Þjóðviljinn - 12.03.1943, Qupperneq 1
8. árgangur.
Föstudagur 12. marz 1943.
57. tölublað.
eaOiiaof uifl i m. í nesri deiið
Loffvarnabyrgí og luxusíbúd Hríflu-Jónasar bjargaðí
síóribúðaeígendum bæjanna frá þvi að verða að sbjófa
sbjólshúsí yfír hína sem ekkerf þak hafa yfír hðfuð síff
Á fundi efri deildar í gær var lokið annari umræðu
um frv. ríkisstjórnarinnar um húsaleigu. Hafði mikið
verið deilt um frumvarpið, og margar breytingartillög-
ur fram komnar. Þýðingarmesta atriðið, sem deilt var
um — og um leið þýðingarmesta atriði frumvarpsins
— var það, hvort leyfa skyldi að taka af óþarflega stóru
íbúðarhúsnæði manna, og láta í té fólki, sem húsnæðis-
laust væri. Hafði bæjarstjóm Reykjavíkur m. a. gert
kröfu til Alþingis um að slíkt væri tekið í lög, enda
hvorki hægt, né nokkurt vit í, að afla liúsnæðislausu
fólki viðunandi húsnæðis með öðrum hætti, eins og sak-
ir standa.
Akvæöin um þetta fólust í
2. og 3. málsgrein 5. greinar
írumvarpsins og voru þannig:
„Bæjar- og sveitarstjórn get-
ur, þegar alveg feérstaklega
stendur á, ákveðiö aö taka til
ráöstöfunar handa húsvilltu
íólki tiltekna hluta af íbúö-
arhúsnæöi, sem afnotahafi
getur, aö mati húsaleigu-
nefndar, án verið og unnt er
að skipta úr, Veita skal ai'-
notahafa íbúöar minnst 3 daga
irest áður en fólki er ráðstaf-
að í hluta ai íbúð hans, til að
ráöstafa því sjálfur til innan-
héraösmanna, er hann kýs,
og heíur húsaleigunefnd þá
sams konar ráðstöfunarrétt á
því húsnæði, sem þannig losn-
ar.
Húsaleigunefnd annast fram
kvæmd þessara mála eftir fyr-
irmælum hlutaöcigandi bæjar-
og sveitarstjórnar. Bæjar- og
sveitarstjórnir geta, ef þörf
þykir, og í samráði við húsa-
leigunefnd, sett reglugerð, er
félagsmálaráðherra staöfestir,
um framkvæmd þeirra mála,
cr um gctur í þessari grein.
1 reglugerð skal méöal ann-
ars tilgreina liámark þess
húsnæðis, sem fjölskylda má
nota, án þess aö taka megi
hluta þess. Nú er tekinn hluti
af íbúöarhúsnæði og afnota-
liafi telur rétti sínum hallaö,
getur liann þá skotið máli sínu
til bæjar- eða sveitarstjórnar,
sem leggur fullnaðarúrslturö
á deiluatriöi“.
Bjarni Benediktsson, borg-
arstjóri, fylgdi ekki samþykkt
bæjarstjórnar Reykjavíkur, um
þetta efni, íastara fram en
svo, aö hann Jagði til, aö 3.
jmálsgrein félli alveg niöur,
og 2. málsgrein einnig breytt
þannig, aö al'skipti bæjar-
stjórna yröu sem minnst af
málinu, en húsaleigunefnd
skyldi þó, að fengnu sanip.
félagsmálaráðherra, geta tek
ið af íbúðum manna.
En þá kom Hriflu-Jónas til
bjargar — minnugur þess, að
hann sjálfur ætti einka loft-
varnabyrgi, auk óhæfilega
stórrar íbúðar, sem hann not-
aði — og lagði til, að báðar
málsgreinarnar yrðu felldar
niður. Og fulltrúar Sjálfstæö-
isflokksins, sem segjast vera
fulltrúar allra stétta, reynd-
ust sem vænta mátti vera
fulltrúar lúxusvillueigend-
anna gegn fjölda fólks, sem
ekkert þak hefur yfir höfuð
sér.
Tillaga Jónasar, um aö fella
úr frumvarpinu þessar tvær
málsgreinar, kjarna frum-
varpsins, var því samþykkt
með 9 atkv. gegn 6, að við-
höföu nafnakalli.
Þessir voru með tillögunni:
Bernh, Stefánsson, Eiríkur
Einarsson, Gísli Jónsson, Ingv-
ar Pálmason, Jónas Jónsson.
Lárus Jóhannesson, Magnús
Jónsson, Pétur Magnússon og
Þorsteinn Þorsteinsson.
A móti tillögunni voru:
Brynjólfur Bjarnason,
Guöm. I. Guðmundsson, Har-
Framhald á 4. síðu
Sovéísöf nunín;
Yfir 10 þðs. kr. hafa
safnazt á Akureyri
Yfir 10 þúsund krónur hafa
nú safnast á Akureyri fyrir
Rauða kross Sovétríkjanna.
Verklýösfélag Svalbarðs-
strandarhrepps hefur safn-
að 5g0 kr. — Verklýðsfélag
Svalbarösstrandarhrepps er
fámennt félag, sem var
stofnað á síöastl. hausti.
Söfnunin á Akureyri
heldur áfram af fullum
krafti.
Kviknar í geymslu Rauða krossins
Tjóníd áæílad um 30 þúsund kr,
Eldur kom I fyrra kvöld upp í geymsluskúr við Aust-
urbæjarskólann, þar sem Rauði kross íslands geymdi
allmikið af hjúkrunarvörum.
Slökkviliðið var kvatt á vettvang kl. 22,15 og logaði
þá út um gluggana. Var slökkviliðið allt til miðnættis
að ráða niðurlögum eldsins.
Geymsluskúr þessi var helm-
ingur leikskýlanna, en eins og
sjálfsagt margir muna voru
þessi leikskýli tekin til geymslu
fyrir hjúkrunarvörur, sem Rauði
krossinn ameríski gaf hingað til
landsins á s. 1. vori.
Skýlið var hitað upp með raf-
magnsmiðstöðvarhitun, til þess
að verja vörurnar skemmdum,
og er talið líklegt að kviknað
hafi í út frá rafmagni.
Þarna voru aðalega geymdar
voðir, rúmstæði og dýnur. Veru-
legar skemmdir urðu ekki nema
á eitthvað á annað hundrað dýn-
um, sem brunnu eða skemmdust.
Eru þær taldar um 200 kr. virði
hver.
Allar vörurnar voru óvá-
tryggðar.
Villa Jónasar frá Hriflu.
Loltsókn Breta i
febrúar og matz
Archibald Sinclair, flug-
málaráöherra Breta, skýröi svo
frá í gær aö breskar sprengju-
flugvélar hafi varpað 10 þús-
und smálestum af sprengjum
á meginlandsstöðvar fasista í
febrúar og 4000 smálestum
fyrstu 10 dagana í marz.
Mosquitoflugvélarnar brezku eru taldar einhverjar hraðfleyg-
ustu flugvélar í heimi. — Hér sjást tvær þeirra á flugi ofan við
skýjaþykkni.
Nýlega gerðu Mosquitoflugvélar árás á Molybden-námurnar í
Knaben í Noregi og ollu þar miklu tjóni. Allar flugvélarnar
skiluðu sér heilar heim aftur.
200 þúsund manna þýzkur her og öflugar
skriOdrekasveitir sækja að Karkoff
Rauðí herínn sœkir að Vjasma úr þremur áttum og
er austanherínn 15 km. frá borgínní
Stórorustur eru háðar suðvestur af Karkoff að því er segir í
Moskvafregnum seint í gærkvöld. Á sovétherinn þar í höggi við
mikið ofurefli liðs og hergagna.
Er talið að þýzka herstjómin tefli fram 200 þúsund manna
her á tiltölulega litlu svæði Karkoffvigstöðvanna, og virðist
hvorki spara menn né hergögn til að brjótast fram til borgar-
innar.
Rauði herinn sækir að Vjasma úr þremur áttum, — norðan,
austan og suðaustan, og segja fréttaritarar að orustan um borg-
ina sé hafin. í gær var herinn aðeins 15, km. frá borginni. Norð-
vestur af Vjasma tók rauði herinn í gær jámbrautarbæinn
Andrejevskaja.
Suður af Ilmenvatni hefur
rauði herinn tekið nokkur þorp,
og heldur áfram sóknaraðgerð-
um.
Tilkynnt var í Moskva í gær,
að þýzkár flugvélar noti nú
mjög finnskar flughafnir til
flugárása á Leníngrad.
Á Kúbanvígstöðvunum í Káka
sus hefur rauði herinn tekið !
nokkur byggðarlög.
Skídamótíd
hefst í dag
Sldðalandsmót í. S. í. hefst
í dag kl. 3 við skíðaskálann
í Hveradölum.
Fer þá fram skíðaganga
karla í A- og B- flokki, á aldr-
inum 20—32 ára og 17—19
ára.
:! Á morgun kl. 10 fer fram
svig karla, 16—35 ára, C-
flokkur, kl. 2 svig karla 16—
35 ára B- flokkur, kl. 3 svig
kvenna, k’j 4 svig karla. 16—
35 ára. Keppnin um „Slalom-
bikar“ Litla skíðafélagsins.