Þjóðviljinn - 24.12.1942, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 24.12.1942, Blaðsíða 5
ÞJÓÐVILJINN Samvinninneiin vilja samkeppni í verzlun. En samkeppnin á að tryggja lágt vöruverO. KRON hefst handa um nýía afgreíðslulilhögun, sem dregur úr dreifíngarkosfnaðL Sjálfskipti. . • i . Samkeppni milli verzlana er æskileg. Verzlanirnar keppa um að gera kostnað sinn sem minnstan í hlutfalli við söluna. Það á svo að koma neytendum til góða í lægra vöruverði. Þó fær slík samkeppni fyrst fullt gildi, þegar hún fer fram milli einkaverzlana annars vegar og samvinnuverzlana nej^tenda hins vegar. Þá fyrst er tryggt, að sparnaðurinn renni í pyngju neytendanna. Séu einkafyrirtæki ein um $ verzlunina, sýnir reynslan, að þau freistast til að gera með sér verðsamtök. — KRON hefur haft forustu um viðleitni í þá átt að lækka dreifingarkostnað- inn, t. d. með því að koma á pöntunarfyrirkomulaginu, bæta sölubúðirnar þannig, að vinnuafl sparist, og nota ýmis konar áhöld, sem bæði spara vinnu og draga úr vörurýrnun. Nú síðast hefur KRON opnað nýja búð í tilraunaskyni, þar sem ætl- azt er til að viðskiptamennirnir afgreiði sig að mestu leyti sjálfir. Er þá ætlað að spara talsvert mikið launagreiðslur og lækka þannig dreifingarkostnaðinn. Slíkar búðir'eru nú orðnar algengar í Bandaríkjunum, þar sem samkeppni er mjog horð. KRON vill nú æskja samvinnu neytenda í þessu efni, þannig að þeir taki ný- unginni vel. Neytendum er hér með gerður kostur á að efla eigin hag, með því að í sjálfskiptahúðinni eiga þeir aldrei að þurfa að bíða afgreiðslu, og allur sparnaður af þessum nýtízku afgreiðsluháttum rennur til þeirra sjálfra.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.