Þjóðviljinn - 16.03.1943, Blaðsíða 2
2
ÞJÖÐV1L3IHH
Þriðjudagur 16. marz 1943
oBomck -pósUvvi'nn
éraðssaga
Dalasýsla
Svart ullarcrepe,
Blátt cheviot,
Svart peysufataklæði.
Vcrzlun H. Toff
Skólavörðustíg 5.
Sími 1035.
CH3í2nH3nfnH3J3nH2í2
>0000000000000000
Daglega
nýsodin svíð. Ný cgg,
sodín og hrá.
Kaffísalati
Hafuarstræti 16.
£H2£H2J2£H2£HtH2J2J3
Gullmunir
handunnir — vandaðir
Steinhringar, plötuhringar
o. m. fl.
Trúlofunarhringar
alltaf fyrirliggjandi.
Aðalbjöm Pétursson,
gullsm., Hverfisgötu 90.
Slmi (fyrst um sinn) 4003.
cöannnöaaiajaæsan
0l2£(ni222i2i2)2i2CSa
Monið
Kafflsdluna
Hafnarsfræfi 16
CH2J2CH2'CH2nH2CH2a
„Friðhelgi heimilanna
vernduð“.
Þeir, sem búa í búningsklefum á
íþróttavellinum, þeir, sem búa i
kjallaraholum, þeir, sem búa í hana-
bjálkakompunum, þeir, sem búa í
sumarbústöðum, sem bærinn hefur
bannað að gera íbúðarhæfa, og þeir,
sem hafa orðið að sundra fjölskyldT
um sínum, vegna húsnæðisleysis geta
lesið þann fagnaðarboðskap á átt-
undu síðu Morgublaðsins frá föstu-
deginum 12. marz 1942, að friðhelgi
heimilisins verið vemdað.
Hvílíkur fagnaðarboðskapur! Og
hvemig var þessu til leiðar komið?
Það var gert með því að fella úr
frumvarpi því um húsaleigu, sem nú
liggur fyrir Alþingi, ákvæðin sem
heimila skömmtun húsnæðis, það
var gert samkvæmt tillögu Jónasar
Jónssonar, hann er hinn mikli frels-
ari, sem flutti Morgunblaðinu fagn-
aðarerindið um „friðhelgi heimil-
anna“. Postular hans eru Magnús
Jónsson og Pétur Magnússon, þing-
menn Reykjavíkur, Gísli Jónsson,
Eiríkur Einarsson, Bernhard Stefáns
son, Ingvar Pálmason, Lárus Jó-
hannesson, Þorsteinn Þorsteinsson.
Borgarstjórinn okkar Reykvíkinga
stóð tvíráður og hikandi þegar Jón-
as valdi postula sína, hjarta hans
þráði Jónas, það vildi slá öll sín slög
í þrotlausri baráttu fyrir „heimilis-
friðhelgi“ Jónasar og postula hans,
en heili hans heyrði rödd múgsin's,
hrópa: „Hefnd vor kemur yfir þig
og flokk þinn eí þú dirfist að berj-
ast gegn því að húsvilltir fái húsa-
skjól.“
Og heili og hjarta borgarstjórans
urðu ósátt — höndin greiddi ekki at- i
kvæði. — Mikill er borgarstjóri
Reykvíkinga.
Til Nóa.
í síðasta blaði Þjóðólfs er grein
eftir Nóa gamla, sem hann nefnir:
„Stalín ég þakka þér.“
Nafnið á höfundinum bendir til að
greinin sé eftir sjálfan höfuðpaurinn
eða æltföðurinn að flokki þcirra
Þjóðveldismanna.
Nói kvartar sáran undan því að
drengirnir sem skrifa í Þjóðviljann
kalli Þjóðveldismenn óþjóðalýð,
eða einfeldninga.
Eg ætla nú að gera þá athugasemd
strax, að ég hafi nú um skeið lesið
flest öll blöð Þjóðviljans, en aldrei
rekizt á þessi ummæli um Þjóðveld-
ismenn.
Þessar dylgjur Nóa gamla hljóta
því að koma af því hvað þessi heil-
agi Jóseppur þeirra Þjóðveldis-
manna er naskur á að ráða drauma
flokksbræðra sinna eða að hann sé
orðinn svo innlifaður skírarastarfinu
að allt verði ósjálfrátt að spádómum
í höndum hans. Sérstaklega virðast
áhrif Þjóðviljans fylla hann anda-
gift.
Nói talar um að bezt gangi fram
í þessum ósköpum sveitastauli einn,
sem sé að reyna að verða skáld, en
vegna þess hve gáfurnar séu tregar
gagni það heldur illa.
Helzt virðist að Nói dragi þá álykl-
un, að af því að þetta skáld er sveita
maður, þá hljóti honum að ganga
illa og vera treggáíaður. En ég ætla
að benda Nóa á það, að flest beztu
skáldin okkar, og yíirleitt flestir
mestu menn þjóðarinnar fyrr og síð-
ar, hafa einmitt verið sveitamenn.
Og ég held að þeim hafi engum þótt
vanvirða að því
Þvert á móti hafa skáldin sem eru
upprunnin úr sveitunum undantekn-
ingarlaust sungið lof því umhverfi
sem þeir voru vaxnir upp úr.'
Og það er meira en hægt er að
segja um margt af því fólki sem nú
flyzt að sjónum . úr sveitunum, og
þar á meðal kannski Nóa gamla. Það
er ekki fyrr stigið ofan í drullupoll
Reykvískrar yfirborðsmennsku, en
það er farið að dingla rassinum í
dýrðina yfir því að fylgja tízkunni
í því að svívirða allt, sem sveitunum
við kemur, bæði menn og málefni.
En ég vona að skáldið hans Nóa sé
ekki í þeim hóp, og finnst það frek-
ar meðmæli með því að hann er
sveitamaður en hitt.
En svo kemst Nói að þeirri kát-
legu niðurstöðu, að af því að skáld-
ið segi svona voða ljótt um Þjóð-
veldismenn, þá sé það ekki eins og
aðrir menh.
Eg hef ekkert vit á skáldskap, en
ég held samt að það sé einmitt það
sem gerir skáldin að skáldum, að
þau fari sínar eigin götur, hermi ekki
allt eftir öðrum. Að öðru leyti er
það nú svo með þessar mannverur,
það eru víst engar tvær manneskj-
ur alveg eins, hvorki i sjón eða raun,
og fjölbreytnin því eins mikil og
mennirnir eru margir. Svo mér
finnst það varla geta heitið neitt sér-
kennilegt við þetta skáld, þó það sé
kannski ekki alveg eins og Nói gamli
og ég held jafnvel að það megi í
sannleika þakka guði fyrir.
Svo endar Nói með gamla jórtrinu,
að kommúnistar trúi ekki á guð, held
ur Stalín.
Og úr því að það er nú svo oft
ælt og tuggið á þessu og öðru því
líku, þá dettur mér í hug að verið
geti, að það sé nú einmitl m'arkmið
og stefna Þjóðólfs að kenna mönn-
um að jórtra. Og sé þetta svo, þá
finnst mér Reykvíkingar heldur litl-
ir námsmenn ef þetta gengur ekki
fljótt af, því ekki vantar viðleitnina
við kennsluna.
Eg held að í Rússlandi sé algert
trúarbragðafrelsi, ekki síður en hér
á íslandi. En Rússar hafa gert ann-
að, sem ekki hefur verið gert hér,
og hvergi annarsstaðar. Þeir hafa
reynt að samræma stjórnarkerfi sitt
við kenningar kirkjunnar, og þarmeð
innleitt trúarlíf sem er framkvæmt
í verki, en ekki aðeins með vörunum
eins og hér, og sem fólkið er svo
neytt til að lifa gagnstætt, undir eins
og kirkjuhurðin lokast að baki þess.
Þessvegna held ég að Nói gamli ætti
Breiðfirðingafélagið í Reykja-
vík samþykkti á fundi, sem hald
inn var í desember s.l., að gang-
ast fyrir að láta rita og gefa út
héraðssögu Dalasýslu. Þegar fé-
lag þetta var stofnað, var mark-
mið þess m. a. að beita sér fyrir
ritun og útgáfu héraðssögu
. Breiðaf jarðar. Nú kann sumum
að virðast Dalasýsla sett skör
framar öðrum sveitum Breiða-
fjarðar, þar eð félagið byrjar á
að láta rita sögu hennar, en svo
| er ekki.
I í Rvík er starfandi Vestfirð-
ingafélag. Það hefur nu þegar
hafið undirbúning að útgáfu
á héraðssögu Vestfjarða, og er
ætlunin að það verði saga allra
Vestfjarða suður að sýslumörk-
um Dalasýslu, og nái m. a. yfir
Barðaströndina og eyjarnar,
•sem henni fylgja, en félag Snæ-
fellinga í Rvík hefur tekið sér
fyrir hendur að láta rita héraðs-
sögu Snæfellsness. Undirbúning
ur er því hafinn að söguritun
allra héraðanna, sem Breiðfirð-
ingafélagið nær til, nema Dala-
sýslu.
Félaginu þótti þessvegna tíma
bært að hefjast handa og sam-
þykkti að gangast fyrir útgáfu
á héraðssögu Dalasýslu og kaus
undirritaða þriggja manna
nefnd til Þess að annast fram-
kvæmdir í málinu ásamt stjórn
félagsins. Nefndin hefur haldið
nokkra fundi og lagt, í stórum
dráttum, drög að útgáfu héraðs-
sögunnar.
Ákveðið hefur verið að hafa
höfuðþætti ritsins þrjá:
1. Almenn saga ásamt menn-
ingarsögu héraðsins frá land-
námstíð til vorra daga, og verð-
ur það aðalhluti ritsins.
2 Jarðfræði, náttúrufræði og
þróunarsaga héraðsins á sama
tíma.
3. Bókmenntasaga.
Nefndin hefur hugsað sér, að
ritið verði í heild 7—8 bindi og
komi út á 1—2 ára fresti. Hinir
hæfustu, sérfróðir menn verða
fengnir til að rita söguna, og
hefur nefndin þegar rætt við
nokkra þeirra í þessu sambandi
og fengið góðar undirtektir.'
Ræddir hafa verið möguleikar á
að safna öllum þeim alþýðufróð-
að athuga vel sitt eigið trúarlíf og
sinna flokksmanna, áður en hann fer
að bera kommúnistum trúleysi á
brýn.
Kommúnistar eru þó eini flokkur-
inn hér á landi, sem vilja endur-
skipulcggja þjóðskipulagið hér í stað
þess að vera að halda við gömlu
klastri, sem þróun síðustu ára er
búin að gera fullt af ranglæti og lýgi,
og sem er á hraðri leið með að gera
aldarandann að hreinustu villu-
mennsku.
En umfram allt, Nói góður, kynntu
fyrir lesendum Þjóðólfs skáldið. Það
væri gaman að hafa tal af því.
Og úr því þú getur svona undir
eins lesið á milli línanna hjá því,
kannske heila eilífð úr framtíðarsögu
Þjóðveldismanna, þá ættir þú, Nói„
að gera allt sem þú getur tii að upp-
örva það og uppiýsa þess tregu gáf-
ur,, því hver veit nema þú þannig
getir kraflað upp einhvern slatta af
framtíðarsögu heimsins og orðið
þeimsfrægur skírari.
leik. fornum og nýjum, þjóðsög-
um og öðru, sem kann að vera
til í héraðinu og gefa það út í
sambandi við héraðssöguna.
Nefndin mun leita til manna
heima í héraðinu um aðstoð við
að safna slíkum fróðleik og að
safna fé til útgáfunnar.
Um það eru vart skiptar skoð
anir, að útgáfa þessarar héraðs-
sögu sé tímabært mál. Dalasýsla
stendur sízt að baki öðrum hér-
uðum að sögulegum fróðleik.
Hún hefur fóstrað hina merk-
ustu menn, svo sem Árna Magn
ússon, Guðbrand Vigfússon, há-
skólakennara í Oxford, Bjarna
Jónsson frá Vogi, svo að fáir
einir séu nefndir.
Það er von okkar, sem stönd-
um að þessari útgáfu, að hún
takist sem bezt og verði bæði
sönn lýsing og merk á lífi og
starfi og umhverfi þeirra kyn-
slóða, sem lifað hafa og starfað
í landnámi Auðar Djúpúðgu og
Geirmundar Heljarskinns. Við
heitum því á alla, sem áhuga
hafa fyrir þessu máli, að ljá
nefndinni liðsinni. Allur fjár-
hagslegur stuðningur er vel þeg
inn, ennfremur er okkur mikill
greiði gerður, ef einhverjir, sem
eiga í fórum sínum ritaðan fróð-
leik úr Dölum vestur eða hafa
tækifæri til þess að rita slíkt
upp, vildu senda einhverjum
úr nefndinni það. Þá væri vel, ef
menn hafa einhverjar sérstak-
ar tillögur um fyrirkomulag út-
gáfunnar, að þeir sendi nefnd-
inni þær sem allra fyrst.
Nefndin mun síðar birta ná-
kvæma áætlun um skipulag út-
gáfunnar.
Reykjavík í janúar 1943.
Jón Emil Guðjónss., Tjarnarg 48
Guðbjöm Jakobss., Tjarnarg 26
Jón Sigtryggsson, Garðastr. 36.
Tíu brunaverðir
ráðnir
Á fundi brunamálanefnd-
ar voru eftirtaldir menn ráð'n
ir í brunavarðastöður. :
Kristinn Olafsson Hring-
braut 52
Jóhann Hannesson Loka-
stíg 9.
Guömundur Karlsson Berg-
staðastræti 19.
Leó Sveinsson Laugarnes-
veg’ 77.
Sveinn M. H. Ólai'sson
Hringbraut 50.
Sigurbjörn Marípsson Sól-
vallagötu 60.
Svavar Sigurðsson Hverf-
isgötu 53.
Óskar Dagbjartur Olafsson
Túngötu 30.
Finnur Richer Asvallag. 39.
Sigurgeir Benediktsson
Skeggjagötu 12.
ooooooooooooooooo
Útbreiðið
pjóðviljann
Tilboð
óskast í vörubirgðir þrotabús Guðm. Þ. Þórðarsonar
stórkaupmanns, Griindarstíg 11, fyrir 1. apríl n.k.
í skrifstofu lögmanns í Arnarhvoli geta menn feng-
ið að sjá skrá yfir vörurnar og skoðað þær eftir sam-
komulagi.
Áskilinn er réttur til að hafna öllum tilboðum.
Skiptaráðandinn í Reykjavík.
Skiptafundir
í neðangreindum þrotabúum verða haldnirí bæjarþing
stofunni í Reykjavík n.k. föstudag svo sem hér segir:
Kl. IOV2 f. hád. í þrotabúi firmans Perlubúðin.
Kl. 11 f. h. í þrotabúi firmans Sportvörugerðin.
Kl. IIV2 f. hád. í þrotabúi firmans Windsor Magasin.
Á fundunum verður gerð grein fyrir eignum búanna
og tekin ákvörðun um meðíerð þeirra.
Skiptaráðandinn í Reykjavík, 13. marz 1943.
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
settur.
Borgari.