátt cða að sprengja
hofði hraft i ann.
Ræða |Molotoffs*
Framhald af 1. síðu
kosti er nú hafin styrjöld undii;
yfirskini „lífsskoðana”, enn víð-
tækari og enn hættulegri þjóðum
Evrópu og alls heimsins.
Slík styrjöld á sér enga rétt-
lætingu, Menn geta verið með
Hitlerismanum eða móti honum
eins og hverju öðru hugmynda-
kerfi, það fer eftir stjómmála-
skilningi manna. En það ætti að
vera öllum skiljanlegt, að lífsskoð-
anir verða ekki upprættar með of-
beldi, né útþurrkaðar með styrj-
öldum. Þessvegna er það ekki ein-
ungis heimskulegt, heldur hreinn
og beinn glæpur að heyja slíka
styrjöld undir yfirskini „lýðræðis-
réttinda þjóðanna” og „útþurrkun
Hitlerismans”. Það er engin leið
að telja aðgerðir, slíkar sem bann-
ið á franska Kommúnistaflokkn-
um og fangelsun kommúnistaþing-
manna eða takmörkun pólitísks
frelsis á Englandi, skefjalausa
þjóðerniskúgun á Indlandi o. s
frv., baráttu fyrir lýðræði.
Skyldi ekki öllum vera það ljóst
að núverandi Evrópustyrjöld er
háð í öðrum tilgangi en þeim, sem
yfirlýstur er í opinberum ræðum
sem ætlaðar eru almenningi í Eng-
landi og Frakklandi? Að það sé
ekki barátta fyrir lýðræði, heldur
eirihverju öðru, sem stjórnarherr-
arnir telja ráðlegast að þegja um?
Orsök styrjaldar Englands og
Frakklands gegn Þýzkalandi er
ekki sú, að stjórnir Englands og
Frakklands hafi svarið að endur-
reisa gamla Pólland, og því síður,
að þær telji baráttu fyrir lýðræði
hli fverk sitt. Stjórnarvöld Eng-
lands og Frakklands hafa auðvit-
að aðrar raunverulegri ástæður til
stvrjaldar við Þýzkaland. Ástæð-
ur J essar snerta hvergi svið lífs-
skoðana, heldur leiða beint af
hagsmunum ríkjanna sem nýlendu
velda á heimsmælikvarða.
Bretland ,er sjálft hefur aðeins
47 milljónir íbúa, ræður yfir ný-
lendum með 480 miljónum manna
Nýlendur Frakklands, er sjálft,
hefur kringum 42 milljv íbúa, telja
70 milljónir manna. Yfirráðin í
nýlendunum, er gefa möguleika til
arðráns á hundruðum milljóna
manna, er undirstaðan að heims-
veldi Englands og Frakklands.
öttinn við kröfur Þjóðverja um
þessar nýlendur er orsök núver-
andi styrjaldar þessara ríkja gegn
Þýzkalandi, er hefur styrkst mjög
undanfarið við eyðileggingu Ver-
salasáttmálans. Hræðslan við að
missa heimsveldisaðstöðu sína
ræður stjómarstefnu Englands og
Frakklands. Stórveldaeðli styrj-
aldarinnar er því hverjum þeim
augljóst, er ekki lokar augum fyr-
ir staðreyndum.
Af þessu verður glöggt séð í
hverra þágu styrjöldin er háð
Auðvitað ekki í þágu alþýðunnar.
Styrjöld sem þessi flytur alþýð-
unni ekkert gott, en krefst af
henni blóðfóma og þröngvar að
henni neyð og hörmungum. <
Dæmið sjálfir: Hefur ekki mein-
ing hugtaka eins og „friðrof” og
fr'ðrofi” breytzt síðustu mánuð-
ina? Það virðist ekki erfitt að
skilja, að eigi að nota þessi hug-
tök í sömu meiningu og áður en
samningarnir milli Sovétríkjanna
og Þýzkalands vom gerðir og áð-
ur en hin mikla stórveldastyrjöld
brauzt út í Evrópu, verður það
aðeins til að blekkja menn og
koma mcnnum til að draga rang-
ar ályktrr.ir. T;1 þess að svo verði
ekki, verðum vér að hafa skýra
afstöðu til úreltra hugtaka, sem
orðin eru ónothæf vegna hins nýja
heimsástands.
Breyfíngarnar á ad-
sfödu Sovéfríkjanna*
Þá er að athuga breytingarnar,
er orðið hafa á aðstöðu Sovétríkj-
anna út á við. Og það eru engar
smávægilegar breytingar. Ef aðal-
drættirnir eru teknir til athugun-
ar hljóta menn að viðurkenna
þetta:
Vegna hiklausrar framkvæmdar
' á hinni friðsamlegu utanríkispóli-
tík vorri, hefur tekizt að styrkja
verulega aðstöðu Sovétríkjanna og
auka vald þeirra á alþjóðlegan
mælikvarða. ' Sambönd vor við
Þýzkaland hafa mjög batnað, eins
ég ég hef þegar tekið fram. Sovét-
ríkin eru hlutlaus í núverandi
styrjöld, — innrás Rauða hersins
í Vestur-Hvítarússland og Vestur-
Úkraínu eru ekki brot á því hlut-
leysi. Nægir að minna á að 17.
september sendi sovétstjórnin öll-
um þeim ríkjum, er halda 'uppi
stjórnmálasambandi við Sovétrík-
in .tilkynningu um að eftir sem
áður yrði gætt strangasta hlut-
leysis gagnvart þeim.
Eins og kunnugt er, hóf Rauði
herinn ekki innrás sína fyrr en
pólska ríkið var hrunið, og raun-
verulega ekki lengur til. Gagnvart
slíkum staðreyndum gátum vér'
auðvitað ekki verið hlutlausir,
þar sem þær snertu öryggismál
vors eigin lands. Sovétstjórnin
hlaut auk þess að taka tillit til
þeirra örlaga, er biðu Hvítrússa
og Ukraina eftir hrun Póllands.
Atburðirnir hafa fullkomlega
staðfest, að hin nýju sambönd
Sovétríkjanna og Þýzkalands
byggjast á hagsmunum beggja
ríkjanna. Eftir innrás Rauða
hersins í Pólland þurfti að ráða
fram úr alvarlegum málum varð-
andi takmörk á ríkjahagsmunum
Sovétríkjanna og Þýzkalands. En
samkomulag um þau mál náðist
fljótt. Sáttmálinn um vináttu og
landamæri Sovétríkjanna og
Þýzkalands, er gerður var í sept-
emberlok, hefur enn tryggt sam-
bönd vor við Þýzkaland.
Afstaða Þýzkalands til annarra
borgaralegra ríkja Vestur-Evrópu
hefur undanfarna tvo áratugi
framar öðru ákvarðast af viðleitni
Þýzkalands til að brjóta af sér
hlekki Versalasamningsins, en
höfundar hans voru England og
Frakkland ásamt Bandaríkjum
Norður-Ameríku. Þessi afstaða
leiddi loks til nýrrar Evrópustyrj-
aldar. Afstaða Sovétríkjanna til
Þýzkalands átti sér allt aðrar for-
sendur, er alls voru óskyldar við-
leitninni til eilífs viðhalds ákvæða
Versalasamninganna. Vér höfum
ávalt verið þeirrar skoðunar, að
sterkt Þýzkaland væri nauðsyn-
legt skilyrði varanlegs friðar i Ev-
rópu. Það er hlægilegt að hugsa
sér, að hægt sé að gera Þýzka-
land „máttlaust til baráttu” og
einangra það. Stórveldi, er láta sig
dreyma svo heimskulega og hættu
lega drauma, hafa enga hliðsjón
af hinum raunalegu afdrifum Ver-
salasáttmálans, gera sér ekki ljóst
hvert vald Þýzkaland er orðið og
skilja ekki, að tilraun til að end-
urnýja Versalasáttmálann nú,
þegar heimsástandið er svo • gjör-
ólíkt heimsástandinu 1914, getur
lyktað með hruni þeirra sjálfra.