Þjóðviljinn - 07.02.1943, Qupperneq 4
Emóðviuinn
Helgidagslæknir: Gunnar Cortes, s
Seljavg 11, sími 5995.
Næturlæknir: Theodór Skúlason,
Vesturvallagötu 6, sími 2621.
Næfeurvörður er í Reykjavikur*
apóteki
Næturlæknir aðfaranótt þriðju-
dags: Úlfar Þórðarson, Sólvallagötu
18, sími 4411.
Næturvaktir á bifreiðastöðvunum
ganga alltaf eftir þessari röð, og að-
eins þær stöðvar sem taldar eru,
taka þátt í þeim:
Bifreiðastöðin — Aðalstöðin
---- — Bifröst
---- — Hekla
---- — B.S.Í. (Bifreiðast.
íslands).
---- — Litlabílastöðin
---- — B.S.R. (Bifreiða-
stöð Reykjavíkur)
Föstud. 5./2. næt-
urvakt.
--- — Geysir. Sunnud.
7./2. næturvakt.
Aðafaranætur all.a almennra frí-
og helgidaga eru allar bifrciðastöðv-
arnar opnar.
Nordmannsiaget, félag Norðmanna
í Reykjavík, heldur fund í Oddfell-
owhúsinu, þriðjudag 9. febr. kl. 9.
Norski blaðafulltrúinn, S. A. Friid,
segir frá nokkrum atriðum úr för-
inni um Noreg frá Osló til Tromsö,
mánuðina tvö sem stríðið í Noregi
stóð yfir.
Stúkan Framtíðin nr. 173 á 25 ára
afmæli fimmtudaginn 11. Jx m. í til-
efni afmælisins heldur stúkan há-
tiðafund annað kvöld. Fundurinn
befst kl. 8 og verður þá nýjum fé-
lögum veitt viðtaka. Að fundinum
loknum verður sýndur sjónleikur-
inn: Syndir annarra eftir Einar H.
Kvaran. Frú Anna Guðmundsdóttir
annast leikstjórn.
Á fimmtudaginn heldur stúkan
samsæti í tilefni afmælisins. Stofn-
endur stúkunnar skipa öll 15 em-
bætti hennar þenna ársfjórðung og
hafa þeir verið kjörnir heiðursfélag-
ar stúkunnar.
Það er mjög áríðandi að félagar og
innsækjendur mæti stundvíslega kl.
8 annað kvöld, húsinu verður lokað
kí. 9.
Stúkufélagar fá ókeypis aðgang
að leiksýningunni.
Gisli Halldórsson vélaverkfræðing
ur auglýsir í blaðinu í dag, að það
hafi ekki verið hann, sem dæmdur
var fyrir að nota rangt starfsheiti.
Útvarpið í dag:
9.45 Tónleikar (plötur): Óperan
„Töfraflautan“ eftir Mozart;
fyrri hluti.
11,00 Messa í Dómkirkjunni (éra
Bjami Jónsson).
15.15—16.35 Miðdegistónleikar (plöt
ur: Óperan „Töfraflautan“ eft
' ir Mozart; síðari hluti.
19.25 Hljómplötur: Forleikir eftir
18.45 Bamatími.
Debussy.
20.20 Einleikur á fiðlu (Þórarinn
Guðmundsson): Vorsónatan
eftir Beethoven.
20.35 Erindi: Tyrkland og Tyrkja-
veldi. (Knútur Arngrímsson
kennari).
21.00 Hljómplötur: Norrænir karla-
kórar.
21.20 D-nshljómsveit Bjarna Böðv-
arssonar leikur og syngur.
Útvarpið á morgun:
20.30 Erindi: Olía, I: Saga olíunnar
(Jón Vestdal efnafræðingur).
21.00 Um daginn og veginn (Árni !
Jónsson frá Múla).
21.20 Útvarpshljómsveitin: Laga- !
syrpa eftir Sveinbjöm Svein- |
bjömsson. — Tvísöngvar (frú
Margrét Finnbogadóttir og frú
Anna Ingvarsdóttir, báðar frá
ísafirði): a) Ó, stæðir þú á
heiði í hríð (Mendelssohn). b)
Vögguvísa (Brahms), c) Over
Bjergets Tinder (Rubinstein).
d) Dul eins og nótt (Karl
Götze). e) Þú sæla heimsins
.. svalalind (Bey)
NÝJA BÍÓ
TSfrar og trúðleikarar.
(Chad Hanna).
HENRY FONDA
LINDA DARNELL
DOROTHY LAMOUR
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
TJARNAEBÍÓ
Ki. 5, 7 og 9:
VERKSTJÓRINN FÓR
TIL FRAKKLANDS
The Foreman went
to France).
TOMMY TRINDER
CONSTANCE CUMMINGS
CLIFFORD EVANS
Mynd frá undanhaldinu f
Frakklandi í júni 1940.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR.
„Dftnsinn í Hruna“
Sýnlng í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag.
Jarðarför
GUÐM. HELGA PÉTURSSONAR
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 9. febr. með
húskveðju á heimili hans, Hringbraut 192, kl. 1 e. h.
Jarðað verður í FossvogskirkjugarðL
Ragnheiður Jónsdóttir, Pétur Hafliðason.
Leiksýning og samsæti í tilefni af
25 ára afmæli st. Framtíðin
Ef til vill finnast fáum það
stórtíðindi, þó stúka eigi 25 ára
afmæli, en til tíðinda má telja
það, er félagarnir sýna þá
tryggð og þrautseigju í starfi,
að á tuttugu og fimm ára afmæl
inu eru stofnfélagar reiðubúnir
að skipa öll embætti stúkunnar,
fimmtán að tölu. Þannig er
þessu háttað með stúkuna Fram
tíðin nr. 173, sem á tuttugu og
fimm ára afmæli 11. þ. m.
í tilefni af þessu afmæli
heldur stúkan hátíðafund
annað kvöld, og að honum lokn-
um verður sýndur sjónleikurinn
„Syndir annarra" eftir Einar H.
Kvaran.
Allir félagar stúkunnar fá ó-
keypis aðgang að leiksýning-
unni, en húsinu verður lokað
kl. 9.
Fundurinn hefst kl. 8, og er
mjög áríðandi að félagar stúk-
unnar mæti stundvíslega, og
einnig umsækjendur, sem
munu verða margir.
Fimmtudaginn 11. þ. m., á hin
um rétta afmælisdegi stúkunn-
ar, efnir hún til samsætis í
Templarahúsinu.
Nordmandslaget í
Reykjavík
Nordmannslaget i Reykjavik
holder möte i Oddfellow tirsdag
den 9. februar klokken 9. Den
norske presseattachéen S. A.
Friid vii fortelle spredte trekk
fra ferden gjennöm Norge frá
Oslo til Tromsö, undir de to
máneder krigen varte i Norge.
Drengur bíður bana
Framhald af 1. síðu.
milli bifreiðarinnar og ljóskers-
staurs.
Bifreiðin ók síðan áfram og
mun bifreiðarstjórinn ekki hafa
orðið drengsins var. Drengurinn
var tafarlaust fluttur á Lands-
spítalann og þar lést hann um
5 mínútum síðar.
Þetta slys gefur tilefni til þess
að minna foreldra og aðra full-
orðna, að brýna það fyrir börn-
- mxxkkkXXKXKXKMMK;
Flokkurinn
>000000
>00000-)
L DEILD
Fundur á morgun á venjulegum
stað og tíma.
Fundarefni:
Ákl Jakobsson, alþingismaðnr:
Utan úr belmi.
Upplestur o. fl.
II. DEILD.
Fundur í II. deild á mánudags-
kvöld bl. 8 H i Nýlendugötu 13.
UI. deild.
Sósialistar á Grimsstaðaholti og i
Skerjaflrði! Deildarfundur annað
kvöld (mánudag) kl. 8V6, að Litlu
Brekku.
X. deild.
Fundur i 10. deild annað kvöld
kl. 8.30 á venjulegum stað.
Leikfélag Réykjavfkur sýnir Dans
inn í Hruna kl. 8 í kvöld.
um og unglingum að iðka ekki
þann hættulega leik, að hanga
aftan í bifreiðum.
DREKAKYN
Eftir Pcarl Buck
Bréfið var vafið inn i vasaklút og þau Ling Tan og kona
hans biðu nokkra daga þangað til þau náðu í einn ferða-
langinn. Hann fór á hverjum degi og hverja nótt til krár-
innar, því að þessir menn ferðuðust einkum að næturlagi
en sváfu á daginn. Á fjórða degi náðu þau í ungan mann, $£
sem bar með sér hvað hann gerði og við hann sagði Ling $$£
Tan lágri röddu: 38$
Viltu taka bréf til sonar míns ef þú ert á leið til landa- •$£
mæranna? j^g
Maðurinn kinnkaði kolli og Ling Tan sagði honum heirn- 38$
ilisfang sitt. Eftir náttmál kom hann, Ling Tan kom með 38$
hann inn og Ling Sao hafði mat til handa honum, og 38$
þau borðuðu saman. Meðan á máltíðinni stóð sagði ungi 38$
maðurinn þeim margt sem þau vissu ekki áður, að í frjálsa 38$
landinu væri voldugur her að skapast, sem mundi stand- 8$$
ast árásir óvinanna, engu síður en múrinn mikli, sem 38$
keisararnir létu byggja á norðurtakmörkum landsins. En 38$
þetta átti að vera veggur úr lifandi holdi, tvö þúsund
mílna langur og margra mílna breiður, sumstaðar tíu míl-
ur en alstaðar ein eða tvær. Og hann sagði þeim að í
frjálsa landinu væru skólar og námur og myllur og verk-
smiðjur, og þó milljónir manna hefðu flúið þangað frá j
Íhéruðunum sem óvinirnir höfðu á valdi sínu, væru menn 2
íkveðnir í að flýja ekki lengra, heldur snúast til varnar. j
Þetta varð Ling Tan góð uppörfun, og þó hvorki hann 2
né Ling Sao langaði til að fara, vegna þess að jörðin þeirra 2
var hér en ekki þar, sagði hann. Ég finn að mér eykst i
kjarkur við þessar fréttir, og þegar sá dagur kemiur að j
herinn sækir fram, verð ég hér fyrir og sonur minn líka j
ef hann kemur og þessi jarðarskiki verður þá enn í okk- j
ar eigu, því við höfum aldrei sleppt honum.
Svo fékk hann unga manninum bréfið og reyndi að j
segja honum hvernig hann gæti þekkt Lao Er ef hann j
sæi hann, en Ling Sao greip fram í: j
Þú þekkir hann ekki eins vel og ég, sagði hún, — því j
ég hef borið hann undir brjósti mér, og hann er með j
fæðingarblett rétt neðan við hægra augað, en svo lítinn j
að ekki ber á nema menn viti af honum, augu hans eru ;
stærri og dekkri en augu annarra karlmanna og breið-
leitur er hann líkt og faðir hans en munnstór er hann
eins og ég. Hann er ekki yfir meðallag á hæð, en hefur
þreklegar herðar og sterklega kálfa. Á annarri stóru tánni
þeirri hægri, er hann með stórt ör, því þegar hann var
tólf ára drengur steig hann á plógblað og ég hélt að hann
hefði skorið af sér tána, en ég batt hana fasta með pjötlu
: sem ég reif úr svuntunni minni, og það spánnýrri svuntu,
! en hvað gerir maður ekki fyrir syni sína? Og hann fékk
kýli á hvirfilinn, og þar varð eftir hárlaus blettm', en
hann greiðir hárið yfir, svo bletturinn sést ekki nema lit-
ið sé eftir honum.
Þegar’hér var komið skellti Ling Tan upp úr og sagði:
Það er naumast þú heldur að hann ætli að leita gaum-
gæfilega að syni okkar, gamla mín! Taktu ekki mark á
henni ungi maður, hún er eins og allar mæður. Synir henn-
ar eru engum mönnum líkir. Þú mátt trúa mér til þess
að hann er ungur maður og sterklegur, nógu laglegur en
ekki um of, ekkert svipað yngsta syni okkar, sem er fríð-
ur eins og stúlka, enda er það jafngott.
Við þetta færðist alvörusvipur yfir andlit Ling Sao og
; ungi maðurinn notaði sér þögnina til að standa upp og
; segja að hann yrði að fara.
I Hvað verður langt þangað til bréfið kemst í hendur son-
; ar míns? spurði Ling Tan.
: Það get ég ekki fullyrt, svaraði ungi maðurinn. Verði
í ég heppinn ætti það ekki að taka nema mánaðartíma. En
; ég er ekki alltaf heppinn.
: Svo kvöddu þau hann og Ling Tan gaf honum dálítið
! af peningum og Ling Sao gaf honum böggul af brauði með
: kjötflögum milli sneiðanna, og þau báðu hann bæði að
: koma við hjá þeim og gista hvenær sem hann væri á ferð-
: inni, og hann þakkaði þeim og fór án þess að segja til
: nafns síns. Þau höfðu ekki spurt hann að heiti, því á slík-
j um tímum er jafngott að vita ekki hvaðmennhétusvohægt
j væri að svara óvinunum með góðri samvizku: Ég veit ekki
j einu sinni hvað hann heitir!
\ Þegar bréfið var farið, var ekki um annað að gera fyrir
Ling Tan og konu hans að bíða, og þetta sumar varð hún
ein að hjálpa honum við útivinnuna. Hrísnum hafði ein-
hvernveginn verið komið í jörðina snemma sumars, og
sprettan var góð, en þau gátu ekki varizt illgresinu eins
og Ling Tan og synir hans höfðu gert árin að undanförnu.