Þjóðviljinn - 16.11.1939, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 16.11.1939, Blaðsíða 1
 Ráðstefna Æ.F.; — ^Ffindur ikvðld kL 8.30 íHafnar- IV. ÁRGANGUR. FIMMTUDAGUR 16. NÓV. 1939. 266. TÖLUBLAD sfræfí 21 Sfofnþíng sambandsíns hvefur fil eíníngar veraklýðs^ hreTfingarínnar í óháðu fagsambandi. Stofnþing Landssambands íslenzkra stéttarfélaga samþykkti síðasta þingdaginn, 14 nóv. eftirfarandi tillögur með samhljóða at- kvæðum: „Stofnþing Landssambands íslenzkra stéttarfélaga samþykkir að senda Alþingi eindregin mótmæli gegn lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, sem miða einhliða í þá átt að skerða athafnafrelsi stéttarfélaganna, án þess að nokkrar verulegar umbætur fylgi til hagsbóta eða aukins öryggis fyrir verkalýðinn. önnur sambönd stéttarfélaga, þó aðeins á þeim lýðfrjálsa grundvelli sem Landssamband íslenzkra stétt arfélaga byggir tilveru sína á. þannig, að allir meðiimir hafi sama rétt og sömu skyldur innan samtakanna”. Tanner hrekur lygafréftírnar um „hófanír Rússa" o$ ,úr- slífakosfí' sovétsfjórnarínnar KAUPMANNAHÖFN 1 GÆRKV. Finnsku samningamennimir komu heim til Helsinki í dag og gáfu þegar í stað Kallio ríkisfor- seta og Erkko utanríkisráðherra skýrslu um viðræðurnar í Moskva. Tanner, fjármálaráðherra Finn- lands, lýsti því yfir opinberlega, að hann teldi sennilegt að sam- komulagsumleitanir verði teknar upp að nýju. Engum hótunum hefði verið beitt af hálfu sovét- stjórnarinnar, engir úrslitakostir settir og viðræðurnar farið fram með fyllstu kurteisi. Þessi ummæli Tanners þykja stinga mjög í stúf við þær áróðurs og æsingagreinar, er birzt hafa í blöðum í Finnlandi og Norðurlönd um, og sýna hve tilefnislaus hem- aðarundirbúningur finnsku stjóm- arinnar hefur verið. Ekki er um það að efast að Al- þýðublaðinu og Tímanum verði ljúft, að birta þessa fregn, er sýn- ir hve ótti þeirra um illa meðferð á „frændum” vorum austur í Moskva hefur veríð ástæðulaus. óg stóryrðin um „hótanir Rússa” og „úrslitakosti” uppspuni! Þingið skorar á Alþingi að breyta vinnulöggjöfinni í það horf AÐ fullt lýðræði ríki í verklýðs- samtökunum: AÐ ekki geti nerna eitt stéttar- félag sömu starfsgreinar starfað á hverjum stað, og AÐ viðurkennðar sé samtaka- réttur allra launþega undantekn- ingarlaust, tli þess að ákveða frjálsir kaup og kjör. Mótmælir þingið harðlega allri íhlntun ríkisvalds og löggjafar, sem miðar að því að skerða frelsi verkalýðssamtakanna til þess að ráða sínum hagsmunamálum”. „Stofnþing Landssambands ís- leirzkra stéttarfélaga skorar ein- dregið á Alþingi að afnema nú þegar allar lagahömlur, sem á því eru, að verkalýðsfélögin fái nú þegar hækkað kaup meðlima sinna vegna hinnar sívaxandi dýrtíðar”. Þá var einnig samþykkt eftir- farandi ályktun: „Þingið lítur svo á, að það sé lífsskilyrði fyrir hinar vinnandi stéttir Islands að sameinast í einu landssambandi stéttarfélaga, sem sé óháð öllum stjómmálaflokkum, og vill þingið skora á þau stéttar- félög ,sem enn eru ekki orðin með- limir Lanassambands íslenzkra stéttarfélaga, að gerast það hið allra fyrsta. Þingið samþykkir að fela sambandsstjórn að vinna sleitulaust að því, að fá félög til þess að gerast meðlimir sambands- ins. Ennfremur lítur þingið svo á, að það hafi verið rétt hjá Vamar- bandalaginu, að leita samvinnu við stjórn Alþýðusambands Is- lands um það, að sameina stéttar- félögin í einu óháðu stéttarfélaga- sambandi, enda álítur þingið, að sambandsstjórn megi ekki láta neitt tækifæri ónotað, til þess, að samvinna mætti takast við önnur verkalýðssamtök um baráttu fyr- ir því að endurheimta samnings- frelsi verkalýðsfélaganna og um öfluga baráttu fyrir bættum kjör- um og að sameining mætti takast við Alþýðusamband fslands eða Hæstíréifur sýknaðí „Geysír"' af að sclja ábrciðslur litaðar cítruðum liL t gærmorgun var kveðinn upp dómur í Hæstarétti í máli, sem Magnús ísleifsson bifreiðarstjóri höfðaði gegn Veiðarfæraverzlun- inni Geysir. Hafði Magnús stefnt verzluninni til bóta á fiskiskemmd- mn, er orðið höfðu af Vt úr yfir- breiðslu, er hann keypti af Veið- arfæraverzluninni Geysi. Málavextir eru sem sér segir: Sumarið 1935 flutti Magnús liingað til Reykjavíkur rúmlega 500 kg. af lúðu. Á leiðinni suður tók lúðan í sig grænan lit úr yfir- breiðslunni, sem var nýkeypt í „Geysi”. ___ Efnarálinsóknarstofa ríkis. s taldi lit þennan eitraðan, þar sem í honum væru eitruð koparsam- bönd. Var lúðan því næst eyðilögð, en Magnús hóf mál gegn verzlun- inni og krafðist kr. 316,50 skaða- Ibóta. Var veiðarfæraverzlunin Geysir sýknuð af þessari kröfu, bæði í undirrétti og nú síðast í gær í Hæstarétti. Allar bifreiða- akstnr hækkar. Fólksflutningabifreiðastöðvam- ar tilkynntu í gærkveldi. að þær hefðu afráðið að hækka allan bif- reiðaakstur um 25%. Ennfremur hefur Vörubifreiða- stöðin Þróttur tilkynnt að leiga á bifreiðum hækki upp í sex krónur um klukkustund, úr 5 krónum. sem áður hefur verið. Allur annar ósarmingsbundinn akstur hækka'r í sömu hiutföllum. O akir hækkunarinnar er auk- inn Lostnaður á öllum sviðum, hækkað benzín og verð á öllum er- lendum vörum, sem þarf til bifreið anna. Siðlistæðisflokbnr Snðnr-ifrikn berst gegn brezkn heimsvaldastefnnnni. Fjármálaráðherrar Brefa o$ Frakka seinja um nánarl fjárhagssamvínnu ríkjanna á næsfunní. EINKASKEYTI TIL ÞJÖÐV' EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐVILJ. Á fundi hins nýstofnaða samsteypuflokks sjálfstæðismanna í Suðm-Afríku flutti Hertzog herforingi, leiðtogi flokksins, ræðu. Lýsti hann yfir því, að flokkurinn mundi berjast gcgn brezku heims valdastefnunni. Hertzog kenndiþað hótunuin brezku stjórnarinnar, að þing Suður-Afríku samþykkti ineð litlum atkvæðamun að segja Þýzkalandi stríð á liendur. Evrópustyrjöldin væri óviðkomandi liagsmuumn Suðnr-Afríkubúa, og yrðú þeir að krefjast viðurkenn- ingar 4 rétti sínmn til að semja sérfrið við Þýzkaland. Reynaud fjármálaráðherra Frakka hefur verið í London und- anfarið og rætt við John Simon brezka fjármálaráðherrann. í op- inherri tilkynningu, sem gefin hef- ur verið út um viðræð’urnar er því lýst yfir að fjármálaráðherramir telji að náin samvinna Breta og Frakka á sviði fjármála og at- vinnumála. sé nauðsynleg og muni Slík samvinna verða aukin mjög á næstunni. Brezkar flugvélar hafa undan- farna daga farið allmörg könnun- arflug in.n yfir Þýzkaland, og segja Bretar að tekizt hafi að ná ágætum Ijósmyndum af stöðvum. er hafa mikla hernaðarþýðingu. Var ráðizt að flugvélunum bæði með loftvarnarbyssum og flugvél- um. Nokkrar af brezku flugvélun- um komu ekki heim aftur. Attlee hefur verið endurkosinn forseti enska Verkamannaflokks- ins, og leiðtogi stjórnarandstöðu á þingi. Greenwood var einnig endurkosinn sem varaforseti. Anthony Eden og nokkrir af-ráð herrum brezku samveldislandanna hafa undanfarið verið á ferð um vígstöðvamar í Frakklandi. Lögðu þeir af stað til Englands í dag, og hélt Eden ræðu að skilnaði. Full- vissaði hann áheyrendur sína um að Bretar og Bandamenn þeirra væru ráðnir í því, að forða þjóð- unum í framtíðinni við ógnum styrjalda, núverandi styrjöld væri háð til að binda enda á styrjaldir. Þrír menn dœmdír fyrír smygL Lögregluréttur Reykjavíkur kvað í gær upp dóm í smyglmál- um þeim. sem skýrt yar frá hér í blaðinu í gær. Þrír menn af Gull- toppi og Goðafossi voru dæmdir, en sökimi þess að Snorri goði var farinn Iiéðan. þegar málið kom til lögreglunnar verður ekki hægt að dæma i því máli fyrr en skipið keihur aftur. Framhald á 4. síðu. Jóhannesborg í Suður-Afríku.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.