Þjóðviljinn - 09.03.1943, Blaðsíða 1
8. árgangur.
Þriðjudagur 9. marz 1943.
54. tölublað
[100 ára minning
endurreisnar Aiþingis
Útffáfa sögu Alþingís
samþykfaf
100 ára minning endur-
rcisnar Alþingis var lialdin í
sameinuðu þingi í gær.
Haraidur Guðmundsson.
íorseti sameinaðs þings flutti
skörulega ræðu, sem var út-
varpað.
Var síðan samþykkt þings-
ályktunartillaga sú, sem frá
var skýrt í sunnudagsblaðinu,
um útgáfu á sögu Alþingis.
„Til að afstýra þriðju
heimsstyrjöldinni"
Wallace, varajorseti Banda-
ríkjanna, hélt rœðu í gœr og
lagði þunga áherzlu á að vest-
rænu lýðrœðisríkin kœmu á ná-
inni og heilbrigðri samvinnu
við Sovétríkin, „til að afstýra
þriöju heimsstyrjöldinni“, eins
og hann orðaði það.
Rússar tóku í gær bæínnlSífsevka, míðja
t&Ummá i _ ________
vegu milli Rseff ogVjasma
Sóknín nordvestur af Kúrsk heldur áfram
Rauði herinn heldur áfram öflugri sókn á miðvíg-
stövunum, og tók í gær bæinn Sitsevka eftir harða bar-
daga. Þjóðverjar léku hér sama leikinn og við Rseff,
tilkynntu nokkrum klukkustundum áður en Rússar
birtu tilkynningu sína, að þýski herinn hefði „yfirgefið
Sitsevka samkvæmt áætlun“.
Bær þessi er á járnbrautinni milli Rseff og Vjasma,
nær miðja vegu milli borganna, og er taka hans svo
mikilvægur áfangi í sókn rauða hersins til Vjasma, að
ekki er trúlegt að Þjóðverjar hafi yfirgefið bæinn fyrr
en þeir máttu til.
Sókn rauða hersins á þessum
hluta vígstöðvanna er mjög hröð
enda þótt Þjóðverjar verjist
harðlega, hafa t. d. mjög beitt
flughei'num í varnarskyni síð-
ustu dagana.
Paul Winterton, Moskvafrétta
ritari brezka útvarpsins, segir að
það sé til marks um hina hröðu
sókn Rússa, að þeir hafi á tveim
ur sólarhringum náð á vald sitt
220 þorpum og bæjum fyrir vest
an og norðvestan Gatsk síðustu
tvo sólarhringana.
Ljðsmerki frá brezkum tog-
ara verður fslending að bana
Slysíd vard í Ausfursfræfí á
sunnudagskvöldíd
Um klukkan 8 í fyrrakvöld féll hylki af merkjaljósi
(signalflare) niður í Austurstræti, sprakk þar og slas-
aði mann, sem var á ferð þar sem það kom niður, svo
mjög að hann lézt á sjúkrahúsi í gærmorgun.
Maður þe^si hét Ásmundur Elíasson, skipverji á
Dettifossi. Hann var ættaður úr Mjóafirði, 38 ára,
kvæntur og átti tvö böm.
Ljósamerki þessu var skotið af brezkum togara. Hylk
ið mun hafa verið um 25 cm. langt. Þar sem það kom
niður braut það skarð í gangstéttina og fór brot úr því
gegnum sýningarglugga skammt frá.
Brezki sendifulltrúinn hér gékk í gærmorgun á fund
utanríkismálaráðherra og lét í ljós samhryggð sína og
brezka flotaforingjans út af atburði þessum.
Fulltrúi sakadómara skýrði
blaðinu svo frá:
Laust eftir kl. 8 á 'sunnudag
kom maður á lögreglustöðina og
tilkynnti að hann hefði heyrt
skothvell og séð um leið mann
falla í götuna í Austurstræti
milli Bókaverzlunar ísafoldar og
verzlunarinnar Havana. Þegar
lögregluþjónn kom á vettvang
var búið að flytja mann þann,
sem fyrir slysinu varð, á Landa
kotsspítalann, og töldu sjónar-
vottar að hann hefði slasazt
mikið. Hylki fannst á Austur-
stræti, og tóku erlendir sérfræð-
ingar það til rannsóknar. Maður
inn, sem fyrir slysinu varð hét
Ásmundur Elíasson.
Kunningi Ásmundar segir svo
frá, að þeir hafi gengið austur
Austurstræti á þessum tíma, og
gengið eftir götunni við gang-
stéttina sunnan megin götunnar
og gekk Ásmundur nær gang-
stéttinni. Þegar þeir voru komn-
A Sievsksvæðinu, norðvest-
ur af Kúrsk, hefur rauði her-
inn einnig sótt fram, síðustu
dægrin og nálgast járnbraut-
ina milli Brjansk og Kieff.
Romtnel hrabínn
fíl fyrrí stödva
Her Rommels hefur verið
hrakinn til sinna fyrri stöðva í
Marethvarnarlínunni, að því, er
segir í fregn frá aðalstöðvum
Eisenhowers í gærkvöld.
Misstu fasistar 33 skriðdreka
í 6 misheppnuðum árásum.
Aðalfundur Rithöf-
undafélagsins
Aðalfundur Rithöfundafélags
ins var haldinn í gær.
Friðrik Á. Brekkan, sem ver-
ið hefur formaður félagsins und-
anfarið, baðst undan kosningu
sem formaður, Sigurður prófess-
or Nordal baðst einnig undan
endurkosningu og var Halldór
Stefánsson kosinn í hans stað.
Að öðru leyti var stjórnin endur
kosin og er hún þannig skipuð:
Formaður: Magnús Ásgeirs-
son, ritari: Sigurður Helgason,
gjaldkeri: Halldór Stefánsson,
meðstjórnendur: Halldór Kiljan
Laxness og Friðrik Á. Brekkan.
Þá voru kosnir í fulltrúaráð
Bandalags ísl. listamanna þeir
Sigurður Nordal, Halldór Kiljan
Laxness, Tómas Guðmundsson,
Ólafur Jóh. Sigurðsson og Magn-
ús Ásgeirsson.
ir móts við Bókaverzlun ísafold-
ar heyrði hann hvella spi'eng-
ingu rétt hjá sér. Jafnframt gaus
upp reykur í kringum hann og
var greinileg púðurlykt af reykn
um. For af götunni slettist fram-
Framhald á 4. síðu.
Visír í ývcst-
rænni# sófen
Öll íslenzku blöðin hafa
gagnrýnt samninga þá, sem
ríkisútvarpið og ríkisstjórn-
in gerði við Bandaríkja-
menn um afnot af ríkisút-
varpinu.
Coca-colablaöiö, gefið út
í Reykjavík, hefur eitt allra
ReykjavíkurblaÖanna tekiö
afstööu með þessum samn-
ingi og talið þaö vott um
bolsévisma, að vilja ekki
þýðast slíkar aðgerðir.
Skoðar Vísir sig sem full-
trúa fleiri amerískra hags-
muna en Coca-colahrings-
ins?
Bækur Máls
og menníngo
ar 1943
í nýútkomnu hefti tímarits
Máls og menningar gerir ritstjór
inn og hinn athfnamikli for-
stöðumaður félagsins, Kristinn
Andrésson grein fyrir fyrirhug-
aðri útgáfu þessa árs.
Fyrst-eiga félagsmenn í vænd-
um að fá fyrra bindi af Mann-
kynssögu eftir Ásgeir Hjartar-
son, mikla bók, tæpar 300 bls.
að stærð. Er hún nú í prentun.
Þá kemur út fyrri helmingur
hinnar frægu skádsögu Stein-
becks: Drúfur reiðinnar (Grapes
of wrath) í þýðingu Stefáns
Bjarmans á Akureyri.
Auk þessara bóka fá félags-
menn svo hið vinsæla tímarit,
sem er orðið um 20 arka bók á
ári. Og ef fjárhagurinn verður
góður, segir Kristinn, getum við
gefið út ein bók til!
Þrátt fyrir þessa miklu útgáfu
hefur stjórn Máls og menningar
séð sér fært að hafa árgjaldið
aðeins 25 krónur.
Loks ætlar Mál og menning að
ráðast fþá nýbreytni að gefa út,
Framhald á 4. síðu.
Ármenningur í háu stökki.
Fyrsta íþróttakviktnynd gerð hér á [landi
Glímufélagið Ármann bauð blaðamönnum s. 1. sunnu
dag, að sjá kvikmynd, sem félagið hefur látið gera af
íþróttastarfsemi sinni.
Mynd þessi, en nokkrir hlutar hennar eru teknir í
eðlilegum litum, er hin prýðilegasta og er merkilegur
viðburður í íþróttalífi bæjarins.
Mynd þessi er þáttur í stórri
kvikmynd, sem Ármann hefur
í hyggju aö láta gera af allri
íþróttastarfsemi sinni. Vegna
ófriöarins hefur oröið nokkur
töf á töku allrar myndarinn-
ar.
Helztu kaflar myndarinnar
sýna leikfimi, sund og glímu.
Fyrsti kafli sýnir allskonar
þjálfunar og lið'kunaræfingar,
karla og kvenna. Er sá kafli
tekinn á venjulega filmu og
kvikmyndáöur í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar.
Annar kafli myndarinniar
sýnir vandasamari æfingar,
stílæfingar og jafnvægisæf-
ingar karla og kvenna, ásamt
stökkum karlia á dýnu og viö
áhöld. Er sá kafli tekinn í
eölilegum litum og kvikmynd-
Framh. á 4. síðu.