Þjóðviljinn - 20.09.1940, Side 4

Þjóðviljinn - 20.09.1940, Side 4
IMÉÐVIUINK Gr bopglnnl NÆTURLÆKNIR í nótt: Daaíel Fjeldsted, Hverfisgötu 46, sími 3272 NÆTURVORÐUR er þessa viku i Lyfjabúðinni Iðttnn og Reykjavík- urapóteki. UTVARPIÐ í DAG: 12,00 Hádegisútvarp. ^ 19.30 Hljómplötur: Tataralög. 19,50 Aaglýsmgar. 20,00 Fréttir. 20.30 Iþróttaþáttur (Pétur Sigurðs son). 20.45 Otvarpstríóijð: Tríö eftir Mózartt, nr. 2, B-dúr. 21,05 Erindi: Bálfarir og jarðarfárir (Bjtírn Olafsson, kaupmaðurr). 21,20 Hljómplötur: Sónata' eftirr Beethoven; Op. 27, nr. 1, Es-dúr. 21.45 Fréttir. TrésnriZafélag Regkjavíkjr heldur fuínd í jkvöld kl. 8,30 í Varðarhús- inu. Skólastjómj:mdi peim, er keunslu- málaráðherra boðaði til (lauk í 'gær. Höfuðafrek • fundarins mun hafa ver- ið að semja ávarp til þjóðarinnar um framkomuna gagnvart Bretum, og verður ávarp þetta prentað og sent inn á hvert heimili. Er veríð að innlima Island ? Framhald af 1. síðu. afskipti þeirra benda ótvírætt i þá átt. Og ekki heyrist að íslenzka ríkisstjórnin láti sig það neinuí skipta. Pá er og vitanlegt að þegar Bret- ar hafa fundið ástæðu til þess að hertaka ísland, þá inunu Banda ríkin ekki síður vilja ráða hvað um Island verður en um önnur yf- irráðasvæði brezks hers, sein gildi geta haft fyrir hernað Bandaríkj- anna. Við Islendingar getum því búizt við þvi að um >oss sé nú samið milli auðjöfranna í London og New York sem værum við þrælar. Ó- hugsandi væri ekki að Bretar seldu hernaðarítök sin hér fyrir gömul herskip, ,eins óg þeir nú hafa gert við eyjar sínar í Kariba- hafi. Og ef Bretland skyldi tapast í hendur þýzka nazismanum, þá yrði Island á einhverjum mesta hættustaðmum sem útvígi fyrir bandalag brezka og Bandaríkjaauð valdsiins í heimsvaldastríði þess við Hitler og KTupp“. Bandaríkín auka sfuðn- ing vid Bretland Stuðningur Bandaríkjanna við Breta fer sívaxandi. Samkvæmt op- inberri brezkri tilkynningu fá Bret ar nú 500 flugvélar á mánuði írá Bandarikjunum, þar á meðal þæi stærstu og fullkomnustu hernaðái flugvélar, sem fraanleiddar erU. þaf í landi. Talið er að flugvélafranv leiðsla Bandaríkjanna fyrir Breta muni enn aukast inikið og geti orð ið um ,1000 flugvélar á (mánuði innan skanuns. Þeir sem hafa keypt enska rafmagnsofna hjá eftirtöldum verzlunum, eru vinsamlega beðnir að koma þeim í verzlanimar til þess að fá þá endurbætta. Raftækjaverzlun Júlíusar Björnssonar — Eiríks Hjartarsonar — Ljósafoss — Lúðviks Guðinundssonar.. Ný íðnaðaf- íymfækí rssa upp í Sovéf- Eístlandí 1 Sovét-Eistlandi er nú verið að koina fótum undir eldspýtnaiðnað. Hafa tvær verksmiðjur hafið fram- leiðsluna og er gert ráð fyrir að þær framleiði um eina milljón eld spýtnastokka á dag. Eidspýtnaiðnaður var í íniklum. blóina í Eistlandi fram til ársins 1932 er stjórnin seldi Kruger-hringn um sænska einkaleyfi á eldspýtna jsölu í Eistlandi. Voru þá allar eist neskar eldspýtnaverksmiðjur, sjö að tölu látnar hætta störfum, en Eis1 lendingar neyddir til að kaupa mun dýrari sænskar eldspýtur. Svívirðíiegf athæfí Framhald af 1. síðu. ins, en hermaðurinn benti að þekn byssu sinni og hurfu þeir þá frá, en kölluðu á Lögregluna, sem kom stúlkunni til hjálpar. Atburður þessi er enn eitt talandi tákn þess, að meðal hinna brezku hermanna eru siðlausir skrælingj- ar, sem ekki ættu að ganga lausir meðal siðaðra manna. íslendingar verða því, konur jafnt sem karlar, að forðast allt samneyti við hina erlendu hermenn, eftir því sem fram ast er hægt, því enginn getur við fyrstu sýn greintt skrælingjana frá hinum siðuðu mönnum. En meðal annarra orða. Hvernig refsa Bretar þeim mönn lum í liði sínu hér, sean gera sig seka um svívirðilegt framferði? Það er engin ástæða til að gleyma þvi að Bretar hafa leyft sér að taka fasta tvo Islendinga, sem lik ur eru tii að hafi brotið íslenzk lög, en hafi ekkert aðhafzt, sem verið gæti Bretum til meins. Þessa menn höfðu þeir í haldi og fluttu þá síðan til Englands. En þegar brezkir hermenn fremja glæpi gagnvart íslendingnm, þá fá- mn við ekki einu sinni að vita hvaða refsingu slíkir nienn sæta. Mikill er réttur smælingjans, und ir hinni brezku vemd. Gerízt áskrífendur að límarífínu Rósínkranz Á Ivarsson Framhald af 3. síðu. bera honum á brýn óhæfni tiL þess starfs, en skoðanir hans munu hafa ráðið, að hann var látiim víkja fyr ir öðrum möimum. Ég hef nú þekkt „Rósa“ utn ald- arfjórðungs skeið og starfað með honum að ýmsum málum, m. a. mörg ár í stjóm Jafnaðartnanna- félagsins (gamla). TeL ég hann ó- hikað meðal hinna beztu og ein- lægustu félaga, sem ég hef kynnst. Áhugi hans er ódrepandi og allra manna er hann vígreifastur, ekki sízt, ef grípa þarf til \fleiri og harðari röksemda, en tungunnar. Mér er minnisstæður „kolagarðsslag urinn“ 1923. Hjö haim þar á báð- ar hendur og var ekki árennilegur verkfallsbrjótum. Hin siðari árin hefur vanheilsa bundið liann meira við landvist en áður, og hefur hann því getað fengizt af alhug við ís- lenzk fræði. Hann hefur safnað kynstrum af þjóðlegum sögnum og mun nú eiga mikið safn þeirra, en ritsnilld hans er nieð afbrigðunif Mest hefur hann þó lagt rækt við ættfræði og er að Iíkindum ineðal lærðustu manna í þeirri grein, en á þeirri starfsgrein hans veit ég ekki jafnvel deili og á mörgum öðrum. Að endingu vil ég óska þess, að Rósinkranz megi um nokkra ára- tugi enn taka virkan og ósveigjan- legan þátt í frelsisbaráttu verka- lýðsins eins og hann hefur ;gert til þessa og að honum auðnist að lifa frjálst Island sósiálismans. Hendrik J. S. Ottóssoru Tvcír vífar faka fíl sfarfa á ný Vitamálastjóri tilkynmr: 1. Radíóvitinn á Dyrliólaey tekur til starfa að nokkru leyti 15. sept. n. k. Ctsendingum verður fyrst um sinn hagað þannig að sent verður ‘aðeins tvisvar á sólarhring, kl. 11,00 og kl. 23,00 eftir ísl. .suinartíma — 10 mínútur í hvort sinn, venju- leg útsending. 2. Á Klofningsvita við Flatey á Breiðafirði logar nú aftur. ,Réttur' Sfmí 2184 Kaupum tómar flösknr Fiestar tegundir. Kaffistofan* Hafnarstræti 16. Kaupum hreínar lóreffsfuskur Víkíngsprenf Hvcrfísg. 4 14 urKafs Skáldsaga ettir Mark Cay wood byrðingurinn á aðra hönd en ýmsar vistarverur á hina. Fyrst sá ég eldhúsið þar sem hinn ófétislegi svertingi stóð við mat reiðsluna og hjá eldhúsinu var dálítill skáli, sem svertinginn svaf í Þá komú tvær litlar káetur og var önnur þeirra fangelsi mitt. Svo kom allt í einu beygja á ganginn og þar þóttist ég strax vita að væri káeta eigandans — hinar breiðu dyr hennar voru beint á móti uppgöngunni. Við héldum áfram, fórum gegnum vélarúmið eftir jámbrú, sem lá yfir það og komum þá beint inn í herbergi Hogans; en úr því lá sérstakur stigi beint upp í glerbyrgi, sem var yfir þvi. Eg ímyndaði mér að vistar- verur skipshafnarinnar væru fyrir framan hina snotru káetu Hogans — en í henni námum við staðar og Hogan sagði: — Fáið þér yður sæti og svoiitla hressingu. Hann beygði sig og opnaði lokið á beddanum og sá ég þar miklar birgðir af allskonar drykkjarföngum. — Nei, helzt ekki svona snemma dags, sagði ég brosandi. — Eins og þér viljið, sagði hann. Eg beið meðan hann hellti brennivíni í glas og hvolfdi því í sig. Síðan gekk hann yfir gólfið, opnaði stóran skáp og benti mér að koma til sín og sagði mér að velja úr fötunum, sem þar voru. Eg gerði svo en sá fljótlega að ekki var úr miklu að velja. því öll fötin voru af honum sjálfum og vaxtarlag okkar var næsta ólíkt. En með þv( að allt var betra en náttfötin varð ég að gera mér þetta að góðu og innan skamms var ég kominn í hvítar buxur, sem voru allt of stórar, dökka peysu, skó og treyju, sem hékk í fellingum utan á mér. Eg leit í spegil sem var á skáphurðinni og mér lá við að skella upp úr þegar ég sá sjálfan mig í hon- um. Það vottaði meira að segja fyrir brosi á smetti Hogans þegar hann leit á mig. En ég var ánægður, því það var þó að nokkru leyti ráðið fram úr fyrstu þörfum mínum. Nú var ég stýrimaður snekkjunnar og í kyrþei gerði ég mér ennþá vonir um að verða aftur kominn til Sidney eftir tvo eða þrjá daga. Og þegar ég leit framan í glottandi snjáldrið á Hogan’ í speglinum skaut þeirri spuniingu upp í huga mér, hvar ég hefði séð hann áður. Eg hætti á að varpa fram þessari spum- ingu: — Eruð þér vissir um að við höfuð ekki einhverntíma hitzt áður skipstjóri? Eitt augnablik horfði hann hvast á mig — hann vissi ekki að ég sá framan í hann i speglinum — og það tillit sannfærði mig enn betur um að ég hafði séð hann áður. þegar ég sneri mér við leit hann beint fram^n í mig og sagði: — Eg held það ekki, hr. Nichol. Áður en ég fékk tíma til að hugsa meira um þetta var tekið í káetuhurðina og svart snjáldrið á Jim kom í gættina og til- kynnti að morgunverðurinn væri tilbúinn. Samkvæmt boði Hogans fór ég aftur inn í salinn með honum þar sem svertinginn var búinn að framreiða bezta morgun- verðinn, sem ég hefi bragðað — bæði á sjó og landi. Vanlíð- anin eftir svæfinguna var nú alveg horfin og hjalpaði ég ósleiti- lega til þess að gera. matnum full skil. Sami svertinginn sem. skömmu áður hafði hótað að berja mig og kallað mig „hvíta þorparann” þjónaði okkur nú með mikillí auðmýkt. Meðan við vorum að borða aflaði ég mér ýmissa upplýsinga og lét aðrar í té, eins og gengur og gerist. Eg fékk að vita að Narcissus væri mótorskip, ganggott og færi mjög vel í sjó, og sömuléiðis að ástæðan fyrir ferð okkar til Paradísareyju væri sú, að við værum með farm þangað — en hver sá farmur var, fékk ég ekki að vita. Þá komst ég lika að því, að ungfrú Mortimer væri mjög auðug og að hún borðaði aldrei í salnum heldur i káetu sinni. — Og svo sagði ég líka frá ýmsu, sem ég hafði annars ætlað að þegja um. — Jæja, hr. Nichol, sagði Hogan þegar við vorum að ljúka við að drekka kaffið. — Eg held að þér vitið nú allt, sem . máli skiptir. En ég vildi gjaman að þér lofuðuð mér því, að viðlögðum drengskap yðar, að þér finnið ekki upp á neinum brellum til þess að reyna að komast til Ástralíu aftur fyrr en við erum búnir að afferma í Kilowa. Eruð þér reiðubúinn tii þess? Eg hugsaði mig um. Mér hafði skjátlazt þegar ég imyndaði mér að þessi maður hefði ekki vitað hve þýðingarlaust skjalið var, sem ég skrifaði undir. Hann hafði ætlað að blekkja mig

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.