Þjóðviljinn - 21.04.1940, Blaðsíða 3
rJOÐVILJINN
Sunnudagur 21. apríl 1940
Á sölutorginu
Það voru engir þingfundir í gær
—, þingmenn voru að verzla.
Það er í annað sinn á þessu
þingi, sem þeir taka sér frí til að
verzla.
í fyrra skipti voru það fjárlög-
in með öllum þeirra gögnum og
gæðum, sem sýnd voru á sölutorg-
inu. Nú er það útsvarsfrelsi tog-
aranna, höfðatölureglan ef til
vill afurðasölulögin og utan-
ríkismálin, sem sýnd éru
á þessu sama torgi. Og svo er auð
vitað eins og gengur og gerist í
viðskiptum talað um uppbætur og
þóknun, og uppbæturnar og þókn-
unin — það eru embætti, jafnvel
sendiherrastöður. —
Framsóknarmönnum er það
Ijóst, að þeirra háttvirtu kjósend-
ur heimta að stórútgerðinni sé gert
skylt að greiða útsvar eftir efnum
og ástæðum, eins og hverri ann-
arri atvinnugrein.
Sjálfstæðismönnum er ljóst, að
helztu máttarstólpar þeirra, stór-
kaupmennirnir, krefjast að fá
stærri hlutdeild í verzluninni á
kostnað kaupfélaganna.
En þó kaupmennirnir séu mátt-
ugir innan Sjálfstæðisflokksins, þá
verður ekki komizt hjá að viður-
kenna þá staðreynd að stórútgerð
armennirnir hafa komið sinni ár
betur fyrir borð í flokknum, það
eru sem sé fulltrúar þeirra, sem
fyrst og fremst stóðu að myndun
þjóðstjórnarinnar, og það eru þeir
sem ráða lögum og lofum í þing-
flokknum.
En báðir þessir máttarstólpar,
stórkaupmenn og stórútgerðar-
menn, standa á grundvelli, sem
byggður er úr „attaníossum”
„hinna stóru”.
Þessum óbreyttu attaníossum
hefur verið kennt. margt, þar á
meðal að hin svokölluðu afurða-
sölulög væru bókstaflega frá
hinum vonda, og flest ef ekki
allt böl dætra og sona íteykja-
víkur stafaði frá lögum þessum
og þeim vondu mönnum, sem þau
settu.
Samkvæmt þessu er það, sem
Sjálfstæðisfl. fyrst og fremst
girnist. Skattfrelsi til handa stór
útgerðinni, vegna togaraeigenda,
meiri verzlun til handa stórkaup
mönnum á kostnað kaupfélaganna,
og afnám afurðasölulaganna vegna
þeirra, sem talið hefur verið trú
um að þau væru frá ,hinUm vonda’.
Hvernig á Framsóknarflokkur-
inn að mæta öllu þessu?
Við höfum áður minnst á hvem
ig kjósendur hans líta á útsvars-
frelsi stórútgerðarinnar.
Allir vita að floltkurinn á líf
sitt og tilveru kaupfélögunum að
þakka, og sú var tíðin að leiðtog-
ar hans töluðu um að öll verzlun
landsins ætti að vera komin í
hendur kaupfélaganna fyrir 1943.
Ekki hafa menn heldur gleymt
því, að flokkurinn telur afurða-
sölulögin meðal sinna stærstu af-
reka og eru þau í herbúðum Fram
sóknar talin álíka heilög eins og
þau eru talin vanheilög í herbúð-
um Sjálfstðisflokksins.
Framsókn er því nauðugur einn
kostur, að leika sterkum mótleik
á móti þessari þreföldu kröfu í-
haldsins.
Bezt er að hver njóti sannmæl-
is, og það mega Framsóknarmenn
eiga, að þeir Ieika oft vel á hinu
pólitíska skákborði.
Að þessu sinni ákváðu- þeir
skáka að konungi þeirra íhalds-
manna, Ölafi Thors.
Þeir komu fram með tillögu um
að leggja útsvar á stórátgerðina.
Leikurinn er sterkur, því með
atkvæðum Framsóknar, Alþýðu-
flokksins og Sósíalista er hægt að
gera frumvarpið að lögum, hvað
sem íhaldið segir. Það er aug-
ljóst að íhaldið hlýtur að leggja
sig allan fram til þess að losna úr
þessari skák.
Framsóknarmenn gerðu sér
ljóst áður en þeir léku, hvaða
gjald Ólafur gæti borið fram til ■
lausnar sér. Hann gat fórnað stór
kaupmönum, því þeir eiga ekki
sterka fulltrúa á þingi. Hann gat
fórnað kröfum hinna óbreyttu liðs
manna sinna um afnám afurða-
sölulaganna, þeir voru hvort eð er
orðnir þeim svo vanir, og á allra
síðustu tímum hefur ekki svo
mjög verið á þau deilt.
Þegar allt þetta er athugað, verð
ur skiljanlegt að fundarfall yrði í
þingi í gær. Sú heildverzlun, sem
reka þurfti, til þess að forða ól-
afi úr skákinni, þarf sinn tíma,
þingmenn þurfa vandlega að at-
huga hvað boðið er til sölu á mark
aðnum, þeir þurfa einkum að at-
huga persónulegui uppbæturnar, j
embættin, bitlingana og önnur |
fríðindi.
Það var enginn fundur í þing-
inu í gær, þingmenn voru á sölu-
torgi.
Sjómenn heímfa
iréff sínn
Framh. af 1. síðu.
in skýringin á þögn forustuliðs-
ins!
Það er því sízt vanþörf á að við
sjómenn látum til okkar heyra
um okkar eigin hagsmunamál, þar
sem tránaðarmenn okkar virðast
hafa öðrum hnöppum að hneppa.
Fari nú á þann veg, sem ég vil
vona að forustan sjái sér ekki ann
að fært, en að framfylgja skýlaus-
um vilja okkar sjómannanna, um
að knýja fram réttlát kjör, þá vil
ég drepa hér á tvö atriði, sem er
nauðsynlegt að taka með í reikn-
inginn.
Síðan verðið á lifrartunnunni á
togurunum greitt til skipverja var
ákveðið, hefur verðið margfaldast
og gróði útgerðarmannanna á þess
um lið aukizt að sama skapi. Það
nær því engri átt að við sjómenn
unum við það óréttlæti. Við verð
um að krefjast þess að fulltrúar
okkar í stjómum stéttarfélaganna
taki þetta atriði upp við samninga
— þannig að til fulls réttlætis sé
stillt. Hitt atriðið virðist ef til vill
veigalítið en sýnir þó glöggt að
útgerðarmenn sleppa engu tæki-
færi til þess, að skerða hlut okkar
sjómannanna. Fyrst eftir að samn
ingar um áhættuþóknun gengu í
gildi var á flestum skipum reikn
uð út áhættuþóknun þannig, að
að í hvert sinn, sem skip sigldi
inn á eða af áhættusvæði, var brot
úr hverjum almanakssólarhring
reiknað sem hálfur sólarhringur.
Dæmi: Skip fer fyrir Reykjanes
á útleið kl. 11,30 f.h. og reiknast
þá áhættuþóknun frá kl. 12 á mið
nætti. Sama skip siglir fyrir
Reykjanes á heimleið kl. 10,30 f.h.
og reiknast þá áhættuþóknun til'
kl 12 á hádegi sama dag. Nú er
þessu óskað breytt þannig að mið
að er við þann tíma, sem siglt er
inn á áhættusvæðið og svo aftur
út af áhættusvæðinu, en þó þannig
að brot úr hálfum sólarhring er
reiknað sem hálfur sólarhringur.
I dæminu, sem ég tók er því tap
SKIPTIÐVIÐ:
Vatnsglös kr. 0.60
Sherryglös — .0.55
ölglös ’ — 0.65
Sjússglös — 1.30
Maoasin.
Gullsmíði
Smída allskonar
kvensilfun
manchetthnappa, silfurhringa
o. fl. — Gylli, geri við og
hreinsa silfur- og gullmuni.
Þorsteinn Fiimbjarnarson
gullsmiður, Vitastíg 14A.
Allir þurfa að eignast bókina!
Leyndairdómur
yndísþokkans
Leiðbeiningar um hegðun í sam-
kvæmislífinu, í ástamálum og á
mannamótum, — um snyrtingu og
yndisþokka í framkemu, hvemig
menn eigi að velja sér vini og
margt fleira.
Fæst hjá bóksölum og kostar kr. 2
U. M. F. Velvakandi verður í
Kaupþingssalnum, þriðjudaginn
23. þ. m. kl. 9.
Dagskrá samkv. félagslögum.
Stjórnin.
Veggfööor
ódýrast í
Veggfóðursverzlun
Victors Kr. Helgasonar.
Sími: 5315. Hafnarstræti 5 við
hliðina á Glæsi.
Bókhald og
endurskoðun,
Maður, vanur bókfærslu, tek-
ur að sér bókhald og endur-
skoðun fyrir útgerðarmenn og
stærri og smærri verzlunarfyr-
irtæki. — Upplýsingar á skrif-
stofu
PÁLS G. ÞORMAR,
Hverfisgötu 4. — Sími 1558.
Húsmæður!
Keyrum þvott í Þvottalaugarnar.
Verðið er lágt séu nokkrir balar
teknir á sama stað.
Verzlunin Bergstaðastræti 10
Sími 5395.
♦♦♦♦♦♦WWWvWVWvWW** * “ * ♦
• J3 V ■>
L. ^ * .Á
RAFTÆKJA
VIÐGERÐIR
VANDAÐAR-ÓDÝRAR
SÆKJUM & SENDUM
cfyÓl/afoHBislig
CAfi^KJAVERUUH - 0 ACVIRKJUH - VWGEROAiTOrA
iGúmmí skógerðínl
1 VÖPNI 1
i
I
%
? Aðalstræti 16.
%
I
I
Sími 5830
X
| X
? Framkvæmir ailar gúmmivið-*
X gerðir vandaðast og ódýrast.|*
T }
Uínrelðslu stofur |
Snyrtistofa
i M A r;c I
Skólavörðustíg 1. Sími 2564
_+_
PERMANENT-HARLIÐUN
með nýrri tegund af þýzkum
permanentvökva og fixativ-
vatni.
Hárgreiðslustofan
Hollywood
Laugaveg 3. Sími 3445
Saumasíofur
Sníð og sauma kven- og
barnafatnað.
Bogga Sígurðar
Klapparstíg 44. Sími 5573.
Emailetríng
Emaíleruð skíltí
eru búin til í Hellusundi 6.
Ösvaldur og Daníel.
Sími 5585.
Rafma$ns~plafa
óskast til kaups.
Upplýsingar á Grettisgötu 19B.
Kaupum íómar
flSskv
Flestar tegundir.
Kaffistofan.
Hafnarstræti 16.
skipverja jafnt áhættuþóknun fyr-
ir hálfan sólarhring.
Við sjómenn teljum sjálfsagt að
þessu verði breytt til þess sem
það var í upphafi.
Mér finnst að tími sé til kom-
inn fyrir okkur, sem sjóinn stund
um, sem og aðra starfandi menn,
að viðurkenna að ef við ekki hjálp
um okkur sjálfir, þá hjálpar eng-
inn okkur. Eða hver tráir þjóð-
stjóminni, afkvæmi og verkfæri
gamla mannsins frá Hriflu til þess
að hjálpa okkur — mannsins, sem
sagt er að kalli áhættuþóknun þá,
sem við sjómenn höfum fengið,
„hræðslupeninga”.
Sjómaður.
Kvemréffftidafclag íslands
heldur minningarkvöld um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, í Oddfell-
owhúsinu, kl. 8,30 annað kvöld. (mánudag 22. þ. m.).
Félagskonur mega taka með sér gesti.
Mætið stundvíslega.
U.M.F. DaflsUrðn
Fundur n. k. mánudagskvöld kl. 8,30 í sölum Ingólfskaffis
í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Fundarefni: 1. Félagsmál. 2. Ástandið og horfur í atvinnu-
málum.
Vinnuréttindaskírteinin gilda sem aðgöngumiðar!