Þjóðviljinn - 02.11.1940, Blaðsíða 1
V. ABGANGUB.
LAUGAKDAGUR 2. NÓV. 1940.
250. TÖLUBLAÐ
Efla Enert Cbessei n Stelíi inne ai
mga nm i m nm?
¥ínnuveitendaféla$íd býdur Alþýðusambandínu heíldar-
samnínga. — St. fóhann hefur áður fjáð sí$ fylgjandí
slíhu fyrírkomulagí. — Verkalýðsfélðgin mega undír
engum kríngumsfæðum láfa svípta síg samníngsrétfínum
Iretar reuna il
M liOor frelsis
Sjálfsfæðísleíðtogínn
Nehru fekínn fasfur
Uerftaneie! Sæft-
it MllWl-
Atvinnuleysisskráning stend
ur yfir í dag í Góðtémplara-
húsinu frá kl. 10 um morgun-
inn til kl. 8 að kveldi.
Það er nauðsynlegt að menn
láti skrá sig. Skráningin er
vopn í atvinnuleysisbaráttunni,
sem beitt er gegn verkamönn-
um ef hún er illa sótt og í
þeirra þágu, ef hún er vel sótt.
Allir verkamenn, sem nú eru
atvinnulausir, eiga því að
koma í Góðtemplarahúsið og
láta skrá sig.
Vinnuveitendafélag Islands hefur sent Alþýðusambandi íslands
tilmæli um að þessi tvö sambönd geri með sér allsherjar samninga
um kaup og kjör í landinu frá áramótmn að telja og tryggja þar
með „vinnufrið” eins og það er orðað.
Alþýðusambandið hefur enn ekki svarað, en ekki þarf að efa,
að svar þess verði jákvætt, þar sem forseti þess, Stefán Jóhann
Stefánsson, hefur látið í ljósi, að slíkir samningar væru æskilegir.
Við þetta er það að athuga:
1) að Alþýðusamband íslands getur eins og nú standa sakir
alls ekki talizt fulltrúi verkalýðsfélaganna almennt. Flest hin þrótt-
mestu og öflugustu verklýðsfélög eru nú. utan þess.
2) að flestir þeir menn, sem nú skipa stjórn Alþýðusambands-
ins verða fremur að skoðast fulltrúar atvinnurekenda en verka-
manna, enda nær allir, ef ekki allir, handbendi ríkisstjórnarinnar.
3) að það er hættulegt fyrir verklýðsfélögin að framselja rétt
sinn, til að semja um kaup og kjör, slíka samninga ber þeim að
gera sjálfum, hverju félagi fyrir sig og gefa félögum sínum tæki-
færi til þess að taka afstöðu til þeirra á félagsfundi.
Þjóðviljinn hefur margsinnis
sýnt fram á hvernig atvinnurek-
endur hafa á síðustu árum unnið
að því á skipulagsbundinn hátt að
' ná valdi á verklýðsfélögunum, til
þess að hefta framsókn verkalýðs-
Irui H o legannl lirir ulai Maiod
M 0 kM uar slili
Pad vair Sícfán Einarsson kyndarí scm af komst.
Áreksfurínn gerðísf kl. 6 að morgni og var svo
skarpur að Braga hvolffdí á svípsfundu
Nokkru nánari fregnir hafa nú borizt til Geirs Thorsteinsson-
ar útgerðarmanns um Bragaslysið.
Það var Stefán Einarsson kyndari, sem bjargaðist, en Guð-
mundur Eiúarsson, 1. vélstjóri, sem fórst, — en á því lék eins og
skýrt var frá í gær fyrst vafi, sökuin þess að aðeins föðurnafnið var
símað í fyrsta skeytinu.
Guðmundur Einai’sson vélstjóri átti heima á Bergþórugötu 53.
Hann var fæddur 20. nóvember 1902 og lætur eftir sig konu og 3
börn.
Skýrslur hafa verið teknar áf
skipbi’otsmönnunum þrem og af
tveim skipstjórum á skipum, er
lágu nálægt slysstaðnum og hef-
ur eftirfarandi verið upplýst um
nánari atvik slyssins:
Ásiglingin skeði kl. 6 á mið-
vikudagsmorguninn. Bi-agi ,Iá á
legunni fyrir utan Fleetvvood og
beið eftir því að sæta flóði, til að
komast inn í höfnina. Er því eng-
um vafa bundið að flutningaskip-
ið hefur siglt á Braga.
Áfallið kom stjórnborðsmegin,
nálægt „forvantinum” og hvolfdi
Braga á svipstundu.
Mennirnjr, sem björguðust, eru
væntanlegir heim með Haukanes-
inu, sem líklega fer í dag, ef það
er ekki farið.
Lík skipstjórans, Ingvars Ág-
ústs Bjarnasonar, hefur náðst og
verður líka flutt heim með Hauka
nesinu.
Menntaskólinn var settur í gær
í liátíðas.al Háskólans. Karlakórinn
„Fóstbræður” söng prýðilega og
rektar hélt langa ræðu.
ins til betri kjara. Vinnulöggjöfin
var einn þátturinn í þessari her-
ferð, en áhrifaríkasti þátturinn er
þó að íhaldsmenn hafa gengið í
fullkomið bandalag við leiðtoga
Albýðusambandsins, og þannig
raunverulega fengið í sínar hend-
ur tögl og hagldir í fjölda verk-
lýðsfélaga. Nú þykir íhaldsmönn-
um þeim, sem ráða fyrir Vinnu-
veitendafélaginu, sem tími sé til
kominn, að fára að njóta sigra
sinna, nú ætla þeir að framlengja
þrælalögin með þeim einfalda
hætti að láta sem um samninga sé
að ræða milli þeirra og samtaka
verkalýðsins.
Það ætti að vera óþarft að lýsa
hve fjarri lagi það er að Alþýðu-
sambandið sé fulltrúi verkalýðs-
félaganna. Það telur ekki innan
sinna vébanda félög eins og Dags
brún, Hlíf, Þrótt svo nefnd séu
þrjú hin alira stærstu og þrótt-
mestu meðal íslenzkra verkalýðs-
félaga.
En einhverjir kunna að hugsa
sem svo: Ef allt væri í lagi með
verkalýðssamtökin, þá væru heild-
j ársamningar æskilegir. Það er
því ástæða til að benda á, að jafn-
vel þó til væri samband meðal ís-
lenzkra verkalýðsfélaga, þar sem
þau öll væru sameinuð og öll með r
sama rétti, þá væri það hin mesta
firra að fela slíku sambandi að
gera heildarsamninga. Verkalýðs-
félögin verða að hafa það hugfast,
að þeim ber að leggja alla samn-
iniga um kaup og kjör félaga
sinna, undir atkvæði félagsfund-
ar, verkamenn verða sjálfir að
verða ábyrgir fyrir öllum þeim
samningum, sem þeir eiga við að
búa, en það verða þeir ekki með
því að fela einhverjum sambönd-
um, að gera heildarsamninga við
atvinnurekendur.
Verkalýðsfélögin verða að vera
vel á verði um þetta máL,. Ef þau
eru það ekki geta þeir fyrr en
varir vaknað við þann vonda
draum að þrælsfjöturinn sé aftur
reyrður þeim um fót.
Jawaliarlal Nehru.
Jawaharlal Nehru, hinn heims-
frægi leiðtogi Kongressflokksius
indverska, hefur verið tekinn fast-
ur af brezku yfirvöldunum í borg-
inni Allahabad á Indlandi.
Er honum gefið að sök, að hann
hafi haldið ræðu, þar sem hann
hafi veitzt gegn styrjaldarrekstri
Bretlands, en slíkt er talinn glæp-
ur í Indlandi.
Brezka útvarpið skýrði frá því
í gær, að kauphöllinni í Bombay
Frh. á 4. síðu.
iil Mm oo FIofíoo
Bf&zhav sporengiflugvélair gera árás
á NeapeL — Tyrklandsforseðí ðelur
sambúð Tyrklands og Sovéðríkjanna
baðnandi
I opinberunx ítölskum tilkynningum er því haldið fram, að ftal-
ir hafi sótt talsvert fram í Grikklandi, einkunx á suðurvígstöðvun-
urn til Jannina og í átt til Florinaí norðurhluta landsins. Þó leggja
Italir eixn áherzlu á, að illviðri hamli hernaðaraðgerðum. Undan-
farið hafa gengið áltafar rigningar í Albaixíu og Norður-Grikklandi,
og eru vegirnir, sem ftalir sækjafram eftir, nær ófærir vegna for-
arbleytu.
Grikkir segja að ftölum hafi orðið Iítið ágengt. Á suðurrig-
sþöðvunum hafi áhlaupi, er itölsk skriðdrekasveit gerði, verið
hrundið.
Tvö grísk beitiskip héldu í gær
uppi skothríð á ítalska herinn, er
sækir suður með ströndinni. Stóð
skothríðin í hálfa þriðju klukku-
MaMnnln al
tngaraain Naí
Það slys vildi til niður í Fleet-
wood, er togarinn Maí var þar síð
ast, að matsvéinninn Guðlaugur
Ásgeirsson féll í höfnina þar og
drukknaði. B rst framkvæmdarstjóra
Bæjarútgerðarinnar í Hafnarfirði
skeyti um þetta í Fyrradag.
Guðlaugur lætur eftir sig konu
og fjögur börn í ömegð.
'stund án þess að nokkurt ítalskt
herskip kæmi á vettvang.
italir gerðu enn í 'gær loftárás
á grísku borgina Patras og brúna
yfir Korinþuskurðinn, en varð lít-
ið ágengt að því er fregnir frá
Grikklandi herma. Tóku 25 flug-
vélar þátt í árásinni.
Loftárás var einnig gerð á Pire-
us, hafnarborg Aþenu, í gær, en
tjón varð lítið.
1 brezkum blöðum er lögð á-
herzla á að Itölum hafi mistekizt
„leiftursókn” inn í Grikkland, og
hljóti það að verða þeim til álits-
hnekkis, enda þótt þeir kunni að
neyta ofureflis síðar.. Er talið að
þýzka stjómin sé enn að reyna að
koma því til leiðar, að Grikkir
semji frið við itali á þeim grund-
velli, að þeir gangi að öllium aðal-
kröfum Mussolinis.
Sendiherra Þjóðverja í Ankara,
von P'apen, er nú kominn til Ber-
Framhald é 4. síða.