Þjóðviljinn - 27.03.1943, Page 1
8. árgangur.
Laugardagur 27. marz 1943.
70. tölublað.
fllP llF H KflV í NlSflNF
Bæjarráð lætur fara fram athugun á hvort ekki sé æskilegt og framkvæmaniegt að
bærinn eignist þær. — Sérstök skipulagsnefnd fyrir Reykjavík
Á fundi bæjaráðs í gær voru samþykktar einum rómi tvær
tillögur frá Sigfúsi Sigurhjartarsyni varðandi skipulagsmál
bæjarins og eignaryfirráð yfir lóðum og lendum í lögsagnar-
umdæminu. Tillögurnar fara hér á eftir:
Bæjarráð ákveður, að láta fara fram athugun á, hvort ekki
sé æskilegt og framkvæmanlegt, að bærinn eignist allar lóðir
og lendur innan lögsagnarumdæmisins.
Athugun þessi skal einkum beinast að eftirtöldum atriðum:
1) Hvert sé fasteignamatsverð og stærð eignarlóða og lendna
í bæjarlandinu, og hversu miklu nemi árlegar skatttekjur bæjar-
ins af þeim. '•
2) Hvað matsverð þeirra muni verða, ef þær væru metnar til
eignamáms nú.
3) Hve mikil árleg útgjöld bæjarins myndu verða af að kaupa
þessar lóðir og lendiu-, ef þær væru borgaðar með 40—50 ára
skuldabréfum með venjulegum kjörum.
4) Hve miklar leigutekjur bæjarins mundu verða af þessum
eignum.
5) Hvort skipulagning og endurbygging bæjarins mundi ekki
verða stórum auðveldari, ef bærinn ætti allt land innan lög-
sagnammdæmisins.
6) Hvort ekki væri rétt, að bærinn færi þess á leit við Alþingi
að setja lög, er heimili honum eignamám á öllum lóðum og
lendum innan lögsagnarumdæmisins og að greiða andvirði með
40—50 ára bæjarskuldabréfum.
Bæjarráð ákveður að láta fara fram athugun á hvort ekki
myndi rétt að leitast við að fá lögum um skipulag kauptúna og
sjávarþorpa breytt, í það horf, að Reykjavíkurbær fái sérstaka
skipulagsnefnd, er ekki hafi skipulag annarra bæja eða þorpa
með höndum, og hafi hún endanlegt ákvörðunarvald í skipu-
lagsmálum bæjarins.
Skipulags- og byggingarmál
bæjarins eru, sem kunnugt er í
hinu mesta ófremdarástandi.
Það, sem mest stendur í vegi
umbóta í þessu efni er annars
vegar sjálft fyrirkomulag skipu
lagsmálanna og hinsvegar einka
eignarrétturinn á miklum hluta
lóða og lenda bæjarins. Sam-
kvæmt ofangreindum tillögum
mun nú fara fram ýtarleg at-
hugun á hvernig úr þessu verði
bætt og er þess að vænta, að sú
athugun leiði til giftusamlegrar
niðurstöðu.
HÖTEL HEKLA
Engar breytingar verða
leyfðar á húsinu. Það á
að víkja af skipulags-
ástæðum
Byggingamálanefnd hefur
beint því til bæjárráðs, hvort
ekki mundi rétt að bærinn kaupi
Hótel Heklu til niðurrifs. Bæjar-
ráð hefur enga afstöðu tekið til
málsins, en fullvíst er, að bær-
inn mun ekki leyfa breytingar
né endurbætur á húsinu, því það
verður að víkja aí 'skipulags-
ástæðum sem fyrst.
Fimm umsækjendur um
forstjðrastarfið viO sund-
Rauði herinn 50 km. fra Smolensk
Harðir bardagarlvið Tsúgúeff og Bjelgorod
Fremstu sveitir rauða hersins eru nú 50 km. norðaustur af
Smolensk, segir í fréttastofufregn frá Moskva í gærkvöld.
Sókn Rússa frá Bjeli og vestur með járnbrautinni frá Vjasma
heldur áfram, og hafa þeir tekið nokkur þorp og byggðalög. Vörn
Þjóðverja er mjög hörð
1. mai kvikmynd
verklýðsfélaganna
Æskulýðsfylkingin í Rvík
iieldur skemmtifund að
Amtmannsstíg 4 í kvöid.
Einar Olgeirsson flytur er-
indi.
Jón Óskar les upp.
Kvikmynd frá 1. maí há-
tíðahöldum verkalýðsfélag-
anna 1942.
Þetta er í fyrsta sinn, sem
kvikmynd þessi er sýnd og
munu fleiri vilja sjá hana en
að komast í hinu takmarkaða
húsnæði, er félagið nú hefur
yfir að ráða. — Aðgöngumið-
ar fást á afgreiðslu Þjóðvilj-
ans, Austurstræti 12.
Telpurnar fundnar
Telpurnar, sein leitað liefur
verið. að undanfarna daga, eru
nú fundnar. Fundust þær í
kjallara í hálfbyggðum sumar-
bústað í Fossvogi.
Á Donetsvígstöðvunum gerði
þýzki herinn í gær harðar árásir,
einkum á Tsúgúeff og Bjelgorod
svæðunum, en þeim var hrund-
ið.
Rauði herinn hefur unnið
nokkuð á í Vestur-Kákasus og
minnkar stöðugt landsvæði það
er Þjóðverjar hafa þar á valdi
sínu. Þessa viku hafa 60 þýzkar
flugvélar verði skotnar niður á
Kúbanvígstöðvunum.
Otboð á viðbót við
Sogsstöðina
Bæjarráð hefur samþykkt að
láta fara fram almennt útboð á
byggingarvinnu við fyrirhugaða
stækkun á Sogsstöðinni.
Arngrímur Kristjánsson
fær 1 x/ árs frí með full-
um launum
Samkvæmt tillögu skólanefnd-
ar hefur bæjarráð fallizt á að
leggja til, að bæjarstjörn veiti
Arngrími Kristjánssyni skóla-
stjóra frí frá störfum í IVz ár,
með fullum launum.
í
■
Stöðvast útflufníngur á nýjum físbí, með
íslenzkum skípum, tíl
Að undanförnu hafa borizt fregnir með fiskikaupskipum, sem
siglt hafa með ísvarinn fisk til Englands, um að Bretar hafi á-
kveðið að lækka fiskverðið á hinum frjálsa markaði þar um
ca 15%. Fregnir þessar munu vera réttar og eru fyrstu afleið-
inga þessarar ákvörðunar þegar komnar fram í því að Færey-
ingar, sem keypt hafa mikinn fisk hér á landi og flutt hann til
Englands, hafa ákveðið að hætta siglingum, nema verðinu yrði
aftur breytt. Allmörg íslenzk skip hafa einnig flutt út bátafisk
og má telja víst að þau verði einnig að hætta af sömu ástæðum.
Fjölda margar veiðistöðvar hafa flutt út allan sinn afla með
skipum þessum, þar sem hin stóru flutningaskip matvælaráðu-
neytisins brezka. hafa ekki getað tekið nema lítið af þeim afla
sem veiðist og ennfremur koma aldrei á ýmsa helztu veiði-
staðina.
Umsóknarfrestur um forstjóra
starfið við sundhöllina var út-
runninn í gær. Umsækjendur
eru þessir:
Erlingur Pálsson,
Sigríður Sigurjónsdóttir,
Viggó Natanelsson,
Helg'i Jóhannesson og
Jóh. Kr. Jóhannesson.
Kosið verður um þessa um-
sækjendur á bæjarstjórnarfundi
á fimmtudaginn kemur.
Nú er svo komið’ í nokkrum
veið'istöðvum, að þrátt fyrir
gífurlegan afla, hafa bátarnir
ekki róið, þar sem ekkert er
hægt við veiðina aö gera. Þó
menn vilji grípa til þess aö
salta þá, vantar víða salt og
margt annáð, sem óhjákvæmx
legt er við fisksöltun, enda
hefði sízt komið til hugar aö
slíkt ger'ðist, á meöan fisk-
sölusamningurinn er í fullu
gildi.
Verðlækkun þessi er vægast
sagt mjög kynleg og erfitt er
áðl samrýma hana fisksamn-
ingi okkar viö Breta, sem gild
ir fram í júní í sumar. Þó aö
hvergi hafi veriö ákveðið í
þeim samningi, aö hið frjálsa
markaösverð úti, serfi ís-
lenzku og færeysku fiski-
kaupaskipin og togararnir
áttu áö selja fiskinn á, mætti
ekki lækka, þá lá í hlutarins
eöli, laö um leiö og ákveöiö
var að skip þessi skyldu gefa
45 aura fyrir kg. af fiskinum
hér, þá varö skipáö markaös-
verö' úti aö haldast, annars
mundu þau ekki geta annazt
flutningana.
Verölækkun þessi skýtur ekki
síöur skökku viö, þegar tekiö
er tillit til þess, að flestar
þær erlendar vörur, sem fisk-
framleiösla okkar byggist á,
hafa stórhækkaö í veröi, frá
því aö fisksölusamningurinn
var geröur s. 1. sumar. Þannig
hafa t. d. stórhækkaö í ver'öi:
olíur, veiöarfæri öíi, vélar í
fiskibáta, efniviöur til endur-
nýjunar og viðhalds\fiskiskip-
um o. fl. o. fl. Allir útgerðar-
menn og sjómenn höföu eöli-
lega búizt vió verðhækkun en
ekki verölækkun á fiskinum
og þaö hlýtur a'ö veröa ófrá-
víkjanleg krafa okkar, viö
fisksölusamningana er nú
munu fara aö hefjast.
Þá er verölækkun þessi einn
ig furöuleg, þegar þess ev
gætt, aö hún hlýtur aö leiöa
til þess áö útflutningur á nýj-
um fiski minnkar til muna og
útgeröin neyöist til þess að
taka upp fisksölm’ eftir því,
sem við er hægt aö koma.
Bretar hafa hingaö til fyrst
og fremst óskaö eftir nýjum
fiski, en ekki söltuðxxm og upp
á síökastiö hefur ósjaldan ver-
iö kvartaö undan því í Eng-
Framhald á 4. síöu.
t