Þjóðviljinn - 04.03.1943, Side 2

Þjóðviljinn - 04.03.1943, Side 2
2 t> J Ó Ð V 1 L 3 1 N Fimmtudagur 4. marz 1943. Höfum fengið aftur nýreykt hrossakjöt Ennfremur úrvals trippa- og folaldakjöt, nýtt. í heilum og hálfum skrokkum kr. 3,30 pr. kg. Súpukjöt: kr. 4,00 pr. kg. Læri, smábitar í steik, kr. 4,50 pr. kg. Söltum fyrir þá, sem þess óska, en viðkom- andi verður að leggja til ílát undir kjötið. Afar ódýrt: heilir ostar, 30%, ca. 2 kg. stykki á kr. 7,50 pr. stk. 17esfurgöfu 16 (gamla bjöfbúdín). Tjarnargata-Suðurgata Okkur vantar strax krakka til að bera Þjóðviljann. til kaupenda við Tjarnargötu og Suðurgötu. AFGREIÐSLAN, AUSTURSTRÆTI 12. SÍMI 2184. Upptao Opinbert uppboð verður haldið á Laugavegi 158 á; morgun 5. marz kl. 2 e. h. Verða þar seldar úr þ.b. Guðmundar H. Þórðarsonar stórkaupmanns eftirtald- ar vörutegundir og hver í einu númeri: Glervörur, gúmmíhælar, gúmmístrigaskór, sápur og þvottaefni, burstavörur, barnaleikföng, öskubakkar og vaxdúkstöskur. Að því loknu verður selt byggingarefni tilheyr- andi þrotabúinu, bækur, bíladekk og fleira. Listi yfir vörurnar verður til sýnis í skrifstofu lög- manns Arnarhvoli og geta menn fengið að skoða þær eftir samkomulagi. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Lögmaðurinn í Reykjavík. Þjóðviljann vantar sendisvein strax. ■— Upplýsingar í AFGREIÐSLUNNI, AUSTURSTRÆTI 12. SÍMI 2184. cBœjai yósfowi nn Þeir voru sex. Ýmsir Framsóknarmenn hafa lát- ið orð falla um að Þjóðviljinn hafi ekki sagt alveg allan sannleikann þegar hann skýrði frá formannskosn ingu í Framsóknarl’lokknum. Þeir staðfesta raunar að formaðurinn hafi fengið 12 atkvæði, að 15 hafi skilað auðu og að tveir hafi kosið Eystein, en þeir minna á að J. J. hafi aðeins átt 5 samherja á flokksstjórnarfund- inum, og hafi það komið fram í sam- bandi við ýms mál á fundinum. Þeir scm hafi kosið J. J. með glöðu geði, hafi verið 6, hann sjálfur meðtalinn. Aðrir sex hafi kosið hann með ó- lund, og heitið að gera það aldrei framar. Þeir eru kjarkmenn miklir, Fram- sóknarmenn, 6 menn af 29 réðu kosn ingu í formannssæti flokksins, 23 láta sér lynda formann, sem þeir eru að eigin sögn, andvigir og vilja alls ekki hafa í formannssætinu. Tólfta greinin. Herra ritstjóri! Viljið þér birta eftirfarandi hug- leiðingar mínar um tólftu grein dýr- tíðarfrumvarps stjómarinnar o. fl. Eg ætla að þær sýni vel hvernig við verkamenn hugsum um þessi mál. U. It. ,.Frá byrjun næsta mánaðar eftir gildistöku laga þessara skal aðeins greidd dýrtíðaruppbót, er nemur 80 % af verðlagsuppbót samkvæmt framfærsluvísitölu á laun eða kaup fyrir hvaða starf sem vera skal eða annað, sem slík uppbót hefur verið greidd af, og eigi af hærri grunnlaun um en um opinbera starfsmenn seg- ir*>. Brot á þessu ákvæði varða greiðanda sektum." Þannig hljóðar hún, 12. grein dýr- tíðarlaganna, sem eiga að lækka dýr tíðina, verðvernda innstæður spari- fjáreigenda, tryggja afkomu atvinnu veganna, byggja yfir ráðuneytin, hæztarétt o. fl., fagrar byggingar, er standi sem óbrotlegir minnisvarð- ar hinnar margumtöluðu íslenzku dýrtíðar um áramótin 1942—43. Hún er ekki mikil fyrirferðar þessi 12. grein, en með henni þókn- ast .samt ríkisvaldinu að taka af mér og öðrum launþegum ekki hundruð heldur bara þúsundir króna. Nú skal ég færa ykkur heim sann- inn um að hér sé ékki ufn verulega smámuni að ræða. Undanfarna mánuði hef ég gegn- umsneitt unnið á viku hverri 48 kl,- stundir í dagv., 18 stundir í eftir- vinnu og 10 stundir í næturvinnu. Kaup hefur mér verið greitt eftir sementstaxta Dagsbrúnar, eða kr. 7.23 í dagv., 10.86 í eftirv. og 14.46 í næturv. Yfir mánuðinn miðað við 26 virka daga, svo sem venja er, ger- ir þetta eftirfarandi: Samkv. Eftir að febr. vísi- 12. gr. er tölu. í gildi. 208 kl.st. dagv. kr. 1503,84 kr. 1316,64 19 — eftirv. — 206,34 — 180,50 59 — — — 640,74 — 243,67 40 — næturv. — 578,40 — 220,00 Kr., 2929,32 Kr. 1960,81 Svo sem sjá má af framanskráðu, er, að óbreyttum vinnustundafjölda mismunurinn á mánuði kr. 968,51. Mestur er munurinn í tveim síðuslu liðunum. En því hef ég liðað þetta þannig í sundur, að þegar ég hef unnið 19 tíma í eftirvinnu, er ég kominn í hámark grunnlauna þeirra er opinberir embættismenn fá greiddar verðlagsbætur á, eða sem munu veru 650 krónur. Eg fæ því engar verðlags- eða vísitöluuppbæt- ur á 59 tíma í eftirvinnu og 40 tíma í næturvinnu og sama gildir að sjálfsögðu um það sem meira kynni að vera unnið á mánuði. Ef ég nú vinn 11 mánuði yfir ár- ið, þá nemur þetta ekki nema aðeins 10653,61 krónum, og verður það að teljast lagleg launaskerðing á ein- um verkamanni yfir árið. í viðbót við þetta kemur svo skylduspamaður kr. 334,22 og við- reisnarskattur kr. 1002,67, samtals kr. 1336,89. Fyrr má rota en dauðrota, stendur einhversstaðar. Fyrr má líka lækka tekjur manna en um y3 sé. Á með- an dýrtíðin var vaxandi, var ég á- valt látinn borga einstakar vöru- hækkanir einn mánuð áður en ég fékk verðvísitöluhækkun. Nú á að bvrja á því að lækka launin mín um þriðjung til þss að vísitalan geti lækkað. Við skulum nú athuga nánar tvær hliðar á þessu máli. Grunnlaunin kr, 650,00. Ekki veit ég hvernig valdhafinn hugsar sér að framfylgja eftirlitínu á þessu sviði, hvað við kemur verka mönnum og faglærðum, sem vinna óreglulega tímavinnu, jafnvel hér og þar. En sleppum því. Hitt er öll- um hugsandi mönnum ljósl hversu geysilegt óréttlæti hér er á ferðinni. Eftir því sem ég legg á mig meira líkamlegt erfiði, eftir því heimtar ríkisvaldið af mér meiri fórnir í launaskerðingu. Þörf atvinnurekand ans skapar mér í hverju einstöku tilfelli vinnutímann. Oft vinn ég leng ur en mér er ljúft, þó full greiðsla komi að sjálfsögðu i'yrir. Mundi það nú ekki vera talinn skortur á þegn- skap hjá mér, ef ég neitaði að vinna meir en 19 kl.stundir á mánuði í yf- irvinnu? Vill þá ríkisvaldið veita mér fyrirheit um baétur fyrir þá orkueyðslu er ég læt því í té með yfirvinnu minni? Nei, mér mundi verða brigzlað um skort á þegnskap og launin fyrir orkueyðsluna yrðu ekkert öryggi um atvinnu í næstu framtíð og því síð- ur um velfarnað á elliárunum. Sú vinna, sem verkamenn leggja á sig umfram venjulegan vinnudag (8 stundir) með auknu líkamlegu erfiði og oftast við erfiðar aðstæður ættu vissulega, ef réttlæti ríkti, að koma þeim hverjum einstökum til góða þ. e. a. s. að vera skattfrjáls. Auknar tekjur vcrkamanna með þannig auknu líkamlegu erfiði, kulda, vosbúð og ófrelsi eiga ekkert skylt við öruggar tekjur embættis- manna og því síður við stríðsgróða eins og sumir virðast halda. Grunn- launin 650 kr. eiga því alls ekki að koma til greina gagnvart verkamönn um. Enda virðist þessi málsgrein 12. gr. vera hrapallega mishugsuð af ekki þö óskynsamari mönnum en hér eiga hlut að máli. Dýrtíðarvísitalan. Að lokum nokkur orð um vísitöl- una margnefndu. Við verkamenn höldum því af- dráttarlaust fram að vísitalan sé röng. Dagleg eyðsla og verð fjöl- margra nauðsynja virðist sanna okk ar mál. Þssvegna segjum við stutt en laggott. Fyrsta skilyrði þess, að við tökum þátt í að rétta við það öngþveiti fjármálanna, sem einstak- ir sérgæðingar og fjárplógsmenn yf- irstéttarinnar eru búnir að skapa, er að vísitalan verði vandlega endur- skoðuð og að alþýðan fái að liafa þar fulltrúa við. Lausn dýrtíðarvandamálanna fæst ekki með nýju og margendurteknu óréttlæti gagnvart vinnandi alþýðu. Það þarf víðsýni og réttlæti til og umfram allt samvinnu við alþýðuna og samtök hennar til. þess að varan- lcg sé og að gagni komi alþjóð. U. It. Réttur Munið að koma og greiða skuld yðar við Rctt á algreiðslu Þjóðviljans, Austurstræti 12. arj- (*) Leturþreytingin er mín. U. R.) Karlakórinn KÁTIR FÉLAGAR. Söngstjóri: Hallur Þorleifsson. Endurtekur SAMS0NG smn í Gamla Bíó sunnudaginn 7. marz kl. 1.30. Einsöngvarar: Ágúst Bjarnason, Ólafur Friðriksson og Gísli Kjærnested. Við hljóðfærið: Frk. Guðrún Þorsteinsdóttir. Aðgöngumiðar seldir í dag, föstudag og laugardag í Bókaverzl. Sigfúsar Eymundssonar og Iiljóðfæraverzl. Sigríðar Helgadóttur. .!. ti Vegna óviðráðanlegra ástæðna erum vér neyddir til, um óákveðinn tíma, að haga férðum í Skerjafjörð sem hér segir: Á heila tímanum: ekið eins og venjulega Á hálfa tímanum: ekið að Þorragötu og þar snúið við. Dragið ekki að kanpa happdrættismiða. Happdpætiid

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.