Þjóðviljinn - 23.02.1943, Síða 4
þfÓÐVILJINN
Orborglnnl
Næturlæknir: Halldór Stefánsson,
Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki.
Verkamannafél. Dagsbrún heldur
trúnaðarráðsfund í kvöld kl. 8,30 í
Kaupþingssalnum.
NÝ BÓK:
„Frá diaumum til dáða‘‘
Eftir
Gunnar Benediktsson
Fæst hjá bóksölum og
á afgreiöslu . Þjóóviljans
Vörn Bandamanna í
Túnis harðnandi
Harðir bardagar halda á-
fram í Miö-Túnis og hefur
fasistaherjunum tekizt aö
sækja talsvert fram um helg-
ina, og bæta stööu sína aó
mun. Vörn Bandamanna-
herjanna er harönandi. og
hefur veriö tilkynnt aö vara-
liö hafi veriö sent til vig-
stöðvanna.
Áttundi breski herinn hefur
enn sótt nokkuð fram í Suð-
ur-Túnis.
Rauði herinn.
Framh. af 3. síðu.
sókn frá Krímskaga og hélt
norður í Donetshérað. Her
þessi var ágætlega búinn.
Rauði herinn sneri sér fyrst
að Pólverjum, rak þá til baka
úr Hvítarússlandi og Úkraínu
og nálgaöist aðalborgir þeirra.
Lemberg og Varsjá. En fyrir
afglöp Trotskís í stjórn sókn-
arinnar, var hún að engu
gerð, óvininum gert kleift að
hrekja rauöa herinn afturábak
og þfúnæst saminn friður.
Þá snéru bolsévikkar geiri
sínum aö Vrangel. Þaö var
mjög hörð viðúreign, en þó
varö Vrangel að hröklast aft-
ur til Krímskagans. Á bylting-
arafmælinu 1920 tóku rauðliö-
ar virkin á Perekopeiöinu með
beinu áhlaupi og brutust suð-
ur á skagann. Gag-nbyltingar-
herinn var yfirbugaöur og leif-
ar hans komust undan á skip-
um Bandamanna.
Um veturinn var lagt í her-
för til Suöurkákasus og land-
ið hreinsáó að innrásarmönn- 1
um, hægrikrötum og öðrum
gagnbyltingiarlýð.
Innrás Hvít-Finna í Kyrjála
1921 var fljótlega brotin á
bak aftur. Og hertökulið Iron-
sides haföi áöur orðið að
hröklast frá Múrmansk og
Arkangelsk viö lítinn oröstý.
Þá var aðeins eftdr að
hreinsa Austur-Síberíu að' inn-
rásarlið Japana; fór sú hreins-
NÝJA BÍÓ
(Jtlagarnir frð Dahota
(Badlands og Dakota).
Skemmtileg og spennandi
mynd.
Aðalhlutverkin leika:
Robert Stack,
Ann Rutherford,
Andy Devine.
Bönnuð fyrir börn yngri en
16 ára.
Sýnd kl. 5—7 og 9.
TJAKNAKBtÖ 4f
Lifi ungfrú Bishop
(Cheers for Miss Bishop).
Martha Scott
William Gargan.
Amírískur sjónleikur.
Kl. 5—7—9.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum að
GÍSLÍNA GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
sem andaðist 16. þ. m. vei’ður jarðsungin í Fossvogi miðvikudag
24. þ. m. frá Elliheimilinu „Grund“ kl. 1. e. h.
Aðstandendur.
Jarðarför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður,
BJARNA EINARSSONAR frá Þurá
fer fram frá dómkirkjunni fimmtudaginn 25. þ. m. og hefst með
húskveðju frá heimili okkar, Sólvallagötu 39 kl. 1,30 e. h.
Steinunn Björnsdóttir
Sigrún S. Bjarnadóttir Guðbjörn S. Bjarnason
Ólafur Ilalldórsson Jenny Valdimarsdóttir
Mlnningarathöfn á Alþíngí
Framhald af 1. síðu.
út af Stafnesi. Mikill leki
komin að skipinu. Eina von-
in aó hjálpin komi fljótt“.
Þetta neyöaróp er hiö’ sið-
asta, sem mannlegt eyra hef-
ur heyrt frá þessum stóra
hóp.
Hamfarir náttúruaflanna
hindrúöu alla hjálp.
Enginn er til frásagnar um
þaö, sem síðar geröist. En ó
ræk merki hafa þegar sýnt.
hver afdrifin uröu. Enginn
lýsir þeirri baráttu, sem þar
var háö unz yfir lauk.
Fárviöri, náttmyrkur, stór-
hríö, .hafsjóar og blindsker
Milli lífs og daúöa skilur byrö-
ingurinn einn, og hann lekur
oröinn. Karlmennska og snilli
sjómannanna varð að lúta i |
lægra haldi. Við ofurefli var
að etja.
Sjóslys eru tíð meö oss ís-
lendingum. Vér nefnum sjó-
mennina oft hermenn . þjóö-
arinnar. Þeir e.iga í stríði viö
öfl lofts og lagar. Og meðan
stríð er háð, falla jafnan her-
menn, fleiri eöa færri.
Missir sjómannanna er þjóð-
inni þungbær og ástvinum
þein-a óbætanlegur. Og enrf
þá átakanlegra og óvenju-
legra verður þetta voðaslys
við það, að samtímis biðu
un fram árið 1922. Vár þá
loks svo komið, að Sovétlýð-
veldin höfðu rekið alla óvini
af höndum sér í bili.
Fyrstu krossferö auðvalds-
ins gegn þjóðfélagi bræöra-
lagsins var lokið1 með full-
komnum ósigri.
bana þrefalt fleiri menn og
konur, sem aðeins hugðu til
stuttrar feröar. Hún varö hin
síðasta.
Vér íslendingar erum fá-
menn þjóð. Missir 36 manna
er oss stórfellt áfall, þjóðar-
harmur.
En þó' er sorgin sárust,
missirinn átakanlegastur fyr-
ir vandamenn og ástvini.
Hiniun látnU þökkum vér
líf þeirra og störf.
Þeim sem eftir lifa vottum
vér innilega samúð og hlýj-
ustu hluttekningu.
Ég bið hv. laiþingismenn að
taka undir þessi orð mJn með
því að rísa úr sætum.
Frutnvarp ríkís~
stjórnarínnar
Framhald af 2. síðu.
15. gr.
Skipa skal 5 manna nefnd, er
nefnist kauplagsnefnd landbún-
aðarafurða. Fjórir nefndarmenn
skulu kosnir af Alþingi, en
fimmta manninn skipar ríkis-
stjórn og sé hann formaður
nefndarinnar. Nefndin skal
semja verðlagsskrá yfir frani-
færslu- og framleiðslukostnað
landbúnaðarins og skal hún gera
á þeim grundvelli vísitölu éða
vísitölur, sem fara skal eftir
við ákvörðun verðs ‘landbúnað-
arvara. Þó er ríkisstjórninni
heimilt að ákveða lægra verð
á einstökum vörutegundum
gegn framlagi úr ríkissjóði.
Hafi nefndin eigi lokið þessu
fyrir 1. maí 1943, skal þá og þar
til vísitölugrundvöllur hefur
verið lagður, sú regla gilda, áð
mjólk og mjólkurvörur lækki
um 1% fyrir hvert stig fram-
leiðsluvísitölu undir 230 niður í
200 stig, en 1% fyrir hver 2 stig
þar undir. (
Sama regla gildir um verð-
lækkun á kjöti og kartöflum og
grænmeti eftir 1. sept. 1943
hafi þá eigi verið af nefndinni- ,
ákveðinn grundvöllur fyrir vísi j
tölu landbúnaðarvara.
16. gr.
Um leið og sú verðlækkun
kemur til framkvæmda, sem 1
getur í 14. gr, skal ríkisstjórnin !
gera ráðstafanir til, með fram-
lagi úr ríkissjóði, að verð á dilka
kjöti færist niður í kr. 4,50 hvert
kíló í smásölu og aðrar tegund-
ir kindakjöts eftir því. Enn
fremur, að nýmjólkurverð sé
fært niður í kr. 1,30 hver líter
og aðrar mjólkurafurðir eftir
því. Framlagið úr ríkissjóði til
lækkunar á verði kindakjöts
miðast við þær birgðir, sem eru
í landinu við gildistöku laga
þessara. — Framlagið til lækk-
unar mjólkurverðs falli niður
1. maí 1943.
Meðan sú skerðing á verðlags
uppbót er í gildi, sem getur í 12. 1
gr., skal þess gætt, að hliðstæð I
skerðing vinnulauna við land-
búnað komi fram í verði land-
búnaðarafurða þegar það verður
ákveðið samkvæmt vísitölu.
, VI. kafli.
Niðurlagsákvæði.
17. gr.
Mál út af brotum á lögum
þessum fara að hætti opinberra
mála.
18. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrum-
varp þetta:
Ríkisstjórnin hefur lýst yfir
því, að hún telji það höfuðverk-
efni sitt, að vinna bug á dýrtíð-
inni og stuðla að því að atvinnu
vegunum verði komið á svo heil-
brigðan grundvöll, að fram-
leiðsla útflutningsvara lands-
manna geti haldið áfram sam-
kvæmt því_, sem gildandi samn-
ingar um sölu afurðanna gera
ráð fyrir. Verðbólgan innan-
lands ógnar nú öllu atvinnulífi
þjóðarinnar og er því ljóst, að
vá er fyrir dyrum, ef ekki verða
nú þegar gerðar þær ráðstafanir
sem bægt geta hættunni frá og
undirbúið varanlega lausn þessa
vandamáls.
Með frumvarpi þessu hefur
ríkisstjórnin dregið saman tillög
ur um ráðstafanir, sem hún tel-
ur nauðsynlegar til að þrýsta
niður verðbólgunni og tryggja
rekstur atvinnuveganna fyrst
um sinn. Henni er ljóst, að ekki
verður tryggð framtíðarlausn
þessara vandamála fyrr en jafn-
vægi næst milli vinnulauna og
verðlags innlendra afurða.
í frumvarpinu er gert ráð fyr-
ir því, að sú skipun komist á,
að verð landbúnaðarafurða verði
framvegis ákveðið samkvæmt
sérstakri vísitölu. Þangað til
svo getur orðið, er ákveðið, að
landbúnaðurinn lækki verð á
afúrðum sínum um 10 af hundr
aði. Jafnframt er lækkuð verð-
lagsuppbót á laun eða kaup fyr-
ir hvaða störf sem vera skal,
niður í 80% í stað 100% fram-
færsluvísitölu eins og nú er. Á
þann hátt lækka þeir, sem laun
taka, kröfur sínar í svipuðum
mæli og landbúnaðurinn. Hins-
vegar verður óvenjulegur eign-
arskattur krafinn af þeim, sem
aukið hafa eignir sínar árin 1940
og 1941, og sérstakur skattur
lagður á tekjur ársins 1942 og
tekur sá skattur sérstaklega til
hárra miðlungstekna. Af lægri
tekjunum endurgreiðist skatt-
þegnum fjórðungur skattsins að
ófriðnum loknum.
Á þennan hátt er sett á alla
þegna þjóðfélagsins sú byrði, er
landsmenn verða á sig að taka
til þess að komast út úr því öng-
þveiti, sem verðbólgan hefur
skapað. Sú fórn, sem hér er kraf
izt af öllum stéttum þjóðfélags-
ins, er ekki stór í samanburði
við þær þrengingar, sem þjóðin
yrði að þola, ef verðbólgan héldi
áfram að vaxa þar til allir at-
vinnuvegir landsmanna stöðvuð
ust og framleiðslan félli í rúst,
og innstæður einstaklinga og op-
inberir sjóðir yrðu að engu.
Með þeim aðgerðum, sem frv.
gerir ráð fyrir, mundi verðbólg-
an minnka að mun þegar í stað.
Væri þá um leið snúið við og
inn á rétta braut“.
Stuttur eftirmáli.
Þjóðviljinn lætur á þessu
stigi málsins nægja að segja
frumvarp þetta er bein árás lífs
afkomu allra launþega 1 land-
inu. Með samningi þess hefur
ríkisstjórnin lagst í slóð þeirra
manna, sem settu gengislögin
með tilheyrandi þrælalögum
1939 og þeirra er settu gerðar-
dómslögin, eða þrælalögin síð-
ari 1942. Báðum þessum árásum
hrundu launastéttirnar undir
forustu verkalýðsihs, og vænt-
anlega fer einnig svo með þessa
þriðju herferð.
Yrði frumvarp þetta að lögum
í dag, mundi dýrtíðaruppbót á
allar launagreiðslur verða 129,6
af hundraði í stað 162 eins og nú
er. Tímakaup Dagsbrúnarverka-
1 manna, í dagvinnu, mundi þá
1 lækka úr 5,52 niður í 4,82 kr.
1 eða um 70 aura, en dagkaupið,
1 miðað við 8 tíma vinnu, um 5,60
1 kr. Með 300 vinnudögum á ári
1 nemur þessin launalækkun alls
1680 kr. Auðvitað lækka tekjur
1 af eftirvinnu og næturvinnu að
sama skapi þó tekið sé fullt til-
lit til þeirra verðlækkunar, sem
gert er ráð fyrir á landbúnaðar
afurðum verður mjög tilfinnan-
lega skerðing á lífskjörum allra
launþega.
Ætlast er til að mjólkin lækki
niður í 1,30 kr. 1. eða um 45 aura.
Meðalheimili munu kaupa 3 1.
af mjólk á dag, nemur sparnað-
urinn á þeim lið þá 1,35 kr., kjöt
ið á að lækka niður í 4,50 kg. og
er hátt áætlað að meðalheimili
spari við það 1,50 kr. á dag, en
þessar lækkanir á mjólk og kjöti
borga svo launþegarnir að lang-
mestu leyti sjálfir, því þær eru
að verulegu leyti fengnar með
framlagi úr ríkissjóði.
í sambandi við skattamálin
má geta þess að skattfrelsi vara-
sjóðstillags er afnumið nema
hjá útgerðarfélögum og skattar
þyngdir einkum á miðlungstekj-
um.
Margt er óljóst og tvírætt í
frumvarpi þessu, en væntanlega
upplýsir stjórnin undir umræð-
um hvað fyrir henni vakir.