Þjóðviljinn - 28.01.1940, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 28.01.1940, Blaðsíða 4
þJÓÐVILJINN Op bopglnnl, Næturlæknir í nótt: Karl S. Jónasson, Sóleyjargötu 13, sími 3925. Aðra nótt: Halldór Stefáns- son, Ránargötu 12, sími 2234. Næturvörður er þessa viku í Ingólfs- og Laugavegs-apótekum. HeLgidagslæknir í dag: Kristín ólafsdóttir, Ingólfsstræti 14, sími 2161. Námshringur Æ. F. R. kemur saman i dag á venjulegum stað og tíma. t „Veiðimaðurinn” heitir nýtt tímarit. Er það „málgagn lax- og silungsveiðimanna á Islandi” og á að koma út tvisvar til þrisvar á ári. Útgefandi er bókaútgáfa Guð- jóns Ö. Guðjónssonar, en ritstjóri ívar Guðmundsson, blaðamaður, Fyrsta heftið er 36 bls. að stærð, myndum skreytt og fallegt að frá- gangi. 1 heftið skrifa ýmsir af þekktustu veiðimönnum bæjarins. Má telja víst að þeir sem stunda stangaveiði hafi bæði gagn og gaman af „Veiðimanninum”. Leiðrétting. I grein Einars Ol- geirssonar um Mannerheim og Morgunblaðið, misprentaðist eitt ártal. Setningin átti að vera þann- ig: „Carl Gustav Emil Manner- heim er ekki finnskur, heldur sænskur að ætt. Tuttugu og tveggja ára að aldri gengur hann (1889) í þjónustu keisarastjórnar- innar rússnesku” o. s. frv. „Ástfanginn eiginmaður” heitir amerísk gamanmynd, sem Gamla Bíó byrjaði að sýna í gærkvöld. Aðalhlutverkin leika John Boles og Doris Nolan. Úthlutun matvælaseðla í Rvik fyrir febrúarmánuð fer fram 29.— 31. jan. í Tryggvagötu 26. Af- greiðslutími er kl. 10 f. h. til kl. 6 e. h. Milli 12 og 1 er lokað. Mun framvegis verða höfð sú aðferð að afhenda miðana síðustu þrjá til fjóra virka daga hvers mánaðar. Póstferðir á morgun: Frá Reykjavik: Mosfellsveitar, Kjalarness, Reykjaness, Kjósar, Ölfuss og Flóapóstar, Laugarvatn, Hafnarfjörður, Akranes, Rangár- vallasýslupóstur, Vestur-Skafta- fellssýslupóstur, Esja í hraðferð Til Reykjavíkur: Kjalarness, til Akureyrar, vestur um land. Reykjaness, Kjósar, Ölfuss- og Flóapóstar, Hafnarfjörður, Akra- nes. Útvarpið í dag: 9.45 Morguntónleikar (plötur): a) Kvartett í D-dúr, eftir Bocc- herini. b) Kvartett í C-dúr, eftir Haydn c) Kvartett í F-dúr, Op. 135, eftir Beethoven. 10.40 Veðurfregnir. 11.00 Messa í Dómkirkjunni (séra Friðrik Hallgrímsson). 12.15 —13.00 Hádegisútvarp. 15.15—16.40 Miðdegistónleikar (plötur): ópera: „Þetta gera þær allar!”, eftir Mozart. Síðari þáttur. 18.30 Bamatími: a) Norsk ævintýri (Sigurður Thorlacius — Dóra Haralds- dóttir). ap Ný/abio | Konan með öríð v | (En kvinnas ansikte) •| Sænsk stórmynd gerð undir stjóm kvikmyndasnillingsins Gustaf Molander. Aðalhlut- verkið leikur frægasta og fegursta leikkona Svía •{• Ingrid Bergman. X Sýnd kl. 7 og 9. Y RAMONA ÍSýnd kl. 5. Síðasta sinn. t (Lækkað verð) | Frænka Charlies ♦{• bráðskemmtileg mynd leikin Y •{• skopleikaranum fræga Paul *«* ÍKemp. Sýnd fyrir böm kl. 3. | GöjnbJ3ío % | Ásttanginn | | eiginmaður | •{• Amerísk gamanmynd tekin X af Universal, eftir skáldsög- X unni „As good as married”, X Aðalhlutverk leika: 4 John Boles $ Doris Nolan. X | Sýnd kl. 7 og 9. | % Alþýðusýning kl. 5. | ♦{* Söngmyndin um Strauss 4 Síðasta sinn! V T *t* Barnasymng kL 3. •{* NtTT SMÁMYNDASAFN *{* 3 Skipper Skræk-teiknimynd- •{• ir, ásamt úrvals frétta- og ý 4 fræðimyndum. ♦{• VÍSIR VIÐURKENNIR Framhald af 1. síðu. svo þau „borgi sig” — eins og 1. þingmaður íhaldsins í Reykjavík, Magnús Jónsson, óskaði eftir. Einmitt vegna öryggis sjómann- anna, sem Sósíalistaflokkurinn alltaf berst fyrir, hefur Þjóðvilj- inn afhjúpað þá hættu, sem þjóð- stjórnin hefur leitt yfir þjóðina. Og nú bendum við á leið út úr þessari hættu. Nú er það þjóð- stjórnarinnar að byrgja brunninn, sem hún hefur opnað, og það taf- arlaust. b) Norsk þjóðlög (plötur). 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Hljómplötur: „Ástríðuljóð”, tónverk eftir Scriabine. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Kvöld íþróttasambands Is- lands. Afmælisminning: Ávörp og ræður. Tónleikar. 21.15 Hljómplötur: Frægir ein- leikarar. 21.35 Danslög. (21.50 Fréttir). 23.00 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: 10,00 Veðurfregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 12.50 Enskukeatmsla, 3. fl. 15,00 Veðurfnegnir. 18.15 Islenzkukennsla, 1. fl. 18.40 Þýzkukennsla, 2. fl. 19.10 Veðurfregnir. 19.20 Hljómplötur: Brúðkaupslög. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Um daginn og veginn. V. Þ Gíslason. 21.35 Kvöld Slysavamafélags ís- lands: Ávörp og ræður. — Tón- leikar, Útvarpshljómsveitin. — Ein- söngur: Hermann Guðmundsson. „Konan með örið” heitir sænsk kvikmynd, sem Nýja Bíó byrjar að sýna í kvöld. Aðalhlutverkið leik- nr sænska leikkonan Ingrid Berg- man. Á alþýðusýningu kl. 7 verð- ur „Ramona” sýnd í síðasta sinn. I. O. Q. T. Stúkan Sóley nr. 242 heldur aukafund í kvöld kl. 8 í Bindindis- höllinni, Fríkirkjuveg 11. Fundarefni: Inntaka nýrra fé- laga o. fl. Æ. T. Afturhaldsflokk- arnír í Dagshrún. FRH. AF 1. SIÐU ir verkamenn hafi sama rétt og sömu skyldur til starfa innan sinna eigin samtaka. Þegar stofnað hefur verið landssamband á þessum grund- velli, Sjálfstæðismenn hafa fengið valdaaðstöðu í stærsta félagi sam- bandsins og ættu samkvæmt því að geta kosið þá fulltrúa, sem þeim sýnist á þing Landssam-" bandsins, þá taka þeir sig til og beita sér fyrir að þetta félag segi sig úr sambandinu. Fljótt á litið gæti mönnum dott- ið í hug að hér væru glópar að verki, en við nánari íhugun verður að falla með öllu frá þeirri skoð- un, og segja, að hér eru slægvitr- ir menn að verki. Hér er stjórnmálaflokkur að verki, sem er til þess stofnaður og starfræktur að vernda stéttarhags- muni atvinnurekenda. Þetta telja þeir sig bezt geta gert með því að komast inn í verkalýðsfélögin, fá nokkra verkamenn í sina þjónustu, auðvitað þæga menn, og ekki of greinda, snúa þeim síðan sitt á hvað, eftir því sem hinn pólitíski vindur atvinnurekendanna blæs, en umfram allt er þess ætíð gætt, að tryggja að hvert viðvik þeirra verði til þess að veikja verkalýðs- félögin og gera þau að þjónum at- nurekenda, I stað þess sem þau eiga að vera og hafa verið, þjónar í stéttarbaráttu verkalýðsins. Brezka útvarpíð. FRAMHALD AF 1. SIÐU. „Skýringar” blaða og einkum brezka útvarpsins hafa verið hver annari fráleitari og ævintýrakennd ari. Var því meira að segja haldið fram að sovétstjórnin hefði kallað j þennan þýzka her inn í landið til • að „halda uppi reglu”! Samkvæmt opinberum tilkynn- ingum frá ^ovétstjórninni eru „fregnir” þessar tilhæfulaus upp- spuni. Rræða Churchílls FRAMHALD AF 1. SÍÐU. að Bandamenn mundu sigra, þeir hefðu miklu meira úr að spila af mönnum og auðæfum. Þegar Bandamenn hefðu unnið sigur, sagði Churchill að mundi renna upp friðartímabil mikið, rétt læti og frelsi ríkja í samskiptum þ jóða! EDNA FERBER: T2. SVONA STÓR ...! um í reikningsbókum, fór hún til Augústs Hempel. „Pú minntist ekkert á rentur þegar þú skrifaSir láns- samninginn. Þú mátt iiafa haldið að ég væii ljóti heimsk- inginn”. „Heldurðu að þess þurfi milli vina?” reyndi Augúst Hempel að malda í móinn. „Já, auðvitað”, sagði Selína ákveðin. „Auðvitað verð ég að borga rentur af láninu”. „Eg sé ekki annað en ég verði að stoina bánka ei öll mín viðskipti eiga að verða svona föst í formum”. Tíu árum síðar hal'ði Augúst Hampel tögl og halgdir í Yards & Rangers-bánkanum. Og Selína haiði kvittun fyrir þvi að skuldin væri borguð að fullu. Hún geymdi hana í útskornu kistunni ásamt öðrum munum sem hún tímdi ekki að eyðileggja — hlægilegum munum sem eng- inn nema hún hefði skilið að vert væri að halda til haga. Þar var gömul steinLafla eins og lítil börn liaia til að reikna á, — Laflan sem Pervus notaði, þegar hann lærði að reikna hjá henni, vöndur af þurrkuðum fjólum, vín- raúður kasmírkjóll, ákaflega gamaldags í sniðum, — sendibréi með sögu um Infanta Eulalia frá Spáni, und- irritað Júlía Hempel Arnold, gömul og sliLin karlmanns- stigvél, — svartkrítarteikning á brúnum umbúðapappír myndin var af Haymarket, — hestar, vagnar, bændur í einni bendu undir gasljósunum — gamla teikningin bans Roelfs. # Alltaf öðru hvoru, árin sem nú fóru í hönd, þurfti hún að skoða þetta rusl. Tuttugu árum síðar kom Dirk að henni þar sem hún var að slétta úr brotunum á elli- lúnum lánsamningi og strjúka fellingarnar á vínrauða kas mírkjólnum. „Ertu nú komin í þetta ennþá einu sinni”, sagði Dirk. „En hvað þín kynslóð hefur verið rómantisk! Þurrkuð blóm — ég hélt að þau hefðu farið úr tízku um aldamót. Ef kviknaði í húsinu er ég viss um að þú hlyp- ir inn í eldinn til að bjarga þessu skrani. Og það er ekki tveggja senta virði allt saman”. „Það getur verið”, sagði Selína með hægð. „Samt held ég að gæti verið verð í teikningu eftir Rodin frá æsku- árum hans, áritaðri með eigin hendi”. „Rodin? Þú átt þó ekki. .” „Nei, en hérna á ég teikningu eftir Pool — Roelf Pool — með eiginhandaráritun. í vikunni sem leið seld- ist teikning eftir hann í New York — ekki fullgert vei'k, heldur bara lausleg teikning aí nokkrum mönnum í hóp, sem hann notaði í Doughby-minnismerkið, á þúsund dollara —” „Já, það getur verið mildls virði. En allt hitt — ég skil ekki hversvegna fólk er að halda svona gömlum munum saman, vita gagnslausum. Og þetta er ekki einu sinni fallegt”. „Fallegt”, sagði Selína og lét gömlu kistuna aflur. „Góði Dirk, þú hefur ekki liugmynd um hvað fegurð er, og færð líklega aldrei að vita það”. XIII. DTRK DeJONG óx upp og varð hið mesta glæsi- menni, einn af þeim mönnum, sem allir hrifast af, þegar við fyrstu sjón og verður hlýtt til. Kunningj- ar hans sögðu að allt kæmi fyrirhafnarlaust upp í hend- ur honum og allir vegir stæðu honum opnir. Hann sagði það stundum sjálfur, ekki í því slcyni að gorta, heldur hálf-feimnislega. Hann var ekki margmáll, og eitt af því sem gerði hann aðlaðandi var það hve vel hann kunni að hlusta á aðra. Það var svo auðvelt að tala við hann. Hann hlustaði meðan einhver hafði eitthvað að segja, og virtist alltaf taka mikið mark á því. Menn fengu það á tilfinn- inguna, að hann væri ákaflega vel gefinn og skilnings- góður. Þetta var dýrmætari umgengnisgáfa en flestar aðrar. Hann vissi ekki sjálfur hversu mikilsverð hún var fyrir framtíð hans. Það voru einkum rosknir menn, sem kunnu vel að meta þessa eiginleilca, og tóku Dirk að meira eða minna leyti undir vernd. Oft náði hann slík- um samböndum eftir viðræður, þar sem hann hafði ekk- ert lagt til málanna nema „já” og „nei” og „þetta er á- reiðanlega rétt athugað hjá yður”. En hann hafði sagt það á réttum stöðum. I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.