Þjóðviljinn - 16.11.1939, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 16. nóvember 1939.
Þ J ú u V I L j i N N
Um verkalýðshreyfinguna á
Eskifirði. Eftir Alfons Sigurðssen,
1 herhúðum aflurhaldsflokkanna
kennir greinilegs ótta við hinn vak-
andi hluta verklýðshreyfingarinnar.
Árásir þeirra og rógburður um hið
nýstofnaða Landssamband stéttarfé-
laganna, jafnframt afskiptasemi lög
gjafarvaldsins um skipulag sam-
takanna, sanna að það sem aftur-
haldið óttast mest er einhuga ó-
klofin verklýðshreyfing og það vilja
peir fyrirbyggja að hún verði. Sam-
einingu og vöxt verklýðsfélaganna í
landinu hyggjast afturhaldsöflin að
hindra og gera verkalýðinn varnar-
lausan gegn hverskonar árásunr á
lífskjör hans. Þessvegna er lögð á-
herzla á það að kljúfa og veikja
samtökin par sem þau eru einhvers
megnug og hælzt yfir að einhvers-
staðar verður vart veikleika.
I Alþýðublaðinu 13. þ. m. er lítils
háttar minnst á Verkamannafélagið
„Árvakur“ á Eskifriði og í þeim
tón að ég finn mig knúðan til að
gefa dálitla viðbótarskýringu. Ekki
þó vegna þess að ég álíti ummæli
þessa blaðs hafi nokkur áhrif, og
sízt á stéttarfélaga mína á Eskifirði
sem nú liafa sagt því upp í stór-
hópum með verðskuldaðri fyrirliln-
ingu. Heldur fyrst og fremst til
þess að benda verkalýðnum á Eski
firðl á, að hann þarf að hefja sam-
tök sín upp úr því ófremdarástpndi
sem þau eru komin í af völdum
Alþýðusamhandsins og livaðan hann
getur vænst fjandskapqfl í garð saiL
takanna. Alþýðublaðið hælist yfir
því að broddaklíka sú, sem að því
blaði stendur, er búin að sljóvga
svo hugi verkalýðsins á Eskifirði,
að mikill meirihluti hans hefur svo
að segja algerlega lapað trúnni á
tilverumöguleika samtakanna á staðn
um og jafnframt hafin lævís árás
á þá menn, sem enn eru ekki upp
gefnir á því að reyna að blása lífi
í þann samlakavott, sem eftir er.
— Ég vil benda á eftirfarandi stað
reyndir, sem sanna hversvegna verk
lýssamtökin á EskifirÐi eru komin í
þá niðurlægingu sem raun er á. Árið
1936 var tala meðlima „Árvaks“ kom
in uppy í 150 rnanns. Á því ári var
í fyrsta sinn í sögu félagsins send-
ur fulltrúi á Alþýðusambandsþing,
en það mátti eins og kunnugt er,
ekki vera nema yfirlýstur Alþýðu-
flokksmaður, enda þótt ekki væru
nema um 15 Alþýðuflokksmenn í
félaginu. Jafnvel þótt maður sá er
kosinn var nyti fyilsta trausts alls
• þorra félagsmanna, kenndi megn-
ustu óánægju með einræðisaðstöðu
þessa flokks, sem var í greinilegum
minnihluta og afleiðingin varð sú
að fjöldinn allur hætti að greiða
gjöld sín og lenti þannig út úr sam
tökunum. Kom það greinilegai í ljós
haustið 1937 að verkamenn höfðu
tapað tni á samtökin undir slíku
skipulagi, því aðeins 36 menn
greiddu þá gjöld sín til félagsins
og enn færri 1938. Og í ár hefði
ekki einn einasti maður greitt, ef
félagið hefði haldið áfram að vera
í Alþýðusambandinu. En sem betur
fór tókst þeiin mönnum, sem ennþá
hafa áhuga fyrir verklýðssamtökun-
um á staðnum og þrá að þau verði
sterk og þess megnug að bæta hag
hinnar sárþjáðu alþýðu, að koma
í veg fyrir að hinn veiki visir,
sem nú er til samtaka hyrfi ofan
í sömu gröf og hið dauðadæmda
Alþýðusamband er nú í þann veginn
að falla í.
Pó að Alþýðublaðið hælist yfir
veikleika verklýðssamtakanna á
Eskifirði, ásaintþeim Arnþóri Jensen
og Sveini Quðnasyni, þeirn tveim
mönnum á staðnum, sem ennþá
fylgja því að málum, og þó þessi
vanheilaga þrenning þrái það heitast
af öllu að koma þeim algerlega fyr-
ir kattarnef, þá get ég þó sagt þeim
það, að verkanrannafélagið á enn
eftir að verða sterkt og öflugt bar
áttutæki í höndunr verkalýðsins
sjálfs. Nú, þegar loks eru sköpuð
skilyrði fyrir fyllsta jafnrétti inn
an félagsins, mun allur sá fjöldi,
sem hvarf burt vegna þess óréttar
sem hann var beittur, koma aftur
og taka virkan þáítt í því starfi og
þeirri liaráttu sein framundan er.
Með aðstoð Landssambandsins og
þeirra sterku félaga, sem það skipa
mun okkur takast að byggja upp
okkar félag og gera það forustu-
■hæft í hagsmunabaráttu verkalýðsins
á staðnum.
Að lokum nokkur orð um það á-
stand, sem ríkir rneðal fátæklinga
á Eskifirði og sein getur enn versn-
að, ef allur sá mikli skari, sem nú
verður fyrir hörðuslum árásurn og
Ireittur er mestum órétti af auð-
valdinu ekki ber gæfu til að standa
saman i einni órjúfandi fylkingu.
— Síðan á byrjaðri velrarvertíð til
þessa tíma, hafa sjómennirnir ver-
ið að þræla fyrir því kaupi, sem
aðeins og í sumum tilfellum alls
ekki er nægilegt til framfærslu
skylduliði jieirra yfir þennan tíma
hvað þá lengur. Nú er kominn vet-
ur og fjöldinn sér ekki fram á ann
að en neyð og örbirgð. Menn þurfa
ábyggilega ekki að gera sér háar
vonir um þau bjargráð, sem Sveinn
Guðnason, með aðstoð Jónasar Guð
mundssonar ætlar að finna upp,
komi til framkvæmida fyrst um sinn.
Slíkum loforðum er lítt á að hyggja
fyrir því höfum við reynslu. Þau
eru aðeins gefin til að veikja bar-
áttuþrótt okkar, sætta verkalýðinn
við neyðina í bili og blekkja hann
til fylgis við kúgara sina. En slíkt
megum við ekki láta hafa áhrif á
okkur. Sem einn maður verðum við
nú þegar að hefjast handa um öfl-
uga atvinnuleysisbaráttu og endur-
reisa samtök okkar í þeirri baráttu
Við skulum sýna þeim mönnum,
sem vilja samtök okkar dauð, íý*
þau eru það afl, sem getur staðist
allar þeirra árásir og dæmt dauðan
og ómerkan rógburð þeira tveggja
Alþýðuflokksmanna, sem til eru á
Eskifirði og aldrei hafa unnið ær-
legt handtak fyrir verklýðslireyfing
una.
Alfons Sigurðsson.
Lúdrasveííín
Svanutr 9 ára.
Lúðrasveitin Svanuk’ á 9 ára starfs
afmælj í tíag. Hún var stofnuð 16.
nóvember 1930, og var Hallgrímur
Þorsteinsson söngkennari aðalhvata
niaður stofnunarinnar. Öll starf-
semi sveitarinnar hefur verið starf
áhugamanna, sem Ixirið hafa allan
þunga af störfum hennar, án þess
að fá liinn minnsta opinberan styrk
Hallgrímur stjórnaði „Svaninum-c
um hríð, en hann gjörðist aldraður
og varð því að láta af störfum.
Síðustu árin hefur Karl O. Runólfs-
son tónskáld stjórnað lúðrasveit-
inni og hefur hann eflt starfsemi
hennar mjög. Sveinn Sigurðsson
inálari er formaður „Svans“ og hef
ur hann verið stjórnandanum sam-
hentur um að efla starfsemi henn_
ar. Lúðrasveitin „Svanur“ leikur í
útvarpið í kvöld í tilefni af afmæl-
inu.
Skuldaskil
Jónasar Jónssonar
víð sósialísmann
cftír
Héðínn Valdímarsson
er bók, sem allir þurfa að eiga
og lesa, sem fylgjast vilja með
í íslenzkum stjórnmálum.
Bókin er yfir 200 síður,
en kostar aðeins kr. 1,50.
Fæst m. a. í
Bókavetrzlun
Heímsktrínglu
Laugaveg 38. Sími 5055.
Æ» FR«
Aimælisi'agnaður Æ. F. R. verð-
ur í Oddfellowlnisinu n. k. laugar-
dag. Dagskráin verður mjög fjöl-
breytt og vel til hennar vandað
M. a. verður sýnd kvikmynd frá
Þingvallamóti Æskulýðsfylkingar-
innar s. 1. vor. Félagar Æ. F. R.
ættu að tryggja sér aðgöngumiða
í tíma því að húsrúm er takmark-
að.
f kvöld verður enginn fundur í
málfundaflokknum vagna ráð-
stefnu Æ. F. R.
Flokkurínn
Ý
t
I
:*•
V
Hlutavelta Sósíalistafélagsins
er á sunnudaginn kemur. Undir-
búningsnefnd hlutaveltunnar skor-
ar á alla flokksmenn að sýna
dugnað við söfnunina dagana sem
eftir eru. Munum á hlutaveltuna
er veitt móttaka i skrifstofu Sósí-
alistafélagsins Hafnarstræti 21.
Flokksstjórnarfundurinn heldur
áfram í dag í Haínarstræti. 21, og
hefst kl. 10 f. h. Fulltrúar beðnir
að mæta stundvíslega.
Bókabúð Æskunnar, Kirkjuhvoli
Ýmsar úrvals barna- og unglingabækur, þar á meðal Bíbí með
niðursettu verði. Áður innb. — bæði bindin kr. 14.00, eru seld nú
fyrir kr. 8.00. Öbundin áður bæði bindin kr. 10.75, nú kr. 5.00.
Nýir kaupemlur að næsta árgangi „Æskunnar”, sem borga við
1 ''niun fá yfirstandandi árgang í kai pbæti, meðan upplag endist
Þar eru einnig seld Minningarspjöld Sig. Eiríkssonar-sjóðsins.
Kaupið nýjustu unglingabókina, Sandhóla-Pétur.
Því ekkí?
Því reyníð þér ekkí lika
híð ljúffenga og
remmulatisa ^
Blöndahls~kaffí
með
RITZ-kaffíbsefísduftí,
Fæst svo að segja í
hverrí matvörubúð.
Vörubílstöðín Þróftur:
Tilkvnnir
Vegna stórfelldrar verðhækkunar á nauðþurftum til reksturs
vörubifreiða verður leigugjald fyrir vörubíla stöðvarinnar frá og
með 16. nóv. 1939 kr. 6,00 um klukkustund í tíagvinnu.
Aðrir ósamningsbundnir taxtar hækka frá sama tíma í sama
hlutfalli.
Frá jiessum tíma verða aksturslaun ekki skriluð hjá öðrum en
þeim, sem hafa opnar skrifstofur og minnst vikulegan úthorgunar-
tíma'.
Vörubílsföðín Þróffuir,
Utbreiðið Þjóöviljann
M.ikki Mús lendir í ævintvrum.
212
Opnið þið hliðið undireins? Eru
allir sofandi hér í höllinni. Eg
er með þýðingarmikil skilaboð
til konungsins.
Hver ert þú? Hvað vilt þú? —
Eg er i'rænka Músíusar lcon-
ungs og er með þýðingarmikil
skilaboð til hans.
En hvernig veizt þú að hann er
hérna? — Það vita allir menn
Opnaðu hliðið strax! Biddu
svolítið.
Hvað ertu að hugsa! Hér er
eitthvað á seiði. Vektu alla
varðmennina í snatri, ég skal
tala við kvenmanninn.