Þjóðviljinn - 30.04.1940, Síða 3
PJOÐVILJINN
Þriðjudagur 30. april 1940
Fyrsta maí-nefnd Dagsbrúnar
heldur áfram störfum
Hátíðahöld dagsíns fara fram á þeím grundvellí sem fé-
lagíð samþyhhtí og samhomulag var um í nefndínní
Fulitrúar sjálfstæðísverhamanna og alþfðuflohhsverkamanna
svíhja á síðustu stundu
Þeír sheyía því engu, að Dagsbrún hafðí falíð þeím með nær eínróma
samþvhkf að sfanda fyrír í. maf«fagnaðíy sínum] — að fullkomíð sam-
komufag hafðí náðsf ínnan nefndarínnar í öllum afríðum viðvikjandí fíf-
hö$un dagsins, og var þeffa bírf i úfvarpínu, — að nefndín ásamt fullfrúum
frá mörgum verkfýðsfélögum hafði samþykkf, með öllum atkv> gegn einu,
að ganigasf fyrír háfíðahöldum hvað sem líðífsamkomulagí víð híð^svo*
kallaða fullfrúaráð verklýðsféla$anna
Annars er saga þessa máls í fáum orðimi þannig:
Menn þeir, sem nú hafa hlaupið frá því starfi, sem þeim var fal-
ið, kröfðust þess á fyrsta fundi nefndarinnar, að engir alrauðir
fánar sæjust við hátíðahöldin, og hótuðu samvinnuslitum, ef krafa
þessi yrði ekki uppfyllt. Sósíalistarnir í nefndinni töldu rétt að
vinna það til einingarinnar að uppfylla þessa kröfu og fékkst þá
íullt samkomulag í nefndinni, og var það tilkynnt í útvarpinu.
En nú brá svo undarlega við að sumir þeirra, sem harizt höfðu
á móti rauðuni fánum, fóru nú í nafni hins svokallaða íulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna að heimta rauða fána, til þess að samkomulag
mætti nást.
Sósíalistarnir í nefndinni voru enn fúsir til samninga og sam-
komulags. En það kom nú í ljós, að fullkomið samspil var hafið
milli Skjaldborgarinnar og Sjálfstæðismanna, um að eyðileggja allt
samstarf og skiptu þeir nú með sér verkum mn að vera ýmist með
eða móti kröfum fulltrúaráðsins, en voru sammála mn að án þátt-
töku þess væri ekki hægt að hafa hátíðahöld fyrsta maí eins og til
stóð, þrátt fyrir það þó {æir væru búnir að samþykkja að láta þau
fara fram hvað sem fulltrúaráðinu viðviki.
Þegar liðhlaupar þessir lýstu því yfir að þeir ætluðu að hætta
að starfa, samkvæmt því umboði, sem Dagsbrún gaf jæun, mót-
mæltu sósíalistamir í nafni félagsins og kröiðust þess að Dagsbrún-
arfundur yrði kallaður saman á mánudagskvöld, og buðu að út-
vega húsnæði. Þessu neituðu liðhlauparnir.
Þrír nefndarmanna, þeir Eðvarð Sigurðsson, Sigurður Guðna-
son og Jón Kafnsson, lýstu því þá yfir að þeir teldu það skyldu
sína, að halda áfram störfum í því umboði, sem Dagshrúnarfund-
urimi gaf þeim, það gera þeir að sjálfsögðu og er því yfirlýsing
„þjóðstjómarinnar” í Dagsbrún, um að félagið taki ekki þátt í 1.
maí-hátíðahöldum markleysa ein, sömuleiðis yfirlýsing sú, sem lið-
hlaupamir birtu í útvarpinu í fyrrakvöld.
Hér á eftir eru birt öll þau skilríki, sem til eru varðandi þetta
mál, og geta menn af þeim gert sér fullkomna grein fyrir því sem
gerzt hefur.
Eins og Þjóðviljinn hefur áður
skýrt frá, samþykkti Dagsbrúnar-
fundurinn, sem haldinn var síðast-
liðirni þriðjudag þ. 23. þ. m. nær
einróma tillögu frá Jóni Rafnssyni
um einingu verkalýðsihs 1.. maí.
Tillagan var svohljóðandi:
„Fundurinn samþykkir að
Verkamannafélagið Dagsbrún
beiti sér fyrir því að öll stéttar-
félög laUnþega hér í bænum efni
til sameiginlegrar útisamkomu og
hópgöngu 1. maí n.k. Grundvöllur
að samstarfi verklýðsfélaganna
verði samþykktir þær er gerðar
hafa verið í trúnaðarráði og á
þessum fundi í atvinnu- og kaup-
gjaldsmálum, — svo og önnur
hagsmunamál hinna einstöku verk
lýðsfélaga.
Fundurinn ákveður að kjósa 5
manna nefnd til að hafa undirbún-
ing á hendi og snúi hún sér til ann
arra verklýðsfélaga í bænum með
þá málaleitun að þau kjósi nefnd
eða fulltrúa til að starfa með
henni.
Ræðumenn séu valdir af nefnd-
inni þannig, að þeir séu allir með-
limir verkalýðsfélaga og frá sem
flestum verklýðsfélögum, enda sé
tekið tillit til hinna ýmsu pólitísku
skoðana í vali ræðumanna svo að
öllum sé gert sem jafnast undir
höfði”.
Breytingartillaga kom fram um
að kjósa 9 menn í nefndina og
var hún samþykkt.
Þessir hlutu kosningu:
Sigurður Guðnason, Jón Rafns-
son, Edvarð Sigurðsson, Þorlák-
ur Ottsen, Guðmundur O. Guð-
mundsson, Einar Bjömsson, Sig-
urður Halldórsson, Sveinn Sveins-
son, Marteinn Gíslason.
1. Fundargerð nefndar-
innar
Nefndin hélt fyrsta fund sinn
fimmtudaginn 25. þ. m. og var á
þeim fundi bókuð eftirfarandi
fundargerð:
1. fundur í 1 maí-nefnd Dags-
brúnar var haldinn 25. apríl í
skrifstofu félagsins. Sigurður
Guðnason boðaði fundinn. Nefnd-
armenn, sem em 9, voru allir
mættir. Formaður var kosinn Sig-
urður Halldórsson eftir uppá-
stungu Einars Bjömssonar, og
ritari Guðm. Ó. Guðmundss. eftir
uppástungu Sveins Sveinssonar.
Samþykkt var í einu hljóði að
gangast fyrir hópgöngu 1. maí og
bjóða öllum stéttarfélögum
(verkal.) í bænum þátttöku. I
göngunni væru aðeins bornir fán-
ar félaganna og merki dagsins og
þjóðfáninn, en enginn pólitískur
fáni né alrauður fáni. Allsherjar-
nefnd félaganna réðu hvaða ís-
lenzkir söngvar yrðu spilaðir og
sungnir í göngunni og á útifundin-
um. Samþykkt var sem samkomu-
lagsatriði að Intemationale yrði
spilaður einu sinni á göngunni.
Merki dagsins skal ákveðið af
allsherjarnefnd félaganna.. Óskað
verði að félögin tilnefni einn mann
hvért í allsherjarnefnd nema Iðja
3, Framsókn og Sjómannafélagið
5. — Til þess að undirbúa alls-
herjarnefndarfund kaus nefndin
Sigurð Halldórsson, Guðm. Ó.
Guðmundsson og Jón Rafnsson.
Allir ræðumenn sem tala eiga 1.
maí, verða að leggja fram hand-
rite af ræðum sínum fyrir Dags-
brúnarnefndina.
Sig. Halldórsson. Guðm. Ó. Guðm.
Jón Rafnsson, Sveinn Sveinsson,
Eðvarð Sigurðss., Einai- Björnss.,
Þorlákur Ottesen.
Bréfíd fíl verklýðsfé*
laganna
Þegar sama dag var eftirfar-
andi bréf sent til stjóma flestra
verkalýðsfélaga í bænum:
Reykjavík, 25. apríl 1940.
Hér með er félagi yðar boðin
þátttaka í hátíðahöldum þeim, er
Verkamannafél. Dagsbrún hefur
ur ákveðið að gangast fyrir 1. maí
n. k.
tjtifundur og hópganga fara
fram á grundvelli hagsmunakrafna
verkamannafélagsins Dagsbrún og
sérkrafna annarra verklýðsfélaga,
er gerast þátttakendur.
Gengið verður undir merkjum
félaganna og íslenzkum fánum, án
merkja eða fána pólitískra flokka.
Um þetta er fullkomið sam'komu-
lag allra nefndarmanna..
Er félagi yðar, eða stjóm þess,
hér með boðið að senda 1 fulltrúa
á sameiginlegan fund 1. maí-
nefndanna, á skrifstofu Sveina-
sambands byggingamanna Kirkju-
hvoli annað kvöld kl. 8,30, — þar
sem fyrirkomulag verður nánar
rætt og framhaldsákvarðanir
teknar.
Vinnist yður ekki tími til þessa,
er þess fastlega vænzt, að oss
verði tilkynnt strax þegar það
hefur verið gert í sima: 3724.
Með félagskveðju
1. maí-nefnd Dagsbrúnar.
Sig. Halldórsson. Guðm. Ó. Guðm.
Einar Björnsson. Sig. Guðnason.
Sveinn Sveinsson. Þorl. Ottesen.
Eðvarð Sigurðsson.. Mart. Gíslas.
Jón Kafnsson.
Næsti fundur nefndarinnar var
haldinn á föstudagskvöld 26. þ. m.
og voru þar mættir fulltrúar frá
allmörgum félögum auk Dagsbrún
arnefndarinnar.
Niðurstaða þessa fundar var
eftirfarandi tillaga, sem var sam-
þykkt með öllum atkvæðum gegn
einu..
„Fundurinn felur Dagsbrúnar-
nefndinn að ræða við 1. maí-nefnd
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna
um þátttöku þess i hópgöngu
þeirri er 1. maí-nefnd Dagsbrún-
ar hefur boðað til á grundvelli
samkomulags dagsbrúnarnefndar-
innar, og boði til allsherjamefnd-
arfundar aftur næstkomandi
sunnudag til fullnaðarákvörðunar
um fyrirkomulag hátíðahaldanna
hvort sem samkomulag hefur
náðst við fulltrúaráðsnefndina eða
ekki”.
Lokafundur ncfndar-
ínnar
Lokafundur fyrstu mai nefnd-
ar Dagsbrúnar var haldinn sunnu-
daginn 28. þ. m. Á þeim fundi
lagði Guðmundur Ö. Guðmunds-
son fram eftirfarandi tillögu. Sex
af nefndarmönnum féllust á hana:
„Full vissa er nú fyrir því að
eining um sameiginleg hátíðahöld
Vclavídgcrdír
Sauma véla ví ð$erða -
stofan
Pfaffhúsinu, Skólavörðustíg 1,
Sími 3725.
Sauma- og prjónavélaviðgerð-
ir framkvæmdar af einasta
fagmanni landsins, sem stund-
að hefur nám hjá hinum
heimsfrægu Pfaff verksmiðj-
um í Þýzkalandi.
Reynslan er
sannleikur
Beztar viðgerðir á allskonar
skófatnaði. Vönduð vinna. Kétt
verð. Fljót afgreiðsla.
Sækjum. Sendum.
Skóvínnustofan
Njálsgötu 23
Sími 3814.
Jens Sveinsson
Kaupum tómar
flðskw
Flestar tegundir.
Kaffistofan*
Bafnarstræti 16.
T A
T
tGúmmí skógerðíná
VOPNI
Aðalstræti 16.
Síbií 5880
|
| Framkvæmir allar gúmmívið- ♦;
<• gerðir vandaðast og óðvrast.J
T ' ’
T
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, viskípela,
glös og bóndósir. Flöskubáðia
Bergstaðastræti 10. Sími 5395
verkalýðsfélaganna 1. maí getur
ekki orðið á grundvelli þeim er
fullkomið samkomulag náðist um í
1. maí-nefnd Dagsbrúnar af eftir-
töldum ástæðum:
1. Nokkur félög, sem eru með-
limir Alþýðusambands Islands
hafa þegar neitað þátttöku.
Framhaid á 4. siðu
1
hefjast á morgun hl. 1,30
í Lækfargöfu fyrlr framan Mcnnfaskólann
Ad loknum sefníngarædum verður gengíd um baslnn.
Sfaðnasmzf verður affur fyrír franian Mennfaskólann o$ hefsf þar
ntiiundnr með ræðumönnum frá verhalfðsfélögunum
Da$skrá háfídahaldanna auglýsf á mor^un.
4r