Þjóðviljinn - 16.03.1943, Blaðsíða 1
8. árgangur. Þriðjudagur 16. marz 1943 60. tölubl.
M I lli HÉI Hris
Raudí hefínn sækír fram á mídvígslödv-
unum, íoo km, frá Smolensk
í hernaðartilkynningu sovétstjómarinnar í gærkvöld segir
að rauði herinn hafi yfirgefið Karkoff, samkvæmt fyrirskipun
herstjórnarinnar, eftir margra daga harða bardaga.
Þjóðverjar hafa beðið gífurlegt manntjón í gagnsókninni á
Karkoff-Donetsvígstöðvunum. Er talið að þeir hafi misst 66 þús-
und hermenn og 2700 skriðdreka.
Á miðvígstöðvunum sækir rauði herinn fram, og erlendir
fréttaritaarar símuðu í gærkvöld að fjórum mikilvægum stöðv-
um í yzta varnarbelti Smolensk sé nú ógnað af sókn rauða hers-
ins.
Kússar hafa brotizt yfir Efri-Dnépr og Vjasmaána og tekið
járnbrautarbæinn Semievo, 23 km. vestur af Vjasma.
Suður af Bjeli hefur rauði her-
inn tekið 40 þoi-p, þar á meðal
allstóran bæ, 120 km. frá Smol-
ensk, og þorp eitt sem er 100 km.
frá borginni.
Suður af Vjasma sækja Rúss-
ar fram í átt til Brjansk. Þýzki
herinn er þar á undanhaldi um
skóglendi, og á mjög í vök að
verjast fyrir rússneskum skíða-
herdeildum, sem halda uppi nær
látlausum árásum.
Kvikmynd af
l. maí
Fulltruaráð verklýðsfélag-
anna í Reykjavík heldur fund
í kvöld kl. 8i/2 í Iðnó.
Sýnd veróur kvikmynd frá
1. maí 1942 og hefst sýning
hennar kl. 10. Fréttamönnum
blaða og útvarps hefur veriö
boðið að sjá kvikmynd þessa.
Samþykkt var í einu hljóði
að fara þess á leit við ríkis-
stjórnina, að hún skipi 5
manna úthlutunarnefnd.
Þá var ennfremur rætt um
hvort ekki væri hægt aö láta
aðra, sem hafa svipaöar á-
stæöur, veröa aðnjótandi
söínunarinar og samþykkt
eftirfarandi:
„Vegna þess hve vel hefur
verið vikizt viö óskum um
samskot vegna Þormóðsslyss-
ins og meö því aö ýmsir af
Suður 'af Ilmenvatni hefur
rauði herinn tekið rammlega víg
girta varnarstöð.
Franskir skæruhópar
berjast í Savoyen
Franskir skæruflokkar verj-
ast hraustlega í Savogenfjöllum,
hersveitum Vichystjórnarinnar,
og hefur verið hótað að senda
þýzkan og ítalskan her gegn
þeim ef þeir gefist ekki upp taf-
arlaust.
Flestir skæruliðanna eru her-
menn úr franska hernum, sem
hafa komizt yfir vopn úr vopna-
búrum Vichyyfirvaldanna.
Hópur skæruliða sem gafst
upp vegna matarskorts var tek-
inn til fanga og sendur til Þýzka
lands.
gefendunum hafa látið í ljós
óskir í þá átt, að fleiri, sem
líkt stendur á um og aöstand
endur þeirra, sem meö Þor-
móöi fórust, fái aö njóta
styrks iaf samskotunum, þá
lýsir fjársöfnunarnefndin yfir
því, að hún ætlast til að því
fé, sem safnazt í samskota-
sjóöinn, frá og meö 16. þ. m.
verói jöfnum höndum varið
öðrum þeim til styrktar, er
misst hafa fyrirvinnu sína af
slysförum í vetur, hérlendis“.
Vigeland látinn
Gustav Vigeland hinn frægi
norski myndhöggvari, er lát-
inn, 74 ára gamall, í Qsló.
islendingur fær norsku
stríBsorðuna
Noregskonungui’ hefur
veitt 253 sjómönnum norsku
stríðsoröuna (Krigsmedaljen)
Meðal þeirra er einn íslend-
ingur, 3 Svíar, 2 Danir 1
Finni og 1 Kínverji. Hinir eru
Norðmenn.
Verkalýður-
ínn mólmælír
Verkakvennafélagið Von á
Húsavík:
„Fundur haldinn í verkakvennafé-
laginu Von, Húsavík, 12. marz 1943,
mótmælir eindregið dýrtíðarfrum-
varpi því, sem ríkisstjómin hefur
lagt fyrir Alþingi og skorar á Al-
þingi að gera frumvarpið ekki að
lögum.“
Bifreiðastjórafélagið Hreyfill.
„Fundur í Bifreiðastjórafélaginu
Hreyfill, lialdinn 9. marz 1943, mót-
mælir eindregið frumvarpi ríkis-
stjórnar á Alþingi um skerðingu á
verðlagsuppbót verkafólks, og skor-
ar á Alþingi að fella þá tillögu nið- >
ur úr frumvarpi ríkisstjórnarinnar
um dýrtíðarráðstafanir.“
Verkamannafélag Reyðar-
fjarðar:
„Fundur i Verkamannafélagi Reyð
arfjarðar, 7. marz 1943, mótmælir
eindregið skerðingu á verðlagsupp-
bót verkafólks og annarra launþega,
sem fellst í frumvarpi til laga um
dýrtíðarráðstafanir, lagt fyrir Al-
þingi af ríkisstjórninni.
Skorar fundurinn á Alþingi að
leysa dýrtíðarmálin á grundvelli á-
lyktana 17. þings Alþýðusambands
ins í dýrtíðarmálunum.“
Aðalfundur
Berklavarnar
Aðalfundur félagsins
Berklavörn var haldinn mið-
viltudaginn 3. marz.
Þrír menn úr fráíarandi
stjórn báðust undan endur-
kosningu, þar sem þeir höfðu
verið' kosnir í miðstjórn Sam-
Framhald á '4. síðu.
Tilkynníng frá fjársöfnunarnefnd
þormóðssamskotanna
Þeir, sem undirrituðu áskorunina um Þormóössöfnuii
ina komu saman á fund í dómkirkjunni í gær kl. 6, til
að ræða um hvernig fé því, Sem safnazt hefur skuli út-
hlutað.
■ iJ». «n»»jreT--*
Fulltrúi sósíaldemókrata í de Gaulle-stjórninni
býður fulltrúa kommúnista velkominn.
Viðtal við Grenier: 10 þúsund af með-
limum Kommúnistaflokksins franska hafa verið
skotnir eða „dáið“ í fangelsum. 50 þúsund flokks-
félagar sitja í dýflissum.
Þjóðviljinn sagði nýlega frá því að Grenier, fulltrúi franska
Kommúnistaflokksins, hefði komið til London og tekið sæti í
stjórnamefnd hinna stríðandi Frakka.
í tilefni af þessu birtir hlaðið „France“, sem kemur út í
London svohljóðandi yfirlýsingu frá Felix Gouin, formanni þing-
flokks frönsku sósíalidemokratanna og fulltrúa franska sósíal-
demokrataflokksins hjá de Gaule:
„Mér er mikil ánægja aö
því aö frétta aö starfsbróö'ir
minn, Fernand Grenier, er
kominn til Englánds, til þess
að vera fulltrúi hjá de Gaulle
fyrir samtök kommúnista.
sem taka þátt í varnarbar-
áttu Frakklands af svo mik-
illi hreysti. Mér er ánægja aö
því aö geta, í nafni allra sam-
taka, sem halda áfram barátt
unni í Frakklandi fyrir sömu
hugsjón, boöið Grenier vel-
kominn sem einhvern færasta
fulltrúa, sem hinir aödáunar-
veröu verkamenn Parísar á-
samt öllum verkalýö Frakk-
liands gátu safnaö undir fána
hins stríöandi Frakklands,, til
þess aö frelsa fööurlandið',
brjóta fasismann á bak aftur
og koma aftur á lýðveldi.
Koma Greniers, til viðbótar
viö fulltrúa annarra flokka,
sem komnir eru, sannar hve
sterk eining og eindrægni er
meö öllum fööurlandsvinum
sem nú skipa sér um de
Gaulle hershöföingja til þess
Framhald á 4. síðu.
Sovéfsöfnunín
Á síðustu helgi höfðu safnazt 63’ 2 þús. kr.
Síðastliðið laugardagskvöld hafði safnazt til Rauða
lcross Sovétríkjanna, sem hér segir:
í Reykjavík 48,648,91 kr.
A Akureyri 10,200,00 —
— Sauðárkrók 1,100,00 —
— Svalbarðseyri 580 00 —
í Borgarnesi 3,000,00 —
Samtals 63 528,91 —
EM biiir öe iuile lll riltti
Lög Vichystjórnarinnar víkja fyrir lögum lýðveldisins
Útvarpið í Alsier flutti í gærkvöld yfirlýsingu frá Giraud
liershöfðingja, yfirmanni frönsku herjanna í Norður- og Vestur-
Afríku, þar sem hann kveðst reiðubúinn til fundar við de Gaulle,
leiðtoga Striðandi Frakka, í því skyni að koma á fullkominni
einingu allra þeirra Frakka, sem berjast fyrir frelsi landsins.
Yfirlýsingin var stíluð til
Catroux. hershöfðingja, en hann
hefur verið fulltrúi Stríðandi
Frakka hjá stjórnarnefnd Gir-
aUds frá því að Casablanca-ráð-
stefnan var haldin.
Giraud liershöfðingi flutti
ræðu á sunnudaginn og lýsti yf-
ir því, að öll lög og tilskipanir
Vichystjórnariimar væru num-
in úr gildi í Norður- og Vestur-
Afríku, og gildi framvegis í
þeirra stað lög franska lýðveld-
isins.
de Gaulle hefur lokið lofsorði
á ræðu Girauds og talið að með
henni hafi stjórnarstefnan 1
frönsku Afríkunýlendunum
færzt að mun nær stefnu hinna
Stríðandi Frakka.