Þjóðviljinn - 28.11.1939, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 28.11.1939, Qupperneq 1
IV. ÁRGANGUK. ÞRIÐJUDAGUK 28. NÓV. 1939 276. TÖLUBLAD ■ I fitflntDingsatMdiö græöir miiljónir, en kanpgjaldi alpýðu er haldið niöri með valdl Oý nú æílar framkvœmancfnd braskaranna, ríkís~ sffórnín, að slá skjaldborg um spillinguna með of~ beldsher handa eínvaldísherra. Dagsbrún hvelur til mótmaela $e$n þcss- arí húgun! Allir í Idnó í kvöld! Síðan stríðið hófst hafa útflutningsvörur fslendinga stigið stórkostlega í verði. Síld og síldarafurðir, ull, gærur lýsi, fiskur — allt hefur hækkað, sumt margfaldast. En gróðann lirifsa útflytjend urnir að mestu leyti til sín. Framíeiðendur á síld og fiski fá enga hækkun, liún fer öll til braskaranna. Og einstakir kaupmenn, sem finna náð fyrir augum útflutningsnefndar, taka stórgróða á ull og gærum. En meðan útflytjendur græða milljónir á stríði og gengislæklt- un, |)á er alþýðu manna bannað með ofbeldislögum að hækka kaup sitt, en dýrtíðin hinsvegar auldn svo á innlendum sem útlendum vörum að óbærliget er orðið. Kol, sykur, smjörlíki, smjör, brauð, olíur og benzín — allt hækkar gífurlega, en kaupi verkamanns- ins er haldið niðri með valdi. Gerspillt ríkisstjórn, sem mynd- uð hefur verið til að varðveita gróðamöguleika útflytjendanna en tríu'ka á hagsmnnum almenn ings, dnufheyrist við öllum króí- um fr.'.ícins um ) ickað kaup, ei: heim+ar nú gífur'egai tollahak).- anir, a. til að fá að ausa ótak- mörkuðu fé i ríkislögreglu og vopn handa henni. Svar ríkis- stjórnarinnar við réttlátum kröf- vm fólksins um kauphækkun er að heimta ótakmarkað vald yfir ó- takmarkaðri ríkislögreglu til að berja niður réttlætiskröfur lýðs- ins. Meðal allrar alþýðu ríkir rétt- lát reiði yfir þessari margföldu ósvinnu ríkisstjórnarinnar. Dagsbrúnarmeiin, hags- munamál ykkar eru fíl umraeðu á fundinum i kvöld. Dagsbrún, sterkasta félag verkalýðsins, ríður nú á vaðið sem fyrr og boðar til félagsfund- ai í kvöld. Málin, sem taka á fyr- ir. ei’U m. a. bæði kaupgjaldsmál- in og ríkislögreglan. Þetta eru mál, sem hvern einasta verka- mann varðar persónulega. Líf og franitið verkalýðssamtakanna get- ur nú oltið á því að hver maður geri í kyldu sína gagnvart samtök- unum. Dagsbrúnarmenn! Svarið árás- um valdaklíkunnar á kaup ykkar og kjör, á rétt ykkar og frelsi m< ð því að f jölmenna í kvöld á Dagsbrúnarfund og krefjast rétt- í,r ykkar! Dagsbrún hefur alltaf staðið fremst í flokki í baráttu verkalýðsins fyrir sanngjörnu kaupi og frelsi. Sýnið að hún ger- ir það enn! Allir Dagsbrúnarmenn á fundinn í Iðnó í kvöld! V. K. F. Framsókn heldur fund í kvöld kl. 8,30 í Alþýðuhús- inu við Hverfisgötu. Til umræðu verða félagsmál, en Lúðvíg Guð- mundsson flytur erindi. Kvartmílljón fyrír ísfískfarm ? Það er talað um gróða út- flytjenda á öðrum stað hér í blaðinu og bent á hve hrópandi mótsögn hann stendur í við kjör verkalýðsins. Nýjustu fréttir lierma, að íslenzkur togari hafi nýlega selt afla sinn við verði sem svarar til rösklega kvartmilljón króna. Þess skal getið að fregnir um aflasölur eru ekki birtar hér í blaðinu vegna banns þess sem ríkir um að gefa upplýs- ingaf um ferðir skipa. Lðg S'L Jóhanns um verka- mannabústaði skreiddust tíl 3. utnræðu. Ýmsír þíngmenn stjórnarflokkanna átítu bráða- bírðalögín óþörf og aðfarírnar ijófar. Bráðabirgðalög St. Jóhanns um verkamannabústaðina voru til 3. umræðu ' neðri deild í gær. Hafði allsherjarnefnd lagt til þá breyt- ingu að fella burtu þá grein, er bannar fleiri en eitt félag á hverj- um stað. Vilmundur Jónsson hafði fram- sögn f. h. nefndarinnar — aðeins örfá orð. Vildi auðsjáanlega sem minnst óhreinka sig á frumvarp- inu. Enginn þingmanna Alþýðu- flokksins tók til máls. Bergur Jónsson kvað það ekki hlutverk •nefndarinnar að leggja dóm á hvort bráðabirgðalögin hefðu ver- ið nauðsynleg. Garðar Þorsteinsson kvað útgáfu bráðabirgðalaganr.a hafa verið ó- •þarfa og sagði að hún hefði farið fram á ,,óviðkunnanlegan hátt”. Pétur Halldórsson viðurkenndi að „aðferðin hefði verið ljót”, sem beitt var af St. Jóhann. Garðar lýsti þvi ennfremur yfir að, að sínu áliti hefði Byggingar- sjóðsstjórnin verið skyld til að veita Byggingarfélagi alþýðu lán- ið. Þannig treystust engir þing- jnenn til þess að verja aðgerðir St. Jóhanns. Aðeins hann sjálfur. .utanþingsráðherrann, reyndi af •veikum mætti að bera hönd fyrir höfuð sér, en blekkingar hans voru hraktar jafnóðum af Héðni Valdimarssyni. Töluðu þeir Héð- ■inn og Einar oft í málinu og sýndu hvað eftir annar fram á hvílíku gerræði hefði verið beitt bæði með útgáfu laganna og i skjóli þeirra. En þótt engir þing- menn treystust til að mótmæla því að þetta væri rétt ,þá mátti samábyrgðin um ríkisstjórnina sín meira en viljinn til að leiðrétta rangindin. lrar frumvarpið samþykkt með 15 atkv. gegn 3 til 3. umræðu og breytingatillaga nefndarinnar sam þykkt. Sovctsfjórnín sakar Fínna um árás, cn þcír svara mcd gagnásökunum. SAMKVÆMT EINKASKEYTUM FRA KHÖFN OG MOSKVA. Herforingjaráðið í Leningrad tilkynnir að síðdegis í gær hafi finnskar stórskotaliðssveitir hafið skotahríð á sovéthersveitir í Kirj- álanesinu, einn kílómetra fyrir norðaustan Mainil. Finnar skutu sjö fallsbyssuskotum að sovéthernum og biðu 3 óbreyttir hernienn og einn liðsíoringi bana. 7 óbreyttir hermenn og tveir liðsforingjar særðust. Yfirmaður herforingjaráðsins í Leningrad Tichomiroff of- ursti fór þegar á staðinn til rannsóknar. Utanríkismálafulltrúi Sovétríkj anna átti í gærkvöldi viðræður við Yrjoe Koskinen, sendiherra Finna í Moskva og lagði hann fyrir sendi herrann mótmæli sovétstjórnarinn ;ar við árás hinna finskú hersveita Yrjoe Koskinen lýsti því yfir að hann mundi tafarlaust setja sig i samband við stjórn sína um svar við mótmælunum. Tílgangur Fínna „fjand** skapuir við Sovciríkín", 1 mótmælum sínum til finnsku stjórnarinnar kemst Sovétstjórnin svo að orði, að hún hafi leitt at- hygli þeirra Paasikivis og, Tann- ers að þeirri hernaðarlegu hættu sem Sovétríkin telja sér stafa af hersamdrætti Finna í Kirjálanes- inu. Sovétríkin hefðu einkum tal- ið hættu fyrir Leningrad af liðs- safnaði þessum, en eftir atburði dagsins í dag yrði hún að líta svo á að liðssamdráttur Finna væri beinn fjandskapur við Sovétríkin, Loks krefst Sovétstjórnin þess að Finnar tryggi, að atburðir sem þessir endurtaki sig ekki og því til tryggingar er krafist, að Finnar dragi herlið sitt til baka í Kirjála- nesinu um 20—25 kílómetra. Ga$násakaníir Fínna, Finnar halila því fram, að þeir hafi elski skotið á rússn. liðssveitir og telja ásakanir sovétstjórnar- innar tilbæfulausar. Þá segja þeir ennfremur að rússneskar liðs- ' FRAMH. A 2. SIÐU MOLOTOFF utanríkisráðherra Sovétrikjanna. Skipatjón fer vaxaidi af vðidnm taern ðaraðgerða. EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐVILJ. KAUPMANNAHÖFN I GÆRKV. Mörg skip hafa farist um helg- ina af völdum styrjaldarráðstaf- ana. I gær fórst eitt brezkt skip og annað pólskt, sem sigldi undir brezkum fána. 1 dag fórst hol- lenzkt skip í mynni Thames-fljóts- ins. Þýzkur kafbátur sökkti brezku skipi i Norðursjónum í dag Þá hefur loks verið tilkynnt að Bretar hafi tekið eða sökkt þrem- CAJANbER forsætisráðherra Finna. ur þýzkum skipum um helgina. Brezka stjórnin hefur endan- lega samþykkt að leggja hald á allar vörur af þýzkum uppruna. en framkvæmdum á þessu sviði verður frestað fyrst um sinn. Chamberlain forsætisráðherra Breta hefur haldið ræðu um styrj- aldarhorfurnar Telur hann að- stöðu Bandamanna fara batnandi að sama skapi, sem aðstaða Þjóð- verja versnar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.