Þjóðviljinn - 12.07.1942, Blaðsíða 2
2
ÞJÖÐVIUJINN
Sunnudagur 12. 'júlí 1942
Konsfanfin Simonoíf
Hreindúrahraðlsstin
cSœjat póstui'Ínn
Konstantin Simonoff er þekktur rússneskur rithöfundur, sem
nú er stríðsfréttaritari á norðurvígstöðvunum.
Eftirfarandi grein hans fjallar um nýja aðferð, sem Rússar
hafa tekið upp í baráttunni við erfiðleika Snœs konungs.
Norðurvígstöðvarnar eru mjög þýðingarmiklar fyrir Sovét-
ríkin, því um Múrmansk og Múrmanskjárnbrautina fer mesti
hlutinn af hergagnasendingum Bandamanna til Sovétríkjanna.
Siðan stríðið hófst hafa Þjóðverjar gert ítrekaðar árásir til þess
að ná Múrmanskjárnbrautinni, en alltaf orðið frá að hverfa.
Hádegi. Klakinn farinn að
klökkna. Lest af hreindýrum fer
yfir hjarnið. Það er „fegurð,
norðursins”, sem þar er á ferð-
inni -— hreindýrahraðlestin —
methafarnir í hraða á þessum
slóðúm.
Hreindýrin eru jafnvíg á að
klífa gaddfreðnar hjarnhengjur
og brjótast gegnum mjúka
mjöllina.
Á sleðunum eru langar þúst-
ur, vafðar inn í sjúkrahúsvoð-
ir. Það eru sœrðir menn dúðað-
ir til þess að verjast kuldanum,
líkt og börn í reifum.
Hin léttstígu hreindýr þjóta
yfir fannbreiðurnar, én öku-
mennirnir sveigja fram hjá mis-
hœðunum til þess að hlífa hin-
um sœrðu mönnum við hnjaski.
Það eru 30 mílur til sjúkra-
hússins. ísilögð vötn og hæðir
skiptast á.
Á slíkum vegi kæmist bifreið
ekki nema fáa metra. Hestur
myndi brjótast áfram 3 mílur.
Maður myndi gefast upp eftir
fi niílna vegalengd. En hreindýrin
fara alla leið til sjúkrahússins á
þrem tímum.
Hugmyndin um flutninga með
hreindýrasleðum kom fyrst til sög
unnar, þegar hin langa vetrarnótt
norðurhjarans hófst á sl. hausti.
jÞá þótti það fífldjörf, jafnvel ó-
framkvæmanleg hugmynd.
Ekki fyrst og fremst vegna
þess að hreindýrin eru sjaldgæf
á þessum slóðum, en hvernig átti
að fara að því að hafa not af
hreindýrum í stríði? Hvernig átti
að yfirstíga þann örðugleika að
klappirnar við norðurströndina
voru gróðurlausar, svo þar fund-
ust jafnvel ekki fjallagrös, sem
eru aðalfæða hreindýranna ? Og
hvernig myndu ökumennimir
reynast — menn af Nenets-, Sam-
cg Komiþjóðflokkum, sem þrátt
fyrir það, að þeir voru góðir
veiði- og skotmenn, höfðu aldrei
kynnst fallbyssueldhríð á ævi
sinni ?
Hvernig myndu þeir bregðast
við í eldlínunni? Myndu þeir stand
ast raun hinnar stöðugu lífs-
hættu? Myndu þeir reynast vaxn-
ir skyldustörfum sínum? Og síð-
Framhald af 3. síðu.
Mýrarljós
Þeir, sem elta mýrarljós, lcnda fyrr en
varir í botnlausum fenjum, þau loga að-
eins þar sem engin rót er undir.
Þjóðstjórnarflokkarnir keppast nú hver
við annan um að bregða upp sem skaer-
ustum mýrarljósum yfir hinum botnlausu
fenjum spillingarinnar, sem þingmenn
þeirra eiga að halda vörð um. Skærast
loga þessi ljós hjá Framsóknarflokknum.
Flokkur þessi lætur nú svo sem hann ætli
að vinna að stórfelldum umbótamálum
fyrir alþýðuna og minna skrif hans helzt
á Tímann frá 1926—1927, rétt fyrir valda-
töku Framsóknarflokksins.
En allt er þetta til þess eins gert að
stöðva flóttann frá íhaldsflokkunum þrem
ur til sósíalista. Talið um umbæturnar er
ekki framkomið vegna áhuga fyrir ,,um-
bótum”, þær ..umbætur” sem gerðar
hafa verið og gerðar kunna að verða, eru
ekki og verða ekki gerðar vegna þeirra,
sem talið er að-eigi að njóta þeirra, heldur
til þess að geta viðhaldið úreltu þjóðfélags
formi, sem veitir einstökum mönnum
tækifæri til að lifa á annarra vinnu.
Látið ekki mýrarljósin glepja ykkur út
í fenjaveitu þjóðstjórnarflokkanna. Gang-
ið í Sameiningarflokk alþýðu — Sósíal-
istaflokkinn.
Tíminn telur Alþýðu-
flokkinn úr sögunni
Jónas Jónsson segir í Tímanum í gær:
..Urslit kosninganna benda til þess, að
innan skamms verði hér aðeins um þrjá
flokka að ræða: Verkamannaflokk, þar
sem nokkrir af leiðtogimum standa beint
undir valdboði útlendra manna og stefna
að upplaurn þjóðfélagsins. Til hinnar
handar verður íhaldsflokkur, cf til vill
með dökkri rönd fésterkra ofbcldismanna.
Mitt á milli þessara fylkinga stendur
Framsóknarflokkurinn. Frelsi og framtíð
þjóðarinnar er ko’min undir því, að hann
haldi fullu hreyfingarfrelsi milli hinna
öfgakenndu nábúa, sem helzt eiga sam-
leið þegar á að byggja einhvern nýjan
ólögulegan skúr út úr stjórnlagabyggingu
landsins'*.
Gamli maðurinn reiknar auðsjáanlcga
mcð því, að Framsóknarflokkurinn og
Sósíalistaflokkurinn skipti Alþýðuflokkn-
um upp á miili sín.
Nakinn
Tíminn skrifar fleira um Alþýðuflokk-
inn, honum er umhugað um að þjóðin
viti, að flokkur sá er nakinn. Meðal ann-
ars segir Tíminn:
..Alþýðublaðið spyr, hvernig í ósköp-
unum fólkið geti fengið af sér að vera
svona slæmt við Alþýðuflokkinn, Hann
hafi þó ekkert til sparað til að ganga í
augu kjósendanna.
• Alþýðublaðið á eftir að gera sér ljóst,
að ,,nýju fötin keisarans” duga honum
ekki. Fólkið sér, að Alþýðuflokkurinn er
,ekki í neinu’ — og treystir honum ekki”.
Sannleikur og „Jónasar-
sannleikur ’
I þessum ummælum Tímans felst bæði
sannleikur og Jónasar-sannleikur. Allt,
sem Jónas segir um Sósíalistaflokkinn er
Jónasarsannleikur, og þarf það mál ekki
frekari skýringar við, en flest það, sem
hann segir um Alþýðuflokkinn er Sann-
leikur, þótt ekki sé það nema hálfur
sannleikur.
Allur sannleikurinn
Ef segja á allan sannleikann um Al-
þýðuflokkinn í stuttu ináli, þá er hann á
þessa leið:
Alþýðuflokkurinn hefur brotið skip sitt
í spón. Skipstjórinn, Stefán Jóhann Stef-
ánsson og fyrsti stýrimaður Jónas Guð-
mundsson hafa lagt fleygið í brotsjóa
þjóðstjórnaríhaldsins og siglt því um ólgu
rastir sundrungarinnar. Slík sigling hlaut
að enda með skipbroti, — og nú er skip-
ið brotið.
Það heimskulegasta, sem skipbrots-
mennirnir gætu gert er að smíða sér nýtt
skip, því skipshöfn og skipstjórn á enga
samleið. Skipstjóranum er bezt að leita
sér skiprúms hjá Hermanni Jónassyni inn-
an um hina ,,glæsilegu” ,,umbótamenn”
Framsóknarflokksins. Skipverjar eiga all-
ir sem einn heima að garði sósíalismans,
þangað eru þeir boðnir og hjartanlega
velkomnir, þar bíður þeirra verk að vinna
við hlið stéttarbræðra og góðra félaga úr
öðrum stéttum, og verkið sem vinna ber
er að skapa þjóðfélag jafnréttis og
bræðralags á íslandi.
Framsóknarmenn þurfa
einnig að hlusta á nokk-
ur sannleiksorð
h ramsóknarflokknum tókst í þessum
kosningum að halda fylgi sínu og vel það.
I^etta á áreiðanlega rætur sínar að rekja
til baráttu hans gegn kjördæmamálinu.
1 sveitunum mun býsna almennt hafa
verið litið svo á, að stjórnarskrárbreyt-
ingin væri ,,dreifbýlinu” fjandsamleg og
því hafa sveitamennirnir talið réttara að
fylkja sér um Framsóknarflokkinn að
þessu sinni. En fjöldinn allur af Fram-
sóknarmönnum hefur kveðið upp dóm
sinn yfir þjóðstjórnarbraski flokksins, og
sá dómur mun koma fram í kosningun-
um í haust. Það mun sýna sig þá, að
sama upplausnin, sem kom fram í ný-
afstöðnum kosningum hjá Alþýðuflokkn-
um og Sjálfstæðisflokknum, er fyrir hendi
í Framsóknarflokknum, og er vissulega
rétt fyrir rótæka Framsóknarmenn að
taka nú þegar saman pönkur sínar og
ganga í Jið með sósíalistum. Það er ekki
betra að vcra með í skipbrotinu í haust.
Þrír flokkar
Þaö er sennilega rétt Kjá Jónasi Jóns-
syni, að vonbráðar vcrði hér aðeins um
þrjá flokka að ræða. Sjálfatæðisflokkinn,
sem verður grimulaus málsvari samkeppn
innar og sundrungarskipulags auðvalds-
ins, Framsóknarflokkur, sem breiðir yfir
sig gagnsæar dulur umbótanna, til að
dytja vopnin, sem- hann hyggst að bcita
til viðhalds þjóðskipulagi eymdarinnar,
sundrungarinnar og spillingarinnar —
Sósíalistaflokkurinn, sem berst ærlega og
Stimson, hermálaráðh. Banda
ríkjanna tilkynnti nýlega að
komið hefði verið á fót flugdeild
sem á að sjá um brottflutning í-
búa frá hérnaðarsvœðum. Mun
deild þessi hafa til umráða flug
vélar, sem útbúnar hafa verið
til sjúkraflutninga.
Flugvélarnar verða útbúnar
fullkomnum tækium til að
hjúkra særðum á ferðalagi, og
er vonazt til þess að mörgum
mannslífum verði bjargað með
því að flytja sjúklinga loftleið-
is og komast þannig hjá erfiði
og hristing, sem fylgj.a flutning
um á landi. Flugvélar, sem geta
lent á litlu svæði munu starfa
við vígstöðvarnar, taka við
sjúkrabörum, flytja særða til
flugvalla, ,þar sem flutninga-
flugvélar taka við þeim og
flytja þá til sjúkrahúss.
*
Mc Sherry herforingi, sá sem
hefur yfirumsjón með mann-
afla Bandaríkjanna sagði í opin
berri rœðu nú í vikunni að 13
millj. og 900 þús. manns muni
vinna í þágu stríðsins 1942. Af
þeim munu 10 millj. og 500 þús.
vinna við hergagnaframleiðslu
og 3 millj. og 400 þús. verða í
herþjónustu árið 1942.
*
Nazistastjórnin er komin í
lclípu vegna tilkynninga sinna um
morðingja Heyderichs. Hinn 3.
maí auglýsti „Berliner Lokalan-
zeiger” mynd af manni mcð fyrir-
sögninni: „Hver þekkir þennan
mann? Ef þér vitið hvar hann er,
þá tilkynnið sakamálalögreglunni
það”.
Hinn 25. júní útncfndu nazist-
ar Josef Valchik, fyrrverandi tékk
neskan hermann, sem morðingja
Hcydcrichs. Sögðust nazistar hafa
íundið hann í kirkju og drepið
hann. Mynd af honum var í dag-
blöðunum í Prag og var það sama
mynd og birt var af hinum dauða
manni í Berlín 3. maí.
Myndin var auðsjáanlega tekin
úr spjaldskrá í Berlín og látin í
dagblöðin í Prag.
*
Sænska blaðið „Dagens Nyhet-
er” segir frá því, að stór sögunar
milla á Jótlandi hafi brunnið til
grunna. Er tjónið áætlað 200.000
danskar krónur.
drengilega fyrir hinni rniklu hugsjón —
stcttlausu, réttlátu þjóðfélagi, þar sem
kreppur og fátækt eiga ekkert friðland.
þjóðin velur milli auðvaldsflokkanna
og Sósíalistaflokksins.
Aðvörnn
fíl farmanna
Kyiisjúkdómalæknir ríkisins hefur vakið at-
hygli á því, að reysnla meðal íslenzkra far-
manna bendi til, að smithætta af sárasótt (sý-
fílis) í brezkum hafnarbæjum sé nú meiri en
dæmi eru til áður, en það er að vísu alkunn-
ugt, að á ófriðartímum eykst hætta þessi stór-
kostlega fyrir aukinn lausungarlifnað og erf-
iðleika á að koma við því heilbrigðiseftirliti,
sehi tíðkast á friðartímum. Fyrir því eru ís-
lenzkir farmenn hérmeð alvarlega varaðir við
þessari auknu hættu. Mega þeir gera ráð fyr-
ir, að vændiskonur hafnarbæjanna séu nálega
undantekningarlaust sjúkar og afskipti af
þeim leiði til sýkingar. Engar varúðarráðstaf-
anir eru öruggar.
Skipstjórar á öllum íslenzkum skipum, er
sigla til útlanda, láta skipshöfnum sínum í té
Leiðbeiningar um kynsjúkdóma, sem gefnar
hafa verið út á vegum heilbrigðisstjórnarinn-.
ar. Eru skipverjar hvattir til að kynna sér þær
Ieiðbeiningar nákvæmlega, áður en þeir
ganga á land í erlendum höfnum.
Landlæknirinn
Reykjavík 10. júlí 1942
Vilmundur Jónsson,
Hvor vínnur?
Framhalds úrslít
íslandsmótið
í kvöld kluhkan 8,30
FRAM—VALUR
keppja í þríðja sínn
Aldrei hefur Islandsmófíð veríd eíns spennandi
Allir úf 6 völll