Þjóðviljinn - 07.12.1940, Síða 4
E3SB
Op'boíglimt
Nœturlœknir í nótt: Björgvin
Finnsson, Laufásv. 11, sími 2415.
Nœturvördur er þessa viku í
Ingólfs- og Laugavegsapótekum.
Otvarpid í dag.
12,00 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 1. fl.
19,00 Enskukennsla, 2. fl.
19,25 Hljómplötur: Kórsöngvar.
19.50 Auglýsingar.
20,00 Fréttir.
20.30 Leikrit: „Aldursmunur“,
eftir „Dagfinn bónda“ (Brynj.
Jóhannesson, Ölafía Jónsdóttir).
21,15 Otvarpstríóið: Kaflar úr
„Grand tríó“, Op. 93, eftir
Hummel.
21.30 Upplestur: Kvæði ogkviðl-
ingar eftir Sigurð Jónsson frá
Brún (Sigfús Halldórs frá Höfn
um).
21,40 Danslög.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlok.
Sýning Guðmundar Kristinsson
ar er í húsnæði Þjóðminjasafns-
ins. í gær höfðu sótt hana um
270 manns. Sýningin er opin kl.
2—7 daglega. — Það sem allra
flestir ættu að gera, er að sjá
þessa merkilegu sýningu.
Æ- F- R-
X
SKEMMTIKLOBBUR Æ. F. R.
Skemmtikvöld n. k. sunnudag
á skrifstofu Æ. F. R.
Nánar auglýst á morgun.
Daglega nýsoðin
S VIÐ
Kaffistofan*
Hafnarstræti 16.
GLÍMUFÉLAGIÐ ARMANN
DANSLEIKUB
í Oddfellow-húsinu í kvöld, laugardaginn 7
des., kl, 9(4. — Húsið opnað kl. 9.
DANSAÐ UPPI OG NIÐRI
Aðgöngumiðar seldir í Oddfellow frá kl. 6 í dag.
AÐEINS FYRIR ÍSLENDINGA.
Handknattleíkskeppntn
Basar
Mæðrafélagsins verður á morg
un, sunnudaginn 8. des. kl. 4
e. h. í Hafnarstræti 21, uppi.
Margir eigulegir munir.
BASARNEFNDIN.
Meðal handknattleiksáhuga-
manna var mikil eftírvænting að
sjá hvernig leikar færu hjá
kvennaflokkum Armanns ag K.
Frá Lítháen
Framhald af 1. síðu.
Þegar maöur ber saman
verðlag og vinnulaun frá 15.
júní þ. á. og verðlag og laun
eftir 1. nóv., sést að vinnulaun
in hafa hækkað um 150% en
hækkun á lífsnauðsynjum er
allsstaðar undir 100%. Breyt-
ingar á verölagi og vinnulaun-
um eru því greinilega verka-
mönnum í hag. Þar við bætist
ókeypis læknishjálp, fullkomn
ar þjóðfélagstryggingar verka-
mönnum að kostnaðarlausu,
ókeypis skólaganga barna og
unglinga og útrýming atvinnu
leysisins,
Fyrir árið 1941 hefur verið
gerð mikil áætlun um áfram-
haldandi vöxt atvinnulífs og
menningarframfarir i Sovét-
Litháen.
Það nægir að benda á, að
1941 verða útgjöldin til aukn-
ingar stóriðnaðar 250 milljón-
ir rúblna, en það er fimmföld
sú upphæð, er veitt hefur verið
til þessa undanfarin ár.
Árið 1941 taka til starfa 100
nýir barnaskólar, 66 tækni-
skólar, 71 barnagarðar og 250
sumarheimili barna. Upplög
blaða hækka upp í 900 000 ein-
tök, tvær til þrjár milljónir ein
taka af bókum veröa gefnar
út.
Á sviði heilbrigöismála veit-
ir hið opinbera 25 milljónir
rúblna til byggingar nýrra
sjúkrahúsa.
Og þetta er ekkert hug-
myndaflug, segir Gedwilas að
lokum. Áætlunin hefur verið
gerö með hinni mestu ná-
kvæmni og allsstaðar miðað
við það sem mögulegt er. Og
við munum framkvæma hana
með kommúnistiskum áhuga
og elju .
Hinn 12. janúar næstkom-
andi fer fram kosning í Lithá-
en til Æðstaráðs Sovétríkj-
anna, Við erum staðráönir í
því, að senda á hið sameigin-
lega þing sovétþjóðanna að-
eins hina beztu og traustustu
leiðtoga alþýðunnar til þess að
taka þátt í hinu mikla sköp-
unarverki — framkvæmd kom
múnismans.
y. — Á innimótínu í fyrravetur
urðu Ármannsstúlkurnar nr. 1, en
þá gátu .stúlkurnar úr Vestmanna
eyjum ekki komið.
1 Vestmannaeyjum hefur hand-
knattleikur verið iðkaður meðal
stúlkna um langt skeið, svo bú-
izt var jafnvel við að Ármanns-<
stúlkurnar yrðu að lúta í lægra
haldi. Svo varð þó ekki, því þær
unnu með 13:6.'Hér má þó taka
fram að aðstöðumunur er mikill.
í fyrsta lagi eru K. V. stúlkurnar
óvanar að keppa inni, og þá ekki
sízt í svona stórum sal. Þá eru
þær vanar að keppa með 7 manna
liði, en kepptu nú 6, en einmitt
sú breyting hefur mikla þýðingu
fyrir liðið í skipulagi leiksins, en
þessa aðstöðu hafa Ármenningar
haft til sinna æfinga.
Þar að auki keppa þær í sal,
sem þær eru óvanar og fyrir
ókunnu fólki.
En Ármanns stúlkumar aftur
á móti vanar húsinu og eru
„heima“.
Eftir gangi Ieiksins eru þessi úr-
slit ekkert ósanngjörn. Ármanns-
stúlkurnar léku betur saman, og
höfðu öruggari staðsetningar og
skot.
K. V. stúlkurnar voru hver fyrir
sig ef tíl vill eins sterkar og dug-
legar, en þær vantaði ná-
kvæmari samleik og hraðari stað-
setningar. Markvörðurinn vandaði
ekki útköstin en stóð sig annars
vel. Bakverðirnir, sérstaklega sá
vinstri voru ekki mjög nákvæmir
með köst sín til framherjanna,
þar að auki fylgdu bakverðirnir
ekki nógu skipulega með í leikn-
um, og framherjarnir gerðu sig
seka um að nota þá ekki eins og
skyldi, heldur skutu á markið úr
stöðum sem tilganigslaust var að
skjóta. Auk þess voru skotin ekki
hnitmiðuð, flest of há. Þær unnu
allan tímann af dugnaði og krafti
og létu aldrei bilbug á sér finna.
Fyrri leikurinn þetta kvöld var
milli Hauka í Hafnarfirði og Ár-
manns í karlaflokki, lauk honum
með litlum sigri Hauka 25:24. Ég
varð fyrir dálitlum vonbrigðum
með Hauka, eftir leikinn þeirra
á landsmótinu í fyrra, sem v^ru
voru margfalt betri. Hinsvegar
furðaði mig á þeim tilþrifum sem.
Ármannsflokkurinn sýndi, þegar
miðað er við að þetta er byrj-
endaflokkur og sennilega fyrsti
opinberi leikur hans.
K. V. stúlkurnar keppa aftur
við Ármannss-túlkurnar á mánu-
dagskvöld og verður þá sennilega
7 manna lið sem keppir.
Mr. X.
76
urHafs-
Skáidsaga ettir MarkCaywood
lega um borð í einhverja skútu, áleiðis til Fidji —
eða Samóaeyja. Það var lafhægt fyrir hann að kom-
ast út úr lóninu og halda til Omatu á meðan tundur-
spillirinn var á varöbergi hjá Pardísareyjunni. Fari
hann grábölvaöur, hugsaði ég.
Var mikið benzín í bátnum? spurði ég Virginíu. Okk-
ur þótti báðum vænt um að vera komin um borð í
snekkjuna aftur. Hún hafði farið úr fatagörmunum og
hallaöist afturábak í hægindastólnum, hvítklædd frá
hvirfli til ilja. (Eg mátti ekki til þess hugsa, að slíkum
kvenmanni yrði varpað í fangelsi fyrir vopnasmygl).
Eg hafði náð mér í rakhníf frá Hogan og önnur föt,
svo að ég var ekki eins líkur flakkara eða fjörulalla,
eins og ég hafði verið undanfarna daga.
Það hef ég ekki hugmynd um, svaraði hún, og þaö
rann upp fyrir mér, að það voru engar líkur til þess,
að hún vissi það fremur en ég. Eg stóð á fætur og hróp-
aði spurninguna niður í vélarrúmið. Sandey, sem rnér
hafði enn ekki auðnazt að sjá, hafði klefa aftur í rétt
hjá vélinni. Mér var sagt, að hann kæmi sjaldan undir
bert loft og það var hald manna, að í tómstundum
væri hann að semja bók um bolsévisma).
Viö fylltum geymana, herra, hrópaði hann á móti,
Eg gekk til baka og settist niður.
Þá hefur Hogan komizt undan, tautaði ég.
Heldurðu það?
Eg er hræddur um það. Það er verst, að við getum
ekkert gert í málinu, án þess að lfenda sjálf í klípu.
Svo bezt, að við komumst undan sjálf, sagði Virginía
brosandi.
Eg brosti líka.
Eg hafði alveg gleymt því, mælti ég. Það fer svo vel
um mig hérna hjá þér. Eg þagnaði. Æi, bætti ég við.
Eg vildi, að við gætum alltaf verið hérna, þú og ég.
Hún brosti ástúðlega. Svo varð hún allt í einu alvar-
leg.
Hvenær getum við vogað okkur til Kilowa? spurði
hún með eftirvæntingu. Til þess að vita, hvort við frétt-
um nokkuð af Harry. \
í kvöld, svaraði ég, þegar myrkrið er skollið á. Við
tökum Abel með okkur og göngum eftir fjörunni.
Það veröur gaman, sagði hún þakklát og ég sá að
eftirvæntingin skein úr augunum.
Við þögðum stundarkorn. Hitinn var svo lamandi,
að við gátum varla talað. Ákafi hennar og bjartsýni
snart mig illa, því aö í hvert sinn, er hún minntist á
bróður sinn, datt mér 1 hug ófreskjan á Lonely Atoll
og málmpeningurinn, sem ég varpaði í lónið, Eg þótt-
ist nærri viss um. .. .
Hvernig heldurðu, að okkur takist að komast í burtu?
sagði hún og rauf hugsanir mínar.
Það er nú einmitt það, sem ég er að brjóta heilann
um, skrökvaði ég. Það skyldi ekki undra mig, þótt þeir
væri á sveimi hér úti fyrir í einn eða tvo daga, í þeirri
von að við gerum tilraun til þess aö komast undan
rétt við nefið á þeim.
Nú, og svo?
Við gerum það alls ekki. Við biðum hér í ró og næði
enn um hríð.
Við getum ekki verið hér aö eilifu.
Þeir ekki heldur, svaraði ég. Þeir verða leiðir á bið-
inni og eftir einn eða tvo daga senda þeir bát á hnot-
skóg.
Og þá?
Jæja, ef þeir finna okkur ekki, þá er alft í lagi. Og
ég er ekki svo hræddur um, að þeim takist það. Eg er
miklu hræddari um, að einhver þeirra innfæddu rek-
ist á okkur hér og segi frá því, en það er ómögulegt
að vita óðara en á dettur. Þessir blökkumenn geta legið
í runni eins og þessum þarna í fimm faðma fjarlægð,
án þess að þú hafir hugmynd um. Það getur vel verið,
að þeir gefi okkur gætur nú.