Alþýðublaðið - 31.08.1921, Side 1
Alþýðublaðið
G-efið út af Alþýðuflokknum^
1921
Járnbrautirnar
í Bandarikjunum.
Hvernig kapitalistar framkvæma
socialismann,
Það hefir oft verið talað um
það af formælendum auðvalds-
skipulagsins, bæði hér og annars-
staðar, að hugmyndir jafnaðar-
manna um almenningsatvinnu-
rekstur eða ríkisrekstur, væru
ekki framkvæmanlegar. t vetur
var Guðmundur á Sandi sendur
upp í ræðustól hér í Reykjavík
með þessa fullyrðingu og hann
'benti á ríkisrekstur járnbrautanna
í Bandaríkjunum, sem sönnun
fyrir sfnu máli.
Guðmundur skýrði að vísu lftið
fyrir mönnum á hvern hátt Banda-
tíkjastjórnin rak járnbrautirnar á
ófriðarárunum. Hefir sennilega
ekki mikið vitað um það, frekar
en um margt annað, sem hann
hefir leyft sér að þvaðra um..
Nú skal sagt frá því í mjög
stuttu máli, hvernig ríkisrekstú
járnbrauta í Bandaríkjunum var
farið. Heimildirnar eru .Udenrigs-
minesteriets Tidsskrift* 1. ágúst
1921, „De amerikanske Jernbanér*
bls. 260.
Járnbrautarnet Bandarfkjanna er
álfka stórt eim og állra annara
landa í heiminum til samans.
Rétt fyrir heimsstyrjöldina voru
allar járnbrautir f landinu í hönd-
um svo sem 100 járnbrautarfélaga.
Fyrstu ófriðarárin héldu þessi fé-
lög áfram að reka járnbrautirnar,
en vorið 1917 lentu Bandarfkin í
ófriðinn og nokkru seinna, 29.
desesnber 1917, tók ríkið að^sér
rekstur þeirra í þeim tilgangi að
sem ailra mest not mættu verða
i.ð þeim til henuðarþaría.
Rekstur járnbrautanna þótti
eklci bera sig vel í höadum rík-
isins; það kom heldur ekki til af
góðu, Vitanlega óx kostnaðurinn
við rekaturinn á árinu 1918, laun
járnbrautarþjónanna hækkuðu um
Miðvikudaginn 31. ágúst.
199 tölubl.
Hús til sölu.
Vegna þess að eg fiyt mig héðan búferlum á næstunni, er húseign
mín á Hverfisgötu 76 B til sölu fyrir mjög lágt verð og borgunar-
skilmálar ágætir. — Eignin verður afhent f ágætu standi, svo vænt-
ánlegur kaupandi þarf ekkert til viðhalds að kosta næstu 4—5 ár. —
Semjið f dag eða á æorgun við ÞÓlfð KfÍGtlllSSO
ca. 50°/o og vinnutíminn var
færður niður í 8 stundir, svo það
varð að fjölga mönnum. Aftur á
móti voru flutningsgjöld hækkuð
um 25 og alt að 40°/o. En oýan
á allan annan kostnað hafði rik■
ið skuldbundið sig til þess að
greiða járnbrautarfélögunum 900
miljónir dollara árlega, eða sem
svaraði gróða þeirra næstu árin
á undan, sem venð hófðu veruleg
gróðaár fyrir félógin.
Árið 1918 hafði ríkið á þenna
hátt 4,9 tniUiarða dollara tekjur
af járnbrautunura en 5,1 milliarða
útgjöld. Tí»pið varð um 200 milj.
doliara á því fyrsta ári. Rfkis
reksturinn héit áfram í 26 mán-
uði og alt tap ríkisins á honum
varð 745 milj. dollara. En það
er ejtirtektavert að 1886 miljónir
dollara borgaði það járnbrautar-
félögumm á þessum tíma, og í 6
mánuði ejtir það, að jélógin tóku
við rekstri járnbrautanna aftur,
hélt það áfram að ala þessi
sníkjudýr.
Af þessu má vel sjá, hvernig
framkvæmdir á socialismanum
verða f höndum kapitalistanna.
Von er að auðvaldssinnarnir ó
skapist yfir því sem kallað er al-
ræði alþýðunnar. Þeir vita að
fyrst þegar það er komið á, má
vænta þess að socialisminn verði
gerður að veruleika. Alla þá
stund, sem aiþýðan leyfir kapital-
istum að fara með völdin, er
þeim það hægðarleikur að féfietta
almenning. Socialisminn verður
aldrei að veruleika f þeirra hönd-
um, hvorki hér á landi né ann-
arsstaðar.
Brunatryggingar
á innbúi og vörum
hvergf ódýrari en hj á
A. V. Tulinius
vátryggingaskrlfstofu
Ei m s kipaf ó lags h ús i nu,
2. hæð.
Alþýðan losnar aldrei úr fjötr-
um auðvaldsins öðruvísi en að
hún sprengi þá sjálf. Fyrsta spor-
ið til þess er að hún nái völdun-
um í hverju landi sem er í sínar
hendur og myndi róttæka jafnað-
armannastjórn, sern ekki þarf að
kaupa sér tilverurétt af auðvald-
inu, með því að veita því hvers-
konar hlunnindi á kostnað verka-
lýðsins. (Frh.)
Spánartolinriiin.
Það má segja að horfur þess
máls fari batnsndi með degi
hverjum.
Það er meðal annars komið all
berlega f Ijós, að krafa Spánverja
um mun hærri fisktoll en verið
hefir, er runnin undan rifjum and-
banninga, en hefir engan almenn-
an stuðning þar heima fyrir, á
Spáni, hvörki hjá þjóð né þingi.
Og enn harla óvíst að hin nýju
tolllög komist þar gegn um þing-
ið. Er mælt að Spánverjar sjálfir