Þjóðviljinn - 17.01.1940, Blaðsíða 3
7 JÖÐVILJINN
Miðvikudagur 17. jan. 1940.
Alþýðublaðið daemír
Alþýðuflokkínn
Alþýðuflokkurinn gerist nú und-
irtylla íhaldsins, til að reyna að
afhenda því Dagsbrún. Veslings
Alþýðublaðið kallar þessa þjón-
ustu við atvinnurekendavaldið
samfylkingu „lýðræðisflokkanna”!
— Öðruvísi mér áður brá. — 9
febr. 1936 var leiðari í Alþýðu-
blaðinu, sem hét: „Hverjum dett-
ur í hug að Sjálfstæðisflokkurinn
sé lýðræðisflokkur ?” —
Ólafur Thors má sannarlega
segja við Alþýðuflokkinn: „Þú ert
samvizkuliðugur”.
22. júlí 1936 segir Alþýðublaðið
í leiðara: „Hin fámenna klíka, sem
ræður Sjálfstæðisflokknum, berst
gegn verldýðssamtökunum og öll-
um hagsmunamálum verkalýðsins
Hún stefnir ákveðið að þvi
marki að svipta verkalýðinn fé-
lagsfrelsi, málfrelsi og fundafrelsi
Það er hún, en ekki strákarnir
sem gefa út „ísland”, sem er hinn
eiginlegi boðberi nazismans hér á
landi”. — Sjálfstæðisflokkurinn
hefur ekki breytzt síðan, en Al-
þýðuflokkurinn hefur nú gefið sig
undir forustu hans og berst fyrir
því að afhenda honum Dagsbrún.
— Það þarf því ekki frekar vitn-
anna við um innræti beggja nú og
hvert þeir stefna.
Ár eftir ár var viðkvæðið í Al-
þýðublaðinu: „Ihaldsflokkarnir
eru dauðadæmdir. Alþýðuflokkarn
ir eru flokkar fjöldans”. — Og
nú? Nú reyna leifar Alþýðuflokks-
ins að fá að hanga aftan í „dauða-
dæmda” íhaldinu til að reyna að
hindra rísandi öldu sósíalismans
frá því að sigra.
1936 samþykkti Alþýðuflokkur-
inn á þingi sínu í októberlok að:
„Hættan, sem alþýðunni stafar
af ofbeldis- og einræðisstefnu auð-
valdsins og íhaldsflokkanna er
meiri en nokkru sinni áður”.
Og sem fyrstu ráðstöfun slíkr-
ar „einræðisstefnu auðvaldsins og
íhaldsflokkanna” telur þingið eft-
irfarandi:
„1. Þeir myndu lækka gengi ís-
lenzku krónunnar um að minnsta
kosti 30%. Þar með væri kaup og
tekjur allra vinnandi manna í
landinu lækkað um þriðjung, því
verð á öllum lífsnauðsynjum
myndi tafarlaust hækka að sama
skapi",
Síðan lýsir þingið því í ávarpi
sínu hvað ske myndi: „Ef verka-
lýðurinn risi upp og krefðist launa'.
hækkunar í samræmi við auknar
tekjur atvinnurekenda og aukna
dýrtíð, yrðu verkföll bönnuð
verkalýðssamtökin leyst upp og
foringjar þeirra fangelsaðir, mál-
og prentfreisi afnumið, samkvæmt
fyrirheitum íhaldsforingjanna
1934 og síðar”.
Nú er þetta byrjað að koma
fram allt saman. En Alþýðuflokk-
urinn hefur bara gengið í lið með
einræðisstefnu auðvaldsins!
Þetta ávarp, sem Alþýðuflokk-
urinn þá samþykkti, endaði á því
að menn yrðu að kjósa „þetta eða
fasismann”. — Það er auðséð á
öllu hvernig Alþýðuflokkurinn nú
hefur kosið.
3. júní 1937 birtir Alþýðublaðið
undir 6-dálka fyrirsögn: „Ofbeld-
isfyrirætlanir íhaldsins afhjúpað-
ar. ólafur Thors hefði, ef hann
hefði mátt ráða „sennilega leitt
Verndum einingu Dagsbrúnar!
Rekum erindreka gullkálfanna við
ríkisjötuna af höndum okkar
Da$sbrúnarfélagair!
Við eigum nú við stjórnarkosn-
ingar í félagi okkar um tvennt að
velja — í fyrsta lagi, að styðja
þá menn til sigurs í þessari bar-
áttu, sem trúnaðarráð hefur stillt
upp með einróma samþykkt, og
hafa með áratuga baráttu sinni
og fórnfýsi innan verkalýðssam-
takanna sýnt það, að þeir eru full-
komlega verðir þess að við verka-
menn sýnum þeim traust til ó-
trauðrar baráttu fyrir bættum
kjörum verkalýðsins. Þessir menn
hafa ávalt staðið á verði gegn
hverri árás afturhaldsins á fætur
annarri, er það hefur gert á verk-
lýðshreyfingúna og hlotið að laún
■ n hrakmæli og svívirðingar þess.
En við verkamenn munum sýna
þann stéttarlega þroska, og
tr.yggð við framherja verklýðs-
baráttunnar, þegar á hólminn
kemur ,að kjósa lista hinna þraut-
reyndustu meðal vor — A-listann!
Á hinn bóginn er okkur boðið
upp á glansnúmer frá Ölafi Thors
og Sankti Jóhanni, menn sem hafa
sér það til ágætis að vera þægir
þjónar Kveldúlfsmála- og bráða-
birgðaráðherrans. Vissulega er
það eina rétta í þessu máli, að
allir verkamenn, hvaða pólitíska
skoðun, sem þeir hafa, sameinist
um að stjórna stéttarfélögum sín-
um öllum til hags, en slíkt sam-
komulag verður að koma neðan
frá, frá verkamönnum sjálfum, en
ekki sem valdboð og hrossakaup
á milli fjárplógsmanna, er sýnt
hafa verkalýðssamtökunum fullan
fjandskap og afnumið skýlausan
rétt þeirra til að ákveða kaup og
kjör verkamanna, með þrælalög-
um á Alþingi.
Éf B-listamenn ynnu sigur við
þessar stjórnarkosningar, sem
aldrei má verða —, þá yrðu þeir
blóðbað yfir Reykjavík”. „Her-
mann Jónasson forsætisráðherra
flettir ofan af fyrirskipunum Öl-
afs Thors sem dómsmálaráðherra
400 manna vopnað lið átti að taka
20—30 forvígismenn alþýðunnar
fasta á næturþeli”.
— Og nú. Nú vill Alþýðublaðið
gefa íhaldinu Dagsbrún. —
16. júní 1937 afhjúpar Alþýðu-
blaðið með ógurlegri fyrirsögn:
„Breiðfylkingin ætlar sér að fella
krónuna”. Og Alþýðuflokkurinn
lofar hátíðlega að berjast gegn
þvi.
17. júní 1937 er svo fyrirsögn
Alþýðublaðsins 6-dálka: „Hyldýpi
fjármálaspillingar arðráns og kúg-
unar bíður þjóðarinnar, ef BREIÐ-
PYLKINGIN sigrar!” Undirfyrir-
sögnin er: „Yfirráð Kveldúlfsklík-
unnar i fisksölumálunum hafa
kostað þjóðina á fjórðu milljón
króna, sem tapazt hafa í sukk og
svindl á síðustu 3—4 árum. Um-
boðsmenn Kveldúlfs á Spáni hafa
sannanlega stolið heilum fiskförm
um af fslendingum!”
— Og nú! Nú hefur Alþýðu-
flokkurinn sjálfur hjálpað til að
gera allt þetta, sem hann sagði
þjóðinni að gerast mundi, ef Breið
fylkingin sigraði. — Og nú ætlar
hann að reyna að brjóta niður eitt
bezta vígi verkalýðsins, með því
að afhenda íhaldinu Dagsbrún.
viljalaus handbendi atvinnurek-
enda og ríkisvaldsins og myndu
ávalt ganga að þeim kostinum
sem verri væri fyrir verkamenn,
því að þessir menn eru svo háðir
þeirri stjórnarklíku, sem nú þjarm
ar að okkur verkamönnum með sí-
hækkandi dýrtíð á öllum lífsnauð-
synjum og minnkandi lífsmögu-
leikum — atvinnulega og fjár-
hagslega, að þeir eru neyddir til
þess að velja á milli pyngjunnar
og atvinnumissis, eða að gerast
þægir þjónar og fóma hagsmun-
um verkamanna á altari Kveldúlfs
og annarra atvinnurekenda. Við
Dagsbrúnarmenn getum með engu
móti lyft þeim mönnum í stjóm-
arsess, sem láta gullkóngana við
ríkisjötuna tefla sér fram og aft-
ur í refskák auðvaldsins gegn
frjálsum verkalýðssamtökum, og
ef við verkamenn eigum slæman
leik á borði núna, þá verðum við
þó gersamlega mát, ef B-listamenn
fengju völdin i hendur. Af þeirri
sömu atvinnurekenda- og stjórn-
arklíku, sem nú reynir af fremsta
megni að sá úlfúð á meðal
verkamanna til þess að veikja
og sprengja verkalýðssamtökin og
fyrst og fremst þann vísi til
frjálsra og óháðra stéttasamtaka
sem Landssambandið er, þar sem
öllum verkamönnum er sýnt fulít
lýðræði og opin leið til brýnustu
starfa fyrir samtökin, hvaða póli-
tíska sannfæringu sem þeir aðhyll
ast — er nú þrengdur kostur okk-
ar verkamanna til stórra muna:
Framlag til atvinnubóta er lækk-
að um iy2 milljón, en hækkað við
kónginn um 15 þús. og lögregluna
um 30 þús., og okkur er hótað
sveitarflutningum hvert á land
sem vera skal, þar sem við verðum
að vinna fyrir sultarlaun eins og
vermenn á miðöldum, og ef við
möglum, þá er ríkislögreglan til
taks með nýtízku hernaðartækni,
til þess að berja inn í okkur hina
réttu ,skapgerð”, sem kennd er við
Hermann „svitadropa”.
Sú kauphækkun sem þingið
veitti okkur og nemur ekki
nema litlum hluta af dýrtíðinni.
sem eykst og margfaldast á
þeim þrem mánuðum, sem við verð
um að bíða til næstu hækkunar —
er eingöngu að þakka kröfum og
samþykktum verklýðsfélaganna er
rigndi yfir þingið, svo að þá sá
sér ekki annað fært en að taka
kaupgjaldsmálið til meðferðar.
Orlausn þess sýnir okkur ljóslega
vesaldóm Skjaldborgarinnar og
hve langt hún er komin út fyrir
takmörk þess máls sem hún hefur
þótzt berjast fyrir — jafnaðar-
stefnuna — að hún skuli fóma
hagsmunum verkalýðsins og
hjálpa til að reyra verklýðssam-
tökin í þrælabönd þau, sem mun
kosta þau harða baráttu að leysa
sig úr — fyrir ráðherrastól sæl-
kerans, St. Jóhanns, bankastjóra-
stöðu mannsins sem sagði, að
kreppan væri eins og vindurinn
sem enginn vissi hvaðan kæmi eða
livert hann færi! — og eilífðar-
tryggingu karlmennisins Haraldar
Guðmundssonar! Það er að vonum
að þessir menn skuli beygja kné
sín fyrir atvinnurekendavaldinu
og láta „Sjálfstæðisflokkinn” og
„Framsók” — sem nú er í aft-
ursókn — segja sér fyrir verkum
Framhald á 4. síðu.
Nýsoðin
S YÍð
Kaffistofan
Hafnarstræti 16.
Gnmmívinnn'
stofan
Adalstræti 16
framkvæmir allar gúminíviðgerðir
vandaðast og ódýrast.
SsfBið ðsbrifendvin
lil uiðsftlplamanna Bl
Kauputn fómar flöskur og glös |
hæsfa vcrdí, Láfíð sendlana |
faka það þcgar þcir koma með
vörur fíl yðar cða hríngíð I |
búðírnar og láfíð sækja það, í
G^kaupféloqiá
Fnndnr
verður lialdinn í Verkamannafélaginu Dagsbrún i Nýja Bíó iinnntu-
'daginn 18. þ. m. ki. 6 síðdegis.
FUNDAREFNI:
Umræður um kosningu stjórnar og trúnaðarmanna.
Sýnið félagsskírteini við innganginn.
Félagsstjórn.
!llil!li
K0SNIN6
sfjórnar, frúnaðarráðs og annarra frún«
aðarmanna, samkvacmt félagslögum, fer
fram 18. o$ 19, jan. 1940 í Hafnarsfæfí 21.
Kosningín stendur yfir:
Fímmtudaginn 18 jan. frá hl. 3-6 e. h. og
frá hl. 8-11 e. h. Föstudagínn 19. jan. frá kl.
9 f. h. tíl kl. 11 e, h. og verður þá lohið,
þar sem aðalfundur félagsins verður haldinn
sunnudagínn 20. janúar.
Allír félagsmenn hafa athvæðísrétt, sem
ehhí shulda félagínu meira en ársgjald fyrir
áríð 1939, þegar hosning hefst, þann 18. jan.
Kjörstjórn „Dagsbrúnar“