Þjóðviljinn - 08.09.1942, Blaðsíða 4
■■ Tjarnarbfö ■■
LYDI A
OG BIÐLARNIR FJÓRIR
Aðalhlutverk:
Merle Obcron.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Næturlæknir: Þórarinn Svcins-
son, Ásvallagötu 5, sími 2714.
Nætur\örður er í Ingólfsapó-
teki.
Trúlofun sína opinberuðu síð-
astliðinn laugardag ungfrú Elín-
borg Þórarinsdóttir frá Patreks-
firði og Agnar Einarsson sjómað-
ur, til heimilis á Brávallagötu 4.
Hlutavelta Ármanns. Ármenn-
ingar eldri og yngri, gerum hluta
veltu félagsins sem stærsta og
glæsilegasta. Tekið á móti mun-
um í Körfugerðinni Bankastræti
10, og hjá Þórami Magnússyni,
Grettisgötu 28.
Sfyrjöldín
Framh. af 1. síðu.
yfir 1200 s. 1. 3 vikur á öllum
Rússlandsvígstöðvunum.
Leiðari, sem birtist í Rauðu
Stjörnunni lætur í ljósi traust á
vömum Stalingrad. Bak við Þjóð-
verjana em sviðnar gresjur, en
fyrir framan þá er rauði herinn
sem ver Stalingrad. Ovinimir
þora ekki að hörfa tE baka og
em nú að reyna að finna leið til
Volgu! Fasistamir em enn sterk-
ir við Stalingrad, en hinn mikli
flýtir, sem þeir þykjast nú þurfa
að hafa á hemaðaraðgerðum,
kemur upp um það, að nú taka
þeir á öllu sem þeir geta, og
smala saman hersveitum frá öðr-
um vígstöðvum. Mestu omsturn-
ar hafa verið háðar suður af borg
inni en þar hefur skriðdrekaor-
usta staðið yfir í 4 daga.
Hefur árásum Þjóðverja. verið
bægt frá eftir blóðugustu omstur
stríðsins, en í þessum omstum
var þýzku fótgönguliði hvað eftir
annað teflt fram á móti 'mjög vel
víggirtum rússneskum stöðvum.
Þegar óvinimir komu hófu Rúss-
ar gífurlega skothríð úr þessuin
stöðvum og brytjuðu Þjóðverj-
ana niður.
Omstuvöllurinn var þakinn þús
undum dauðra þýzkra hermanna
og hundruðum af skriðdrekum
og öðrum vélahergögnum, sem
þeir höfðu komið í til árásarinnar.
Á öllum fjallgarðinum, scm er
bak við víglínu Rússa í Kákasus
em Kósakkahersveitir að byggja
upp þéttriðin net af varnarstöðv-
um, í hlíðunum er komið upp vél-
byssuhreiðmm og byssuskyttum,
skotgrafir cru grafnar o. s. . frv.
Kósakkamir undirbúa líká af
mestu snilld vöm fjallaskarð-
anna.
Gullmunir
handunnir — vandaðir
Steinhringar, plötuhringar
o. m. fl.
Trúlofunarhringar
alltaf fyrirligg-jandi.
Aðalbjörn Pétursson,
gullsm., Hverfisgötu 90.
Sími (fyrst um sinn) 4503.
Stjórnarskrárnefnd
skipar fulltrúa frð
Sllum flokkum
Rikisstjórnin lagði i gær
fram eftirfarandi þingsáljykt-
un varðandi skipun stjómar-
skrámef ndar:
,,Alþingi ályktar, að milli-
þinganefnd sú, som kosin var
samkv. þingsályktun 22. maí
1942 til þcss að gera tillögur
um breytingar á stjómskip-
unariögum ríkisins, skuli
halda áfram störfum til und-
irbúnings málum þeim, sem
unnt er að lögfesta með þeim
hætti, er scgir í stjómskipun-
arlagafrumvarpi þvi, scm nú
liggur fyrir Alþingi, svo og
undirbúa aðrar breytingar á
stjórnskipulfaginu, er þurfa
þykir og gera verður á venju-
lcgan hátt. Fjölga skal nefnd-
armönnum svo, að í nefndinni
eigi sæti tveir fulltrúar frá
hverjum þeirra flokka, sem A1
þingi skipa nú, enda verði við
bótarfulltrúarnir tilnefndir þeg
ar í stað af viðkomandi þing-
flokkum, er ekki eiga þar þcg-
ar tvo fulltrúa.
Frð jingi brezku verka-
lýðsfélaganna
Hið árlega þing brezku verka-
lýðsfélaganna hófst í gær í
Blackpool, og sitja þingið um
700 fulltrúar fyrir 514 milljón fé-
lagsbundinna verkamanna. Er
þetta 74. þing brezka verkalýðs-
sambandsins.
Fyrir þinginu liggja mörg þýð
ingarmikil mál er varða verka-
lýðsfélögin og hernaðarfram-
leiðslu Breta. Búizt er við að
rætt verði um Indlandsmálin,
þar sem stjórn verkalýðssam-
bandsins gaf nýlega yfirlýsingu
um þau mál, er orðið hefur um-
deild, en yfirlýsingin var mjög í
anda ríkisstjórnarinnar. Áhrifa-
mikil verkalýðssambönd hafa
lagt fram ályktanir, þar sem
krafizt er nýrra vígstöðva í
haust.
Ályktun liggur fyrir þinginu
um afnám þess ákvæðis sam-
bándslaganna, sem bannar
kommúnistum að eiga sæti í
fulltrúaráðum verkalýðsfélag-
anna.
Þýzka affurhaldið
Framhald af 3. BÍðu.
skipulagið fyrir Þýzkaland og
honum verður að viðhalda hvað
sem það kostar'1. . ..
Baktjaldamönnunum von Pap
cn og Schachts skjátlast illa, ef
þeir lialda að stjóm þýzkra hers-
höfðingja, stríðsiðjuhölda og
landherra takist að blekkja
stjómir Bandamannaríkjanna,
enda þótt hún væri dulbúin
hugtakaskikkju hinnar hefð-
bundnu menningar og stjóm-
mála Evrópu.
Slík stjórn yrði dæmd að verð-
leikum sem flóttaathvarf þjóð-
hrokastefnunnar og valdakröf-
unnar innan Þýzkalands og ut-
an, — sem alvarlegasta tálmun-
in í vegi sannrar nýskipunar f
Evrópu og heiniinum öllum.
Stiórnarskrðrfrumvarpið
Framhald af 1. siðu.
mjög greitt fyrir fullnaðaraf-
greiðslu málsins.
Eins og grcinir í frumvarpinu,
nær þcssi helmild Alþmgi til
handa einvörðungu til þeirra
mála, er um ræðir í þingsályktun
artillögum Alþingis frá 17. maí
1!941, þ. e. a.. s. til þess að setja
lýðveldi í stað konungdæmis og
gera óhjákvœmilegar breytingar
vcgua niðurfalls sambandssátt-
málans milli Islands og Danmerk-
ur, en cngar aðrar breytingar á
stjórnskipunarlögum landsins
hvorki varðandi kjördæmaskipun
né neitt annað, er Alþingi heimilt
að gera án cftirfaraadi þhigrofs
og almcnnra kosninga Lil Alþing-
is.
Ástæða þykir til að taka það
fram, að enda þótt stjórnarskrár-
breyting sú, sem frumvarp þetta
gerir ráð fyrir, taki gildi með
nokkuð óvenjulegum hætti, vegna
hina sérstöku aðstæðna, getur
það að sjálfsögðu ekki gefið neitt
fordæmi um breytingar á etjórn-
arskránni”.
Eins og frajn kemur í þessari
greinargerð eru það ,,ný og ó-
vænt viðhorf”, sem valda því að
ekki hefur verið lagt fyrir þetta
þing, frumvarp að iýðveldisstjórn
arskrá. Pétur Ottesen lýsti því
yfir að þetta ,,óvænta viðhorf”,
væri í því fólgið, að rilri það, sem
hér hefði hervemd með höndum
hefði hlutast til um að tefja stofn
un lýðveldis á Islandi.
Framsóknarmenn höfðu uppi
langar umræður um málið, og
varð ekkert ljóst af þeim um af-
stöðu flokksins til frumvarpsins,
en þeim mun Ijósara hversu djúpt
þessi flokkur er fallin í hyldýpi
loddaraskaparins og ábyrgðarleys
is..
Málið aigreitt trá neðri deild.
Kl. 6>/2 var fyrstu umræðu um
málið lokið í n. d. Stjórnarskrár-
nefnd tók þá málið til meðferðar
og skilaði áliti um kl. 101/2. Var
þá aftur settur fundur í n. d.
Stjómarskrárnefndin hafði
klofnað, fulltrúar Sósíalistaflokks
ins, Alþýðuflokksins og Sjálf-
! stæðisflokksins lögðu til að fmm-
varpið yrði samþykkt óbreytt að
I öðru cn því, að við það bættist
nánari ákvæði um þau atriði, sem
breyta mætti í stjómarskránni
samkv. lieimild þessa frum varps.
Framsóknarmennirnir í nefnd-
inni fýlgdu og þessari breytingu
cn skiluðu annars séráliti þar
sem þeir lýstu yfir að þcir mundu
ckki greiða atkvæði mn málið.
Tvcir fundir voru haldnir í n.
d. um málið og það afgreitt Lil
e. d. um kl. 11 mcð 18 samhljóða
atkv. Franisóknarmcnn sátu hjá.
1'imd.ur í e. d. kl. 10 í dag.
Kl. 10 í dag hcfst fundur í c.
d. og verður frunivarpið þá Lckið
t.li umræðu og væntanlega afgr.
scm lög frá Alþingi í dag.
Mnglausnir í dag.
Þcgar lokið er afgr. stjórnar-
skránnálsins, verður horfið að
þeim .störfum sem ólokin eru í
samemuðu þingi, en það er at-
kvæðagreiðsla um tillögu Fram-
sóknar um. afstöðu til ríkisstjórn-
arinnar og kosningar nokkurra
uefnda. Að þessu búnu verður
vikið að þinglausnum.
cmznxxaaa&wzmzisœmxR&tmsm
g 42. g
D
S
U
U
u
n
n
u
U
U
DREKAKYN
Eftir Pearl Buck
tveggja ára fresti. Eina breytingin sem koma óvinanna
hafði í för með sér fyrir þau var, að þegar skipin fljúgandi
komu, þá yfirgáfu þau akrana og hlupu í felur á milli
bambustrjánna. Því einn daginn hafði eitt skipanna lækk-
að flugið og orðið bónda, sem hafði staðið og virt það
fyrir sér, að bana. Síðan hækkaði það flugið aftur eins
og það væri leikur einn sem það hafði gert.
u
u
n
V.
D
D
u
u
a
u
u
u
u
u
u
u
u
ö
u
ö
u
n
3
D
D
D
D
Þegar allir sáu að þeir gátu átt von á dauða sínum á
hverjum degi nema þá daga sem rigning var, gerðu þeir
sem bjuggu innan borgarmúrana tvennt. Þeir fylltu must-
erin og báðu til guðanna, að þeir létu rigna unz þeir
þorðu ekki að biðja lengur, svo að vatnsflóð yrði ekki,
eða þeir flýðu borgina til að fá inni í iitlum sveitakrám
eða á bóndabæjum eða þeir sváfu undir .trjám.
Aldrei hafði Ling Tan séð jafn aumkunarverða sjón og
nú. Konur og börn og gamalmenni stauluðust áfram með þá
fáu hluti sem þau gátu tekið með sér, því aðeins nokkrir
þeir ríkustu gátu leyft sér að aka í vagni um þessar mund-
ir. Hann hafði séð fólk koma frá Norðurfylkjunum þegar
hungursneyð hafði geysað þar, en það voru fátækir bænd-
ur sem uppskeran hafði brugðizt um stund, en hún brást
þeim ekki á hverju ári og þeir fóru ævinlega aftur til baka.
Nú voru það bæði ríkir og fátækir og þeir vissu ekki
hvenær þeir mundu geta snúið aftur. Stundum kenndi
hann meira í brjósti um þá ríku því þeir voru svo ráða-
lausir og vissu lítið um hvar þeir gátu leitað sér matar.
Allt þeirra líf hafði þeim verið færður matur af öðrum
og þeir voru alltaf vanir að hafa of lítið fyrir sig að leggja.
En þeir sem höfðu hugrekki til að vera um kyrrt í borg-
inni höfðu það bezt, því þeir gátu gengið í hús ríka fólks-
ins og tekið þar það sem þeir vildu.
Fólkið streymdi út úr borginni um sveitirnar. Og við fólks
strauminn úr borginni bættist annar stærri straumur úr D
austri. Því eftir því sem óvinirnir sóttu fram, hörfaði fólk- D
ið undan þeim og myndaði þann mikla straum af fólki
sem streymdi inn í landið til vesturs, án þess að það vissi
hvert það var að fara en bjóst aðeins við dauðanum ef
það hefði verið kyrrt.
í fyrstu hélt Ling Tan húsi sínu opnu fyrir þessu fólki,
og konurnar matreiddu handa því og gáfu því mat. En svo
voru það þeir sem særðir voru og lítil börn sem komust
ekki lengra og urðu því að verða eftir og bíða þess að ein-
Ö
D
D
m
D
D
D
g
D
D
D
D
D
D
U
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
Tllkynnlng
Fundur í Verkamannafélaginu Dagsbrún, 7. septem-
bcr 1L; 42, samþykkti eftirfarandi kauptaxta fyrir verka-
menn, sem vinna hverskonar fagvinnu:
í dagvinnu kr. 2.90 á klst. Eftir-, nætur- og helgi-
dagavinna greiðist með 50 og 100% álagi.
Að öðru leyti fer um kjör og hlunnindi verkamanna,
sem fagvinnu stunda, eftir samningum Verkamanna-
félagsins Dagsbrún við Vinnuveitendafélag íslands,
dags. 24. ágúst 1942. ...
Taxti þessi gildir frá og með 15. september 1942.
Frá og með sama degi er meðlimum Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar óheimilt að vinna að hverskonar
fagvinnu, nema ákvæði taxta þessa séu haldin.
Stjórn Verkamannafélafisins Dagsbrún.
Sbrífstofa
Dagsbrúnar
verður lokuð í dag kl. 1—4 e. h. vegna jarðarfarar.