Þjóðviljinn - 24.12.1942, Qupperneq 5
ÞJÓÐVILJINN
Samvinninneiin vilja samkeppni í verzlun.
En samkeppnin á að tryggja lágt vöruverO.
KRON hefst handa um nýía afgreíðslulilhögun, sem
dregur úr dreifíngarkosfnaðL
Sjálfskipti.
. •
i .
Samkeppni milli verzlana er æskileg. Verzlanirnar keppa um að gera kostnað
sinn sem minnstan í hlutfalli við söluna. Það á svo að koma neytendum til góða í
lægra vöruverði. Þó fær slík samkeppni fyrst fullt gildi, þegar hún fer fram milli
einkaverzlana annars vegar og samvinnuverzlana nej^tenda hins vegar. Þá fyrst er
tryggt, að sparnaðurinn renni í pyngju neytendanna. Séu einkafyrirtæki ein um
$
verzlunina, sýnir reynslan, að þau freistast til að gera með sér verðsamtök. —
KRON hefur haft forustu um viðleitni í þá átt að lækka dreifingarkostnað-
inn, t. d. með því að koma á pöntunarfyrirkomulaginu, bæta sölubúðirnar þannig,
að vinnuafl sparist, og nota ýmis konar áhöld, sem bæði spara vinnu og draga úr
vörurýrnun. Nú síðast hefur KRON opnað nýja búð í tilraunaskyni, þar sem ætl-
azt er til að viðskiptamennirnir afgreiði sig að mestu leyti sjálfir. Er þá ætlað
að spara talsvert mikið launagreiðslur og lækka þannig dreifingarkostnaðinn.
Slíkar búðir'eru nú orðnar algengar í Bandaríkjunum, þar sem samkeppni er
mjog horð.
KRON vill nú æskja samvinnu neytenda í þessu efni, þannig að þeir taki ný-
unginni vel. Neytendum er hér með gerður kostur á að efla eigin hag, með því að
í sjálfskiptahúðinni eiga þeir aldrei að þurfa að bíða afgreiðslu, og allur sparnaður
af þessum nýtízku afgreiðsluháttum rennur til þeirra sjálfra.